Morgunblaðið - 08.09.1971, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1971
23
Ályktanir
EFTIRTALDAR ályktanir voru
samþykktar á aöalfundi Stéttar
sambands bænda 1971, sem hald-
inn var á Höfn í Hornafirði dag
ana 28.1—29. ágúst sl. Áður er get
ið ályktana fundarins um endur
skoðun Framleiðsluráðslaganna
og um stækkun Bændaballarinn
ar.
HÓPTRYGGINGAR
Fundurinn felur stjórn sam-
bandsins að láta fara fram ræki
lega könnun á tryggingarþörf
landbúnaðarins og láta gera áætl
un. um ti'yggingarkerfi fyrir
bændur sem einstaklinga og at-
vinnurekendur, þar sem m.a,
yrðu teknar upp hóptryggingar
í ríkum mæli og reynt eftir föng
um að samræma lágt verð og
mikið öryggi.
Niðurstöður könnunarinnar og
áætlunarinnar verði síðan kynnt
ar fyrir búnaðarsamböndunum og
hreppabúnaðarfélögunum.
HEYFLUTNINGAR
Fundurinn vekur athygti á því,
að enn þurfa einstakir bændur
að kaupa hey vegna harðæris
fyrri ára og hefur þá einkum í
hug innanvert ísafjarðardjúp og
Strandasýslu.
Fyrir því skorar fundurinn á
Búnaðarfélag íslands að kanna
hverjir þu*rfa að kaupa og flytja
hey um langan veg og vinna að
því að þeir fái fyrirgreiðslu með
svipuðu sniði og verið hefur.
BYGGÐAÁÆTLANIR
Fundurinn skorar á ríkisstjóm
og Alþingi að hraða gerð byggða
áætlana, einkum þa>r sem byggð
er ótrygg og minnir í því samb.
á að sumar sveitir eða byggða-
félög á Vestfjörðum eiga á hættu
að leggjast í eyði sökum ýmiss
konar erfiðleika.
Gagnvart slíkum sveitum bend
ir fundurinn á að taka til athug
unar auk skipulegrar kvikfjár-
ræktar, hugsanlegt fiskeldi, efl-
ingu og aukna nýtingu hlunninda
o. fl.
Stuðla þarf að því að mjólkur
framleiðsla á Vestfjörðum verði
ævinlega til að fullnægja mjólk
urneyziu þar.
FISKIRÆKT
Fundurinn telur, að í fiskirækt
í ám og vötnum, sjávariónum og
fjörðum, ásamt eldi fisks í tilbún
um tjömum séu miklir mögu-
leikar til vaxtar fyrir íslenzkan
landbúnað.
Þá vill fundurinn hvetja alla
bændur til að fylgjast sem bezt
með því, sem er að gerast í fiski
ræktarmálum og láta kanna svo
fljótt sem auðið er möguleika
jarða sinna til aukinnar fiski-
ræktar.
Aðalfurdurinn fagnar vaxandi
skilningi stjómvalda á þessum
málum og telur að auka beri fjár
veitingar til Veiðimálastofnunar
innar svo hún geti sinnt verk-
efnum sínum við rannsóknir á
fiskiræktarmöguleikum og leið-
beiningarþjónustu við bændur.
Fundurinn telur, að efla beri fisk
ræktarsjóð svo hann verði fær
um að veita lán og styrki til fi,sk
ræktagmanmvirkja og fiskivega
og setja þarf lög um nýtingu
fjarða til fiskiræktar.
SÉRSTAÐA V-SKAFT-
FELLINGA
Fundurinn telur, að vegna sér
stöðu Vestur-Skaftfellinga í sam
göngumálum, sem stafar af hafn
leysi og löngum flutningaleiðum
á landi, sé alveg óforsvaranlegt,
að tilbúinn áburður skuli ekki
vera seldur á sama verði í Vík í
Mýrdal og á hafnarstöðum um-
hverfis landið. Aðalfundurinn
felur stjórn Stéttarsambandsins
að reyna að fá þessu breytt og
leggja þunga áherzlu á þetta rétt
lætismál.
INN-DJCP
Vegna erinda oddvita og for-
manna búnaðarfélaga í Snæ-
fjalia-, Nauteyrar-, Reykjafjarð-
aðalfundar Stéttarsambands bænda 1971
ar- og ögurhreppi, um aðstoð
við að auka J'æktun í Inn-Djúpi,
vegna kals og harðæris undan
farin ár og á þann hátt treysta
búsetu á þessu svæði, felur aðal
fundur Stéttarsambands bænda
1971 stjóm sinni að leita eftir því
við landnámsstjórn að landnám
ríkisins taki að sér endurskipu-
lagningu á -ræktun í Inn-Djúpi i
samræmi við ákvæði 29. og 45.
greinar laga nr. 45/1971 um stofn
nám, ræktun og byggingar í
sveitum.
GRÆNFÓÐUR OG GRAS-
KÖGGLAR
Fundurinn telur að stofnsetn
ing grænfóðurverksmiðja og
framleiðsla grasköggla sé þjóð-
hagslega hagkvæm, stuðli að
meiri fjölbreytni í landbúnaðar-
f-ramleiðslunni, veiti aukna trygg
ingu fyrir fóðuröflun í misjöfnu
árferði og geti sparað umtals-
verðar fjárhæðir í erlendum
gjaldeyri.
Fundurinn lýsir ánægju yfir
því, að lögtekinn hefur verið
stuðningur ríkisins við stofnun
grænfóðunverksmiðja samanber
lög nr. 45/1971.
Fundurinn skorar á Alþingi og
ríkisstjórn að auka verulega fjár
framlög til bygginga grænfóður
verksmiðja frá því sem ge>rt er
ráð fyrir í lögum og tryggja
þeim nægilegt rekstrarfé.
Jafnframt verði lagt fram
nokkurt fjármagn til að draga
úr flutningskostnaði á grasköggl
um til hé>raða er liggja fjarri
verksmiðjunum, svo að sem fiest
ir bændur eigi þess kost að kynn
ast og nota þessa framleiðslu.
Jafnframt leggur fundurinn á
herzlu á það, að nú þegar verði
gerð héildaráætlun um stofn-
setningu grænfóðurverksmiðja,
eins og ráðgert e>r í 55. grein laga
nr. 45/1971.
TAMNINGASTÖÐVAR
Fundurinn telur nauðsynlegt
að koma á fót tamningastöðv-
um sem séu sérstaklega miðað-
ar við það að temja hesta til út
flutnings. Ennfremur að kynna
meðal hestaframleiðenda hvaða
kröfur kaupendur gera til hest-
anna.
Einnig telur fundurinn nauð-
synlegt að haldin séu námskeið
fyrir tamningamenn og vill í þvi
sambandi benda á að haldin séu
námskeið við bændaskólana.
FLOKKUN Á GÆRUM
Fundurinn beinir því til stjórn
ar sambandsins að hún beiti sér
fyrir því að gærur verði metnar,
flokkaðar og greiddar samkvæmt
gæðum.
VERÐLAGSGRUND-
VÖLLURINN
Samkvæmt niðurstöðum bú-
reikninga og skýrslum þeim, sem
Hagstofa íslands hefur birt á
meðaltekjum hinna ýmsu starfs-
stétta, hefur hlutur bændastéttar
innar verið mjög fyrir borð bor
inn á undanförnum árum.
Við endurskoðun verðlags-
grundvallar árið 1972 felur fund
urinn stjóm sambandsins að hafa
í huga eftirfarandi atriði:
1. Kostnaðarliðir svo sem fóð
urbætir, áburður, vextir, flutn-
ingsgjald og rafmagn verði leið
rétt til samræmis við niðurstöður
búreikninga og annarra traustra
heimilda.
2. Aðstöðugjald verði tekið inn
í verðlagsgrundvöllinn.
MARTIN BORLAUG
Fundurinn skorar á Búnaðarfé
lag Íslands að athuga möguleika
á því í samvinnu við Stéttarsam
bandið að bjóða Martin Borlaug,
sem kallaður hefur verið höfund
ur grænu byltingarinnar, hingað
til lands og vekja þannig athygli
á vandamálum íslenzkrar gras-
ræktar. Ennfremur er skorað á
Búnaða-rfélag íslands að leita eft
ir styrk frá Sameinuðu þjóðun-
um til að finna og fá erlendis frá
fræ grasstofna, sem verulegur
fengur væri að fyrir íslenzka
grasrækt.
MARKAÐSLEIT
Fundurinn telur að mikið af ía
lenzku landbúnaðai'framleiðsl-
unni hafi þá sérstöðu að leita
beri markaðs fyrir hana á erlend
um vettvangi sem sérstaka gæða
vöru sem engin önnur þjóð haíi
upp á að bjóða t.d. íslenzka dilka
kjötið, íslenzka ullin og gærurn-
ar, svo og íslenzki reiðhesturinn.
Þessa sérstöðu ber okkur ís-
lendingum að notfæra til hins
ýtrasta og leita eftir því að
koma þessum vörum í hæsta verð
flokk.
Fyrir því leggur fundurinn til
að nú þegar á þessu ári leiti fram
leiðsluráð eftir samstarfi við land
búnaðarráðuneytið og SÍS um að
hrinda i framkvæmd slíkri mark
aðsleit fyrir íslenzka dilkakjötið
og sé þá sérstaklega miðað við
hótelmarkað.
Fundurinn samþykkir að veita
stjórn Stéttarsambandsins heim
ild til að verja nauðsynlegu fé í
þessu skyni.
NIÐURFELLING SÖLUSKATTS
Fundurinn þakkar, að felldur
hefur verið niður söluskattur á
nokk-rum landbúnaðarvörum og
væntir þess fastlega, að unnt
verði við nánari athugun að fella
niður skattinn á fleiri tegundum
landbúnaðarvara.
Þá felur fundurinn stjórn sam
bandsins að vinna að því við rík
isstjórnina, að felldur verði nið
ur söluskattur á rafmagni á þeim
svæðum, þar sem Rafmagnsveit
ur ríkisins selja rafmagn í smá-
sölu og að endurgreiddur verði
- veita aukna ánaeg ju og betri árangur
í skólanum og heima!
PENOL 300 fæst í flestum RITFANGA- OG
BÓKAVERZLUNUM í hentugum plasthylkjum
með 4, 8, 12, 18 eða 24 mismunandi litum
— eða í stykkjatali.
Vinsælastir vegna þess
hve ....
# lengi þeir endast
# blekgjöfin er jöfn
# oddurinn er sterkur
# litavalið er fjölbreytt
tússlitirnir
Heildsala: FÖNIX s.f., Sími 2-44-20, Suðurgötu 10, Rvik.
söluskattur af öllu rafmagni til
húsahitunar.
Fundurinn leggu>r áherzlu á, að
rafmagn til sambærilegra nota
verði selt á sama verði til allra
þegna þjóðfélagsins.
HAGKVÆMNI f VÉLA
VERZLUN BÆNDA
í sambandi við erindi Hafþórs
Helgasonar um vélaverzlun í til
boðsformi o'g undirtektir all-
margra búnaða-rsambanda, kjör-
mannafunda og fleiri aðila, álykt
ar fundurinn að kosin verði 3ja
manna nefnd sem annist eftirfar
andi:
a. Athugi nánar hugmyndir Haf
þórs Helgasonar um hagkvæmari
vélaverzlun bænda.
b. Nefndinni sé heimilt, ef at
huganir hennar ve>rða jákvæðar
að vinna að tilraunainnflutningi
í tilboðsformi á einhverjum þeim
tækjum, sem mest eftirspurn er
eftir. Sé nefndinni heimilt að
ráða menn til að annast þá fram
kvæmd.
Nefndin geri stjórn sambands-
ins grein fyrir störfum sínum
fyrir næsta aðalfund sambands-
ins.
ORLOF BÆNDA
Fundurinn beinir því til stjóm
ar Stéttarsambandsins að kanna
ýtarlega á hvem hátt hægt er
að ráða aðstoðarfólk i sveitum
og til afleysinga í forföllum til
þess að gera orlof sveitafólks
framkvæmanlegt.
JARÐAKAUP
SVEITARFÉLAGA
Fundurinn beinir því til Al-
þingis og ríkisstjórnar að nú þeg
ar verði jarðeignasjóði ríkisins
útvegað nægilegt fjármagn til að
lána sveitarfélögum, sem neyta
verða forkaupsréttar sing á jö>rð
um.
RANNSÓKNIR
Á BCFJÁRSJÚKDÓMUM
Fundurinn telur mikla nauð-
syn þess að efldar verði hagnýtar
rannsóknir í þágu landbúnaðar-
ins og vill í því sambandi sérstak
lega benda á rannsóknir á búfjár
sjúkdómum.
Felu.r fundurinn stjóm sam-
bandsins að stuðla að framgangi
þeirra mála.
LÁNAMÁL
Fundurinn skorar á Alþingi og
ríkisstjórn að gera nú þegar ráð
stafanir til að koma lánamálum
landbúnaðarins í viðunandi horf.
Felur fundurinn stjó>rn Stéttar
sambandsin3 að fylgja því máli
vel eftir.
SKÓLAMÁL
Eftir allmiklar umræður var
svofelld frávísunartillaga Sig-
geirs Björnssonar Holti og Enigil
berts Ingvarssonar, Tyrðilsmýri,
samþykkt: Þar sem tími fundar
ins leyfir ekki nægilega athugun
á grunnskólafrumvarpinu, vísar
fundurinn framkominni tillögu
frá, en felur stjórn Stéttarsam
bandsins að fylgjast með af-
greiðslu málsins á Alþingi og
gæta hagsmuna sveitanna.
Með alúð þakka ég öllum
mínum vinum og kunningjum
alla þá miklu vináttu, velvild
og gjafir, sem þeir hafa sýnt
mér á afmælisdegi mínum
30. ágúst sl.
Ég bið himnaföður okkar
allra að blessa ykkur öll aUa
tið.
Sigríður ÞorgLlsdóttir,
Stórholti 31.
Clitbrá
Skólasamfestingarnir eru komnir.
Verzlunin GLITBRÁ,
Laugavegi 48.
ADAX
rafmagnsþllofnarnlr
hafa fengið æðstu
verðiaun, sem veltt
eru innan norsks
iðnaðar
Húsbyggjendur! Kynnið yður fyrst og
síðast ADAX rafmagnsþilofnana. — Þeir
standa fremst, hvað varðar útlit, öryggi
og sparneytni. Tvöfalt thermostat.
Auðveldir í uppsetningu. Létt þrif.
Margar stærðir og gerðir.
3 ÁRA ÁBYRGÐ
SjáiS þér hjá okkur
Einar Farestveit & co. hf raftækj'averzlun
Bergstaðastræti 10A. Sími 16995