Morgunblaðið - 20.11.1971, Síða 16

Morgunblaðið - 20.11.1971, Síða 16
16 MORGUNIBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1971 Útgafandi hf. Árvakur, Reykjavtk. Framkvaamdastjórí Heraldur Sveinsson. Riletjórar Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Bjöm Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10-100 Augiýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80. Áskriftargjald 195,00 kr. á mánuði innanlands. f lausasölu 12,00 kr. eintakið. HÖFT OG PÓLITÍSK FORSJÁ Tiyfeð frumvarpi því um lfl Framkvæmdastofnun ríkisins, sem lagt var fram á Alþingi í fyrradag, hefur rík- isstjórn Ólafs Jóhannessonar snúið baki við þeirri frjáls- ræðisstefnu í athafnalífi þjóðarinnar, sem ríkt hefur frá upphafi stjórnarferils Viðreisnarstjórnarinnar og fram til þessa dags. Nú er bersýnilega stefnt að stór- kostlegri samþjöppun valds í höndum pólitískra valdhafa. Stofnun á borð við Fram- kvæmdastofnun ríkisins þekk ist ekki nú á tímum í vestr- ænum lýðfrjálsum löndum, þar sem horfið var frá hafta- stefnu og opinberri forsjá fyr- ir u.þ.b. tuttugu árum, eftir skammvinnt haftatímabil að lokinni heimsstyrjöldinni síð- ari. Framkvæmdastofnun ríkis- ins á að starfa í þremur deildum, hagrannsóknadeild, áætlanadeild og lánadeild. Yfir hverri þessara deilda verður forstöðumaður, þ. e. þrír forstöðumenn. Yfir þess- um þremur forstöðumönnum munu starfa þrír aðalforstjór- ar Framkvæmdastofnunar- innar, einn frá hverjum stjórnarflokkanna. Yfir öllu bákninu verður svo 7 manna þingkjörin stjórn. Framkvæmdastofnuninni er ætlað að taka við þeirri upplýsingasöfnun og skýrslu- gerð, sem Efnahagsstofnunin hefur haft með höndum, en hún verður lögð niður. Þá er þessu nýja bákni ætlað að hafa með höndum undirbún- ing að stórfelldum áætlunar- búskap að sósíalískri fyrir- mynd. Loks er stefnt að því, að mikið peningavald færist í hendur þeirra þriggja póli- tísku forstjóra, sem stjórna eiga daglegum rekstri þessa bákns. Framkvæmdasjóður, sem verið hefur í umsjá Seðla bankans verður færður yfir til hinnar nýju stofnunar og Atvinnujöfnunarsjóður lagð- ur niður en stofnaður Byggða sjóður, sem einnig verður í höndum pólitísku forstjór- anna. Ljóst er, að á miklu veltur, hvernig framkvæmd- in verður og víst er um það, að það mun taka ríkisstjórn- ina nokkurn tíma að koma í gang starfrækslu þessarar viðamiklu stofnunar. En eng- inn þarf að draga í efa, að hjá þessari ríkisstjórn er full- ur vilji til þess að nýta út í yztu æsar þær heimildir, sem frumvarpið um Framkvæmda stofnun ríkisins veitir til víð- tækra afskipta af öllu at- vinnulífi landsmanna. Þegar eftir valdatöku sína haustið 1959 tók Viðreisnar- stjórnin ákvörðun um að stórauka frelsi í athafnalífi landsmanna, létta af ýmiss konar höftum og bönnum og leysa úr læðingi þann at- hafnavilja og starfskraft, sem felst í hverjum einstaklingi, sem fær frjálsræði til at- hafna. Þessi ákvörðun Við- reisnarstjórnarinnar var grundvöllur að þeim miklu velmegunar- og uppgangs- tímum, sem ríktu á stjórnar- árum hennar, ef undan eru skilin tvö sérstæð erfiðleika- ár. Nú hyggst vinstri stjórnin snúa blaðinu við. Hún ætlar að beita vinnubrögðum við stjórn efnahags- og atvinnu- mála, sem gengu sér til húð- ar fyrir a.m.k. tveimur ára- tugum. í stað þeirrar vald- dreifingar, sem Viðreisnar- stjórnin beitti sér fyrir og leiddi til þess, að valdið í efnahags- og atvinnumálum færðist ekki einungis út í fleiri stofnanir heldur til at- vinnufyrirtækja og einstakl- inga, stefnir vinstri stjórnin að því að beina stjórn efna- hags- og atvinnumála á eina hendi, til pólitískra valdhafa. Þetta eru starfsvenjur, sem enn tíðkast í sósíalískum ríkj- um, en hvergi í lýðfrjálsum ríkjum. í stað athafnafrelsis hyggst vinstri stjórnin gera einstaklinga og atvinnufyrir- tæki háða boðum og bönnum nokkurra pólitískra umboðs- manna þessarar stjórnar. Frumvarpið um Fram- kvæmdastofnun ríkisins er í raun og veru boðskapur um nýja haftastefnu, sem „mun hafa ófyrirsjáanleg áhrif á athafnafrelsi einstaklinga og þróun atvinnumála“, eins og Jóhann Hafstein, formaður Sjálfstæðisflokksins, benti á í samtali við Morgunblaðið í gær. Höft á athafnafrelsi þeirra manna, sem starfa í atvinnu- lífinu og pólitísk forsjá vald- hafanna er kjarninn í frum- varpi vinstri stjórnarinnar um Framkvæmdastofnun rík- isins. Samþykkt þess á Al- þingi getur haft mjög alvar- í fnndarsal öryg-gfisráðsins Sameinuðu þjóðirnar að verða gjaldþrota Mest vegna vanskila kommúnistaríkjanna 45 ríki greiða minna en Island Á UNDANFÖRNUM mániiðum hefur U Thant, aðalritari Sam- einuðu þjóðanna, hvað eftir ann- að varað við því að samtökin væru að verða gjaldþrota. Það er engin nýlunda að SÞ eigi í fjárhagsörðugleikum, en ástand- ið nú er svo siæmt að það getur haft lamandi áhrif á starfsemi samtakanna á mörgum sviðum. Hin ömurlega staðreynd er sú, að hægt væri að þurrka út allar skuldir mjög auðveldlega, ef að- ildarríkin fengjust til að greiða af hendi fé, sem þau skulda sam- tökunum, en ýmis þeirra neita því af pólitískum ástæðum. Hinn 30. júní 1971, voru skuld- ir SÞ samtals 69,6 millj. dollarar, en skuldir ýmissa aðildarríkja við samtökin námu 176,7 milljón- um dollara. Gert er ráð fyrir að í árslok verði skuldir aðildar- ríkja við samtökin meira en 65 milljón dollarar, og að af því verði 33,5 milljónir óinnkræfar. Sovétxíkin, önnur kommúnista- ríki, og Frakkland, líta svo á, að fjárveitingar til friðargæzlu í Mið-Austurlöndum og Kongó, hafi verið ólöglegar, og hafa allt- af neitað að greiða sitt framlag. Fyrir fyrmefnda atriðið skulda Sovétríkin og bandamenn þeirra rétt tæplega 40 milljón dollara og Frakkland tæplega eina milljón doliara. Fyrir Kongó, eru upp- hæðirnar 35 og 17 milljónir doll- ara. Þessi sömu lönd neita einmig að greiða sinin hluta til skyldra friðargæzlustarfa. Þar að auki neita Sovétríkin og önmur komrn únistaríki að greiða framlag sitt til venjulegra tæknilegra áætl- ana í öðrum gjaldeyri en rúbl- um, sem Sameinuðu þjóðirnar geta ekki nýtt, og verða því að bera sem skuld. Suður-Afríka hefur líka neitað að greiða framlag sitt til ýmiss- ar starfsemi SÞ, sem hún er mót- fallin. Af þeim 176,7 milljónum dollara, sem taldar voru til skuldar 30. júní, eru því 143 milljómir til komnar vegna þess að fyrrnefnd ríki hafa neitað að greiða sinn hlut. Þá eru eftir 33,7 milljónir dollara frá ríkjum sem eru skuldseig, em gera þó vænt- anlega upp áður en yfir lýkur. Bandaríkin greiða 31% Nú sem stendur greiða Bandaríkin árlega um 31,52% af almennri fjárhagsáætlun Sam- einuðu þjóðanna, eða 56.332.171 milljóm dollara, af fjárhagsáætl- un upp á 195 milljóm dollara (þesisar tölur eru fyrir árið 1971). Af öðrum rikjum greiða t. d. Sovétríkin rúmlega 22 milljónir dollara, Frakklamd rúmlega 9,4 milljónir dollara, Bretland tæp- lega 9 milljónir dollara og Kína rúmlega 6,2 milljónir dollara. Framlag Bandaríkjammia hefur lækkað smátt og smátt að tiltölu á undanförnum árurn. Upphaflega var það 39,89%, en Allsherjarþingið samþykkti að minmka það simám samam þar til það væri í mesta lagi 30%. Fyrir utan framlag sitt til al- menmirar fjárhagsáætlunar SÞ, greiða Bandaríkin miikinm hluta af fjárhagsáætlum einstakra stofmania samtaikamna, svo sem Barnahjálparinmar, Heilbrigðis- stofnumarinmar og svo framvegis. ísland nokk- uð ofarlega f skýrslu frá Sameimuðu þjóð- unum, er greimt frá heildarfram- lagi aðildarríkjanma til samtak- anma, á árinu 1970. Þar kernur m. a. í ljós, að ísland er furðu ofarlega á listanum, þótt fram- lag þesis sé ekki stórbrotið. Það er t. d. fyrir ofan olíuauðug riki eims og Líbanon og Líbýu, og eintnig fyrir ofan þjóðir, sem hafa margfaldan fólksfjölda okk- ar. Þess ber þó að gæta að þar er í flestum tilvikum um að ræða vanþróuð ríki, sem mega sín lítt fjárhagslega. Fimm hæstu rílkin eru: Bandaríkin Bretland Sovétríkin Svíþjóð Kanada Millj. dollara 276.333.666 48.544.890 41.999.270 35.602.924 34.333.811 ísland er að vomum töluvert meðan þesisara milljónamiærimga, en fnamlag þess var 226.810 doll- arar. Fyrir neðain það eru: Líbýa Dollarar 202.776 Guatemala 205.322 Líbanon 207.313 Albamía 161.682 Barbados 181.260 Bolivía 157.374 Botswana 91.791 Kambódía 152.358 Kamerún 221.006 Mið-Af ríku lýðveldið 101.681 Chad 86.238 Kýpur 188.290 Dahomey 175.925 Dóminikanska lýðveldið 78.747 E1 Salvador 104.348 Mið-Afríku Ginea 5.011 Gambía 101.591 Guinea 139.343 Haiti 78.820 Honduraa 156.229 Kenýa 194.501 Laos 142.442 Lesotho 128.421 Líbería 186.609 Madagaskar 198.960 Malawi 152.490 Maldives 133.225 Mali 56.699 Malta 165.935 Mauritius 206.483 Mongólía 133.806 Nepal 207.388 Nicaragua 102.283 Niger 130.181 Pamama 178.663 Paraguay 79.539 Suður-Yemen 61.597 Korngó 127.058 Rwanda 157.446 Somialía 155.273 Swasiland 63.516 Togo 171.482 Uganda 162.437 Efri-Volta 172.650 Yemen 80.602 legar afleiðingar fyrir þróun alls atvinnulífs og efnahags- mála. Það mun einnig verða til þess að draga ákvörðunar- valdið enn. úr höndum manna í hinum dreifðu byggðum landsins til pólitískra vald- hafa á suðvesturhorni lands- inSi Verði það samþykkt og komi það til framkvæmda mun það reynast eitthvert stærsta skref aftur á bak í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar, sem tekið heftir verið um langt árabil.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.