Morgunblaðið - 24.01.1971, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1971 13
LÍÐUR -1971
... og þarfirnar breytast. Fjölskyldan stœkkar eða minnkar —
aðstœður breytast og íbúð sem eitt sinn bentaði vel, svarar
ekki lengur breyttum þörfum. Kaup - sala og skipti fasteigna
eru okkar viðfangsefni. Hafið samband við okkur ef þér hyggið
á breytingu - kaup eða sölu
Kaupendur:
Hringið eða lítið inn og fáið hina ómissandi
söluskrá okkar.
Daglega fáum við nýjar fasteignir í sölu, þ. á
m. fasteignir, sem ekki eru annars staðar á
söluskrá.
Ökum með yður á staðinn ef þér óskið.
Leiðbeinum yður eftir föngum og eftir því sem
tilefni gefst til.
ÍBÚDiR VIÐ VESTURBERG
— Glæsilegf útsýni —
Á MORGUN OG NÆSTU DAGA SELJUM VIÐ
4ra herb. 106 fm blokkaríbúðir við Vestur-
berg í Breiðholti III sem er einhver glæsi-
legasti útsýnisstaður borgarinnar.
Nánar tiltekið er hver íbúð rúmgóður skáli
(fyrir sjónvarp o. fl.), eldhús með góðum
borðkrók, mjög rúmgott baðherbergi, þar
sem lagt verður fyrir sjálfvirkum þvottavél-
um. Svefnherbergi hjóna, 2 rúmgóð barna-
herbergi, borðstofa og dagstofa.
íbúðir þessar seljast tilbúnar undir tréverk
með sameign full frágenginni, t. d. dyrasími
og teppi á stigum.
Traustur byggingaraðili. Vekjum athygli á
hagstæðu verði sem er 1165 þúsund kr.
Beðið verður eftir húsn.st.láni 600 þús. kr.
Afhendast í október næstkomandi.
Ath. að umsóknarfrestur um húsnæðismála-
stjórnarlán er til 1. febrúar n.k. fyrir lán
á þessu ári.
ALLIR Fasteignaþjónusfan
Austurstræti 17 (Silli & Valdi).
Símar: 26600 — 26601 — 26602 — 26666
Ragnar Tómasson hdl.
Sala:
Stefán J. Richter sölustjóri,
Kári Fanndal,
Þorsteinn Steingrímsson.
þurfa þak
yfir höfuðið
Seljendur:
Aðstoðum yður við verðmat fasteignar. Með
auglýsingum, útgáfu söluskrár, vel staðsettri
skrifstofu, góðri þjónustu, þjálfuðu starfsliði
o. s. frv. reynum við að selja fasteign yðar
fljótt og vel.
Hringið eða lítið inn og fáið hina ómissandi
söluskrá okkar.