Morgunblaðið - 25.03.1971, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 25.03.1971, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1971 17 BÓKMENNTIR - LISTIR BÓKMENNTIR - LISTIR BÓKMENNTIR - LISTIR Kópavogsvaka: MYND- LIST... EFTIR HALLDÓR BLÖNDAL „ÞAÐ er enginn munur á konum og körlum, hvorki líkamlegur né andleg- ur,“ er fleyg setning og höfð eftir ágæt- um kvenskörungi fyrir allmörgum ár- um. Þá var tíðin önnur og konum margt lokað, sem nú er opið. En hin auknu réttindi komu ekki af sjálfsdáð- um. Við getum sagt, að sóknin hafi staðið í þrjá aldarfjórðunga, til þess að segja eitthva,ð, eða frá því Hið íslenzka kvenfélag var stofnað. Á sunnudagskvöld birtist á sjón- varpsskerminum leikrit Svövu Jakobs- dóttur: Hvað er í blýhólknum? Ég er sammála höfundi um, að þar sé frem- ur um þjóðfélagslega ádrepu eða vakn- ingu að ræða en listræna sköpun. En ágæta vel tókst það og menn hrukku upp við það heima í stofum sínum, að konur hafa t.d. allt annan og rýrari möguleika til mennta en karlar í reynd. Ef við lítum í kringum okkur, sjáum við líka að þetta er rétt. Það verður hlutskipti hinnar ungu og nýgiftu móð- ur að gerast fyrirvinna, meðan eigin- maðurinn heldur námi sínu áfram. Oft- ast nær leggur hið unga fólk mikið á sig og verður mikið ágengt. Það er með öðrum orðum fullkomið öfugmæli, þegar því er á loft haldið, að unga fólkið nú sé einhver eftirbátur kyn- slóðanna á undan því. Mér virðist það blátt áfram aðdáunarvert, hversu margt ungt fólk leggur mikið á sig til þess að koma fótunum undir sig, eins og sagt er. En víkjum aftur að hinni ungu konu, er lagði sitt eigið nám undir í háskóla- happdrættinu. Of oft kemur fyrir, að eftir að eiginmaðurinn hefur lokið sér af, slíti hjónin samvistir. En þó svo fari nú ekki, er þreytan eftir basl undangenginna ára tekin að segja til sín, og alltaf er erfiðara að setjast á skólabekk eftir margra ára hlé en að halda stöðugt áfram. Loks léttir þjóð- félagið miklu minna undir með eigin- konum en eiginmönnum, er langskóla- nám stunda. Eða hvaða lýðræði er það t.d., að barnaheimilin skuli standa opin, þegar faðirinn stundar nám en ekki þegar móðirin gerir það? Eru þó til mörg fögur dæmi um harðfylgi og dugnað ungra kvenna, er búið hafa við slíkar aðstæður og náð settu marki. Til eru þeir, sem ofangreindar stað- reyndir snertir ekki. Heldur ekki, þótt ég bæti því við, að valkostir kvenna á starfi eru rýrari en karla og launa- möguleikarnir sömuleiðis, hvað sem líður lögum um jöfn launa karla og kvenna fyrir sömu vinnu. í því efni eru iðulega „orður og titlar“ ekki „úrelt þing / eins og dæmin sanna“. Botninn gætum við haft: „Notast oft sem uppfylling / í eyður karlmann- anna.“ Að þessu sinni mun ég ekki fjalla almennt um stöðu konunnar í nútíma þjóðfélagi, heldur eingöngu undir- strika eitt atriði varðandi réttarstöðu þeirra kvenna, sem eru svo lánsamar að þeim hefur tekizt að ljúka því námi, sem þær hafa ætlað sér, þrátt fyrir allt og allt: Ég tel það ekki að- eins nauðsynja- og mannúðarmál, held- ur hreint og beint jafnréttismál, að rík- ið gangi á undan með því að gera þeim konum kleift að halda sér í starfsþjálf- un og fylgjast með, sem hafa verið köllun sinni trúar og alið börn í þenn- an heim. Það er nú einu sinni svo, að konur og karlar eru ekki eins, líkamlega og andlega. Og eru konurnar ekki síður nýtir þjóðfélagsþegnar fyrir það. En það er rétt, að konan getur ekki gegnt fullu starfi utan hekniiis rétt á meðan. Hún þarf meira að segja að gera hlé á störfum sínum utan heimilsins um hríð, til þess að geta einbeitt sér að störfum sínum innan heimilisins í staðinn, — sem ekki eru virt til fjár. En brátt dregur að því, að annirnar heima fyrir minnka og konuna langar til þess að taka aftur virkan þátt í liin- um ytri störfum, sem hún hefur mennt- un til, bæði til þess að svala starfslöng- un sinni og víkka sjóndeildarhringinn. En þetta má ekki gerast skyndilega og allt í einu. Þess vegna ríður á því, að konur eigi þess kost að vera settar eða skipaðar í starf að % eða %, og hljóti laun í samræmi við það. Það að konan ali barn má m.ö.o. ekki á neinn hátt valda því, að hún missi rétt sinn að öðru leyti, þ. á m. þann rétt, sem því fylgir að vera fastráðinn starfsmaður. Að hverfa frá þeirri skipan er að stíga skref aftur á bak. En nú hafa einmitt þau undur gerzt á þessum síðustu og verstu tímum, að fyrir Alþingi liggur frumvarp um réttindi og skyldur opin- berra starfsmanna. Meirihluti nefndar þeirrar, er frumvarp þetta samdi, vill nú taka þennan rétt af mæðrunum. Það má aldrei verða. Á ÞEIRRI Kópavogsvöku, er nú stendur, er listsýning á þeim verkum, sem þetta unga bæjar- félag hefur eignazt, síðan sú ákvörðun var tekin árið 1965 að verja %% útsvara til kaupa á listaverkum. Þetta er sannar- lega til fyrirmyndar, og nú gefst tækifæri til að sjá þann árang- ur, sem þessi samþykkt hefur haft i för með sér. Það væri ánægjulegt, ef önnur bæjarfélög á íslandi gerðu hið sama og kæmu sér smátt og smátt upp söfnum af listaverkum. Það þarf ekki að fara geyst af stað, aðeins að hefja starfsemina, og þá mun það sannast, að áður en varir munu myndast lítil og snotur söfn listaverka, sem ekki aðeins okkar kynslóð hefur ánægj u af, heldur einnig þeir, sem erfa landið. Það eru yfir þrjátíu listaverk á þessari sýningu í Kópavogi, og er það þegar orðinn góður vísir að verulegu safni lista- verka. Þessi verk eru notuð til að prýða skóla og annað opin- bert húsnæði í Kópavogi eins og stendur, en það mætti segja mér, að ef haldið verður áfram þessari starfsemi í sama anda og hingað til, þá verði þess ekki langt að bíða, að Kópavogur eignist sitt eigið listasafn eins og íslenzka ríkið og Reykjavík- urborg. Ég hafði óblandna ánægju af að sjá þessa snotru sýningu, sem ber það greinilega með sér, að hér hafa kunnáttumenn ver- ið hafðir með í ráðum og ekki aðeins leikmenn. Hér eru lista- verk eftir suma okkar elztu málara og einnig þá yngstu. Svið þessa safns er nokkuð breitt, en ekki að sama skapi samræmt, enda tæpast þess að vænta á jafn skömmum tíma og þessi stofnun hefur starfað. Það er ekkert áhlaupaverk að safna listaverkum þannig, að heildar- mynd af því, sem gert hefur verið hér á landi, komi þar í ljós, en ég er ekki í neinum vafa um, að það mun takast, þegar tímar líða. Þetta safn á sér án nokkurs efa framtíð, sem getur orðið lyftistöng fyrir myndlistina í landinu, en sann- leikurinn er sá, að hérlendis eru alltof fá söfn, sem keppa um að ná í beztu listaverk, sem föl eru hverju sinni. Ef til vill er þetta óskadraumur í mínum eig- in kolli, en draumar verða stundum að veruleika, áður en maður gerir sér grein fyrir því. Reykj avíkurborg á ef til vill merkilegra listasafn en margan grunar, og verður sanrtar- lega fróðlegt að sjá, hvað á dag- inn kemur, þegar þær aðstæður skapast, að hægt verður að lofa borgarbúum að sjá það á einum stað, og sú stund er, sem betur fer, ekki langt undan. Eitt vil ég samt, að lokum brýna fyrir þeim bæjarfélögum, sem hugsa sér til hreyfings í því að koma sér upp listasöfn- um og það er: Að láta kunn- áttumenn vera með í ráðum og taka mark á skoðunum þeirra, þótt stundum falli leikmanni annað betur í geð. Eigi að koma saman góðu safni, er það fyrst og fremst þekking, sem ráða verður um val listaverka, fyrir hvað lítið bæjarfélag, sem er. Kópavogur hefur farið hina réttu leið, það sýnir þessi sýn- ing, sem nú er hluti af Kópa- vogsvöku. Valtýr Pétursson. Þorkell Sigurbjörnsson skrifar um: TÓNLIST Orgeltónleikar „ORGELBÆKLINGUR" heitir bðkin, setm siumir vilja kalla lykil ínn að tónamáli J.S. Badhis. Þeitta er safn sálmfiorspila fyrir eftir- lætiissálima Badhs (hina mynd- rílkustu), e.k. kennslubóik fyrir byrjendiur í orgelleik, eins ag hann kallar það, þar sem þeir geta lært að fjalla um sálmalög á allla vegiu og æft sig í leik á pedalana. 1 bðkinni er á 5. tug ifionspila, tæplega þriðjungiur þess, sem verkið átti upphaflega að vera, náma skáldlegrar túlik- unar Badhs á efni sátenanna, nárna hiollra leiktælknibragða fyr ir aJlLa orgelleikara frá byrjend- um upp til snillinga. Flutninigur OrigielbEelkílingisins tekur nærrí því tvo bíma, þótt aðeins séu gerð tvö sfiubt hlé, og Mkliega hefiur einhverjum flogið I hug, að það væri þreytandi, löng seta undir því öMu, ekki sérlega tilbreyt- ingartk. Á föstudaginn var sýndi Ragn ar Björnsson fram á hið gagn- stæða. Hann lagði i það þrek- virfci að leika allan Orgelbækl- inginn í Dómkirkjiunni. Sú stund leið filjótit, eiginlega allit of filjótt, svo viðburðarík var hún. Ragn- ar túlkaði fiorspilin með hóflegri fijölbreytni litbrigða oig hraða- val-s í þremur breiðum þáttum, sem hvter naut innri spennu. Það væri fengur að því, ef Ragnar gæti leikið Orgelbæklinginn inn á hljómplötur. Tónleikunum fylgdi efnissikrá með aðgengilegum og nauðsyn- legum Skýringum. Þorkell Sigurbjöriisson,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.