Morgunblaðið - 17.08.1971, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.08.1971, Blaðsíða 24
f 2Hor0iinW«tri& RUCIVSinGflR #*r*22480 jÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1971 1ESI0 DDCLECR Innflutningsskatturinn í Bandaríkjunum: Óvíst er hvort hann lendir á f iski - segir forstjóri Coldwater - Mundi kosta íslendinga 400-500 millj. kr. SEINT í gærkvöldi þegar Morg- unblaðið hafði samband við Þor- stein Gíslason, forstjóra Cold- water í Bandaríkjunum, sagði bann að ennþá væri allt í óvissu nm hvort 10% innflutningsskatt- urinn yrði á fiski. „Það veit eng- inn ennþá, hvemig- þetta fer,“ sagði hann, „og hjá okkur ríkir nú algjört millibilsástand. Það ganga óteljandi sögur, en þær hafa ekki reynzt réttar og við vitum, að ekki er ennþá búið að ákveða hvort fiskurinn fær 10% innflutningskattinn. — Innan skamms hlýtur þó að fást úr þessu skorið og á meðan vonum við bara það bezta. Mikið er rætt um efnahagsaðgerðir Nixons, en aliir eru þó sammála um að þess ar ráðstafanir eigi eftir að styrkja dollarann til eðlilegrar stöðu.“ Þorsteinn sagði að í gærdag hefði frekar verið talið að fisk- ur, kjöt og mjólkurafurðir myndu sleppa við 10% skattinn, en um miðmætti í gærkvöldi var allt í óvissu í þessum málum. Þá gat hann þess, að verið væri að afferma skip hjá þeim og toll Fiskflutningi til Bandaríkjanna flýtt af ótta við verkfall hafnarverkamanna MORGUNBEAÐIÐ hafði í gær samband við nokkra útflutnings- og innflutningsaðila vegna hugs aniegs verkfalis, sem hafnar- verkamenn á austurströnd Bandaríkjanna hafa boðað til í haust og voru þessir aðilar innt- ir eftir þvi hvort áformað væri að gera einhverjar ráðstafanir í þessu sambandi. Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson framkvæmdastjóri Sölumiðstöðv ar hraðfrystihúsanna sagði, að búið væri að gera ráðstafanir tii Hæverskir ökumenn á Austurlandi Egilsstöðum, 16. ágúst. RÍKARÐ Björnisson lögreglu- flokkstjóri hefur verið á ferð um Austurland undanfaima daga til að ganga frá vegamerkingum á hættulegum stöðum. í lögreglu- bifreið hans var ratsjá til að mæla ökuhraða og mældi Ríkarð um- ferðina hér á nokkrum stöðum um helgina. Sagði Ríkarð að öku menn á Austurlandi væru mjög hæverskir og kvaðst ekki hafa þurft að stöðva nokkurn öku- mann, en hefði þó mælt á stöð- um sem gæfu fullt tilefni til að frískir ökumenn létu gamminn geysa. — ha. þess að senda meira af fiski til Bandaríkjanna en eðiilegt er fyr ir þann tíma sem um ræðir. Júlíus Ólafsson hjá Félagi ís- lenzkra stórkaupmanna sagði, að félagið hefði látið upplýsinga-r um væntanlegt verkfail ganga út til félagsmanna til þess að þeir gætu gert þær ráðstafanir, sem þyrfti hjá hverjum og ein- um, en Júlíus benti á að margir stærstu innflutningsaðilarnir hér á landi fengju bandarískar vör- ur í gegnum úti'bú í Englandi. ■Olfur Sigurmundsson fram- kvæmdastjóri Otflutningsskrif- stofu Félags islenzkra iðnrek- enda sagði, að mestur hluti af léttum iðnaðarvörum frá íslandi tii Bandaríikjanna væri fluttur flugieiðis og þvi kæmi boðað verkfali lítíð að sök ef af yrði nema í sambandi við Stáliðjuna sem sendir u.þ.b. mánaðarle.ga 400—600 stóla á Bandaríkjamark- að sjóleiðis. Gunnar Kvaran hjá Innflytj- endasambandinu, sem flytur inn talsvert af því korni, sem flutt er til landsins sagði, að nú þegar hefði verið keypt noikkru meira magn aí þessum vörum en venjuiega og auk þess væri gert ráð fyrir- því að þessar korn vörur gætu komið annars stað- ar frá. Sagði hann að engin hætta væri á vöruskorti í þessu efni. Óvenjulegt at- vik í laxveiðiá — ekið yfir lax SÁ EINSTÆÐI atburður gerð ist fyrir nokkru í Lunda- reykjadal í Borgarfirði, að ek- ið var á lax í Tunguá. Var þetta 12 punda hængur, sem í sumarleyfisferð sinni um Tunguá hafðá koanizt í sjáifheldu á vaði i ánni, en hún var mjög vatnslítil um þær mundir. Ökumaður bifreiðarinnar, Þórir Jensson stórkaupmaður, kom ekki auga á iaxinn fyrr en það var orðið um seinan og lenti hann undir hægra framhjóli bifreiðarinnar. urkin vissi ekíki hvort fiskurinn slyppi eða ekiki. Ekki náðíst samband við Hall- dór E. Sigurðsson, fjármálaráð- herra, í gær, en vísað var á Höskuld Jónsson, deildarstjóra í fjármálairáðunjeytinu. Hann sagði í viðtali við Morgunblaðið, að þeir í ráðuneytinu væru aðallega að athuga á hvaða gengi ætti að tollafgreiða innflutnimg. Samkvæmt upplýsingum verzl- uniarfulltrúa bandaríska sendi- ráðsins er útlit fyrir mjög liöar tollahækkanir á íslenzkum iðn- Framhald á bls. 23. 403 hvalir HVALVEIÐIBÁTAR Hvals h.f. voru í gær búnir að veiða 403 hvali það sem af er hval- veiðivertíðinni. Mest hefur veiðzt af langreyðum eða alls 203, 138 sandreyðar og 62 búr hveli. Á sama tíma í fyrra hafði ekkert veiðzt af sandreyðum og héfur sú hvalateigund aldrei veiðzt jafn snemma og i sumar að sögn Lofts Bjarnasonar forstjóra Hvals. Hvalveiðibátarnir áttu að fara út á miðin í gærkvöldi, en þeir hafa verið í landi 1 tvo daga vegna óhagstæðs veðurs og helgarfrís. Það eru hendur glaðra Akureyr ing-a, sem hér tollera Björgvin Þorsteinsson, sem aðeins 19 ára að aldri vann Islandsmeist- aratign í golfi á landsmótinu á Akureyri. Keppnin varð æsi- spennandi undir lokin og segir frá því í íþróttafréttum Mbl. — 8 síður — sem fyigja biaðinu í dag. 10% álag á gjaldeyri 15% við tollafgreiðslu SEÐLABANKINN hefur fellt niður opinbera gengisskráningu um sinn og verða áríðandi gjald- eyrissölur afgreiddar með 10% álagi. Þá hefur fjármálaráðu- neytið tiikynnt, að tollafgreiðsla skuli miðuð við 15% hækkun á verði erlends gjaldeyris. Ráðstaf- anir þessar eru gerðar vegna óvissunnar í gjaideyrismálum vegna boðaðra aðgerða Banda- ríkjastjórnar. Höskuldur Jánssom, deildar- stjóri í fj ármálaráðuneytinu, Frá ísafirði: Rænulaus - eftir bílslys ísafirði, 16. ágúst. SÍÐASTLIÐINN föstudag varð harður árekstur við Dvergastein í Álftafirði. Fólksbifreið með 5 manns og jeppabifreið, sean í var einn maður, rákust harkalega á með þeim afleiðingum að flytja varð allt fólkið í sjúikrahúsið á Isafirði. Þrennt af fólkinu fékk fljótlega að fara heiim aftur, en bílstjóri fólksbifreiðarinnar og görnul kona eru enn á sjúkra- húsinu og lður þeim vel eftir atvikum. Aðfaramótt sunnudagsins var ekið á gangamdi mann á Hnífs dalsvegi. Slasaðist maðurinn mik ið og var hann fluttur til Reykja- vikur í gær. Hefur hann ekki enn komizt ti'l meðvitundar. Óiafur. gaf Morgunblaðinu þær upplýs- ingar í viðtali i gær að ástæðan fyrir því að miðað er við 15% hækkun við toliafgreiðslu, en ekki 10% eins og hjá gjaldejrris- bönikunum, væri sú, að þeir vildu vera öruggir í þessu efni. Þó sagðist hann telja, að hér væri um ríflega áætlun að ræða, en það væri m.a. gert til þeiss að menin myndu fremur gera þessi mál fyrr upp eftir að skráning er aftur örugg, því ef litlu munaði í þessu efni teldu þedr að þessi mál myndu vera að vefllkjaist mán uðum saman í ráðunieytinu. Hér fara á eftir fréttatilkynn- ingar um þessi mál frá Seðla- banikanum og fjármálaráðuneyt- imu. FRÉTTATILKYNNING FRÁ SEÐLABANKA ÍSLANDS „Þax sem gj aldeyrismarkaðir erlendis erú í aðaiiatriðum iok- aðir, þá hefur Seðlabainkinn nú fellt niður um sinn opinbera gengiisskráningu, meðam óvissu- ástand ríkir. Til þess að nauðsynfleg við- skipti geti farið fram, hafa gjald- eyriis-viðskiptabankamir ákveð- ið, að áríðandi yfirfærslur (sölur gj aildeyris), verði afgreiddar gegn greiðslu 10% geymslufjár umfram það gengi sem gilti sL föstudag, 13. þ.m., með fyrirvara um lokauppgjör á grundvelli op- inberrair gengisskráningar, þeg- ar húm hefst á ný. Gagnvart erlendum ferða- mönnum gildir sú framkvæmd, að bankamir anraist fyrir þá hæfilegar yfirfærslur á því gengi, sem í gildi var sL föstudag, 13. þ.m. Kaup gjaldeyris fyrir útflutn- ing geta fairið fram á gengi eins Framhald á bls. 23. Skemmdarverk unnin á Eyjabát 250 þús. kr. tjón vegna grjóts í túrbínu skipsins FYRIR nokkru var framið skemmarverk á vélbátnum Krist björgu VE 79 þar sem báturinn lá í höfn í Vestmannaeyjum. Blágrýtissteinum var kastað nið- Ur í reyfkiháf skipsina, þannig að þeir lentu í túrbínu vélarinnar og kostar stykkið, sem eyðilagðdst, liðlega 200 þús. kr. — Viðgerðim mun ffosta um 250 þús. kr., en skipverjar tóku ekfci eftir þessu fyrr en skipið var komið á sjó og þá höfðu steimamdr valdið eyðileggingu á vélinni. Tíu stein- ar fundust slípaðir í túrbímu ákipsins, en enginn á þilfari eða bátadekfcá, þannig að allar líkur benda til þesa að uim skeimimdar- verk sé að ræða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.