Morgunblaðið - 20.04.1971, Side 1
32 SÍÐUR
88. tbl. 58. árg.
MtlÐJUDAGUR 20. APRÍL 1971
Prentsmiðja Morgunblaðsins
þeir f órust með Sigurf ara
Allir voru komnir frá mm*. a
borði, er Sigurfari sökk
ÁTTA ungir menn fórust er vél-
báturinn Sigurfari SF 58 sökk í
Innsiglingunni í Hornafjarðarós
á laugardag um kl. 11,30. Skipið
var komið á móts við svokallað-
an Hlein, er skagar út frá
Hvanney, sem er vestari eyrin.
er slysið varð. Þegar fólk bar
að á Austurfjörutanga var
skipið að mestu sokkið.
Þeir sem fórust með skipinu
voru Halldór Kárason, skip-
stjóri, fasddur 13. 3. ’39, til heim-
iiis að Tjarnarbrú 18, Höfn,
fyrirvinna aldraðra foreldra,
Heimir Ólafsson, stýrimaður,
fæddur 15. 12. ’45, til heimilis
að Hafnarbraut 10, Höfn, ó-
kvæntur, Heiðar Hannesson, há-
seti, fæddur 22. 6. ’49, til heim-
iiis að Hólabrekku á Mýrum,
ókvæntur, Ævar ívarsson, mat-
sveinn, fæddur 24. 9. ’40, til
heimilis að Tjarnarbrú 18, Höfn,
kvæntur og þriggja barna faðir,
Víðir Sigurðsson, 2. vélstjóri,
fæddur 26. 1. ’40, til heimilis að
Baldurshaga á Mýrum, kvæntur
og á eina fósturdóttur, Guðjón
Óli Danielsson, háseti, fæddur
19. 10. ’44 til heimilis á Fáskrúðs
firði, ókvæntur, Jón Níels Jónas-
son, háseti, fæddur 16. 10. ’49,
til heimilis að Krossavík í Þist-
ilfirði, fyrirvinna aldraðra for-
eidra og Óttar Hlöðversson, há-
seti, fæddur 14. 3. ’50, til heimil-
is að Höfðavegi 11, Höfn, ókvænt
ur og nýráðinn á skipið, enda
nýkominn frá námi í Stýri-
mannaskólanum. Þeir Jón Níels
og Viðir voru mágar, svo og
Ævar og Halldór skipstjóri.
Þeir sem komust lífs af voru
Guðmundur Sigurðsson 1. vél-
stjóri og Guðmundur Eiríksson,
háseti. Guðmundur Sigurðsson
er sonur Sigurðar Lárussonar, út
gerðarmanns Sigurfara.
ALLIR KOMUST FRÁ BORÐI
Þegar skipið sökk voru allir
mennirnir 10 komnir frá borði.
Guðmundur Eiríksson fór síðast
ur frá borði og synti eins og
hann gat frá skipinu til þess að
sogast ekki niður með þvi er
það sykki. Var hann léttklæddur
og þvi létt um sund.
Strax og slysið varð dældi
skipshöfnin á Gissuri Hvíta SF
1 út oliu sem mest hún mátti.
Tók skipstjórinn Guðmundur 111-
ugason þetta til bragðs, er hann
sá hvað verða vildi. Flaut olían
fyrir straumi austur að slysstaðn
um og deyfði brotsjóina, sem
voru mönnum óbærilegir. Sigldi
hann skipi sínu eins nálægt
Hvanney og frekast var kostur
og hélt skipinu frá eynni með
hliðarskrúfunum. Guðmundur
Sigurðsson hélt hér í bjarghring,
en hann var klæddur ullarfötum.
Áður en þeir félagar yfirgáfu
skipið, kallaði Guðmundur Eiríks
son niður í lúkarinn til Guðjóns
Óla Daníelssonar, er þar svaf.
Hann fór þó ekki niður, enda
straumurinn þá svo þungur nið-
ur í lúkarinn að ógerningur var
að komast þangað, enda var þá
hver sjálfum sér næstur um
björgun. Guðjón Óli komst þó
upp úr skipinu.
OLÍAN BARG MÖNNUNUM
Eymundur Sigurðsson hafsögu
maður á Birni lóðs, var meðal
þeirra fyrstu, sem komu á slys
stað á laugardag. Hann sagði í
viðtali við Mbi., að hann hefði
verið að borða hádegisverð, er
frystihússtjórinn Óskar Guðna-
son hringdi til hans og færði
honum fréttirnar. Hann hringdi
þá þegar í aðstoðarmann sinn
og fóru þeir þegar um borð í
lóðsinn, með björgunarsveit og
tæki til þess að fara með út á
Austurfjöru. Þar settu þeir
björgunarsveitina í land með
tækin. Þeir félagar hlustuðu á
samtöl bátanna fyrir utan og
Hornafjarðarradiós. — Þrír
bátar höfðu siglt upp
í sandeyrina og settu menn í
land með gúmbátum. í fyrstu
sagði Eymundur að talið hefði
verið að báturinn hefði sokkið
við Austurfjöruna, en það sást
ekki vegna slæms skyggnis.
Eymundur fékk Sánaða tvo
menn 'frá vélbátnum Akurey,
þar eð hann og menn hans
heyrðu að gúmbátar væru á
floti. — Ég taldi þá að komið
gæti til greina — sagði Ey-
muindur, að við gætum frekar
lagt að en stæmri bátamir. f>að
voru hims vegar engir menn í
bátumum og mikið brim milli
gúimbájtanna og okkar — en við
Framhald á bls. 3.
Halldór Kárason, skipstjóri Heimir Ólafsson, stýrimaður
Guðjón Óli Daníelsson, liáseti
Dönsk blöö um handritagjöfina:
Málið til mannrétt-
indadómstólsins? -
— segir Berlingske Tidende
— hyllum danska höfðings-
lund segir Information
Kaupmannahöfn, 19. apríl
Einkaskeyti til Mbl.: —
GLEÐI Dana yfir afhendingu
handritanna er enn að nokkru
beizkju biandin hjá sumum.
Stærsta sunnudagsblað Dan-
merkur Beriingske Tidende
birti á forsíðu í gær mynd,
sem sýndi að fáninn á Kon
unglegu bókhlöðinni, var í
hálfa stöng á laugardaginn,
en þann dag voru handritin
tvö flutt um borð í eftirlits-
skipið „Vædderen". Undir
myndinni stóð að það hefði
verið staðfest, óformlega, í
Konunglegu hókhlöðinni að
fáninn hefði verið dreginn í
hálfa stöng sem mótmæli við
afhendingu handritanna
tveggja, Flateyjarbókar og
Sæmundar Eddu, sem væru
álitin gimsteinarnir í íslenzka
han dr itasaf ninu.
Berlingske Tidende skýrir
einnig frá þvi að í stjóm
Árnasafns hafi þeim hug-
myndum verið hreyft að visa
handritamálinu til Mannrétt
indadómstólsins í Strass-
bourg. Berlingske Tidende
segir: „Fyrst verður að
kanna hvort möguleikar eru
á því skv. reglugerð dóm-
stólsins að leggja fyrir mál
á borð við þetta. Ætti ekk-
ert að vera því til fyrirstöðu.
Dómstóllinn hefux iðulega
fengizt við mál, þar sem
borgarar hafa litið svo á að
eignaréttur þeirra væri fót-
um troðinn af ríkinu. í því
liku tilviki hlyti Árnasafn
að skipa sér á bekk með hin
um almenna borgara, þar
sem okkar eigin Hæstiréttur
komst að þeirri niðurstöðu
í sinni fyrstu umíjöllun, að
stofnunin væri einkafyrir-
tæki. Aukin heldur hefur því
verið siegið föstu með dómi
Hæstaréttar, að um er að
ræða þvingunarafsögn, þ.e.
eignanám. Stofnunin hefur
yfir páskana kynnt sér
margra binda verk um Mann
réttindadómstólinn og álits-
gerðir hans, en ekki fundið
mál, sem væru beinar hlið-
stæður handritamálsins. Þess
var naumast heldur að
vænta. Samþykkt Þjóðþings-
ins á lögum, sem veita að-
gang til ráðstöfunar, eins og
í því tilviki, sem hér liggur
fyrir, án þess að bætur komi
fyrir er einsdæmi lagalega
séð í allri réttarsögunni, og
hafa bæði lögin og dómsupp
kvaðningarnar tvær verið
fréttaefni um víða veröld“,
segir Berlingske Tidende, sem
klykkir þó út með því að
segja að Árnasafn verði að
Framh. á bls. 19