Morgunblaðið - 20.10.1971, Page 16

Morgunblaðið - 20.10.1971, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2Ó; OKTÓBER 1971 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Hsraldur Sveinsson. Rilstjórar Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson. Ritstjómarfulitrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Bjöm Jóhannsson. Auglýsingastjóri Arni Garðar Kristinsson. Ritetjóm og afgreiðsla Aðalstraati 6, simi 10-100 Auglýsingar Aðalstræti 6, simi 22-4-80. Askriftergjald 195,00 kr. á mánuði innanlands. f lausasölu 12,00 kr. eintakið. FORUSTULAUS OG STEFNULAUS RÍKISSTJÓRN ¥nnan allra stjórnarflokk- anna gætir nú vaxandi óróa vegna þess, að enn er raunveruleg stefnubreyting ekki farin að sjá dagsins Ijós hjá vinstri stjóminni. „Vinstri stefnan“ lætur á sér standa enn sem komið er. Þessi stað- reynd er meginástæðan fyrir því, að í stefnuyfirlýsingar- ræðu sinni lagði Ólafur Jó- hannesson, forsætisráðherra, svo ríka áherzlu á að reyna að sannfæra þingheim og al- menning í landinu um að „gjörbreytt stefna í þjóð- félagsmálum“ hefði verið tek- in upp. Það kann að koma í Ijós síðar meir, en slík stefnu- breyting er ekki enn orðin að veruleika. Vinstri stjórnin hefur nú satið að völdum í rúma þrjá mánuði. Hvað hefur hún gert? í fyrsta lagi hefur hún framfylgt stefnu og ákvörð- unum fyrrverandi ríkisstjórn- ar með því að hækka bæt- ur almannatrygginga, fram- lengja verðstöðvun og láta vísitölustigin tvö koma til út- borgunar. Verðstöðvunin var framlengd til áramóta í sam- ræmi við stefnu Viðreisnar- stjórnarinnar, vísitölustigin tvö komu til útborgunar mán- uði fyrr en ætlað var og hækkun á bótum almanna- trygginga kom til útborgunar hálfu ári fyrr en fyrirhugað var. í þessu felst engin stefnubreyting, hins vegar á eftir að koma í Ijós hverjar afleiðingamar verða fyrir fjárhag ríkissjóðs á þessu ári. Vinstri stjórnin hefur horf- ið frá fyrirhuguðum vinnu- brögðum í landhelgismálinu og fallizt á þau sjónarmið Sjálfstæðisflokksins að leggja bæri tillögur um mikilvægar ákvarðanir í landhelgismál- inu fyrir Alþingi. Jafnframt hefur hún horfið frá ráða- gerðum Lúðvíks Jósepssonar um að tala ekki við einn eða neinn um útfærslu fiskveiði- takmarkanna fyrr en eftir 1. september á næsta ári og ákveðið að taka upp viðræð- ur við Breta í nóvember nk. Hér er vissulega um stefnu- breytingu að ræða, en hún er fólgin í fráviki frá fyrri fyrirætlunum stjórnarflokk- anna. Vinstri stjórnin hefur fall- fzt á ákvörðun stjómar Landsvirkjunar um stórvirkj- un í Sigöldu, sem með engu móti fær staðizt nema mark- aður finnist fyrir þá miklu orku, sem þar verður fram- leidd. Með því að fallast á ákvörðun stjómar Lands- virkjunar hefur vinstri stjórn- in viðurkennt að stefna Við- reisnarstjórnarinnar í virkj- unarmálum var rétt og jafn- framt játað, að smávirkjana- hugmyndir núverandi iðnað- arráðherra, meðan hann var í stjórnarandstöðu, eru í engu samræmi við raunveruleik- ann og hagsmuni þjóðarinn- ar. Vinstri stjómin hefur lagt fram fjárlagafrumvarp, sem er hvorki fugl né fiskur vegna þess, að þar er engin stefna mótuð í efnahagsmál- um, þar er ekkert tillit tekið til væntanlegra breytinga í kaupgjaldsmálum og á engan hátt gefið í skyn, hvað stjóm- in ætlast fyrir í efnahagsmál- um. Þannig bólar enn ekki á stefnumótun í þjóðfélagsmál- um hjá stjóm Ólafs Jóhann- essonar. Hún hefur ýmist framfylgt ákvörðunum fyrri ríkisstjómar en gert það með klaufalegum hætti og viðvan- ingslegum vinnubrögðum, fallið frá fyrri yfiríýsingum í virkjunarmálum og lýst yf- ir algeru stefnuleysi í efna- hagsmálum. Hinir fyrstu 100 dagar þessarar ríkisstjómar hafa enga hugmynd gefið fólkinu í landinu um það, hvers konar ríkisstjórn þetta verður. Fram til þessa dags hefur hún hvorki reynzt vera fugl né fiskur. Þetta stefnuleysi vinstri stjómarinnar þarf engum að koma á óvart. Fyrstu þrír mánuðir stjórnartímabils hennar hafa leitt í ljós, að stjórnin er forustulaus. í ræðu þeirri, sem forsætisráð- herra flutti á Alþingi í fyrra- dag kom nákvæmlega ekkert fram umfram það, sem skýrt var frá í málefnasamningi stjórnarinnar í sumar. Hin al- menna afstaða hennar til kjaramála hefur ekkert skýrzt frá því um miðjan júlí. Um efnahagsmálin hafði forsætisráðherra ekkert að segja umfram það, að Alþingi yrði að taka ákvörðun um verðstöðvunina. Ummæli ráð- herrans benda ekki til þess, að ríkisstjórnin hafi hugsað sér neina tillögugerð til Al- þingis í þeim efnum — eða hvað?! Forsætisráðherrann las upp málefnasamning i V- :’. * iv--,;-íA I feréarispa Svo virðist sem Helgi Pjeturss hafi orðið föðurlandsvinur, þegar hann kom til Danmerkur. Einkennilegt og vafa- laust merkilegt rannsóknarefni hvers vegna Danmörk hefur haft þessi áhrif á Islendinga, eins og dæmin sýna. 1 bréfi sem skrifað er í Kaupmannahöfn haustið 1891 segir Helgi: „Skrif- aðu mjer nú mikið, og tíndu allt til, þvi nú er jeg orðinn ættjarðarvinur. Jeg bið að heilsa." Skömmu eftir áramót 1893 ber Helgi saman blómin á Islandi og annars stað- ar og segir. „Það er merkilegt að blóm- in eru yfir höfuð að tala litfríðari heima en hjer (í Danmörku), upp til fjalla og upp undir heimskautum og eru blómin lithreinni en á láglendi og sunnar á hnettinum. Það er eins og þau eigi að bæta það upp með litprýði sinni hvað fá þau eru.“ Hann segir að ísland sé ungt, en Borgundarhólmur „með elztu löndum sem til eru.“ Og loks lýsir hann íslandi og hrikalegri fegurð þess í bréfi dags. 5. sept. 1893. Hann segir: „Þann 5. ágúst fór jeg með Jóni Blöndal upp að Hvammi í Norð- urárdal og daginn eptir gengum við upp á Baulu. Það er liparítsstrýta sem stendur upp úr basalthálsi. Það var allillt að komaust upp, það var víðast hvar eins og mjór urðarhryggur er við urðum að klöngrast upp, en sumstaðar voru klettar er nær dró gnípunni og voru þeir hálfu verri. En útsjónin var stórkostleg þegar upp var komið; mað- ur hefur ekki eiginiega hugmynd um hvernig Island lítur út, nema maður hafi komið upp á eitthvert hátt fjall, þá sjest fyrst hvað landið er tröllalegt. Mjer fannst nærri því, þegar jeg stóð uppi á Baulutindi, að við sem þar vor- um væru þeir einu menn sem til væru á landinu, gróðrarblettirnir voru alveg hverfandi í samanburði við jökulflák- ana snjóhvíta og kolsvart hálendið eða þá sandana og heiðarnar til norðaust- urs sem ekki var lífvænlegri litur á, en stórkostleg og tignarleg sjón var það.“ Með þessum orðum kveðjum við þá félaga Helga Pjeturss og Einar Jóns- son frá Galtafelli og þökkum þeim sam- fylgdina. En þá eru það heiðarnar. Og þá kemur Jón Trausti auðvitað í hug- ann. 1 inngangi Heiðarbýlisins segir (og erum við þá aftur komin á Axar- fjarðarheiðina) að fjallaheimurinn hafi laðað þá menn í faðm sér sem áttu ótrauða orku, en orðið þeim of kald- ur. Og rústir heiðarbýlanna kallar hann svo eftirminnilega „heiiagan graf- reit“......margir hafa grafið þar nið- ur það bezta, sem lífið hefur veitt þeim, blómaár æfinnar, göfugar hvatir og tilfinningar, starfskrafta sína, heilsu sína og loks lífið sjálft.“ Hver vissi þetta betur en Jón Trausti? Hann þekkti þetta fólk, þetta land. Og hann unni því, segir að Islend- ingar eigi eftir að nema heiðalöndin aftur, „þegar þjóðbrautirnar liggja utn landið, en ekki utan um það.“ Þá stækki landið inn á við. En betri sam- göngur en nú tíðkast eru frumskilyrði þess að unnt sé að stækka landið inn á við. Talsvert hefur þokazt áleiðis, en mikið er eftir. Eitt stefnir þó í fram- faraátt, þ.e. að vegagerðin sáir meðfram nýgerðum vegaköflum. Þannig gróa sárin fyrr. Er það vel. Slíkt ber snyrtimennsku Sigurðar vegamála- stjóra fagurt vitni. En það sem mest er um vert: næsta vor verður haf- izt handa um að leggja veg og byggja brýr yfir Skeiðarársand. Þá verður gam an að bresta austur og fara framan lands, eins og þeir segja í Skaftafells- sýslu, um ferðalög yfir sandana. Pétur, faðir Helga Pjeturss, sem stundaði grásleppuveiðar og aðra út- gerð i Reykjavík og á Suðurnesjum, segir í bréfi að hann vonist til „að allt hafi góða vegi“. Sumir segja að við höf- um ekki efni á að hafa góða vegi. Það getur ekki verið rétt, frekar að við höf- um ekki efni á að hafa ekki góða vegi. Dæmi um slappleika i þessum efnum: Milli Kópaskers og Raufarhafnar eru vegir bæði yfir Sléttu og Axarfjarðar- heiði og báðir niðurgrafnar slóðir þar sem kylfa hefur ráðið kasti. En veg- urinn yfir Axarfjarðarheiði er betri. Nú segir Halldór Blöndal mér að auð- vitað eigi að leggja veginn frá Núpa- sveit til Raufarhafnar yfir Stíg. Hann er ungur maður og á eftir að verða vegprestur þeirra Þingeyinga. Góðir sprettir eru á leiðinni milli Rauf- arhafnar og Þórshafnar, en afleitir kaflar á milli, t.a.m. um Fremri-Hálsa. Vegir, sem teppast við fyrstu snjókomu á vetrum vegna þess hvað þeir eru nið- urgrafnir, geta verið stórhættuleg- ir. Það er allt annað en gaman fyrir bílstjóra að sitja ósjálfbjarga fastur í bíl sínum á þjóðbraut, þá getur verið freistandi að reyna að komast til byggða í hríðinni. Af því geta hlotizt stórslys. Bandaríkjamenn segja: Við höfum ekki lagt vegi af því að við er- um ríkir, heldur erum við ríkir af því að við höfum lagt góða vegi. Áreiðan- lega er þetta rétt. Fólk, sem býr bæði við slæmar samgöngur og læknaskort, tollir ekki, en flyzt í þéttbýlið. Einnig þeir sem þurfa að borga tugi þúsunda fyrir börnin sín í heimavistarskóla. Sr. Sigmar á Skeggjastöðum sagði við mig að hann ætlaði að vera þar kyrr og leggja sitt af mörkum til að landið héldist I byggð. „Við verðum að byggja allt landið," sagði hann, „við getum ekki helgað okkur land sem er hálf- byggt." En þetta verður ekki gert nema með samgöngum sem auka öryggi fólks úti á landi, en stofnar því ekki i hættu eins og hálsarnir austur af Raufarhöfn, Hólssandur og Mývatnsöræfin, svo að nokkuð sé nefnt. Við eigum ekki einu sinni fullfæran veg að hjarta landsins, Þingvöllum. Samt er stundum talað um samgönguæðar, þegar minnzt er á þessa troðninga. En þetta eru þá í hæsta lagi háræðar — og sumar illa kalkaðar. SL ;jórnarflokkanna, en hafði ersýnilega engu efnislegu ið að bæta. Eina raunveru- :ga stefnubreytingin, sem rð er á gerandi, er á vett- angi örýggtsmála þjóðarinn- ar. En þar er líka glæfralega að farið eins og Jóhann Haf- stein benti á í þingræðu sinni í fyr“adag. Að lokinni þriggja mánaða valdasetu vinstri stjórnarinn- ar er dómurinn um hana teá, að hún sé forustulaus og stefnulaus. Bót í máli er þó að meðan vinstri stjórnin ger- ir í rauninni ekkert, veldur hún ekki varanlegu tjóni!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.