Morgunblaðið - 20.04.1971, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1971
Austu r-Pakist<in:
Stjórnarherinn hvar
vetna í mikilli sókn
Beitir mikilli hörku — Bæir
og þorp sviðin við jörðu
Nýju Delhi, 19. apríl —
NTB-AP
STJÓRNARHERINN fri Vestnr
Pakistan heldur nú uppi mikilli
sókn í því skyni aö ná landa-
mærahéruðum Austur-Pakistan
að Indiandi á sitt vald og að
loka landamærunum. Samkv.
vitnisburði sjónarvotta á landa
mærunum gengnr herliðið frá
Vestur-Pakistan fram af miklu
niiskunnarleysi og harðýðjti og
brennir til ósku þau þorp, sem
á vegi þess verða. Mikil reyk-
ský stíga til himins á svæðum
þeim sem stjómarherinn fer um.
Frí á handj
ritadag
BLAÐINU hefur borizt eftir
farandi fréttatilkynning frá
ríkisstjórninni:
Svo sem skýrt hefur verið
frá, er danska eftirlitsskipið I
„Vædderen" væntanlegt til I
Reykjavíkur frá Kaupmanna-
höfn miðvikudaginn 21. april
n.k. með Flateyjarbók og Kon
ungsbók Eddukvæða. Fer mót
:ökuathöfn fram á hafnarbakk |
anum kl. 11 árdegis, og verð-
ur útvarpað og sjónvarpað
frá henni samtímis. Það eru I
tUmæli rikisst jómarinnar, að i
þar sem þvi verður við komið .
verði skrifstofum og verzlun
um lokað og önnur vinna felld 1
niður frá kl. 10.30 til hádeg-
7 is.
Þá er þeim tilmælum beint
til skólastjóra, að kennsla I
verði felld niður í skólum á |
miðvikudag.
Flóttafólk frá Austur-Pakist-
an streymir nú tugþúsundum
saman yfir landamærin til Ind-
lands og er talið, að fjöldi þess
sé nú orðinn um 125 þúsund.
Samkvæmt fréttum frá ind-
versku fréttastofunni PTI hefur
stjónarher Pakistan náð á sitt
vald svo til öllum landamæra-
svæðum Austur-Pakistans að
Indlartdi og flestum borgum þar
en harðir bardagar eiga sér stað
í nokkrum borgum og bæjum,
þar sem herlið Bangla Desh
berst vonlitilli baráttu.
Herlið Pakistanstjórnar á að
hafa haldið í vesturátt frá Chua
danga til þess að tryggja sér
yfirráð yfír landamærabænum
Meherpur, en sá bær liggur að-
eins nokkra km frá þorpinu
Baidyanthal, þar sem formleg
yfirlýsing um stofnun lýðveldis
ins Bangla Desh íór fram á
laugardaginn.
PTI-fréttastofan segir, að 60
herbílar hlaðnir hermönmum frá
Vestur-Pakistan hafi komið til
Meherpur í gær og hafi her-
mennimir brytjað þar niður ó-
breytia borgara og sviðið við
jörðu öll þorp á leiðinni frá
Chuadanga tU landamæranna.
Fréttaritarinn Ram Sureseh
hefur lýst því, hvernig hann sá
þorpið Quashba rænt og brennt
til ösku.
— Hvert einasta hús og hver
einasti kofi í þessu þorpi, sem
áður var svo blómlegt voru lögð
í rúrst.
Stjóm Bangla Desh kom sam
an til leynilegs fundar í Kalk-
utta í Indlandi í dag til þess að
ræða hið alvarlega ástand í
Austur-Pakistan þar sem öll mót
spyma gegn stjómarhemum fer
þverrandi.
Þessi fundur í Kalkutta og
vera Bangla Desh herliðs á ind
Geimstöð í
uppsiglingu?
Búlzt við að Sovétríkin komi
versku Iandi við landamærin
um 175 km fyrir norðan Kalk
utta hafa að nýju komið
þeirri spurningu á kreik hvern
hátt indversk stjórnvöld hafi
átt í atburðunum í Austur-Pak
ista undanfarnar vikut.
Fyrrverandi aðalræðfcsmaður
Pakistans í Kalkutta, Hoosain
Ali, sem á sunnudag lýsti þvi
yfir, að hann styddi Bangla
Desh, sagði í dag, að 29 af
starfsmönnum skrifstofunnar
frá Vestur-Pakistan myndu snúa
heim til sín með aðstoð ind-
versku stjórnarinnar. Hinir
starfsmennimir, 52, að tölu,
myndu dveljast áfram ásamt
fjölskyldum sínum í Kalkutta.
Stjórn Pakistans bar í dag
fram formleg mótmæli við ind
versku stjómina vegna meintrar
árásar indversks herliðs á landa
mæravirki í Austur-Pakistan.
Að áliti fréttaritara var ör'ð-
ugt að gera sér grein fyrir, um
hve alvarlega ásökun þarna var
að ræða, þvi að alla síðustu
viku hafa klögumálin gengið á
víxl á milli Indlands- og Pakist
anstjómar vegna svipaðra at-
vika, enda þótt þetta muni vera
það alvarlegasta til þessa, ef
rétt reynist.
Frá fundi með ungu fólki, sem haldinn var sl. sunnudag.
Fundur ungs fólks
— í Árbæjar- og Breiðholts-
hverfi í kvöld
í KVÖLD verður þriðji fundur-
inn, sem ungir Sjálfstæðismenn
í Reykjavík efna til með ungu
fólki í höfuðborginni. Fundur-
inn í kvöld verður fyrir Árbæj-
ar- og Breiðholtshverfi og hefst
Miðst j órnark j ör
á þingi Framsóknarflokksins
Á FLOKKSÞINGI Framsóknar-
flokksins 1 gær fór fram nf-
gi-eiðsia mála samkvæmt tillög-
um frá málefnanefndum þings-
ins. Samþykktar voru breyting-
ar á lögnm flokksins, og fram
fór kosning 15 manna í flokks-
stjóm.
Úrsáit miöstjóm'arkjöars voru
tilkyrmt í gærkvöldi. FuMtrúar
eldri félaga voru kjömir: Hel'gi
Bergs 217 aitkvæði, Jóhaimnes
EJlíiajsson 209 aitkvæði, Tómaa
Ámaison 187 atkvæði, Sigiriður
ThorLacius 185 aitkvæði, Halildór
Krigtjánssian 183 atkvæði, Ragn-
heiður Sveinbjömsdóttir 178
Afli
glæðist
atkvæði, Andrés Kriisitj’ánsison 170
atkvæðd, Erlendur Einiarsison 162
atkvæði, Jónas Jónasscm 161 ait-
kvæði, Kriisitjám Benedikitsson
156, Jón Kja'rtansson 144 og
Danáel Ágústínmsson 135 at-
kvæði.
FúMitrúar ungra mianna voru
kjömir: Ólafur Ragnar Gríms-
son 200 atkvæði, Baldiur Óskars-
son 196 og Már Pétursson 176
atkvæði.
Nýr sendiherra-
bústaður í
Kaupmannahöfn
ÁKVEÐIÐ hefur verið að festa
kaup á nýjum sendiherrabústað
í Kaupmannahöfn, og var sam-
þykkt fjárveiting til þess á síð-
kl. 20.30 i Félagsheiniili Rafveit-
nnnar við Elliðaár.
Þegar hafa verið haldnir tveir
fundir, sem tekizt hafa með
ágætum. 1 upphafi fundar flyt-
ur Ellert B. Schram stutt ávarp,
en síðan hefjast almennar um-
ræður og þátttakendur ræða
frjálslega sjónarmið hver ann-
ars og beina fyrirspurnum til
frummælanda.
Doktors-
vörn
í Raunvísindum
DOKTORSVÖRN við verkfræði-
og raunvísindadeild Háskóla Is-
lands fer fram í hátíðarsal Há-
skólans n.k. laugardag og hefst
ki. 2. Guðmundur Pálmason, verk
fræðingur, mun verja rit sitt
„Crustal Structure of Iceland
from Explosion Seismology" fyr-
ir doktorsnafnbót i raunvísind-
um.
Prófessor Þorbjörn Sigurgeirs-
son mun stýra athöfninni, en and
mælendur af hálfu deildarinnar
verða prófessor Markus Báth frá
Uppsalaháskóla og dr. Guðmund
ur E. Sigvaldason.
sér upp slíkri á næstu dögum
Moskvu, 19. april — AP-NTB
SVO virðist sem Sovétríkin séu
að stiga nýtt skref í geimnum,
með þvi að koma þar upp mann
aðri geimrannsóknastöð. í ðag
var skotið upp stóru ómónnuðu
fari og þótt ekkert hafi feng-
izt opinberlega staðfest eru
fréttamenn í Moskvu svo til al
gerlega sannfærðir um að á
næstu dögum verði skotið upp-
mönnuðum geimförum, sem svo
verði tengd við það ómannaða.
Sovézkir vísindamenn eru
venjulega fáorðir þegar segja
skal eitthvað fyrirfram um til*
raunir þeirra, en nú hafa marg
ir þeirra að sögn sagt vestræn-
um fréttamönnum að verið sé
að byggja geimstöð.
Þetta kemur ekki á óvart, þvi
bæði Sovétríkin og Bandaríkin
hafa í mörg ár búið yfír þeirri
tæknikunnáttu sem nauðsynleg
er til að byggja geimstöð. Hins
vegar hefur kapphlaupið til
tunglsins verið í vegi fyrir því
að lagt væri fé í það. Nú er því
kapphlaupi lokið, og bæði lönd
in geta varið meira fé og tíma
í geimstöðvar, einkum þó Sov
étríkin sem hafa enga tungl-
ferðaáætlim.
Helzta vandamálið sem leysa
þarf er að langvarandi dvöl í
geimnum getur haft slæm áhrif
á heilsufar geimfaranina, bæði
andlegt og líkamlegt. Þetta mun
hafa komið fram í júní á aíðasta
ári, í síðustu meiri háttar geim
ferð Sovétrikjanna. Þá settu
tveir geimfarar met með því
að vera tæpa 18 daga á lofti,
og það hefur ekki enn verið
slegið. Þegar þeir komu til jarð
ar kom í ljós að hin langa dvöl
þeirra í geimnum hafði haft mik
il áhrif á þá. Stjórnvöld sögðu
að visu ekkert um málið, en
skömmu síðar sagði einn af
fremsbu geimferðasérfræðing-
um Sovétríkjanna, að nauðsyn
legt yrði að skapa gervi-aðdrátt
arafl í lengri geimferðum.
Akranesi —19. apríl.
AFLI hefur verið afar tregur
hér það sem aí er vetri, bæði á
Iínu og í net, en nú síðustu daga
hefur hann heldur glæðzt á grunn
miðum. Bárust um 200 lestir á
land á laugardaginn.
Togarinn Víkingur kom af
veiðum í dag af heimamiðum með
280—300 lestir af blönduðum
fiski, sem fer til vinnslu í frysti-
húsunum hér á Akranesi. Hann
hefur verið 9 daga á veiðum.
— hjþ.
ustu f járlögum.
Gamli bústaðurinn er orðinn
gamall og illa farinn, og þarfn-
ast hann mikilla endurbóta og
breytinga. Var ekki talið ráðlegt
að leggja i kostnað við þær, held
ur selja hann og festa kaup á
nýjum. Utanrikisþjónustan mun
þegar hafa fengið augastað á
heppílegu húsnæði fyrir sendi-
herrann, og verður væntanlega
gengið fá kaupum á því ein-
hverja næstu daga, að sögn Pét-
urs Thorsteinssonar, ráðuneytis-
stjóra.
Mokað á helztu
þjóðvegum í dag
í DAG verður reynt að opna
ýnisa helztu þjóðvegi á landinu,
en eftir óveðrið um helgina er
hin mesta ófærð á vegum víðast
hvar. Til að mynda var búið að
opna alla vegi á Norðaustur-
landi, en það reyndist aðeins
skammgóður vermir, því að þeir
lokiiðust ailir aftur um helgina.
Vegag-erðarmenn telja þó þenn-
an snjó auðveldari viðfangs en
vetrarhjamið, og vonast þeir til
að vegimir opnist strax og veð-
ur batnar.
1 dag verð'u-r sem saigt reynt
að opna á Snæíeltenesi, og leið-
ina vesitur í Króksifjarðarne.s,
svo og Hóilmiavílkurleið. Þá á að
moka Holtajvörðuheiðina og veg-
inm tiil Akiureyrar. 1 gær var
rutlt frá Akureyri til Húisaivikur
um Dalsmynni. Hinis vegar er
ailigjörliega ófært till Sigliufj'arðar
og Ólafsfjarðar. Eins og fyrr
getur var mokstur haifinn á
N orðaustu riandi og ffliesitir vegir
þar orðnir fæi'ir, en þar er nú
aillt ófært i svipiim. Aflir vegir
á Ausburlandi urðu ótfærir í
óveðrinu, en í gær var orðin
seemileg færð í byggð.
Segir sig úr mið-
stjórn Alþýðu-
flokksins
I GREIN í Mbl. sl. sunnudag
skýrir dr. Gunnlaugur Þórðar-
son frá þvi, að hann telji sig
ekki eiga samleið með Alþýðu-
flokknum i kosningum þeim,
sem í hönd fara. Nú hefur Mbl.
fregnaö, að dr. Gunnlaugur hafi
sagt sig úr miðstjórn Alþýðu-
flokksins. Hann hefur átt þar
sæti af og til frá 1956. Á tíma-
bilinu 1960—-1962, 1964—1966 og
aftur frá 1970 og þar til nú.
Póststimpill
vegna komu
handritanna
ÁKVEÐIÐ hefur verið að sérstak
ur póststimpill með áletruninni
„Handritin komin heim“ verði á
Póststofunni í Reykjavík alla
virka daga til næstu mánaðamóta,
segir i fréttatilkynningu frá
Póst- og símamálastjórninni.
Geta þeir sem óska fengið póst-
sendingar stimplaðar með hon-
um.