Morgunblaðið - 25.03.1971, Síða 10

Morgunblaðið - 25.03.1971, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1971 Litið inn á handbókasýningu í Norræna husinu MIKIL aðsókn hefur verið að Norrænu liandbókasýningunni sem stendur yfir í Norræna húsinu um þessar mundir, Þar getur að lita tólf hundruð títla frá fjölmörg- um forlögum íslenzkum og frá hinum Norðurlöndunum. Þegar fréttamaður Mbl. leit inn í Norræna húsið í gær var mikill fjöldi gesta að blaða í handbókunum; þar voru nemendur úr bekk í Hagaskóia ásamt kennara sín um, stúdentar, kennarar o. m. fl. Hagaskólanemendurnir voru að fylgjast með litskugga- myndasýningu þar sem veitt ar voru leiðbeiningar í sauma skap og síðan kom smávegis kynfræðsla. Áhugi nemend- anna virtist ósvikinn og eftir að hafa horft á litskugga- myndirnar var tekið að fletta bókum, þar sem efninu voru gerð ítarleg skil. Else Mie Sigurðsson, bóka- vörður sagði að gestir sem hefðu komið á sýninguna hefðu sýnt einna mestan á- huga á handbókum um tóm- stundaiðju hvers konar, við gerðir af ýmsu tagi og búnað Frá bókasýningunni: Fjölmargir gestir hafa sótt hana síðan hún var opnuð á sunnudaginn sumarbústaða. Einnig sæktu menn mjög í að kynna sér þau fjölmörgu alfræðiorða- söfn, sem þarna eru á boð- stólum. Hún sagði að áber- andi mikið kæmi af skóla- nemendum og kennurum, en raunar virtust gestir vera af öllum stéttum. Norræna hús- ið hefur haft á prjónunum á- form um þessa handbókasýn ingu undanfarið hálft ár og mikla undirbúningsvinnu varð að inna af höndum, áð- ur en allt var komið í kring. Þetta er þriðja bókasýningin í húsinu, sú fyrsta var 1968 og þá sýndar norrænar bæk- ur sem höfðu komið út það ár, bókakiljusýning var síð an árið eftir og mæltust báð ar prýðisvel fyrir að sögn bókavarðarins. Á sýningunni eru bækur frá 55 erlendum bókaforlög- um á hinum Norðurlöndun- um og 27 íslenzkir aðilar hafa látið bækur þangað. — Allar eru þær gjafir til húss ins. Svo sem geta má nærri þar sem tólf hundruð bækur eru, kennir þarna ýmissa grasa og má nánast segja að fjallað sé um allt milli him- ins og jarðar. Eskeland, for- stjóri, segir t.d. í formála sýningarskrár: „Það úir og grúir af hand- bókum um allra handa efni — allt frá bókinni um bátinn til bókarinnar um handbók- ina. Við finnum handbækur handa mjög takmörkuðum hópum með óvenjuleg og ein skorðuð áhugamál og frí- stundaverkefni og síðan allar götur upp í handbækur handa svo að segja öllum lif andi sálum, til dæmis síma skrána . . . Handbókin í formi ódýrrar pappírskilju hefur náð geysilegri út- breiðslu og er nú langsam- lega algengasta og út- breiddasta bókmenntategund- in, ef nota má það orð, í bókaheiminum eða bókaiðn- . 1 >t*S 'i i, aðinum í flestum löndum heims. Norræna húsið vill með þessari sýningu gefa hugmynd um það framboð handbóka, sem verið hefur á Norðurlöndum á allra síð- ustu árum“. Sýningin verður opin a.m.k. Litskrúðugar leiðbeininga- bækur af öllu tagi eru á sýningunni næstu þrjár vikur og kvaðst bókavörður vera þeirrar skoð unar að ekki dygði skemmri tími til að sýningin kæmi að verulegum notum og sem flestir gætu sótt hana sem hug hafa á. Sumir koma líka aftur og aftur, enda eru handbækur ekki ætlaðar til þess, að menn lesi þær í einni lotu — spjaldanna á milli —• og leggi þær síðan frá sér í bókaskápinn, sælir og ánægðir yfir því að hafa nú innbyrt feiknin öll af nýrri vizku og þekkingu. Til handbókanna er leitað í öðru skyni, þegar lesandinn er á höttum eftir staðgóðum upp- lýsingum um menn eða mál- efni, ártal, sem hefur vafizt fyrir okkur eina stund. 512 millj. kr. heildarvelta - Osta- og smjörsölunnar 1970 Arið 1971: Raforkuframkvæmd- ir fyrir 1.365 millj. kr. Hlutur Landsvirkjunar 810 millj. veitna ríkisins, þannig að sam- tals eru á framkvæmdaáætlun lán að upphæð 90 m. kr. til fram kvæmda á þeirra vegum. — Á framkvæmdaáætlun er lán til Laxárvirkjunar að upphæð 108 m. kr. Að meðtöldu öðru hand bæru fé Laxárvirkj unar gætu framkvæmdir numið 136 m. kr. Fjármunamyndun Rafmagns- veitu Reykjavíkur er áætluð 142 m. kr. og fjármunamyndun rafmagnsveitna annarra sveitar félaga um 55 m. kr. Áætlað er að virkjunarrannsóknir aðrar en þær, sem eru á vegum Lands- virkjunar, nemi 39 m. kr. Til þessara rannsókna er veitt 20 m. kr. lán á framkvæmdaáætl- un, en á fjárlögum eru um 19 m. kr. til virkjunarrannsókna. Þessar upplýsingar koma fram i skýrslu fjármálaráðherra um framkvæmda- og fjáröflunaráætl un fyrir 1971, sem lögð var fram á Alþingi á fimmtudag. ÁRSFUNDUR Osta- og Smjör- södunnar s.tf. var haldinn í Sam- bandshúsinu við Söllvhölsgötu í Reykjavlk fimmtudaginn 18. þ.m. Formaður stjórnar, Erlendur Einarsson, tforstjóri, setti fund- inn og stjórnaði honum. Óskar H. Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri, fluitti sikýrslu um starfsemi fyrirtækisins á liðmu ári og laigði fram og skýrði end- urskoðaða reksturs- og efnahags- reikniniga fyrir árið 1970. Þá fJutti hann skýrslu um fram- leiðstu og söliu mjöikurafurða árið 1970. Smjörsalan dróst lítillega sam- an á áriinu, en sailia osta jókst vei-ufega. Heildarvelita fyrirtæk- isins nam kr. 511,7 mffllj. kr. Osta- og Smjörsalan s.f. hótf starfsemi siina 1. janúar 1959. Er hún sameign Mjólkursamsölunn- ar í Reykjavik og Sambands Lsl. siamvinnutfélaga. Selur hún vinnistuvörur mjólkuirbúíunna í Loftleiðir: 42% aukning í farþegaflugi Aukning Air Bahama 70,2% Á ÁRINU 1971 er áætlað að verja til raforkuframkvæmda 1,365 milljónum króna, sem er 25% aukning frá síðasta ári, en Þá námu raforkuframkvæmdir l, 005 milljónum króna. Af heild arframkvæmdaupphæðinni í ár er huti Landsvirkjunar 810 millj ónir króna, en 1970 námu fram- kvæmdir hennar 608 milljónum. Framkvæmdir Landsvirkjunar á þessu ári sundurliðast þannig: Búrfellsvirkjun 238 m. kr., Þór- isvatnsmiðlun 515 m. kr., rann- sóknir og undirbúningur nýrra virkjana 37 m. kr. og annað 20 m. kr. Á árinu 1971 verður að mestu lokið stækkun Búrfells- virkjunar, en þar verður bætt við þremur vélasamstæðum, sem samtals eru 105 þúsund kílóvött. Eftir stækkunina verður uppsett afl Búrfellsvirkjunar 210 þús- und kílóvött. Þórisvatnsmiðlun verður einnig að mestu lokið á árinu, og ráðgert er að taka hana í notkun fyrir áramót. Vegna þessara framkvæmda er nauðsynlegt að auka eigið fé Landsvirkjunar um 50 m. kr., og er séð fyrir þeirri upphæð með láni á framkvæmdaáætlun, en að öðru leyti er fjár til fram kvæmda Landsvirkjunar aflað með lántökum. Raforkuframkvæmdir ann- arra aðila en Landsvirkjunar eru áætlaðar 555 m. kr. á árinu 1971. Framkvæmdir á vegum Rafmagnsveitna ríkisins eru á- ætlaðar 175 m. kr., þar af er sveitarafvæðing 49 m. kr. og framkvæmdir við Lagarfoss- virkjun 45 m. kr. Á fram- kvæmdaáætlun er 15 m. kr. lán til sveitarafvæðingar og 45 m. kr. lán til Lagarfossvirkjunar. Auk þess er á framkvæmdaáætl un 30 m. kr. lán vegna al- mennra framkvæmda Rafmagns Styðji landeigendur MORGUNBLAÐINU hefur bor- izt eftirfarandi fréttatilkynning frá málfundadeild Hugins, skóla- félags Menntaskólans á Akur- eyri: „Fjölmennur fundur nemenda í Menntaskólanum á Akureyri haldinn 17. marz lýsir yfir stuðningi við viðleitni þing- eyskra bænda til að standa á rétti sínum gagnvart Laxárvirkj- unarstjórn.“ Áningargestum fjölgaði Áningargestir Loftleiða urðu 12,428 á s.I. ári, sem er 8,2% aukn ing miðað við árið á imdan. Á fyrsta mánuði þessa árs voru áningargestir 584 talsins, og er það 46% aukning miðað við janú ar í fyrra. Heildarfjöldi gestanátta Lotft- leiðEUhótels voru 41,361 á s.l. ári miðað við 41,109 árið 1969. Nýt- ingin var hins vegar 74,8%, sem er 1,0% lækkum frá árinu á und an. í janúarmánuði á þessu ári voru gestanæturnar 2.629 og nýt imgin 55,8%. HEILDAR farþegafjöldi Loft- leiða — í áætlunar- og leigu- flugi — árið 1970 var 282.546, sem er 42% aukning miðað við árið á undan. Sætanýting varð 73,2%, sem er 2,2% aukning frá árinu á undan. Vöruflutningar með vélum félagsins jukust um 41,9%. Farþegafjöldi Interniatiamal Air Bahama varð samtals 61.601, sem er 70,2% aufenimg miðað við 1969, er heildartaian var 36.195. Sæta- fjöldi véla tfélagsina var 94.710 og er því sætanýtimgim 65%, sem er 1,1% hærra em árið á uodan. umnboðssölu og skilar í lök hvers reikmimgisárs aifgamigi af umnboðs- laiumum tffl hinma ýmsu mjðllkur- búa. Endurgreiðslur þessar mámu fer. 7,4 mfflilj. fyrir árið 1970 og reyndust meðalumboðis- laun um 3% af vedtu. 1 stjóm Osta- og Smjörsölumn- ar s.f. eru: Erfendur Einarsson, forstjóri, formaður, Stefám Björnsscai, for- stjóri, Eimar Ólafsson, bóndi, Grétar Stoioniarsom, mjólfcurbús- stjóri, Hj'alti Pálissom, fram- kvæmdastjóri og Jónas Kristjáns som, fyrrv. mjðlkurbússtjóri. Auk stjómar og tfraimkvæmda- stjóra sátu ánsfumdinm stjómir Saimibands isfl. samvinmutfélaga og Mjólkursamsölummar í Reykja- vík og nokkrir gestir. Breiðfirðinga- bridge FRÁ Bridgedeild Breiðfirðinga. Sveitakeppni félagsdeildarinnar er nýlokið og urðu efstu sveitir sem hér segir: 1. sveit Hans Nielsen (auk hans spiluðu Pétur Halldórsson, Kristján Andrésson, Böðvar Guð mundsson, Eysteinn Einarsson og Ólafur Ingimundarson). — Sveitin hlaut 237 stig. 2. sveit Gissurs Guðmundsson ar hlaut 215 stig. 3. sveit Ingi bjargar Halldórsdóttur hlaut 198 stig. 4. sveit Elísar Helgasonar hlaut 174 stig. 5. sveit Þórarins Alexanderssonar hlaut 159 stig. 6. sveit Jóhanns Jónssonar hlaut 139 stig. Alls tóku þátt í þessari sveita keppni 14 sveitir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.