Alþýðublaðið - 01.08.1930, Page 2
ar
ALÞÝÐU.BLAÐIÐ
Hirth ætlar að fljúga til íslands i dag
I morgun fékk FlugfélagiÖ
skeyíi þess efnis, að Hirth hefði
flogið af stað hingað til lands
toi kl. 8 og 45 min. í morgun
«ftir ísl. tíma. Biður hann Flug-
Fyrir aklarfjórðungi var
Reykjavík fámenn samanborið
við pað, sem nú er. Það þóttu
þvi þeim mun meiri tíðindi, er
hingað kom á þriðja hundrað
kjósenda úr öðrum kjördæmum,
flest bændur, tií þess að láta
stjómmálin til sín taka — og
það á miðjum slætti.
Dagana fyrir mánaðamótin júlí
—ágúst 1905 streymdu menn
hingað til bæjarins úr Rangár-
vallasýslu, Árnessýslu, Gu.ll-
bringu- og Kjósar-sýslu, Borgar-
fjarðarsýsju og Mýrasýslu. „Fjall-
konan“ telur aðkomumenn upp
með nöfnum 230 og „Þjóðvilj-
inn“ nefnir sömu tölu. „Ingólfur“
segir 230—240 bændur utan
Reykjavikur hafa greitt atkvæði
á Bændafundinum, eins og hann
hefir verið nefndur, en „ísafold“
kveður aðkomumennina hafa ver-
ið mikið á þriðja hundrað. And-
stöðublöð fundarmanna töldu þá
færri. Blaðið „Reykjavík" kveður
verið hafa „nokkuð talsvert á
annað hundrað" aðkomumanna á
að gizka, og „Þjóðólfi" telst svo
til, að þeir væri um það bil 170
—180. Er frásögn „Fjallkonunn-
ar" bezt staðfest með nöfnum 'hð-
komumanna.
í þann tíma stóð alþing yfir,
þvi að þá vora enn haldin sum-
arþing. Var þá mjög deilt um
simamálið og undirskriftamálið,
er svo var nefnt, þ. e. hvort for-
sætisráðherra Dana skyldi und-
irrita skipunarbréf ráðherra ís-
lands, og þessi tvö mál lét
Bændafundurinn til sín taka.
Kl. 11 árdegis 1. ágúst (Var
fundur settur í Bárubúð. Reyk-
víkingar tóku ekki þátt i at-
kvæðagreiðslum, þar eð fundur-
inn var sérstaklega talinn bænda-
fundur. Á fundinum vora sam-
þykt mótmæli gegn því, að for-
sætisráðherra Dana undirskrifi
skipunarbréf ráöherra íslands. f
annan stað var því mótmælt, að
samið væri við Mikla norræna
ritsímafélagið um símasamband.
Hins vegar lýstu fundarmenn sig
fylgajndi því, aö komiö væri a
loftskeytasambandi. Vora þessar
kröfur hinar sömu og aðrir and-
stæðingar Heimastjórnarflokksins
héldu fram, en hann hafði þá
mikinn meiri hluta á alþingi. Að
lokum var samþykt að krefjast
þess, að svo fremi þing og stjórn
færi ekki að óskum fundarmanna
í ritsímamálinu, þá yrði þingið
félagið að gera flugeldamerki til
leiðbeiningar sér. Búist er viði, að
hann komi um kl. 4, og ætlar
hann að lenda við Kaldaðarnes
hjá Ölfusá.
rofið og færa fram nýjar kosn-
ingar. Vora rnenn gerðir á fund
ráðherrans, Hannesar Hafsteins,
m að flytja honum samþyktir
fundarins, en auk þess
var valin tylft kjósenda úr
hverri sýslu, Rangárvalla, Árness
og Borgarfjarðar, til þess að
flytja þingmönnum þeirra kjör-
dæma kröfur fundarins, og skyldi
kjósendur úr hverri sýslunni um
sig flytja þingmönnum hennar
kröfurnar, þeim, er fylgdu Heima-
stjómarflokltnum að málum (en
2. þingmaður Árnesinga var sam-
mála fundarmönnum, og vora því
ekki gerðir sendimenn á 'fund
hans né þingmanna Gulltringu-
og Kjósar-sýslu. Um þing-
mann . Mýramanna era ekki
skýrar frásagnir, hvort sendi-
nefnd kom á fund hans eða
ekki). Var skorað á þingmenn
þessa að gera annaðhvort, fylgja
fram kröfum fundarmanna eða
segja af sér þingmensku að öðr-
um kosti.
Nokkra siðar héldu fundarmenn
fylktu liði upp imdir stjórnar-
ráðshús, en sendinefnd gekk
þangað á fund ráðherra. Voru
margir bæjarmenn með í göng-
unni. Telur „Ingólfur“, að vart
muni hafa skort á fjórar þús-
undir í fylkingu.
Eftir nokkra stund kom sendi-
nefndin aftur með þær fréttir, að
engu yrði um þokað við stjórn-
ina. Var þá hrópað: „Niður með
ráðherrann! Niður með þá stjórn,
sem ekki vill lúta þjóðarviljan-
um!“ Sumir telja, að þá væri
einnig hrópað: „Niður með
danska valdið!“ — „ísafold nefnir
þó jafnan rádgjafi, en ekki ráð-
herra, og kveður hún að hrópað
hafi verið: „Niður með ráðgjaf-
ann!“ — Eftir þetta var haldið á
Austurvöll, og fóru þar fram
ræðuhöld. Var sunginn íslend-
ingabragur: „En þeir fólar, sem
frelsi vort svikja.“ Þann brag
orkti Jón ólafsson á yngri árum
sínum, svo sem kunnugt er. Nú
var hann í flokki Heimastjómar-
þingmanna, andstæðinga fundar-
manna. Lúðrasveit lék undir
sönginn.
Þeir, sem stofnuðu til Bænda-
fundarins, töldust til Framsóknar-
flokksins gamla. Nokkrum vik-
um síðar, 29. sama mánaðar
(þingslitadag) var Þjóðræðis-
flokkurinn stofnaður upp úr hon-
um. Þá var Björn Jónsson rit-
stjóri „fsafoldar", Skúli Thorodd-
sen ritstjóri „Þjóðviljans" og
Einar Hjörleifsson, siðar Kvaran,
ritstjóri „Fjallkommnar", og fylgd-
ust þau blöð að málum. Land-
varnarmenn voru taldir í öðrum
flokki, en erfitt er að greina á
milli stefnu hans og Framsóknar-
flokksins gamla eða Þjóðræðis-
flokksins. Landvarnarflokkurinn
átti þá að eins einn mann á
þingi, og sá þingmaður gekk inn
í Þjóðræðisflokkinn þegar hann
hljóp af stokkunum. „Ingólfur"
var blað Landvarnarmanna og
var Benedikt Sveinsson ritstjóri1
hans.
Flokksblöð Heimastjórnar-
manna vora hér i Reykjavík
„Reykjavik“, sem Jón Ólafsson
var ritstjóri að, og „Þjóðólfur".
Ritstjóri hans var Hannes Þor-
steinsson. Árið eftir hóf „Lög-
rétta“ göngu sína.
Mjög eru frásagnir þessara
blaða á tvennan veg um Bænda-
fundinn, eins og vænta mátti. Þó
er sá mikli munur á frásögn
Heimastjórnarblaðanna, að „Þjóð-
ólfur" segir frá aðaldráttum fund-
arins, deilir á fundarmenn og
heldur fram sínum rökum, ekki
verulega fjörlega þó, en „Reykja-
vík“ uppnefnir annan hvern and-
stæðinga sinna, þeirra, er hún
nafngreinir, og segir m. a. svo
um einn fundarmanna, að hann
„svitnaði 16 pottum af lýsi og
kreysti hnefana svo að hnúarnir
hvítnuðu, og hafði hann þó ekki
þvegið sér um hendurnar þann
morgun." Heitir greinin: „Fjöllin
tóku 'léttasótt." Era þar margir
dálkar prentaðir með skáletri.
Meiri hluti þingsins lét sam-
þyktir Bændafundarins ekki á sig
fá. Þá lá fyrir þinginu þings-
ályktunartillaga i undirskrifta-
málinu. Fluttu hana 7 þingmenn,
og var Skúli Thoraddsen aðal-
flutningsmaður. Var það efni
hennar, að neðri deild alþingis
álykti að lýsa yfir því, að hún
áliti það eitt rétt og í samræmi
við stjómarskipun vora, að ís-
landsráðherra sé skipaður með
undirskrift sjálfs hans eða frá-
farandi íslandsráðherra, en ekki
með undirskrift forsætisráðherra
Dana, og að deildin skori á ráð-
herrann að gera sitt til að svo
verði eftirleiðis. — Rúmum þrem-
ur vikum eftir Bændafundinn (22.
ág.) var tillaga þessi afgreidd —
vísað frá — með dagskrársam-
þykt. Flutti Láras H. Bjarnason
dagskrártillöguna. • ' •
Sá varð samt endir þess máls,
að það var upp tekiö, að frá-
farandi Íslandsráðherra undir-
skrifaði skipunarbréf eftirmanns
síns. Hófst það með þvi, að
Hannes Hafstein undirritaði skip-
unarbréf Björns Jónssonar.
Síminn kom, og hvarf brátt ó-
ánægjan yfir því, að horfið var
að því ráði að taka símasam-
band fram yfir loftskeyti. Þess
má og geta í þessu sambandi,,
að samþykt var gerð á Húsa-
vík 17. ág. 1905 í simamálinu
gagnstæð Bændafundarsamþykt-
inni. Stóðu að henni 33 kjósendur,
en einnig voru flestir bændur.
Var hún svar þeirra við sam-
þyktum Bændafundarins 1. ágúst.
— Hitt mun þjóðin þó ekki harma,
þótt Mikla norræna hætti starf-
rækslu sæsímans, eins og ályktun
var gerð um á síðasta alþingi.
Snndrann.
í gær leysti Magnús Magnús-
son frá Kirkjubóli þá þrekraun
af höndum að synda frá Viðey
til Reykjavikur. Sjávarhiti var 12
stig. Hann hafði í hyggju að
synda hliðsund á leiðinni, en
vegna óheppilegra strauma varð
hann að synda bringusund. Hann,
var 2 klst. og 6 mín. á leiðinni
og lenti við Steinbryggjuna,
ÍMagnús er að eins 18 ára að-
aldri, en hefir iðkað sund frá
bamæsku. Hann hefir áður getið
sér frægðarorð fyrir sundkunn-
áttu sína, er t. d. methafi í 1000
stikna sundi. Meðal þeirra, sem
fylgdu í vélbáti hinum unga
sundlrappa, vora: Jón Pálsson
sundkennari, Sveinn Gunnarsson:
læknir og Kristján Gestsson,
hinn ötuli formaður „K. R.“
Þetta er í fjórða skiftið, sem
synt er frá Viðey til Reykjavik-
ur. Fyrstur synti Ben. G. Waage
(1914), þá Erlingur Pálsson (1925)
og Ásta Jóhannesdóttir (1928).
Töluvert af fólki hafði safnast
á Steinbryggjuna þegar sund-
kappinn kom að landi, og var
honum fagnað með húrrahróp-
um.
Grænmetissalan,
sem Bjarni á Reykjum hafði aug-
lýst að færiframídag sunnanvið
Iðnó, hófst á tilteknum tíma kh
9 og varð undir eins fjörag verzl-
un. Til sölu voru hreðkur, spínat,
salat, kjörvel, rauðaldin, gúrkur,,
næpur, gulrófur og blómkál.
Sumar tegundirnar gengu undir
eins upp. Tveir menn voru við
afgreiðslu. Verðið var 1/10 til
1/5 lægra en selt er í búðunum.
Torgdagur verður aftur hald-
inn eftir helgina.
Ræningjar í Kína.
Lundúnum (UP.), 31. júlí, FB.
Frá Peiping (öðru nafni Peking)
er símað: Bófaflokkar hafa tekið
18 þorp herskildi í vesturhluta
Honan-fylkis. Drápu þeir menu
1 hundruðum saman, en særðu aðra
svo þúsundum skifti. Þá, sem auð-
ugir eru, tóku bófarnir með sér og
heimta stórar fjárhæðir til að láta
þá lausa. — Útlendinga létu bóf-
arnir í friði.
Fyrlr aldarVJórðungl.
Bænd&fmsdnrinii 1. ágdst 1905.