Morgunblaðið - 28.12.1971, Síða 30
30
MQRGUiNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1971
Enska knattspyrnan;
Baráttan
harðnar
ENGLENDINGAR lögðu knatt-
spymuna á hilluna um jólin, en
léku hins vegar heila umferð í
deildakeppninni í gær. Man. IJtd.
hafa nú þriggja stiga forskot í 1.
deild, umfram nágranna sína M.
City, en síðan koma Leeds og
Sheffield Utd. Man. Utd. náði að-
eins öðru stiginu gegn Coventry
á Old Trafford og skoraði hinn
sáungi Denis Law bæði mörk liðs
ins. Sérkennilegt atkvik gerðist í
leiknum, þegar leikmenn Coven-
try neituðu að færa sig hæfilega
langt frá knettinum í auka-
spyrnu. Dómarinn tók þá það til
bragðs að bóka fimm leikmenn
Coventry á einu bretti og er slíkt
sennilega einsdæmi.
Nott. Forest tefldi fram Tommy
Gemmel, siem félagið klófesti frá
Celtic í síðustu viku, í leiknum
gegn Arsenal, en Arsenal svar-
aði með Alan Ball. Engar sögur
fara aí leik þessara frægu ieik-
Jólamót IR
JÓLAMÓT ÍR í frjálsum íþrótt-
um hetfst í iR-húsinu við Tún-
götu í dag kl. 19.30, og síðan verð
nr mótinu fram haldið á sama
stað n.k. fimmtudag og þá hefst
mótið einnig kl. 19.30. Keppt verð
ur í atrennulaiisum stökkum og
hástökki með atrennu, karla og
kvenna.
manna, en lan Moore skoraði fyr
ir Forest, og George Graham fyr
ir Arsenal.
David Webb iék sannarlega
hlutverk jólasveinsins í liði Chel-
sea gegn Ipswich. Peter Bonetti,
markvörður Cheisea, er óleikfær
vegna meiðsia og sömu sögu er
að segja af varamarkverði hans,
en markvörður sá, eir Chelsea
boðaði til leiksins mætti of seint
einhverra hluta vegna. Dave Sex
ton greip þá til þes,s ráðs að klæða
Webb í markmiannspeysuna og
hann stóð fyrir sínu í leiknum og
hélt markinu hreinu, en Chelsea
vann leikinn með tveimur mörk
um gegn engu.
Tottenham tapaði nú í fyrsta
sinni á heimavelli á þessu keppn-
istímabili. West Ham rændi báð-
um stigunum með mairki Clyde
Best að viðstöddum 54 þús. áhorf
endum.
Leeds kafsigldi Derby á Elland
Road og ógnar nú senn liðunum
frá Manchester. Eddie Grey skor
aði fyrst a mark leiksins á 5. mín.
en Peter Lorimer skoraði síðam
tvö mörk, hvort í sínum hálfledk.
Úrslit leikja í gær urðu annars
þessi:
1. DEILD
Chelsea — Ipswich 2:0
Everton — Huddersfield 2:2
Leeds -— Derby 3:0
Framh. á bls. 31
FH-ingar leika í kvöld
1 KVÖLD leika FH-ingar sinn
síðasta leik í Evrópubikarkeppn-
inni að þessu sinni, og mæta þá
Patizan Belovar, á heimavelli
þeirra í Júgóslaviu. Héldu FH-
ingar utan í morgun, þannig að
þetta verður mjög ströng ferð
hjá þeim.
Eims og öiltam mun í fersku
mínni töpuðu FtH-ingar fyrir
Partizan í Laugardalshölilinni
imeð 14 marka mun á döigunum,
en vomir stamda til að útkoman
verði ekki eins slæm í Júgósiav-
iu, þótft reyndar sé vitað að Júgó-
siaivamir eru mjög sterkir á
heimaveili sínum. En varla getur
verið að FH-ingar eigi tvo jafn-
sttæma ieiki og um dagimn í röð.
Fararstjóri FH-liðsin.s i ferð-
inni tii Júgóslaví u er Einar Mat-
hiesen, en lei'kmennimir sem
fóru eru Hjattiti Einarsson, Birgir
Bjömsson, Kristjám Stefánsson,
Viðar Símonarson, Gils Stefáns-
som, Jónas Magnússon, Auðunn
Óskarsson, Geir Hallsiteinssom,
Öm Sigurðssom, Þórarinn Ragn-
arsson, Birgir “ Finntoagason og
Ólafur Einarsson. Með liðinu fór
eimnig þjálfari þess, dr. Ingimar
Jónsson.
Riinar Bjarnason, varaformaður HSÍ, afhendir Geir Hallsteins-
syni, viðurkenningargjöf vegna 50 landsleik ja.
Geir Hall-
steinsson
var heiðraður
I hófi sem stjórn Handknatt-
leikssambands íslands efndi til
að iokmim landsleikjum fslands
og Júgóslaviu á dögunum, var
Geir Hallsteinsson heiðraður sér
staklega í tilefni þess að í síð-
ari leiknum lék hann sinn fimm-
tugasta landsleik. Afhenti Rún-
a.r Bjarnason, varaformaður HSf,
Geir fagra skyrtuhnappa úr
gulli og voru þeir með áletrun.
Geir er annar íslendingurinn
sem nær því marki að leika 50
handknattleikslandsleiiki. Hinn
er félagi hans úr FH, Hjalti
Einarsson, sem lék sinn 50. lands
lei'k á móti rúmönsku heimsmeist
urunum, er þeir komu hingað í
heimsókn í fyrra. Hlaut Hjalti
þá einnig er-maihnappa að gjö'f
frá HSÍ. Hjalti hefur leikið
fttesta landsleiki eða 52 talsins.
1 hinum 50 landsleikjum sín-um
hefur Geir Hallsteinsson slkorað
samtais 242 mörk, og oft á tið-
um hefur hann verið bezti mað-
ur vallarins.
Iþróttasíða Morguntolaðsins
óskar Geir til hamingju með
þennan merka áfanga á íþrótta
mannsferli hans.
í fyrrgreindu hófi voru svo
tveimur leikmönnum afhent
landsliðsmerki HSÍ, en það voru
þeir Axel Axelsson og Páll
Björgvinsson, sem báðir lóku
sinn fyrsta landsleik í sáðaxi
leiknuim við Jú-góslava.
Fréttabréf
knattspyrnu-
þjálfara
Hið nýstofnaða Knattspyrmi-
þjálfarafélag fslands, hefur sýnt
myndarlegt franitak með því að
gefa út tolað, þar sem er að
finna ítarlega æfingatöflu fyrir
knattspyrnumenn, viðeigandi
myndskreytta. Er ekki að efa að
mörgum er mikill fengur að þeim
upplýsingum, sem þarna er miðl
að, ekki sizt þeim knattspyrnu-
mönnum, sem búa við þannig að-
stæður, að þeir geta ekki leitað
til þjálfara hvenær sem er.
Það er stjórn Knattspyrnu
dómarafélagsins sem stendur að
blaði þessu, en formaður félags-
ins er Sölvi Ósikarsson, og ritajr
hann formálsorð blaðsins, þar
sem hann m.a. hvetur knatt-
spyrnuþjál'fara til þess að taka
virkari þátt i þróun og framtið-
aráformu-m félagsins.
Þá skrifar Sölvi einnig grein
í bilaðið, þar sem hann kemur
fram með þá hugmynd, að knatt
spyrnu þj'álfarar selji auglýsing-
ar á búninga sína: „Til dæmis
gætu 1. deildar þjálfararmr átta,
efllaust gert góðan samning um
að bera allir sömu auiglýsinguna
í 1. deild ár hvert og á þann
hiátt dtrýgt tekjur sínar að mun,“
segir Sölvi í grein sinni.
„Segið þið svo að hárið sé ekki prýði mannsins," segir í texta
með þessari mynd frá AP, sem er af Heraldo Becerra, leikmanni
með knattspyrnuliðinu Atletico de Madrid. Becerra, sem er af arg-
entísku bergi brotinn, hafði látið sér vaxa hár í langan tíma, og
var stolt.ur af lubbanum. Þjálfari knattspyrnuliðs hans og félag-
ar, voru hins vegar ekki jafn hrifnir og voru stöðugt að nauða
í piltinum að láta klippa sig. Svo fór að lokum að hann lét undan,
og lét þá klippa sig svo um munaði.
Clay aftur
á uppleið
Sigraði Blin í 7. lotu
íslandsmótið
í knattspyrnu
CASSIUS Clay, fyrrverandi
heimsmeistari í þungavigt
hnefaleika, stendur nú skrefi
nær þvi að fá keppni við
heimsmeistarann í greininni,
Joe Fraizer. 1 fyrrakvöld
keppti Clay við vestur-þýzka
hnefaleikarann Júrgen Blin
og fór keppnin fram í Ziirich
í Sviss að viðstöddum 9000
áhorfendum. Fyrirfram var
talið að keppni þessi myndi
skera úr um framtíð Clays
sem hnefaleikara — ef hann
tapaði myndi hann tæpast
fá tækifæri til þess að keppa
við heimsmeistarann.
Jurgen Blin er álitinn einn
fremsti hnefaleikari í þunga-
víigt sem nú er í keppni. Hann
hafði keppt 42 leiki sem at-
vinnumaður, fyrir leikinn í
fyrrakvöld, og sigrað í þeim
öllum, oftast með rothöggi í
fyrstu lotunum.
I keppninni í fyrrakvöld
sótti Jurgen Blin mjög ákaft
að Clay í fyrstu lotunum, en
Clay varðist fimlega, og tókst
Þjóðverjanum ekki að koma
á hann þungum höggum.
Strax í þriðju lotu jafnað-
ist svo leikuiinn og smátt og
smátt fór Clay að Sækja og
í sjöttu lotu hafði hann yfir-
burði og þá var orðið augljóst
að ekki var nema tímaspurs-
mál hversu lengi Þjóðverjinn
stæðist högg hans.
Og það var ekki nema til
næstu lotu, þar sem Clay hóf
þá mikla sókn og kom nokkr-
um af sínum uppáhaldshögg-
um á Blin og sendi hann í
gólfið. Þótt Þjóðverjinn stæði
upp, áður en talningu var
lokið, var auðséð að hann var
Cassius Clay — fór létt með
Þjóðverjann.
búinn að vera, og dómari
ieiksins stöðvaði hann þá og
dæmdi Clay sigurinn.
Að vonum var Clay hinn
hressasti yfir leikslokunum,
og lét hafa ýmislegt eftir sér,
sem min-nti á hans fornu
frægðardaga.
MEÐAL hin-mn mörgu breytinga,
sem gerðar voru á reglugerðum
og lögum Knattspyrniusambands
íslands á 26. ársþinigi sambainds-
iras, sem haldið var í Tónabæ 27.
og 28. nóvember s.l., var sam-
þyikkt, að tillkynini n-ga-rfrestur um
þátttöku í landsmótum og bika-r-
keppnum K.S.Í. skuli vera til 1.
janú-ar.
Hinn 10. dea. s.l. sendi Móta-
niefnd KSÍ umburðarbréf um
þetta til allra siamtoanidsaðdla
sinn-a og jafnframt saimþykkt
stjórnar K.S.f. uim þátttökugjöld,
sem voru áður 100.— krómur á
fiok'k, en verða fyrir árið 1972,
sem hér segir:
1. deild kr. 2.500.00
2. — — 1.500 00
3. — — 1.000.00
2. flokkur — 500.00
3. — — 500.00
4. — — 500.00
5. — — 500.00
Bikarkeppni K.S.Í.
M. fl. Kr. 1.000,—
1. fl. — 500 —
2. fl. — 500.—
Sambvæmt upplýsimgum frá
sferiístofu KSÍ er Breiðablik eina
félagið, sem hefur tiikymnt þátt-
töku í iandsmótiniu og bikar-
keppni KSÍ og mun félagið tafea
þátt í öllum flökkum á n-æsta
keppnilstimabi’i. Þátttökutilkynm-
imgar sttculu berast í ábyrgðar-
pósti t.i'l Mótanefndar K.S.Í, P.O.
Box 1011, Reýkjavík og muniu
efeki verða teknar til greiina
niemia þátttöfeugjald fylgi
Formaður
íþróttanefndar
ríkisins
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
'hefur skipað Vattdimar ÖrncVifs-
son íiþróttalkennam formanin
í'þróttanefndar ri'kisins til næstu
þriggja ára, en aðrir í nefndinni
eru Damáel Á-gústinusson, aðatt-
bókari, tilnefndur aif Umgmenna-
íélagi ísJand.s, og Sveinn Björns-
son 'kaupmaður, tittnefndur aif
liþróttasambandi Isttands.
Varamenn í nefmdinni em
Kja-rtan Bergmann Guðjóns-
son skjala-vörður varaformaður,
Valdimar Óslkarsson skriifstofu-
stjóri tilnefndur af Unigmenna-
félagi íslands og Gunniauigur J.
Briem fullitrúi tilnefndur atf
íþróttasamtoandi íslands.