Morgunblaðið - 25.03.1971, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1971
er sannfærður um, að meðan
tuminn stenaur, haldi ættin ein
hvem veginn áfram að hanga á
Farr.ingcote. Og ef ekki jarð-
skjálfti eða hernaðaraðgerðir
koma til, stendur turninn til ei-
lifðar. Þannig hefur hann feng-
ið fimm hundruð pund fyrir
ekki reitt.
En Woodspring lítur á þetta
eins og kaupmaður. Hann trúir
ekki á nein dularöfi, sem fylgi
áietruninni. Hann veit upp á
hár, að jafnskjótt sem fimm
hundruð pundin eru uppétin,
verður ástandið jafn bágborið
og aður. Þá verður að selja
Famingcote hæstbjóðanda, og
strax að því loknu getur Wood-
spring tekið eignarhald á móan-
um, með því að greiða tvö hundr
uð og fimmtíu pund í viðbót.
Þannig getur hann náð í þetta
land, sem hann hefur svo mjög
þráð, við hófiegu verði.
Jimmy hló. Það lítur þá svo
út sem báðir aðilar geti verið
ánægðir. Ég býst við, að samn-
ingurinn um móann nái iíka til
tumsins, sem á honum stendur?
— Um það spurði ég einmitt
Templecombe. Samningurinn
nær til tumsins og eins til trjáa
og annars gróðurs, sem kann að
vera standandi á svæðinu þeg
ar kaupin eru fullgerð. Skjalið
var samið á þriðjudag og Sim
on undirritaði það i gærmorgun,
svo að nú vantar ekki annað en
undirskrift Benjamíns til þess að
það sé gott og gil't.
- Ég býst ekki við, að Benja
mín tregðist neitt við að undir-
rita það. Að hans áliti er það
heppilegt að geta losnað við
gagnslausan hluta af eigninni
fyrir sæmilegt verð. Honum dett
ur ekki í hug að fara að setj-
ast að í Farningcote og biða
þess að kraftaverkið gerist. Svo
að þér sjáið, að allir eru ánægð
ir. Vel á minnzt, þá minntist
Benjamín á annað áhugamál
Woodsprings sem sé það, að son
ur hans gengi að eiga ungfrú
Blackbrook. Benjamín heldur,
að þetta sé ástæðan tii góðvild
ar hans við hana og ættina yfir-
leitt.
— Ja, hvert í veinandi! sagði
Appleyard. — Með þessu áfram
haidi verður ekki langt þangað
til Woodspring er setztur í sæti
Glapthorneættarinnar . Og lík-
lega hefur bóksalinn okkar átt
við það, þegar ég hitti hann af
tilviijun síðdegis í gær. Hann
var á leið á stöðina og sagðist
verða burtu nokkra daga, til að
sækja einhver bókauppboð. En
anna.rs skiptir Woodspring og at
hafnir hans okkur ekki neinu
máli. En hvernig eigum við að
fara með Benjamín?
- Ég sting upp á að láta hlut
ina hafa sinn gang, sa.gði Jimmy.
— Benjamin er óhætt i bili þar
sem hann er. I dag er þriðju-
dagur og hingað kemur hann
ekki fyrr en á sunnudag. Og þá
fáum við gott tóm til að spyrj-
ast fyrir um böggulinn.
— Það er nú samt alltaf hætta
á, að hann sleppi frá okkur,
sagði Appleyard.
— Ég held ekki, að það sé
nein hætta á því, sagði Jimmy.
1 fyrsta lagi væri allt slíkt
sama sem sektarjátning. Og ef
hann stinigur af úr skiprúminu,
hivað á hann þá að taka sér fyr-
ir hendur? Hann á ekkert til, og
stöður liggja ekki á lausu.
— Já, þér vitið það sjálfsagt
betur en ég. En ég skal játa,
að mér fer að líða betur þegar
ég hef hann innan sjónmáis.
Já, vitanlega væri það ör-
uggara. En jafnvel þótt svo sé,
þá veit ég ekki, hvað hægt er
að gera við hann. Það er ekki
hægt að ákæra hann fyrir morð
ið á bróður hans, því að enn
sem komið er höfum við engar
einustu sannanir gegn honum.
— Kannski höfum við það eft
ir að hafa talað við hann,
sagði Appleyard dauflega. —
En nú þurfum við að fá okkur
eitthvað í svangimn. Við skulum
fara yfir í Drekann og vita hvað
þar er á boðstólum.
Meðan á máltiíðinmi stóð, réðu
þeir ráðum sínum. Það var ákveð
ið, að Jimmy skyldi verða um
kyrrt næstu nótt en fara til
London á föstudagsmorgun og
gera fyrírspurnir um öskjuna
með grisjunni í. Seinnipartinn
gætu þeir farið í Klaustrið og
talað við ungfrú Blackbrook.
Þeir fóru fyrst í Klaustrið.
Horning opnaði skellótta og veð
urbarða hurðima upp á gátt, föl
ur og tekinn. Hann fór með
þá gegmum bergmálandi for-
salinn með röku veggjunum og
siðan inn i bókastofuna með háa
franska glugganum. Símon gamli
sat í stólnum sínum. Stirður og
hreyfingarlaus likaminn hefði
getað verið tálgaður út úr guiu
Kaupmaðurinn
mælir með Jurta!
Rnftækjaverzlun í Reykjavík
óskar eftir stúiku til sölustarfa. Staðgóð reiknings- og vél-
ritunarkunnátta nauðsynleg.
Umsóknir með eiginhandaráritun og upplýsingum óskast sent
afgr Mbl. fyrir 1. apríl merkt: ,,X — 6469".
Hrúffirðingar
Skemmtikvöld vetrarins verður haldið eins og áður í Miðbæ
við Háaleitisbraut laugardaginn 27. þ.m. og hefst kl. 20,30.
Félagsvist og dans.
Fjölmennið og mætið stundvíslega. Gleðjumst í góðvina hópi.
SKEMMTINEFNDIN.
SÝNIKENNSLA
að Hallveigarstöðum í kvöld kl. 8.:t0 (í sal Hús-
mæðrafelags Reykjavíkur).
Margrét Kristinsdóttir, húsmæðrakennari kynnir
vinsæla osta, smjör og ísrétti, einnig rétti úr
sýrðum rjóma (creme frech).
Notið tækifærið og lærið að matbúa nýja og
spennandi rétti.
! Ókeypis aðgangur og uppskriftir.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
OSTA OG SMJÖRSALAN MJÓLKURSAMSALAN.
.....................
fílabeini, ef ekki hefði verið
skjálfandi höndin, liggjandi á
ábreiðunni, sem var yfir hnján
um á honum, Hann kinkaði ofur
lítið kolli, þegar Horning til-
kytnnti heimsóknina.
— Góðan daginn hr. Glapt-
horne, sagði Appleyard hressi-
lega. — Hér er Waghorn full-
trúi kominn í heimsókn til yðar.
— Gleður míg að hitta full'trú
ann aftur, svaraði Simon kurt-
eislega, en það var engin for-
vitni i röddinni.
— Ég hitti Benjamín son yð-
ar síðdegis i gær, sagði Jimmy.
— Skipið hans liggur í Aiberts-
kvinni, og hann vonar að geta
komið hingað bráðlega — á
sunnudag eða mánudag.
— Þakka yður fyrir, fulltrúi,
sagði Símon blátt áfram. Hann
lyfti ofurlítið höfði þangað til
hann horfði beint út um gliugg-
ann. Jimmy fylgdist með hreyf
ingum hans og sá á hvað hann
var að horfa. Það var turninn
uppi á hæðinni, sem bar við
skýjabakka, ljósleitur og ein-
manalegur. Þegar maðurinn
gamli horfði á hann, bærðust var
irnar ofurlítið. Jimmy þóttist
geta lesið af vörunum: „Meðan
þessi turn stendur . . .“
Loksins sagði Símon upphátt:
— Benjamin? Já, hann kemur.
Farningcote verður hans eign áð
ur en mörg ár eru liðin. Nú,
jæja, hann er nú ekki unglingur
lengur. Það er tími til kominn
að hann fari að setjast að um
kyrrt.
Þegar sólin skein á andiit
gamla mannsins, sá Jimmy, hve
líkir þeir Benjamin voru. Sama
skarpa andlitsfallið, sami ein-
beitnissvipurinn um munninn og
hökuna. Nú, svo þetta var þá
hugmynd gamla mannsins. Að
Benjamín skyldi koma heim og
taka sæti eldra bróðurins, hugs-
aði hann. Að Benjamín skyldi
eyða beztu árum sínum í von
lausa baráttu við óumflýjanlega
örbirgð. Nei, það mundi Benja-
min aldrei samþykkja. En hver
yrði útkoman af deilu þessara
þverúðugu manna?
Jimmy ákvað að þreifa fyrir
sér, þessu viðvíkjandi. — Það er
nú ekki víst, að sonur yðar vilji
sleppa framtiðarstöðu sinni, hr.
Clapthorne, sagði hann alvar-
lega.
— Framtíðarstöðu ? sagði Sím-
on og tónninn bar vott um, að
ekki væri svona almúgateg staða
mikið móti því að vera herra-
garðseigandinn Glapthorne. —
Það getur verið gott og vel fyrir
yngri son að leita sér atvinnu,
en maður sem á að vera höfð-
ingi gamallar og gróinnar ættar
hefur á hendi ábyrgð, sem ekki
má vanrækja.
Það mundi greinilega jaðra við
ósvifni að fara að stæla við
svona sannfæringu. Enda virt-
ist Símon ekki búast við neinu
svari, því að eftir stutta þögn
hélit hann áfram:
Nú getur ekkert verið þvi
til fyrirstöðu, að Benjamín snúi
aftur til hússins, sem ég hefði
aldrei átt að leyfa hotnum að yfir
gefa. Meðan Caleb lifði, var
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
I»ér fara flest verk vel úr hendi
das.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
I»ér finnst jafnvel, að einhver sé að reyna að setja fyrir þig fót-
inn.
Tvíburarnir, 21. vnaí — 20. júní.
Tíminn líður hratt, en þér vinnst verk þitt vel.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Tíminn er þér ekki eins drjúgur og þú hafðir gert þér vonir um.
Kjónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Þér hefur stundum fundizt, að fólk mætti sýna þér meiri til-
litssemi, en núna finnst þér allt leika í lyndi.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
ÞaS hefur oft hvarflað að þér að reyna einhverja útgcrð upp á
eigin spýtur.
Vogin, 23. septeinber — 22. október.
Ef ekki blæs nógu byrloga, er þér éhætt að leita ásjár vina
þinna.
Sporðdrekinn, 23. október •— 21. nóveniber.
Óþarft er að skilja lítinn bróður eftir úti í knldanum, er bezt
gegnir fyrir sjálfum þér.
Rogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Þú ert heldur lítilsigldur þcssa stundina, en það birtir fljótlega
til.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Margt smátt gerir eitt stórt, jafnt i orði og verki.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Þér ssekist róðurinn seint og þetta ergir þig.
Fiskarnir, 19. febrnar — 20. niarz.
Þú eygir meiri miiguleika framundan en þú hefur lengi gert.