Morgunblaðið - 17.08.1971, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 17.08.1971, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. AGÚST 1971 "4, Nixon ræðst gegn yerðbólguvandanum AÐTiGKDlR Nixons Banila- ríkjaforseta til stnðnings <loil- aramun eni síðasta neyðar- ráðstöfunin af mörgiun, seni hafa valdið miklu imiróti í íjármála.lífi Vosturla.nda á undanfömum árimi. Yfirlýs- ing forsetans felur í sér tals- verða stefnubreytingu: Sam- kvaemt henni verður hætt til bráðabirgða að greiða útiend- ingum gull fyrir dollara eða annan gjaldeyri. I>að hefur verið eindregin stefna Banda- ríkjastjómar síðan gjaldeyris erfiðleikamir hófust í alvöru fyrir fjómm áruni að brcyta fyrir engan mim gengi doB- arans gagnvart gulli. GuU- verðið hefur verið 3 dollarar únsan siðan 1934, en nú er bandaríska 6tjórnin reiðubú- in að semja við ríkisstjómir annarra landa um breytingar á alþjóðagjaldeyriskerfinu og gera allróttækar ráðstafanir í efnaha.gsmá]umim heima fyr- ir til þess að stemma stigu við ört vaxandi verðbólgu. Ráðstafanir Nixons geía tii kynna, hve staða dollarans hefur veikzt gagnvart gjald- miðl-um annarra landa á al- þjóðlegum gjaldeyrismarkaði. Erfiðleikamir í aliþjóðafjár- málum hófust fyrir alvöru í nóvemlber 1967, þegar Bretar lækkuðu gengi pundsins um 15%. Aðeins nokkrum dögum siðar höfðu 10—15 ríki farið að dasrni Breta og gripið tii gengisfellingar. Verð á gulii snarhækkaði vegna rýrnaindi írausts á pappirsgjaldmiðli i byrjun ársins 1968, og í marz það ár ákváðu fulltrúar seðla banka nokkurra landa að grípa tid þess ráðs að taka upp tvöfalda gengisskráningu á gulli. Sjö helztu seðlabank- ar Vesturlanda urðu ásáttir um að verzla ekki á frjáisum markaði og halda sig við op- inbert gullverð i öUum við- skiptum sín á milli. 1 ágúst 1969 lækkuðu Frakk ar gengi frankans um 11%. Tveimur mánuðum siðar hækkuðu Vestur-Þjóðverjar gengi marksins um 9%. Þrátt fyrir gengishækkunina varð staða marksins stöðugt sterk- ari, og i mai sL var ákveðið að iáta gengi þess gagmvart dollaranum ráða-st af fram- boði og eftirspurn. Verðbölga hefur verið ört vaxandi vandamál í Bandarikj unum á undanförnum sex ár- um, og stöðugur halli hefur verið á viðskiptajöfnuði sáðan á árunum fyrir 1960. Nú er verðbólgan sem nemur um það bil 7% á ári. Traustið á dollaranum hefur stöðugt minnkað, og hefur fátt átt meiri þátt i þessu rýrnandi trausti á undanförnum mián- uðum en tdlkynning sem var birt í júní þess efnis, að vara- gullforði Bandarikjanna hefði hrapað niður fyrir 10 millj- arða dollara á þessu ári í fyrsta skipti um 33 ára skeið. Hvers konar breyting á skrán ingu dollarans hefur óhj‘á- kvæmilega í för með sér gif- urleg áhrif á aiþjóðaefnahags kerfið, þar sem tveir þriðju viðskipta og fjárfestinga heimsins eru skráðir og greidd ir í dollurum. Ráðstafamir þær sem Nixon hefiur gert hafa verið rædid- ar sem huigsanlegar leiðir tii þess að ráðast gegn efnahags- vandanum í hópi fjármála- manna undanfarna daga. Það eina sem kemur á óvart er að forsetinn hefur gripið til aiira þeirra ráðstaíana sem hafa verið taidar koma tid greina í einu, það er að hætta að innleysa diollara í gulli, að setj'a á innílutningstoila og búa í haginn fyrir almennar breytingar á alþjöðagjaldeyr- iskerfinu. Á það er lögð áherzla, að ræða forsetans sé aðeins áætlun um aðgerðir, sem verði gripið tiL Hann sagði til dæmis, að 10% inn- filutningstollurinn yrði aðeins til bráðabirgða, en enginn veit hve lengi hann verður við lýði. 1 þessu sambandi kemur til greina, að ríkis- stjórnir annarra landa grípi til verndartodla á afurðir sin- ar, en brezka blaðið „Financ- ial Times" sagði er það ræddi þessi mál í siðustu viku, að flestar rikisstjórnir mundu sætta sig við bandarískan inn- flutningstolL Þeirri spurningu er Mka ó- svarað, hvaða áhrif það hef- ur á almenna gengisskrán- ingu að tengslin miili doiiara og gulls hafa verið rofin. Það hefur ekki komið fjármála- mönnum á óvart, að ákveðið hefur verið að hætta að skipta dollurum í gull, við því hefur verið búizt siðan varagullforð- inn hrapaði niður fyrir 10 milijarða dollara. Forsetinn lagði áherzlu á það, að breyt- ingar á alþjóðagjaldeyriskerf- atvinnu og hleypa nýju blóði i efnahagskerfið. Fyrst þeg- ar Nixon tók við embætti gerði hann sér vonir um að unnt myndi reynast að hefta verðbólguna án þess að það þyrfti að valda mikium sárs- auka. Eins og bent er á í grein í vifkuritimu Time var hann því andvígur að setja á höft og hömlur; vildi ekki að rákisvaldið skipti sér af launasamningum og vildi heldur ekki róta við hiwum frjálsa markaði. í þess stað vildi hann halda sig við sí- gildar efnahagsráðstafanir, takmarka útgjöld á fjáriög- um og treystá á varagjaldeyr- isforðann. Hugmyndin var að koma á meiri ró í efnahags- málunum og rjúfa vixllverk- anir kaupgjalds og verðlags, en siðan taldi hann að yrði hægt að hleypa nýju lifi í efnahagsLífið með auknurn f járveitingum rikisvaldsins og jafnvel skattalækkunum. Þróunin hefur orðið aRt önnur en gert var ráð fyrir í upphafi forsetatiðar Nixons. Langur samdráttur, en að vísu mildur, hefur átt sér stað, og ástandið hefur verið lengur að færast í samt lag aftur en nokkru sinni fyrr við svipaðar aðstæður í banda riskum efnahagsmálum síðan Burns, einn helzti hvatamað- iir ákveðinna ráðsta.fana í bandarískuni efnahagsmálum. lega fljótlega vart, að gagn- rýnin á efnahagsstefmuna hef ur ekki sömu áhrií og áður. Jafnvel þótt ráðstafanirnar beri ekki tilætlaðan árangur, er hægt að benda á það að sú stefma, sem var fyligt áður, bar heldur ekki árangur. Þar að auki hefur áætlun forset- ans að geyma nokkrar þær ráðstafanir, sem andstæðing- ar hans hafa beitt sér fyrir. Demókratar hafa ekki farið í launkofa með það, að þeir muni ieggja hvað mesta áherzlu á efnahagsmálin í kosndngabaráttunni og Hugh Scott, leiðtogi repúblikana i öldungadeildinni, hefur lát- ið svo um mælt, að Nixon verði að sigra í baráttunni gegn verðbólgunni, eigi hann að vera viss um endurkosn- ingu. Nixon hefur verið hræddur mcð skugga Herbert Hoovers sem var forseti þegar heinis- kreppan skall á 1929. inu yrðu gierðar í samráði við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Ákvörðun Nixons um kaup- gjalds- og verðlagsstöðvun kemur heldur ekki á óvart. Arthur Burns, forstöðumaður bandaríska seðlabankans og ýmsir öldungardeildarmenn úr flokki repúblikana, hafa verið uppi með háværar kröf- ur um kaupgjalds- og verð- lagseftirlit að undanförnu. Meðal annars af þessum sök- um hafði þjóðþingið ráðgert yfirheyrslur í október um huigmyndir um stofnun kaup- gjolds- og verðlagsráðs, og Nixon féllst á það að stjórn- in tæki þátt í þeim. Nú hef- ur forsetinn bundið kaup- gjald, verðlag og leigu í 90 daga og þar með hefur hann gert þessar yfirheyrslur úr- eltar. Ganga mátti að þvi visu, að í þessum yfirheyrsl- um kæmu fram háværar radd ir um að stjórnin aðhefðist alltof ldtið til þess að stöðva verðbólguna. Nixon forseta hefur verið legið á hálsi fyrir að gera ektoi nóg til þess að hefta verðbólgu þróunina, sjá fyrir aukinni síðari heimsstyrjöldinni lauk. Á siðustu mánuðum hefur verið sífellt harðar verið lagt að Nixon að gripa til áhrifa- meiri, djarfari og beinni að- gerða gegn verðbólguvandan- um en hann hefur gert til þess að örva efnahagislifið. Nú hefur forsetinn gripið til sinna ráða. Áhrifanna af aðgerðum for- setans verður orðið vart þeg- ar baráttan fyrir forsetakosn- ingamar á næsta ári byrjar fyrir alvöru. Ráðstafanimar eru áreiðanlega ekki sdzt gerðar með forsetakosningam ar í huga. Efnahagsmálin eru sem stendur aðahnálið í banda riskum stjórnmálum, það mál sem kjósendur og stjórn- málamenn hugsa mest um Víetnam, Kina, mannréttinda- mál blökkumanna og glæpir hafa gersamlega horfið í skuggann. Nú hefur forset- inn tryggt sér nokkurt næði fyrir gagnrýni á þessu sviði, og í kosningabaráttumni getur hann bent á það að hann hafi gert skeleggar ráðstafamir til efiingar efnahagsiífi lands- manna. Þess verður áreiðan- Það sem hefur sett hvað mestan svip á bandarisk efna- hagsmál að undanförmu, hef- ur verið svartsýni og rýrn- andi traust á forystu stjórn- arimnar í Washington í efna- hagsmiálunum. Eins og Tiime bendir á hafa kaupsýslu- menn takmarkað útgjöld og fækkað verkamömnum í stað þess að færa út kvíarnar. Sparifjáreign hefur slegið öil fyrri met og almenningur eyðir minna en áður, fjár- festir minna og kaupir færri hlutabréf. Flestum Banda- rikjamönnum finnst þeir búa við verri kjör en fyrir nokkr- um árum, og eru þess Sá dæmi í bandarískri sögu. Verðlag hefur hækkað örar en nokkru sinni síðan i Kór- eustríðinu, en arður fyrir- tækja hefur minnkað nokk- uð. Verkamenn hafa fengið miklar kauphækkanir, en raunlaun hafa litið sem ekk- ert hækkað. Verðbólgan hef- ur rýrt verðmæti dollarans um 12 sent á tæpum þrem- ur árum með þeim afleiðing- um að hann er veikastur Framh. á bls. 22 STAKSTEIMR Var engum öðr- um treystandi? Eins og kunnugt er, ákvað vinstri stjómin að set.ja á fót sér staka landhelgisnefnd með fulltrú um frá öllum stjórnmálaflokkun um til þess að vera ríkisstjórn- inni tij ráðuneytis um aðgerðir I landhelgismálinu og kynningu á málstað íslands á alþjóðavett- vangi. Allir stjórnmálaflokkamir samþykktu að tilnefna fulltrúa í nefnd þessa, og er það í sjálfu sér ekki frásagnarvert. Hitt hef ur vakið nokkra eftirtekt, að Al- þýðubandalagið tilnefndi Lúðvik Jósefsson, sjávarútvegsmálaráff- herra, sem aðalmann sinn í nefnð ina og Magnús Kjartansson, iðn aðarráðherra, til vara. Hefur mörgum komið þessi tilnefning spaugilega fyrir sjónir, að Alþýðn bandalagið skipi ráðherra úr rík isstjórninni i nefnd, sem á aS vera ríkisstjórninni til ráðuneyt- is! Báðir hinir stjórnarflokkam ir höfðu annan hátt á og til- nefndu menn utan rikisstjórnar- innar, sem eðlilegt yar, en spyrja má, hvers vegna Alþýðu bandalagið hefur þennan hjákát- lega liátt á slnni tilnefningu. Var engum óðrum treystandi til þess að gerast fulltrúi Alþýðubanda- lagsins í landhelgisnefndinni en þessum tveimur ráðherrum? — Bæði Sjálfstæðisflokkur og Al- þýðuflokkur tilnefndu sem aðal menn formenn þessara flokka, en Alþýðubandalagið sá ekki ástæðu til að sýna formanni sínum það traust að gefa honum kost á að fylgjast með framvindu landhelg ismálsins í þessari nefnd. Hin opinbera vantraustsyfirlýsing þeirra Lúðvíks Jósefssonar og Magnúsar Kjartanssonar á Ragn- ar Amalds og aðra forustumenn Alþýðubandalagsins er vissulega farin að ganga lengra en góðu hófi gegnir. Einkennileg vinnubrögð Á fyrsta fundi landhelgisnefnd arinnar tilkynntu fulltrúar stjóm arflokkanna, að þeir hefðu ákveðið að senda þrjá fulltrúa einn frá hverjum stjórnar- flokkanna, til undirbúnings- fundar hafréttarráðstefnunnar í Genf, sem stendur yfir um þessar mundir. Þegar í upp- hafi ráðstefnunnar héldu íslenzkir embættismenn til þessa fundar og hafa setið fundinn síð- an og Hans G, Andersen, þjóð- réttarfræðingur, befur flutt ræðu á undirbúningsfundinum, þar sem afstöðu íslands í landhelgismál- inu hefur verið lýst. Hitt vekur furðu, að stjómarflokkamir skyldu ekki sjá ástæðu til að gefa stjómarandstöðuflokkun- um kost á að senda sína fulltrúa einnig á þennan undirbúnings- fund. Þeim kom það ekki til hug- ar, fyrr en athygli þeirra hafði verið vakin á þessum gangrýnis- verðu vinnubrögðum. Af bálfu stjórnarflokkanna hefur mikið verið rætt um nauðsyn á þjóðar- einingu í landhelgismálinu, og Morgunblaðið hefur að sínu leyti lagt mikla áherzlu á að slík þjóðareining megi nást. En ekki verður séð, að vinstri stjórnin ieggi sig ýkjamikið fram um að stuðla að slíkri þjóðarein- ingu, þegar hún viðhefur svo ámælisverð vinnubrögð, þegar í upphafi síns ferils í landhelgis- málinu. iesio DDCLECR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.