Morgunblaðið - 17.08.1971, Page 5

Morgunblaðið - 17.08.1971, Page 5
MÖTtGUNBLAÐlÐ, ÞRIÐJUDAGCJR' 17.: AGlSBT -1971M Þorskurinn og varnir hins vestræna heims Eftir C. L. Sulzberger BANDARÍSKI blaðaniaAurinn C. L. Snlzbrrgcr heldur áfrani að skrifa um fsland og birtist þriðja grein hans í Internati- onal Herald Tribune sl. föstn- dag. I»ar segir í upphafi, að franitíðarstefna rikja Atlants hafsbandalagsins liyggist á því sanikomulagi, sem þau geri varðandi veiðar „hins glitrandi, næringarríka Jiorsks, sem svo mikið er af undan ströndum þessarar eyjar (ís- lands)“, eins og hann kemst að orði. Þorsk- og ýsuafli, seni veiddur sé á niiðunuin um- hverfis landið sé mikilvæg- asta anðlind landsins og standi fjárhagslega undir hinum góðu lífskjöriim og athyglis- verðri menningu þjóðarinnar. ,,Á árunum 1950—60,“ seg- ir hann, „þegar islenzka rík- isstjórnin færði út fiskveiði- lögsögu ríkisins í 12 siómíl- ur, virti Bretland, sem er helzti markaður fyrir íslenzk- an fisk, þá ákvörðun að vett- ugi og það kom raunverulega til vopnaðra átaka, þó svo eng inn hlyti þar sár. Árið 1961 viðurkenndi brezka stjómin nýju mörkin og aðilar kom- ust að samkomulagi um að vísa framtíðardeilum sínum til Alþjóðadómstólsins í Haag. Nú hafa Islendingar til- kynnt, að þeir ætli að rjúfa þetta samkomulag, færa út fiskveiðilögsögu sina í 50 sjó- mílur og útiloka erlenda tog- ara frá því svæði. Bretarhafa harðlega neitað að fallast á þetta og Vestur-Þjóðverjar taka sömu afstöðu. Og rétt eins og þessi deila við tvö bandalagsriki sé ekki nægileg, hefur nýja ríkis- stjórnin einnig lýst því yfir, að hún hafi í hyggju að visa úr landi bandaríska herliðinu, sem annast og ver herstöð Atiantshafsbandalagsins í landinu. íslendingar eru sjálf ir vopnlaus þjóð, svo að her- stöðin yrði þá skilin eftir handa hverjum, sem taka vildi, þó svo að ríkið æski þess ekki að segja sig úr Atlants- hafsbandalaginu sjálfu. Sérsamningar Loks viija íslendingar — sjáandi fram á, að Bretar ger- ist aðilar að Efnahagsbanda- lagi Evrópu — komast að samkomulagi við EBE til þess að tryggja nægan fiskútflutn- ing. Þeir hyggja ekki á fulla aðild heldur gera sér vonir um sérsamninga, sambærilega við loftferðasamningana við Bandaríkjastjór i, Flugfélagið Loftleiðir er ekki aðili að Alþjóðasambaindi flugfélaga — IATA — og því ekki bundið fargjöldum þess. Því hefur tekizt að undir- bjóða IATA flugfélögin á flug leiðunum yfir Norður-Atlants hafið en Bandaríkjastjórn heimilar islenzkum flugvél- um — einum véla utan IATA félaga — lendingu, enda þótt bæði bandarísk og erlend flugfélög hafi mótmælt þvi. Nýja ríkisstjórnin vakti öll þessi vandamál upp samtím- is með djarflegum loforðum fyrir kosningarnar, sem komu henni til valda: Að ban.na veið ar erlendra fiskimanna innan 50 sjómílna marka; að visa brott Bandaríkjamönnum, og að komast að samkomulagi við Efnahagsbandalag Evrópu. Nú er stjórnin farin að veltá því fyrir sér, hvort öll þessi atkvæðaveiðandi fyrirheit eru framkvæmanleg. Stjórnirnar í London og Bonn hafa tilkynnt, að þær muni ekki viðurkenna 50 sjó- mílna mörkin. Bretar stað- hæfa að samkomulagið frá 1961 sé órjúfanlegt. Og hvorki brezka stjórnin né hin v- þýzka eru liklegar til að mæl- ast tii þess við Efnahags- bandalagið, að það sýni Is- lendingum tillitssemi svona rétt eftir að þeir hafa gefið þeim kjaftshögg. Deilur tvær Svo að nú deila menn inn- an NATO burtséð frá deil- um Islendinga sjálfra um NATO. Þegar stjórnin í Reykjavík hefur kannað alla erfiðleika, sem við er að etja, gæti svo farið að henni þætti viturlegra að ganga á bak kosningaloforða og hætta við að reka Bandaríkjamenn á brott. Hún hefur þegar tekið yfirvofandi þorskastrið fram ýfir þetta mál. „Samkomulag um fiskveiði- takmörkin kemur fyrst," sagði mér Éinar Ágústsson, utan- ríkisráðherra. „Við munum fara okkur mjög hægt i hin- um málunum, þar til landhelg ismálið er leyst. Ég ætla að taka mér góðan tíma til að ihuga herstöðvarmálið.“ Hann gerir sér vonir um að hafa leyst landhelgismálið í september 1972. Með öðrum orðum, — mönnum þarf ekki að fara að hitna í hamsi út af herstöðvarmálinu fyrr en i eftir meira en ár — á meðan geta þeir skeytt öllu sínu skapi á þorskinum. Bandalags ríkin vona, að íslenzka ríkis- stjórnin leggi til einhverja aðra lausn í herstöðvarmál- inu„ ekki alveg eins róttæka, þegar hún hefur gert sér grein fyrir því hverjar hættur það hefur i för með sér að hætta að verja herstöðina á íslandi. Einu sinni áður -— á við- kvæmu augnabliki árið 1956, sem leið hjá með innrás Rússa í Ungverjaland — kváðu stjórnmálaflokkarnir, sem nú fara með vöid, upp úr með, að íslendingar skylöu sjálíir „taka að sér að ann- ast gæzlu og viðhatd hernað- arlegra tækja og önnur hern- aðarleg störf". Þetta er tæpast gerlegt. Al- gerlega vopnlaust ríki gæti ekki varið herstöðina og Is- lendingar, tvö hundruð þús- und talsins, hafa ekki nægi- lega þjálfaða tæknimenn eða þá aðstöðu til gagnnjósna sem þarf. Herstöðin er í beinu sambandi við flugvélar í lofti og skip ofan- og neðansjávar, sem samræma upplýsingar sinar. Þær hugmyndir, sem lágu til grundval'lar, þegar íslend- ingar gerðust aðiiar að At- lantshafsbandal&ginu árið 1949 — að enginn her eða her stöð skuli vera í landinu á friðartímum — fá ekki leng- ur staðizt. Það er erfitt að hugsa sér fyrirkomulag sem komið geti í stað þess sem er. Hafsvæðið milli íslands og Grænlands og svæðið milli ís- lands og Færeyja eru geysi- lega mikilvæg og bezt að fylgj ast með þeim frá íslandi. Vonandi verður með þolin- mæði, stjórnvizku og velvilja hægt að finna málamiðlunar- fyrirkomulag, sem tryggir Is- lendingum nægar fiskbirgðir, viðunandi evrópska markaði og áframhaldandi ódýr far- gjöld — og einhverja leið til að hafa herlið bandamanna til þess að viðhalda herstöð Atlantshafsbandalagsins. Með an tilfinningarnar snúast um þorsk og ýsu gefst mönnum tími til þess að íhuga hin hernaðarlegu vandamál með ró.“ Stúdentaráð vítir stjórn SHÍ Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá Stúdentaráði Háskóla íslands: „Stúdentaráð Háskóla Islands telur óeðlileg þau vinnubrögð stjórnar SHl að ákveða, án sam- ráðs við Stúdentaráð, að fulltrúi SHl hætti störfum í stjórn Lána sjóðs íslenzkra námsmanna. — Stúdentaráð vítir þessi ólýðræð- islegu vinnubi’ögð um leið og það fellir úr gildi ályktanir stjórnar frá 1. ágúst og 10. ágúst 1971. Ennfremur felur Stúdentaráð Háskó*lalslands núverandi full- trúa sínum í stjórn Lánasjóðs islenzkra námsmanna að halda áfram störfum.“ A * Utvegsbanki Islands; Útibú í Heimunum ÚTVEGSBANKI íslands hefur flutt útibú sitt frá Grensásvegi 12, að Álfheimum 74 i hið nýja og glæsilega verzlunarhús Silla & Valda, á mótum Álfheima og Suðurlandsbrautar. Útibúið er þannig miðsvegar milli Iðngarða og Heimanna. Útibúið vei’tir alla almenna bankaþjónustu og annast að auki hvers konar innheimtu og gjald eyrisviðskipti. Þá má og nefna Giroþjó-nustu bankans, en Útvegs bankinn er brautryðjandi á því sviði hérlendis. Öll aðstaða til afgreiðs'u er hin bezta, og bilastæði næg. Útibússtjóri er Halldór E. Hall dórsson og gjaldkeri Ásgrimur Hilrnis. Stjórn bankans væntir þess, að þjónusta útibúsins verði við- skiptamönnum á starfssvæði þess, til mikils hagræðis. Útibú Útvegsbanka fslands í Heiniumim. Buff? Sfeikfur fiskur? Ekki þó einhver nýr réttur? - Eða eru það bara þessar venjulegu bollur? Það skiptir ekki höfuðmáli. Allt þetta getur verið hnossgæti, ef það er mafreift á réftan hátf með réttum efnum. Gleðjið fjölskylduna með reglulegu góðgæti. Reynið FLÓRU-smjör- fíki, það gefur matnum lokkandi útlit og Ijúffengt bragð. einnig eftirsótt í allan bakstur FLORU SMJÖRLÍKI HUNDRAD KRÓNUR Á MÁNUDI Fyrir EITT HUNDRAÐ KRÓNUR á mánuii seljum viS RITSAFN JÓNS TKAUSTA 8 bindi í svörtu skinnlíki Við undirskrift samnings greiðir kaupandi 1000 krónur. SIÐAN 100 KRÖNUR Á MÁNUÐI Bókaútgáfa GUÐJÓNSÓ Hallveigarstíg 6a — Sím/ 15434

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.