Morgunblaðið - 14.11.1971, Blaðsíða 12
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUINNUDAGUR 14. NÖVEMBER 1971
feanna
VIVIENNE
— ljósmyndari fræga fólksins
Konan hér á myndinni virðist
vera dæmigerð amma, feitlagin,
gráhærð með góðleg og glettnis-
3eg augu. En hún er alls ekki
nein venjuleg amma, held-
ur frægur ljósmyndari, sem á
langri ævi hefur tekið ótai
myndir af ýmsum mönnum. Enn
er hún í fullu fjöri, 84 ára göm-
ul og starfar að iðn sinni innan
um síðhærða og nýtízkulega
klædda starfsbræður í London.
Vivienne hefur tekið myndir
af forsætisráðherrum, kviik-
myndastjömum, konungbornu
fólki og leikkonum, öll leggja
þau einhvern tíma leið sina í
Ijósmyndastofu hennar í
London. Hún hóf feril sinn sem
listmálari, og eru myndir eftir
hana í konunglega listasafninu
í London. Sonur hennar —
Anthony Beauchamp — var
eiran af helztu Ijósmyndurum í
London. Hann tók fyrstu mynd-
irnar af leikkonunni Vivien
Ledgh, þegar hún lék á leiksviði
í East End. Þegar hann lézt,
hafði hann myndað aliar helztu
fegurðardisimar 1 Hollywood,
aMt frá Gretu Garbo tií Elísa-
betar Tayior. 51 árs að aldri tók
Vivienne við starfi sonar síns,
og fyrsta myndin, em hún tók,
birtist á forsíðu blaðsins
Tatler, og var af leikkonunni
Beatrice Lilie. Og þar sem hún
er mjög brezk í eðlá sínu og
sannur föðurlandsvinur, er hún
stoltust af myndum sínum af sjö
brezíkum forsætisráðherrum.
Henni firanst mest spennandi fyr
irsæta sín hafa verið Winston
Churchill. Hún hafði hitt hann
áður, vegna þess að sonur henn
ar, Anthony, var kvæntur Söru
Churchill, og þegar ákveðið
hafði verið, að hann sæti fyrir
hjá henni, birtist hann í Ijós-
myndastofunni snemma morg-
uns, kom sér fyrir í stól og
spurði: „Hvaða svip viltu?“
Hún varð dálítið taugaóstyrk,
en myndin varð stórfín, og sjálf
ur varð hann mjög ánægður með
hana.
Fegursta kona, sem hún hefur
myndað, var Vivien Leigh.
„Hún kom átta sinnum til
myndatöku til mín. Andlit
hennar var stórkostlegt og næst
um ógerningur að taka vonda
mynd af henni,“ segir Vivienne.
Nú er hún að gefa út æviminn-
ingar sínar, sem auðvitað verða
skreyttar myndum, sjálf segir
hún líf sitt hafa verið óvenju
viðburðarrikt. Burton-hjónin
vilja, að myndir af þeim birtist
í bókinni, sem á að bera nafn-
ið: Portrait by Vivienne. En
hún heldur áfram að starfa.
„Hamingjan góða", segir hún,
„hvers vegna í ósköpunum ætti
ég að setjast i helgan stein?
Myndatökumar eru allt mitt lif.
Apótek
Stúlka óskast hálfan eða allan daginn.
Helzt vön í apóteki eða snyrtivöruverzlun.
THboð sendist Mbl., merkt: „APOTEK — 3475“
fyrir 18. þessa mánaðar.
Ódýr skrifborð
hentug fyrir námsfólk á öllum aldri,
borðin eru framleidd úr eik og teak.
Stærð 120x60 cm.
G. SKÚLASON & HLÍÐBERG HF.,
Þóroddsstöðum, Rvík. — Sími 19597.
ÚLTÍ MA-gluggatjöld
Orval af nýjum vörum.
Gluggatjöld, dúkar, handklæði, straufrí sængurveraefni.
JÓLAVÖRUR.
ÚLTÍMA KJÖRCARÐI
II. hæð.
Um kvennablöð
þær halda mér gangandi."
Þrisvar í viku fer hún frá
heimili sínu í Brighton i Ijós-
myndastofuna í London. Ef hún
hefur óvenju rarikið að gera, gist-
ir hún þar, svo að hún geti tek-
ið til starfa snemma næsta morg
un. Hún segir leyndarmálið við
velgengni sina vera það, að
hún gefi sér alltaf nægan tíma
og sé mjög vandvirk. Hún seg-
ist hafa skoðað fólk allt sitt líf
og reynt að kynnast því. Þeg-
ar fóQk komi í myndastofuna, sé
það oft taugaóstyrkt og spennt.
Þá er það hennar verk að fá
fólkið til að slappa af og láta
því Hða vel. Það, ásamt góðri
lýsingu, segir hún vera aðalatr-
iðið.
Vivienne segir, að duglegir
kaupsýslumenn séu erfiðustu
fyrirsæturnar. „Þeir koma i Ijós
myndastofuna í svörtu fötun-
um sínum með stífa, hvita
flibba, dauðhræddir um, að und
irhakan komi fram á myndinni,"
segir hún. „Ég segi þeim að hafa
ekiki áhyggjur af undirhökunni.
Ég eigi töfrablýant, sem muni
laga hana, þegar myndatakan
sé afstaðin.“
(Christine Brown).
Ritstjóri tízkublaðsins Vogue
hefur um árabil verið banda-
rísk kona, Diana Vreeland að
nafni. Hefur henni tekizt að
halda því frumlegu og sérstæðu,
og hafa hinar glæsilegu síður
þess endurspeglað hátízkuna
með ölilum sínum glans og ævin-
týraljóma. En eins otg svo mörg
blómstrandi fyrirtæki, hefur
Vogue verið seint að viður
kenna þær þjóðfélagsbreyting-
ar, sem orðið hafa á sviði tízku
og blaðamennsku undanfarin ár,
og hefur ekki breytt hinu
glæsilega útliti sínu og stíl, sem
það hefur alla tíð haft.
Nú er Diana Vreeland orðm
71 árs gömul og hefur látið af
störfum sem ritstjóri, en við er
tekín Grace Mirabella, sem ver-
ið hefur aðstoðarritstjóri s.l. 8
ár. Virðist nú augljóst, að
Vogue muni breyta allveruiega
um svip, og hefur hinn nýi rit-
stjóri látið þau orð falla, að
hún vilji að blaðið nái til scærra
hóps kvenna, jafnvel þótt það
kosti talsverða breytingu á efni
og orðalagi.
1 hinum þrönga heimi tízku-
blaðamennskunar eru menn
vissir um, að Diana Vreeland
hafi ekki af fúsum vilja vikið
frá blaðinu. Menn segja, að
Alexander Liberman, hinn hæfi
leikamikli, rússneski mynd-
höggvari, sem er forstjóri fyr-
Diana Vreeland.
Atvinnurekendur
Ung stúlka, máladeildarstúdent, óskar eftir atvinnu fyrri hluta
dagsins, eða kvöld- og helgarvinnu. Er vön afgreiðslustörfum,
hef vélritunarkunnáttu. Margt kemur til greina.
Tilboð sendist til afgr. blaðsins fyrir 16. nóv., merkt: „3476“.
Vörubílar
Tilboð óskast í nokkra Bedford-vörubíla, yfirbyggða, er verða
til sýnis miðvikudaginn 17. nóv. 1971.
Tílboðum sé skilað fyrir kl. 5 sama dag.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna
öllum.
Mjólkurbú Flóamanna.
irtækis þess, sem á blaðið, hafi
ráðið þessari ráðstöfun, og orð-
rómur hefur verið á kreiki um,
að grunnt hafi verið á þvi góða
milli þeirra.
Einn tízkufrömuður hefur líkt
tízkublaðinu Vogue við rúss-
nesku hirðina, og telur að timi
Diönu Vreeland hafi verið lið-
inn. Annar segir, að Liberman
stjórni blaðinu, og að hann hafi
viljað fá betri stjórnanda.
Grace Mirabella.
Vreeland er afar frumleg, en
ekki góður framkvæmdastjóri
— hún er á annarri bylgju-
lengd. Grace Mirabelia, sem er
fertug að aldri, þykir af'ur á
móti stórkostlegur vinnu-
kraftur, enda þótt hana skorti
frumleik fyrirrennara síns
Vogue tapaði 38% af aug-
lýsingatekjum sinum fyrstu
mánuði þessa árs, og hetur það
sennilega flýtt fyrir ritstjóra-
skiptunum. Harðasti keppinaut-
ur Vogue, Harper’s Bazaar þar
sem Diana Vreeland vann í 25
ár áður en hún fór til Vogue,
tapaði lika (37%), én kvenna-
blaðið Glamour tapaði aftur á
móti aðeins 3% miðað við næsta
ár á undan. Þetta þykir tízku-
blaðamönnum benda til þess, aö
hin nýja gerð Glamour, sem
fjallar um fjöldamörg áhugamál
kvenna en ekki aðeins fatnað,
verði e.t.v. höfð að leiðarljósi,
þegar blaðið breytir um svip.
Vogue ætti að verða meira 1
tengslum við nútímann.
Hinn nýi ritstjóri er mjög vel
iátinn af starfsfólki blaðsins og
mikil hæfileikakona. Hún vill,
að blaðið nái til allra kvenna,
og segir það muni birta efni,
sem verði skemmtilegt og speran
andi fyrir utan auðvitað tizk-
una. Hún segist vilja vekja
áhiuga kvenna og fræða þær, og
muni hún leita ráðlegginga hjá
fyrirrennara sínum.
Diana Vreeland mun vinna
áfram á blaðinu, hefur þar sína
skrifstofu og gefur góð ráð.
Hún segir það alltaf hafa verið
skoðun sína, að sérhver kona
ætti að hafa tækifæri til að vera
eins aðlaðandi og hún vill vera.
Sjálfstœðiskvennafélagið EDDA helduri asar að Hallveigarstöðum
í dag, sunnudaginn 14. nóvember klukkan IS.oo. Margt glœsilegra
og góðra muna til jólagjafa fyrir lágt verð — Nefndin