Morgunblaðið - 17.08.1971, Page 20

Morgunblaðið - 17.08.1971, Page 20
20 MORGUNBlIðIÖ, ÞRIÐJU.DAGUR Íí.' ÁGÚS'l' 19’71 Geioge Harmon. Coxe: Græna Venus- myndin 37 Bacon hugsaði sig um. — Þú ert ekki viss um, hvort það var einn maður eða tveir, sem þú heyrðir koma upp stigann? . . . Líklega tveir. Það lítur ekki út fyrir, að Lorello hafi verið drep inn úti. Mér datt í hug, að hann kynni að hafa verið skotinn í bíl eða einhvers staðar og morð- inginn svo drasiað honum hing- að upp. Hann er ekki svo hold- ugur — hann ætti að hafa verið iéttur að bera. — Hafi svo verið, sagði Mur- dock. — Þá hefði morðinginn varla farið að athuga, hvort per an væri skrúfuð í lampann. Þá hefði hann bara opnað dyrnar, fieygt honum inn fyrir og tekið til fótanna. — Lorello hefur komið með ein hvern heim með sér, sagði Bae- on. Þegar siökkvarinn var óvirkur vissi hann, að þarna var ekkert ljós. Innan tveggja mín- útna stakk þessi maður hlaup- inu að brjóstinu á honum og hleypti af. Nógu fast að, til þess að draga úr hvellinum. Og svo, áður en hann kæmist út, komst þú upp stigann að framan og barðir á dyrnar. Baeön hristi höfuðið og andvarpaði. — Þú ert heldur betur heppinn, karl minn. —- Það sama hefur mér dottið í hug. — Hann vissi ekki, hve lengi þú hafðir verið að berja eða hver þú værir. Hann þorði ekki að fara út um framdymar, af þvi að það var alltaf hugsan- legt að þú værir á höttunum þar og sæir hann þegar hann kæmi út, og því fór hann út bakdyra- megin. Ekki veit ég, hvað það er, sem hlífir þér og þínum lik- um, sem þurfa að stinga nefinu í svona hluti, en . . . — Þú heldur, að ég geri þetta að gamni mínu. Tónninn í Mur- dóck var ólundarlegur. —- Ég hafði atvinnu við að taka mynd- ir. Ég varð að ná þeim, hvar sem bezt gekk, af því að það er ekki eins auðvelt að falsa mynd eins og fréttagrein. í þetta sinn kom ég til borgar- innar til þess að finna tiltekna mynd. Ég hef ekki fundið hana, og þar sem ég fæ heldur litla hjálp frá þér, held ég áfram að leita. — Vitanlega, sagði Bacon. — En það, sem ég ætlaði að segja var þetta: þú veizt sjálfur, hvað orðið hefði ef þú hefðir kallað í þennan náunga í sundinu í gærkvöldi. Ef þú hefðir ekki stanzað á þeirri stundu og stað, sem þú gerðir? Ef þú hefðir opn að dyrnar út að sundinu og rek- izt á hann í forstofunni eða stig- anum? — Ég veit það. — Það er hreinasta undur, að þú skyldir ekki elta hann. Þá væri Mason læknir hérna i sund inu að segja okkur, hve lengi þú værir búinn að vera dauður. Bacon settist niður og horfði á fingrafaramanninn. Hann tók upp vindil og stakk honum upp í sig, án þess að hirða um að skera af endanum. Svo fór hann að tyggja hann, meðan hann at- hugaði aftur bréfin, sem Mur- doek hafði fært honum. -- Hvernig vissirðu, að það var bíllinn hans Georgs Damon, sem tók Lorello upp við dyrn- ar á Silfurhurðinni? — Ég lagði númerið á minn- ið, hringdi svo í mann á blað- inu og bað hann að aðgæta það. Svo hringdi ég í hann aftur, eft- ir að ég hringdi i þig. Bacon smellti fingrum á bréf in. — Og þú varst svona fljótur að finna þessi í dag, af því að þú varst búinn að leita í skrif- borðinu, kvöldinu áður, ha? Murdock svaraði þessu engu. Bacon andvarpaði aftur. — Jæja, jæja, til hvers skrattans ætti ég að vera að súta það? Þú hefur náð i meira en við, enn sem komið er, skal ég játa. Og svo kann að vera, að þú vitir heila glás, sem þú nefnir ekki á nafn. Að minnsta kosti sé ég, hvers vegna þú ert hrifinn af Georg Damon. Hann þagði um stund, og þeir báðir. Keogh liðþjálfi kom inn og skýrði frá eftirgrennsl- unum sínum hjá hinum leigjend- unum, en það var allt einskis virði. Bacon tók þessum upp- lýsingum með * þolinmæði og ógeði. — Ég vissi að minnsta kosti nógu mikið til að búast ekki við neinu, sagði hann. — Italir vita aldrei né sjá né segja neitt þeg- ar morð er annars vegar. Hann stóð upp og gekk að bakdyrun- um. Svo skipaði hann mönnum sínum fyrir. — Þegar Orsatti kemur aftur, sagði hann, — þá segðu honum, að ég bíði í bíln- um. Lögreglubíllinn stóð bak við ráðhúsið og þeir gengu upp brekkuna að honum og stigu upp í hann. — Þú veizt, hversu mikils virði þessi bréf eru, sem þú fannst, sagði Bacon. — Já, sagði Murdock. — Þau eru ekki túskildings virði. Þau eru sýnilega afrit af bréfum. Þú veizt nú orðið fyrir víst, að þú hafðir á réttu að standa um Bruno Andrada og Georg Damon og sambandið þeirra í milli. Þú veizt, að hug- boðið þitt um Venusarmyndina er rétt, og þú veizt að Tony Lorello var náunginn, sem bar Damon skilaboðin svo að hann gat hafzt eitthvað að. En hvað það snertir að klína nokkru á Damon . . . — Ég veit það. Murdock hnipr ÚTSALA KÁPUR — DRAGTIR. BUXNADRAGTIR — STUTTBUXUR. PEYSUR — PILS. Mikill afsláttur Andrés kápudeild Skólavörðustíg 22. Ilrúturinn, 21. marz — 19. april. tér er óliætt að gera sjálfum þér gasn með öðrum verkum. Nautið, 20. april — 20. maí. >'á getur sert þér glaöan dag, þvi að margt kemur á óvart. Tvíburarnir, 21. ntaí — 20. júni. Þú getur notfært þér uppl.vsinear, sem þú hefur feneið. Reyndn að stilla skap þitt oe vera göður. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí. I'n hefur lagt mikið á þig og græðir á því. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. Reyndu að halda þér gangandi á þolinmæðinni, þótt erfitt sé. Meyjar, 23. ágúst — 22. september. Þú verður að gæta tungu þinnar, þótt tilfinningarnar séu iesl;#%. Vogin, 23. september — 22. október. Reyndu að forðast persónulega óvild. Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember. Reyndu að komast í samhand við tilfinningar annarra. Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. Ekkert er óbrigðult ráð til frama, en reyna má ýmsar leiöir. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. Reyndu að gera glögga grein fyrir fyrirætlunum þinum, og fáðu það, sem þér ber. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Reyndu að iiafa hraðann á og verða á undan í krásirnar. Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz. Gættu þín á of miklum útskýringum. aði sig í sætinu. Hann var þreyttur og svangur og niður- dreginn og hann vissi vel á hve réttu Bacon hafði að standa. — Damon þarf ekki annað en full- yrða að hann hafi aldrei séð þetta bréf. Eini maðurinn, sem getur sannað, að hann hafi séð það, sá sem afhenti það, er dauð ur. Bacon lamdi hnefanum niður í sætið. — Fjandinn hafi þetta allt saman, Murdock! sagði hann. Ef við ekki náum ein- hverju upp úr þessum Erloff eða Leo eða píunni og þessum náunga, sem þú varst að tala um, þá getum við ekki sannað nokkurn skapaðan hlut á Dam- on. Og við erum nákvæmlega jafn ófróðir um morðið og við vorum áður. — Ég veit þó eitt, sagði Mur- dock dauflega. Damon hefur ekki Venusarmyndina í höndun um . . . ekki enn. — Nei, sagði Bacon. — Hefði hann það, hefði hann ekki sent þennan sendibíl til þess að tæma vinnustofuna hjá Carroll. Nei, hann hafði ekki myndina, og hann gat ekki vitað nema Carroll hefði málað eitth'rað annað yfir hana, og að því varð hann að komast. Bacon þagnaði en hélt svo áfram án allrar hrifningar: — Ég held við verðum að tala við CarrolJ aftur. Ég held ég verði lika að tala við Damon, ef saksóknarinn leyfir. En fyrst held ég þú ættir að segja sak- sóknaranum þessa litlu sögu þína. — Ég ætla nú að minnsta kosti að fá mér eitthvað í svang- inn fyrst, sagði Murdock. —- Þú mátt koma með mér, upp á minn kostnað, eða þá ég fer einn. En ég verð að minnsta kosti að fá eitthvað að éta. 14. kafli. Klukkan var orðin fjögur áð ur en Murdock hafði iokið við að svara spurningum hjá sak- sóknaranum, og svo leið enn klukkustund áður en Bacon var tilbúinn að tala við Georg Dam- on. Yates, einn af gáfnaljósun- lim hjá saksóknaranum, kom með þeim og Bacon átti þennan um- ræðufund í herbergi við gang- inn þar sem skrifstofan hans var. Þarna var rúmbetra og betri húsgögn. Hraðritari tók sér sæti úti i horni og Keogh stóð í næsta herbergi og tveir menn með honum, til þess að bera skilaboð, og allir voru orðnir óþolinmóðir þegar Damon kom inn kiukkan fimm. Hann var í dökkbláum fötum, sem féllu að beini. Með ljósgráan flókahatt og bar ljósgráa hanzka í an.n-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.