Morgunblaðið - 25.03.1971, Side 15

Morgunblaðið - 25.03.1971, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1971 15 í KVXKMYNDA ★★★★ Frábær, ★★★ mjög góð, ★★ góð, ★ sæmileg, Sig. Sverrir Pálsson Björn Vignir Sigurpálsson léleg. Sæbjörn V aldimarsson Háskólabíó Bræðralagið (The Brotherhood) Faðir bræðranna Franks og Vince (Kirk Douglas og Alex Cord) var áður Mafíuforingi en var myrtur af samtökunum ásamt 40 öðrum. Þegar Vince mægist við einn Mafíuforingj- ann og Frank fær jafnframt að vita, að sá hinn sami stóð fyrir morðunum kemur til harðra átaka innan bræðralagsins . . . og bræður munu berjast. Leik- stjóri er Martin Ritt. Ef einhver man eftir ,,Hombre“ þá tekst leikstjór- anum, Martin Ritt, hér mun síður upp — í þessari sögu um skyldur og- metorðagirnd. Tónlist er eftir Lalo Schifrin en kvikmyndataka í höndum Boris Kaufmans. Mafian og hugsunarháttur atvinnuglæpamanna er okk- ur Isiei'dirtgum blessunarlega fjailægur — og þar af leið- andi efnisþráður myndarinn- ar. Leikur Kirks Douglas er sterkur og sannfærandi í gegnum alla myndina — en þar með eru kostir „Bræðra- lagsins“ næstum upptaldir. Stjörnubíó Ástfanginn lærlingur (Enter laughing) Myndin fjallar um ungan ráð- villtan mann. Mamma vill að hann nemi lyfjafræði, en sjálfur hyggst hann leggja út á leiklistar brautina. — Kostar þetta mikla árekstra á öllum vígstöðvum — heima, á vinnustað, hjá kærust- unni og ekki sízt á leiksviðinu, þar sem að hæfileikaskorturinn hrjáir hann. ★ ★ Þv*í verður ekki neitað að ég fór á myndina með hálf- um huga, viðbúinn öllu hinu versta. En reyndin varð allt önnur. Astfanginn lærlingur er bráðfyndinn á köflum og fara leikararnir allir skemmtilega með hlutverk sín — sérstaklega Elaine May og José Ferrer. Gamla bió Alfreð mikli (Alfred the Great) Leiðrétting: Alfreð mikli hlaut fyrir prentvillusakir eina stjörnu í síðasta þætti, Leiðréttist sú villa . hér með. Frásögn af ungum manni, sem hugöist gerast prestur, en kom tii með að gegna allt öðru og ver aldlegra hlutverki í sögu Englands. Myndin gerist í kring- um 870, er danskir víkingar fóru rænandi og ruplandi um enskar lendur. Andspyrna var vakin meðal bændanna, og Alferð varð fyrir valinu sem leiðtogi þeirra í orrustum gegn víkingunum. Leikstjóri er Clive Ðonner, en David Hemmings í aðalhlutverk- inu ásamt Michael York. Alfreð mikli hlaut viður- nefni sitt fyrir vísdóm og göfuglyndi. Minnst af því birtist í þessari mynd, sem fjallar á litlausan og andlaus- an hátt um ástir hans og vikingabarsmíði. Laugarásbió Konan í sandinum Skólakennari nokknr safnar skordýrum (lifandi) í þeirri von að ná í sjaldgæfa tegund svo að nafn hans verði skrá á spjöld náttúrufræðísögunnar. Út frá þessari leit lendir hann í þeirri aðstöðu að vera haidið sem fanga í sandgryfju einni, þar sem kona nokkur býr ein síns liðs. Hann flýr aðeins til að lenda 1 kvik- sandi og vera færður að nýju í sandgryf juna. Þegar hann loks fær tækifæri til að fara frjáls ferða sinna er spurning um, hvort frelsið er raunverulega meira utan gryfjnnnar en í henni. Leik stjóri er Hiroshi Teshigahari en í aðalhlutverkum Kyoko Kishida og Eiji Okada. ★ ★ ★ Hver er munurinn á skor- dýri eða manneskju? Erum við ekki öll reköld og það frelsi, sem okkur dreymir um að öðlast í lífinu — er það ekki bara tálvon? „Kon- an í sandinum“ varpar fram ýmsum spurningum og efa- semdum um gildismat ein- staklingsins á jarðlífinu. ★ ★ ★ ★ Hugmyndin að þessari mynd er óvenju snjöll, og þótt sögusvið hennar sé þröngt og afmarkað, tekst leikstjóranum ótrúlega vel að gæða það lífi og spennu, er gerir hana fjögurra stjarna virði. Tónabíó í næturhitanum (In the heat of the night) Myndin gerist I smábæ I Suð- urríkjum Bandarikjanna. Morð hefur verið framið, og lögreglu- stjóri staðarins lætur þegar hand- taka aðkomunegra einn, sem bíð- ur lestar á járnbrautarstöðinni. Við yfirheyrslur reynist hann vera einn helzti glæpamálasér- fræðingur stórborgarlögreglu í Norðurríkjunum, og verður hann eftir í bænum lögreglustjóranum tii aðstoðar við lausn morðgát- unnar. Lýsir myndin innbyrðis átökum þessara tveggja manna og hvernig með þeim þróast gagn kvæm virðing þrátt fyrir ólikan litarhátt og viðhorf. ★ ★ ★ Spennandi sakamálarhynd, ívafinn ádeilu á kynþáttahat- ur. Frábær samleikur í aðal- hlutverkum. Tækni kunn- áttusamlega beitt við fram- setningu efnis. Mjög góð skemmtimynd. ★ ★ ★ Góð leikstjórn, góð taka og góður leikur. Trúverðug og fordómalaus efnismeðferð. ★★★★ Það hjálpast allt til að gera þessa mynd þá beztu, sem hér hefur verið sýnd á árinu. Leikurinn er stórkost legur hjá Rod Steiger, hand rit Silliphants laust við dauða punkta, kvikmynda- takan frábær og jassmúsík Quincy Jones fellur vel að hitamollu Suðurrikjanna Hafnarbíó Aprílgabb (The April Fools) Bandarísk gamanmynd, er segir frá kauphallarbraskara einum, sem leiðist lífið vegna afskipta- leysis konu, sonar og heimilis- hundsins. í samkvæmi forstjóra síns rekst hann á undurfagra konu, og þegar í ljós kemur að hún er einnig leið í hjónaband- inu, ákveða þau strax að rugla saman reytum, hverfa til Parísar og hefja nýtt líf. í aðalhlutverk- unum eru Jack Lemmon og Cath erine Deneuve ásamt Peter Law- ford, Sally Kellermann og Charles Boyer. Gamanmynd, sem ekki reynir að vera annað en til var stofnað í upphafi. Jack Lemmon er góður en Cather- ine Deneuve er afleit gam- anleikkona. Nýja bíó Kvennaböðull- inn í Boston (The Boston Strangler] Myndin segir frá sannsöguleg- um atburðum í Boston á árunum 1962—1964, er óhugnanlegur morð ingi lék þar lausum hala og myrti 11 konur á ýmsum aldri, og lýsir hún viðureign lögregl- unnar við hann. Leikstjóri er Richard Fleischer, en í aðalhlut- verkum Tony Curtis, Henry Fonda og Arthur Kennedy. ★★ Sæmilega vel uppbyggð mynd, gerð að nokkru í stíl heimildarmyndar. Tony Curt is sýnir óvenjumikla leik- hæfileika í hlutverki morð- ingjans DeSalvo og lýsingin á þessum tvíklofa er óvenju sannferðug. „Split-screen“ er forvitnileg tækni, sem oft er notuð hér skemmtilega. ★ ★★ Sérlega fagmannlega unn- in kvikmynd eins og þær gerast beztar í bandarískum kvikmyndaiðnaði. ★ ★★ Flestum eru enn minnis- stæð hin viðbjóðslegu morð, sem framin voru í Boston fyrir nokkrum árum. Fleisc- her gerði myndina í frétta myndastíl og notar mikið „split-screen“. Eykur það gildi myndarinnar. Kópavogsbíó Ógn hins ókunna (The Projected Man) Vísindamaður nokkur fæst við tilraunir á að umbreyta lifandi tilraunadýri í orku, geyma það þannig í nokkurn tíma og breyta því síðan aftur í sína uppruna- legu mynd, lifandi. Þetta tekst en þegar vísindamaðurin ætlar í reiðikasti, út í sína vantrúuðu yfirboðara, að umbreyta sjálfum sér, mistekst tilraunin og hann verður að rafmagnaðri ófreskju. í „Ógn hins ókunna" felst aðeins sú staðreynd, að ógn- in er myndin sjálf, láti ein- hver glepjast til að sjá hana. Klassískt dæmi um það allra lélegasta, sem framleitt er.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.