Alþýðublaðið - 04.08.1920, Page 2
2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Afgreiðsla
blaðsins er í Alþýðuhúsinu við
Ingólfsstræti og Hverfisgötu.
Síml 988.
Auglýsingum sé skilað þangað
eða í Gutenberg í siðasta iagi kl.
10, þann dag, sem þær eiga að
koma í blaðið.
Jfokkur orð mn
ja|naðarmensku.
Eftir M. Hallsson.
----- (Frh)
Um leið og eg endurtek það
að jafnaðarstefnan eigi sér fullan
tilverurétt, og hafi við gildandi
rök að styðjast, og sé á flestum
sviðum vel (ramkvæmanleg, vil
eg athuga hana frá fleiri hliðum
og horfa nær mér, því margur
steinninn liggur í götu hennar
hér heima hjá oss.
Sú rétta jafnaðarstefna er ekki
síngjörn eða sérplægin, og því
þarf enginn að líta iliu auga til
hennar af ótta fyrir því að eigur
hans verði frá honum teknar, sá
fáránlegi misskilningur er sprott-
inn sumpart af þekkingarleysi á
málefninu, og sumþart af ósönn-
um illkvittnissögum sem haturs-
menn stefnunnar hafa uppspunnið
til biekkingar.
Hver sá sem hefir eignast auð,
hvort heldur það er erfðafé, eða
fyrir hyggindi, dugnað eða hepni
i fyrirtækjum, er vel og rétt að
honum kominn frá sjónarmiði allr-
ar sanngirni.
Þar næst vil eg leitast við að
athuga máiið frá sjónarmiði mann-
jafnaðar, mannúðar og réttiætis.
Detta mér þá fyrst í hug máls-
sóknirnar. Enginn skynbær maður
— sem er fátæklingur, lítilmenni
eða að einhverju leyti smámenni
— lætur sér til hugar koma að
höfða málssókn á hendur sér meiri
manni að auð, völdum eða met-
orðum, nema hann viti með vissu
fyrir guði og samvizkunni að hann
hafi á réttu að standa; en hvað
skeðurf Smámennið nær aldrei
rétti sínum gagnvart stórmenninu,
hversu sem málavöxtum er hátt-
að. Það eru ekki mörg ár sfðan
valdsmaður einn veitti bónda
nokkrum líkamiegan áverka fyrir
engar sakir, svo að bóndinn var
frá vinnu meiripart sumarsins,
hann höfðaði málssókn á hendur
valdsraanninum í von um sigur
réttlætisins, en hafði ekkert úr
býtum nema hafi það verið skömm
eða málskostnaður. Slíkt og því
iíkt kemur af þeirri einföldu ástæðu
að ranglætið — með manngrein-
arálitið til hægri, en misréttið sér
til vinstri handar — situr með
rembingi miklum í dómárasætinu.
Tökum þar næst t d. 2 sjúkl-
inga undir Iíkum kringumstæðum.
Fyrir íhlutun einhverra máls-
metandi manna er annar styrktur
á spitaia með gjöfum og opinber-
um samskotum, en hinn er látinn
l'ggja jafnvel ár frá ári — ef svo
er háttað sjúkdómnum — afskifta-
Iaus eins og hundur sá í bæli
sfnu sem aldrei var til neins not-
hæfur, en sem fyrir framkvæmd-
arleysi húsbóndans hefir dregist að
hengja, skjóta eða skera. Hér og
á mörgum fleiri sviðum er nóg
verkefni fyrir jafnaðarstefnuna, hún
er fögur, og ómissandi fjársjóður
hvar sem hún birtist i sinni réttu
mynd. Hvað var það annað en
jafnaðarhugsjónin sem meistarinn
mikli frá Nazaret hafði fyrir aug-
um þegar hann framsetti dæmi-
söguna um verkamenn í vfngarði?
Sannanlega var það hærri og fegri
jöfnuður en nokkrum öðrum hafði
til hugar komið, sem hans var
von og vísa; þar var stóra hjólið
til, sem okkur vantar í sigurverk
menningarinnar, sem sé kœrleik-
urinn.
Það er ranglætistilhneygingin
og kærleiksleysið sem ékki má
heyra jafnaðarstefnu á nafn nefnda,
eða með öðrum orðum: „Mér alt,
þér ekkertl"
í ýmsum stjórnum og á lög-
gjafarþingum sitja oftast í meiri-
hluta metorðamenn og valdhafar,
og liggur þá í þess hlutar eðli
sem vægast kallast breiskleiki, að
þeir líti óhýru auga til jafnaðar-
stefnunnar, enda eru sum iögin
þrungin af ranglæti og ójöfnuði,
eða er það ekki Iagaleg vitfirring,
eða vitfirringsieg lög, að láta heið-
ur og manniéttindi manna standa
eða falla með útsvari þéirra?
Ef einn ærlegur og góður borg-
ari hefir af óviðráðanlegum ástæð-
um ekki getað greitt eins árs út-
svar eða hefir þegið lítilræði af
því opinbera af bæjar- eða sveit-
arfé, ef hann í athugaleysi eða af
fákænsku sinni slæðist með straumn-
um inn að kjörstjórnarborði við
kosningar til alþingis, saurgar hann
bæði hina háu kjörstjórn og göfug
þingmannaefni með návist sinni,
og má þar ekki nær koma en
hundur helgum dómum „Gerðu
svo vel og fjarlægðu þig góðurinn
minn I Þú hefir ekki greitt síðasta'
árs útsvar, það er satna og að
þiggja af sveit, þú ert ekki á
kjörskrá og hefir ekki kosningar-
ré»tl “ Þá koma hórkarlinn og
ábyrgðarsvikarinn frjálsir og hnar-
reistir inn að borðinu af því þeir
höfðu greitt 5 —10 krónur í útsvar.
„Hér er kjörseðill, gerið þér svo-
vell“ segir kjörstjórnin.
Hér þarf jöfnuðurinn að ná
fastatökum á, til að skakka þenn-
an hundslega vitfirringsleik æru-
meiðandi Iagahneyxlis.
(Frh.)
Dm dap og vegínn.
Skemtiferð verzlunarmanna
fórst fyrir 2. ág., að sögn vegna
of iítillar þátttöku. Var að engn
leyti hátíðasnið á bænum um dag-
inn, þrátt íyrir hinn aimenna frídag
verziunarmanna.
Skólararðan var opin fyrir al-
menning um síðustu helgi. Var
allmargt fólk þar saman komið tií
þess að njóta útsýnisins, sem er
ágætt.
Lögjafnaðarnefndarmennirn-
ir dönsku og konur þeirra voru
í boði hjá danska seudiherranum
á laugardaginn. t fyrradag bauð
forsætisráðherra þeim á útreiðar-
túr upp í Mosfellssveit.
Sjálfsmorð. Danski maðurinn,
sem féll útbyrðis af skonnortunni
í fyrradag var sá sami, sem lög-
reglan hér neyddi illu heilli til
þess að fara aftur á skipsfjöl eftir
að hann hafði reynt að strjúka.
Er Því sennilegt að hann hafi af
ásettu ráði fleygt sér útbyrðis.
Listaverk Einars Jónssonar;
Verið er nú að flytja þau heim.
Kom mikið af þeim nú á Guil-
fossi. Þau verða flutt upp í hið