Morgunblaðið - 17.08.1971, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.08.1971, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGUST 1971 * Islendingar sigursælir — á skákþingi Noröurlanda SKÁKWNG Norðurlanda hófst I Norræna húslnu á sunnudag með því að Magfnús Torfi Ólafs- son, menntamálaráðherra setti mótið. Teflt er í fjórum flokk- um, landsliðsflokki, þar sem eru 12 keppendur, tvískiptum meist- araflokki og ungrling-aflokki. 1 1. umferðinni i landsliðs- flokki lauk fjórum skáikum og var frammistaða íslenzku skák- mannanna mjög góð. Jón Krist- insson vann Hákon Ákvist, Bjtörn Þorsteinsson vamn Sejr Hblm, en jafntefli gerðu Mikael Nykopp og Helge Gundersen, svo og AHan Jensen og Ingvar Barda. Biðskákir urðu hjá Kenn- eíh Josefsson og Friðriki Ólafs- syni og hefuAPriðrik rýmra tafl, sem sennilega neegir til vinn- ings. Einnig varð biðskák hjá Johnny Ivarsson og Freysteini Þorbergssyni og er staðan tvi- sýn. Töfluröð í landsliðsflókki er þannig: 1. Björn Þorsteinsson, 2. Jón Kristinsson, 3. Johnny Ivarsson, Svíþjóð, 4. Ingvar Barda, Noregi, 5. Kennet'h Jos- efsson, Svíiþjöð, 6. Mikael Ny- kopp, Finnlandi, 7. Helge Gund- ersen, Noregi, 8. Friðrik Ólafs- son, 9. Allan Jensen, Danmörku, 10. Freysteinn Þorbergsson, 11. Hákon Ákvist, Sviþjóð, 12. Sejr Holm, Danmörku. 3. umferð verður tefid í kvöld kl. 18. Þá tefla saman: Jón Krist insson og Sejr HoLm, Johnny Ivarsson ag Bjöm I>orsteinsson, Ingvar Barda og Hákon Ákvist, Kenneth Josefsson og Freysteinn Þorbergsson, Mikael Nykopp og Allan Jensen, Helge Gundersen og Friðrik Ólafsson og hafaþeir fyrmefndu hvitt. Myndin er frá 1. umferð á Skákþingi Norðurlanda og sést Friðrik Ólafsson stórmeistari í bak- sýn. Af öðrum keppendum sjást frá vinstri Ingvar Barda gegnt Allan Jensen og Jonnny Ivarsson gegnt Freysteini Þorbergssyni. (Ljósm. Sveinn Þorm.). 9- SOGIÐ Saimkvæmt upplýsingum Halls Árnasomar, Þrastarlundi, hefur veiði verið mjög góð í Soginu í sumar. Á land eru komndr alls 140 laxar og er meðalþyngd þeiira um 9 pund. Stærsti laxinn sem veiðzt hef- ur í sumar var 19 pund og veiddist hann á Schrimp-flugu númer 6. Vinsælasta flugu- tegundin við Sogið er hins vegar Blue Charm. Ennfrem- ur er veitt mikið á bæði maðk og spún, en vinsælasti spúnn- inn er Black-Toby. Hallur sagði að heldur hefði dregið úr veiði að undanförnu, en á sunnudag var að byrja ný ganga, og sást laxinn stökkva mikið neðan við brúna. Veiði virðist ætla að verða mjög góð í Soginu í sumar, en hún hefur aukizt verulega undanfarin fá ár, t. d. fengust alls 17 laxar árið 1969, en í fyrra fengust alls 100 laxar, en að sögn Halls er aðalveiði- tíminn nú rétt að hefjast. Eru þeir að fá‘ann? FÁSKRÚÐ, FLEKKU- DALSÁ OG HAUKADALSÁ Hannes Jónsson hjá Stang- veiðifélagi Akraness veitti þættinum þær upplýsingar í gær, að góð veiði hefði verið í Dalaám í allt sumar. Úr Fá- skrúð væru nú komnir 450 lax ar á land, en þrjár stengur eru í ánni. Mest veiðist þar á maðk en einnig veiðist tals- vert á flugu. Laxinn hefur verið í smærra lagi í Fáskrúð í sumar, mest um 4—5 pund- ara. í Flekkudalsá hefur verið svipuð veiði og í fyrra, þótt einni stöng fleira sé í ánni, þ. e. þrjár st.engur. Fremur smár lax er í Flekkudalsá, meðal- þyngd um 5 pund, og er mest veitt á maðk. Úr Haukadalsá eru komnir eitthvað yfir 600 laxar á þær tvær stangir sem S. A. er með á leigu. Laxinn í Haukadalsá er nokkuð stærri en í hinum ánum, og að undanförnu hef- ur þar verið mjög góð veiði á flugu. ANDAKÍLSÁ Heldur var veiðin treg í Andakílsá fyrri hluta sumars, sagði Hannes, en hún hefur glæðzt nokkuð upp á síðkast- ið. Mikið er af laxi í ánmi, en þetta er fyrsta sumarið sem hún er leigð út til stangveiða. Veiðzt hefur nokkuð jöfnum höndum á maðk og flugu að undanförnu, en framan af sumri veiddist nær eingöngu á maðk. Loks sagði Hannes, að nokkur bleikjuveiði væri í ánni og væri aðalbleikjuveiði- svæðið neðóin við þjóðveginn. 21 PUNDS MARÍULAX Mairíulaxinin er flestum lax- veiðimönmum eitt minnisstæð- asta atvikið á laxveiðiferli þeirra og víst er að þar verð- ur Bryndís Kristinsdóttir frá Reykjavík engin undantekn- ing. Bryndís var fyrir skömmu ásamt manni sínum, Þórði Óskarssyni flugumsjónar- manni, við veiðar í Laxá í Aðaldal. — Voru þau stödd við Núpabeiðuna og var Þórð- ur að gera sig kláran uppi í veiði'kofanum er Bryndís tók stöng og kastaði af rælni út í ána. Varia Var spónninn fyrr búinn að snerta vatnið en þrifið var óþyrmilega í. Bryn- dís reyndi með ýrmsum ráðum að gera manni símum viðvart en hann tók ekki eftir neinu, þar sem hann var önnum kaf- inn við að gera sig kláran. Hófst nú mikil barátta laxins og Bryndísar, en Bryndísi til aðstoðar var vinkona hennar, sem ekki mun mikið reyndari en Bryndís við iaxveiðar. Eft- ir mikil átök tókst að lamda laxinum með aðstoð veiði- manns, sem var staddur tals- vert ofan við þær stöllur, en tók til fótanna er hann sá hvað var á ferðinni. Laxinn var hængur, 21 pund. F.kki fara sögur af svipbrigðum Þórðar er hann kom klár nið- ur að á og sá veiði eiginkonu sinnar. Hún mun aftur á móti hafa tekið ólæknandi laxveiði bakteríu. Ráðstafanir Nixons: Valda umróti víða 16. ágúst — NTB-AP í FRÚTTIJM frá Washington í kvöld sagði, að fyrstu við- brögð ýmissa hagfræðinga og fjármálasérfræðinga víða um heim væru á þá lund, að ráðstafanir Nixons, Bandaríkja- forseta, stefni að fyrstu verulegu leiðréttingunni, sem gerð hefur verið á alþjóðagjaldeyrisskráningu í aldarfjórðung. í Bandaríkjunum segir, að ekki komi ölllum á óvart, að Nixon hafi gripið til þessara ráða, en hitt valdi furðu, hversu langt hann gangi og segja megi, að hann hafi ákveðið að gera allar ráðstafanirnar, sem mælt hafði verið með að grípa til, m.a. af ýmsum talsmönnum demókrata. Fréttastofum ber saman um, að ráðstafanir Nixons hafi engu að síður komið af stað miklu umróti og í flestum bönkum, austan hafs og vestan, voru viðskipti með erlend- an gjaldeyri stöðvuð og forystumenn ríkisstjórna boðuðu meðlimi sína til funda til að ræða hin breyttu viðhorf í al- þjóðagjaldeyrismálunum. Um viðbrögð einstakra ríkis- stjórna er enn of snemmt að segja, en nefna má, að brezka stjórnin kom saman til fundar í kvöld og Pompidou, Frakk- landsforseti, hefur tilkynnt, að franska stjórnin muni taka málið til gaumgæfilegrar íhugunar. 1 kvöld var fundur í London, þar sem Paul Volcker, aðstoðar- fjármálaráðherra Bandaríkjanna, ræddi við seðlabankastjóra frá Vestur-Þýzkalandi, Japan, Frakk- landi og Italíu. Volcker sagði að fundi loknum, að Bandaríkja- menn óskuðu að alþjóðaviðskipti ykjust. John Connally, fjármálaráð- herra Bandaríkjanna, tók i dag undir þau orð Nixons, að ekki væri um að ræða gengislækkun á dollar, en afleiðingar af ráð- stöfunum Bandaríkjaforseta væru undir þvi komnar til hvaða ráða önnur lönd gripu. Ef kom- ið yrði á réttri skráningu geng- NM 1 SKÁK ÚRSLIT í 2. umferð landsliðs- flokks á skákþingi Norðurianda í gærkvöldi voru sem hér segir: Freysteinn Þorbergsson vann Barda frá Noregi, Björn Þor- steinsson vann Jón Kristinsson, sem lék sig skyndilega í mát í hörkuskák, Friðrik Ólafsson vann Nykopp frá Fin.nlandi, Akvist frá Sviþjóð og ívarsson frá Svíþjóð gerðu jafntefli, Holln frá Danmörku vann Gundersen frá Noregi og Jósepsson Svíþjóð varrn Jensen frá Danmörítiu. is, myndi dollarinn hækka gagn- vart sumum gjaldmiðlum, en lækka gagnvart öðrum. ÁHYGGJUR I AÐALSTÖÐVUM EBE 1 fréttum frá Brússel segir, að áhyggjur hafi gert vart við sig í aðalstöðvum Efnahagsbanda- lags Evrópu og sagt, að ákvarð- anir Bandaríkjaforseta hefðu skapað erfið mál úrlausnar fyrir bandalagið. Evrópunefndin hefur verið kvödd saman til fundar á morgun, þriðjudag. Síðdegis I TILEFNI fyrstu alþjóðlegu vörusýningarinnar á Islandi efna Kaupstefnan og Flugfélag Is- lands ttl nýstárlegs gestaliapp- drættls. Daglega verður dregið úr innkommim miðum. Vinning- ur er dagsferð fyrir tvo með Fokker Frlendship flugvél Flug- félagsins. Sérstakur leiðsögu maður verður með í ferðinni. Þeir heppnu mumu ieggja upp i hringferðina 17. sept. n. k. Lagt verður upp árla dags frá Reykja- vík með Foikker Friendship frá Flugfélagi Islandis og fyrsti án- ingarstaður verður Isafjörður. — Þaðan verður haldið til Akureyr- Richard Nixon sama dag kemur fjármálanefnd EBE væntanlega saman til fund- ar og búizt er við, að ráðherra- ráðsfundur verði haldinn innan fárra daga. I röðum EBE-manna er sú skoðun ríkjandi, að jafna megi ráðstöfunum Nixons við gengis- breytingu á dollar og grípi EBE- löndin ekki til sameiginlegra ráð- stafana, geti framtíð bandalags- ins verið í húfi. í stuttri yfirlýs- ingu, sem var gefin út í dag. sagði, að lönd Efnahagsbanda- lagsins yrðu að standa saman og gæta hagsmuna sinna, og leggja fram sinn skerf til að aft- ar, þar sem lent verður uim 11 leytið og þar verður hádegis- verður snæddur, en ferðalangar miunu fá tækifæri til þess að kynnast noikkrum helztu atvinmu fyrirfcækjum Akureyrar. Þá verð ur flogið yfir Mývatnssveit og til Egi'lsstaða, en kaffi verðui' dnxkkið í HaMormsstáðarskógi þar sem haustliltimir verða ugg laust í algieymingi um þær mundir. Kvöldveirður verður síð- an snæddur á Höfn í Homafirði og þaðan verður síðan flogið út í Vestmannaeyjar áður en hringn uim iýkur í ReykjavÆk um mið- næfcti. Framhald á bls. 2S. Umhverfis Island á einum degi Gestaferð Kaupstefnunnar með Flugfélagi íslands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.