Morgunblaðið - 08.09.1971, Blaðsíða 21
21
--t—n' --------—•11 ■■■'T'. .■■-■•■F.-i—-r".—■ . ■ ■ !K
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1971
— Itreka
Framhald af bls. 1.
leyti höfðað til hafbotnsráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna
1973. Mbl. spurði Einar þvi næst
hvort hann hefði rætt varnar-
mál íslands, en hann kvað nei
við og sagði að varnarmál hefðu
ekki verið til umræðu á fund-
inum.
1 sameiginlegri yfirlýsin.gu að
fundinum loknum ítrekuðu ráð-
herrarnir stuðning sinn við til-
ra.unir til að koma á ráðstefnu
um öryggismál Evrópu. Segja
ráðherrarnir að slik ráðstefna
geti mtyndað’ eðlilegan ramma
um samningsviðræður, er miði
að því að draga úr spennunni
i Evrópu milli austurs og vest-
urs. — Ráðherrarnir töldu
að hin jákvæða þróun
i samskiptum austurs o,g vest-
urs undanfarið væri mikilvæg-
ur þáttur í að koma af stað
marghliða undirbúningi undir
slíka ráðstefnu.
Þá lýistu ráðiherrarnir þeirri
von sinni að Sovétníkin og
Bandaríkin kæmust fljótlega að
samkiomu.lagi í viðræðum sínum
u.m afvopnunarmál. Þá létu þeir
í ljós ánægju með hve vel hef-
ur miðað í viðræðunum um bann
við notkun eitu.refna í hernaði
á ráðstefnunni í Genf og létu í
ljós von um að samkjomulag ná-
ist fljötlega.
Ráðherrarnir ræddu ástandið
í Pakistan og hv'öttu til að gerð
ar yrðu ráðstafanir til að stöðva
flóttamannastrauminn til Ind-
iands o,g fólkinu gert kleift að
snúa aftur til heimikynna sinna.
Ráðherrarnir lýstu allir yfir
stuðningi sínum við Max Jaco'b-
sen frá Finnlandi í embætti
framkvæmdastjóra S.Þ. en U
Thant lætur af störfum um
næstu mjánaðamót.
Þá var rætt um mengun ha.fs-
ins og ákveðið að boða til ráð-
stefnu aðildalanda NA-Atiants-
hafsfiskveiðiráðstefnunnar i
Osló í október n.k. til að ræða
vandamál á þessu sviði.
Einar Ágústsson utanríikisráð-
herra Islands bauð til næsta ráð
herrafundar í Reykjiavík og
verður hann haldinn dagana 24.
—25. apríl n.k. Fundinn nú sátu
auk Einars, Paul Hartlin.g, ut-
anríkisráðherra Danmerkur,
Vaeinoe Leskinen utanríikisráð-
herra Finnlands, Andreas Capp-
elen utanrí'kisráðherra Noregs
og Krister Wickman utanrikis-
ráðherra Sviþjóðar.
— Irland
Framhald af bls. 1.
kaþólskra í stjórn N-lrlands.
Mótmælendur hafa farið með
völd í landinu í rúma hálfa öld.
Fréttastofan segir, að Heath hafi
visað þessu á bug, en lýst því
yfir að hann muni innan
skamms senda Reginald Maudl-
ing innanríkisráðherra Breta til
viðræðna við stjórn N-íilanda
svo og fulltrúa kaþólskra.
Á meðan á fundi ráðherranna
stóð fréttist af stöðugum átökum
á N-írlandi og í gær varð 14 ára
gömul skólastúlka í London-
der.ry fyrir byssukúlu og beið
þegar bana. Hún var hundrað-
asta fórnarlamb átakanna í land
inu á sl. tveimur árum. í frétt-
um frá Londonderry í kvöld
sagði að brezkir hermenn ættu
í höggi við leyniskyttur við múr
inn, sem aðskilur Bogsidehverfið.
— Sögualdarbær
Framhald af bls. 32.
ganga úr skugga um tilvist papa
á íslandi eða ekki.
Þá mun hr. Kristján hafa
áformað að kanna lítillega í
þessum leiðangri rústir á austan-
verðri Papey, þar sem talið er
að papabyggð hafi verið, en þess
má geta að fornar rústir í Papey
hafa orðið sjónum að bráð.
Blaðamaður Morgunblaðsins
brá sér út í Papey í fyrradag
til þess að leita frétta af rann-
sókninni. Sjá grein og viðtal við
dr. Kristján Eldjárn á síðu 16
og 17.
Gústaf Papeyjarbóndi fylgdi
okkur norður eyju til skips og
við héldum áfram að raibba
saman um eyjalif. Þó að
skyggnið væri mjlög takmarkað
sáum við af og til grilla í úteyj
ar Papeyjar, en þær eru taldar
7 auk dranga og skerja, sem
býsn eru af. Nöfn úteyjanna
eru Arfaklettur, Hvanney,
Sauðey, Arnarey, Eyri, Flatey
og Höfði. Sjálf er Papey köll-
uð Heimaeyjan, en allar úteyj-
arnar nema Arfaklettur eru
þaktar iunda og öðrum bjarg-
fugli.
„Þeir hlutir, sem hafa fundizt
eru áþekkk þeim, sem finnast
í rústum frá söguöld, en þessi
bæjarrúst virðist vera skáli, á-
þekkur skálum, sem hafa verið
grafnir upp annars staðar. Við
höfum fundið pottbrot úr klé-
bergi, en það er norskt og i pott
brotið er grafið krossmark. Þá
höfum við einnig fundið töflu
úr hneftafli, sem var eins konar
taflleikur, er fornmenn stund-
uðu sér til gamans. Snældusnúð
höfum við einnig fundið og
nokkur brýni úr no*rsku flögu
bergi. Auðséð er á öskunni í
bæjarrústinni að búið hefur ver
ið í þó nokkurn tíma- hér á
Goðatóttum, en þessi bær hefur
aðeins verið byggður einu
sinni.“
Aldursgreining viðarkolanna,
þessir ágætu hlutir og lagið á
húsunum bend'r til 10. aldar
og t.d. í Skallakoti í Þjörsár-
dal, eru sam,s konar hús frá
sama tím,a, en mi'klu stærri og
sama er að segja um Hvítár-
holtshúsin, sem eru 3 skiálar.
Hins vegar sagði forsetinn
að þessi sögualdarbær væri
mjög sérkennilegur að þvi
leyti að klappirnar standa upp
úr gólfinu og er þar um að
ræða að því er virðist grunn-
berg eyjarinnar, en útveggir
og bæjardyr koma mjög greini
lega fram. Talsverður halli er
á gólifi bæjarins, bunga í miðj-
unni, en hallar til beggja hliða.
I gær var áætlað að lj'úka
við rannsókn Goðatóttabæjar
ins og ætiaði forsetinn þá að
ljúka við að teikna grunn bæj-
arins og miæla hann út, en etoki
sögðust þeir fléla.gar geta gert
bæjarstæðið fint fyrr en þorn-
aði á. Þá ætluðu þeir að
hreinsa steinana og snurfusa
Antónía lá fyrir ankeri á
vognum og við stutokum um
borð. Stefnan var tetoin til
lands. Enn ein sögnin um Pap-
ey er orðin að staðreynd, sögu-
aldarbær frá 10. öld grafinn
upp af fiorseta íslands, herra
Kristjáni Eldjárn og félögum
hans í septembermánuði 1971,
en rétt áður en við sigldum
fyrir Höfðann sáum við Gúst-
af bónda gan,ga inn á Papey,
inn i þokuna milli berghólanna,
þar sem svo margt býr.
I bæjardyrum Goðatótta-
bæjarins.
Fjósrústirnar í Goðatóttum. Flórinn fyrir miðju.
— Papey
Framh. áf bls. 17
hve.rnig flórinn hefur legið og
básarnir. Þá töldum við að hér
væri aðeins um að ræða hús fyr
ir fénað, en skammt vestan við
fjósið var önnur l’úst, sem vVð
liófum að rannsaka 1, «ept. sl.
og þar höfum við ie'ið að grafa
síðan Ljóst er að héi er .rú'.t
af iöguaidarbæ.“
„Eru þetta ekki ívrstu rúst-
irnar, sem kannaóar eru frá
þcini tíma á Austurlandi?"
„Það mun vera, en iítið hefn.r
verið unnið að fornœinj araan-
sóknum á Austurlandi. Gústaf
þekkir hér hvern stein og
hverja þúfu og hann benti okk-
ur á sínum tíma á þá staði, sem
mest fornlegt er yfir og þessi
staður var forvitnilegastu*r. í
þessum bæ hafa menn búið og
hefur fjósið fylgt húsinu. Telja
má að húsið sé frá 10. öld og
hefur verið gerð aldursgreining
á viðarkolum úr fjósinu. Sú
greining kemur heim miðað við
það sem hægt er að ætla af gerð
húsanna, en fyrst og fremst er-
um við að kanna hvernig þau
hafa verið gerð. Fyrst héldum
við að þetta befði verið hús
veiðimanna, en nú sjáunr við að
þetta er svolítill bær, 15 m
langur og 3,5 m breiður með
langeldastæði á miðju gólfi.“
„Hvað hefur fundizt af hlut-
um í bæjarrústinni?“
rúst sögualdarbæjarins, en i
gær voru þeir einnig að safna
kolasýnishornum til aldurs-
greininigar.
Á 5 stöðum á landinu hafa
áður verið kannaðar rústir frá
Vítoingaaldartíimabilinu fyrir
1000. Er það í Hvítárholti, á
þremur stöðum í Þjörsárdal,
Klaufanesi i Svarfaðardal, sem
forsetinn rannsakaði 1941, Hof-
stöðum í Mývatnssveit og ís-
leifsstöðum í Borgarfirði. Pap-
ey er þvi sjötti staðurinn, sem
bær finnst á frá þessum tima.
Eins og fyrr segir var létt
hljóðið í Papeyja.rförum og þó
að þeir ha,fi etoki getað unnið
samifellt við uppgröftinn vegna
veðurs hefur verkinu miðað
vel áfram og etotoi hefur nið-
urstaðan verið til þess að draga
úr ánægjiunni. Rétt áður en við
tovöddum gautoaði Árni Hjart-
arson þvi fram að hann myndi
eklki linna látum fyrr en hann
væri búinn að finna einhvern
skartgrip húsfreyjunnar á
Goðatóttum, en það eina, sem
hafði fundlzt úr kistlum kvenna
var snældusnúðurinn.
FYRSTA SENDING — ÓBREYTT VERÐ
Fyrsta sending væntanleg um miðjan september. Verð bilanna i þessari fyrstu
sendingu verður óbreytt frá því í sumar. Pöntunum veitt móttaka nú þegar.
Sunbeam er aflmikil og örugg
fjölskyldubifreið.
Allt á sama Staö Lauyavegi 118 - Simi 22240
EGILL VILHJÁLMSSON HF