Alþýðublaðið - 01.08.1930, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Vaxtalækknn í Belgin.
Frá Brussel er símað: Belgíu-
banki hefir lækkað forvexti um
*A7o Í 27*°/o.
Atlantshafsflng Boots.
Kominn vestur uni haf.
Lundúnum (UP.), 1. ágúst, FB.
Frá Montreal er símað: „R—100“
flaug hægt yfir miðhiuta borgar-
innar kl. 2 og 40 mín. í nótt
(eftir Austur-Ameríku-tíma) og
siðan til suðausturs. Flestir borg-
tarbúar voru í fasta svefni, er loft-
skipið flaug yfir borgina, og sáiu
það þvi féjir hér.
Síðar: „R—100“ flaug yfir flug-
höfnina og því næst aftur inn yf-
ir Montreal. Barst fregnin óðfluga
um bæinn og þustu menn út
hálfklæddir til þess að sjá loft-
skipið. Mikill fögnuður í borg-
inni. Búist er við, að loftskipið
lendi í dögun. Einhver smáveg-
is bilun mun hafa orðið á einum
„ugga“ skipsins. Stjórnandi Lake-
hurst flugstöðvarinnar hefir boð-
ið alla aðstoð við viðgerð, ef
þörf krefur. — Flugferðin til
Montreal tók 76 klst og 45 mín.
Síðar í dag: Frá Montreal er
símað: „R—100“ lenti kl. 5 og
46 mín. í morgun.
Shanghai lýst í hernaðar-
ástandi.
Lundúnum (UP.), 31. júlí, FB.
Frá Shanghai í Kína er símað:
Kínversk stjórnarvöld í Shang-
hai hafa lýst borgina í hernaðar-
ástandi, fyrst um sinn í tvo sól-
arhringa, frá kl. 6 e. h. í dag að
telja. Kveðast yfirvöldin óttast ó-
eirðir af hálfu kommúnista.
Voiiíeb brást ei.
Um daginn var flugmaðurinn
Hook á leið frá Englandi til
Ástralíu. Komu síðast fréttir af
honum frá Indlandi og hvarf
hann þar, er hann flaug yfir
stóra eyðiskóga. Fanst þar siðar
flugvél hans. Hafði hún fallið
úr lofti og eyðilagst, en til flug-
mannsins sjálfs fréttist ekkert
Töldu flestir hann af, nema kona
hans, sem sagði að hann hefði
áður komist í hann krappan. og
myndi koma aftur heim til hennar
og litlu dóttur þeirra.
Nú er komin frétt um, að von
konunnar hafi ekki brugðist. Pað
hefir frézt til Hooks, að kyn-
þáttur einn í eyðiskógi þessum
í Burno hafi fundið hann eftir
flugslysið og hjúkrað' honum, og
sé hann nú á góðum batavegi
eftir fallið í flugvélinni.
Það hefði fieirum farið
líkt og Þórarni.
Engum áhugamanni, sem ver
lifi sínu og kröftum fyrir list
eða hugsjón, getur verið sama
um það, hvern skilning menn
hafa á þeim málefnum, sem þeir
hafa helgað krafta sína, eða
hverjar viðtökur menn þeir, er
skara fram úr í slíkum greinum,
fá, þegar þdr koma fram fyrir
almenning.
Það þarf þvi meiri skapstill-
ingamann en mig til að lá Þór-
arni það, þótt hann verði gram-
ur, þegar maður, sem hann vel
veit að er snillingur, fær mjög
lélega aðsókn, en harmoniku-
spilarar hafa fylt sama hús kvöld
eftir kvöld. Þórarinn er íslending-
ur og drengur góður og hefir
ekki tamið sér þá list(H) að
hálsa á því, sem hann vill segja,
heldur að segja meiningu sína
hreint út. Nú er það einu sinni
svo, sem betur fer, að Þórarinn
er góður fiðluleikari, en gefur
sig lítt að harmonikum. Þvi er
það honum sæmd að segja Reyk-
víkingum það afdráttarlaust, að
hann telur það sorglegt mentun-
arleysi hjá þeim að meta meira
harmonikuhristing en fagian
fiðluleik, og menn þurfa ákaf-
lega lítið að vita um músík til
þess að vita þó það, að Þór-
arinn hefir þar lög að mæla.
Annars skil ég ekki þessa við-
kvæmni gagnvart harmonikunum
hjá þeim, er telcið hafa upp
hanzkann fyrir þær. Og því síður
skil ég það, að þótt mönnum
þyki vænt um harmonikur, en
Þórarni ekki, þá skuli þeir þurfa
að fyllast svo mikilli bræði að
þeir reyni að óvirða Þórariún.
Hann stendur auðvitað jafnréttur
eftir, en af þvi ég býzt við, að
menn þeir, er hafa verið að svara
honum, þekki hann lítið, þá er
rétt að segja þeim, að fjöldi
Reykvíkinga eiga Þ. G. margar
ánægjustundir að þakka, og að
Þ. G. hefir afaroft spilað án end-
urgjalds fyrir fjölda félög, unga
og gamla. Og að síðustu þetta:
Ég sé enga ástæðu til, að Alþýðu-
blaðið amist við list eða lista-
mönnum, því flestir sannir lista-
menn skilja verkalýðinn og al-
þýðuna yfirleitt flestum betur.
Hlutverk okkar jafnaðarmann-
anna er það, að sjá um að alþýð-
an fái notið þeirrar ununar, sem
listin veitir, með því að skapa
henni skilyrði til þess. Ég veit,
að allir sannir listamenn munu
rétta okkur hendina til hjálpar
að svo megi verða. Þess vegna
vil ég ekki byrja samvinnuna
með þvi að misskilja þá og van-
þakka þeim.
Felix Gucsmundsson.
Bezta Cigarettan í 20 stk. pökfeam,
sem feosta 1 brönn, er:
Gomiander,
^ Westminster,
Cigarettur.
Virginia, É
Fást í ölhim verzlunum.
I hverjnm pakka ep gnllfalleg fslenzk
myitd, eg fær hver sá, er safnað hefir 50
myndam, elná stækkaða mynd.
Esja
fer héðan mánudaginn 4. ágúst,
vestur um, hraðferð kringum land.
>
Ankahafnir:
Sandur, Ólafsvík, Flateyri, Sauð-
árkrötur, Húsavík, Seyðisfjörður,
Norðfjörður, Fáskrúðsfjörður og
Vestmannaeyjar.
Farseðlar óskast sóttir fyrir kl.
3 á mánudag.
Skaftfellingur
hleður til Víkur og Skaftáróss
eftir næstu helgi.
Skipaátgerð rikisins.
Landsslminn.
Tilkynning til loftskeytamanna á skipum.
Fyrsta flokks loftskeytaménn skili skírteinnm sín-
um og fá þeir þá önnur ný (annars fiokks).
Annars fiokks loftskeytamenn skili einnig skírtein-
um sínum ogf fá til bráðabSrggða annars flokks skír-
teini, en þeim ber að taka nýtt próf innan 1. jan. 1932.
Skírteinunum skiftir forstjóri loftskeytastöðvarinnar
frá 1. ágúst n. k. daglega frá kl. 14—15, loftskeyta-
mönnum að kosnaðarlausu.
Nýtt skírteini fæst að eins gegn afhending eldra
skíiteinis.
Gömlu prófskírteinin falla úr gildi 1. október n. k,
Reykjavík, 31, júií 1930,
Gísli J. Ólafson.
Vátrmnsarhlntafélagið „Njre Danske“.
Brunatryggingur Chús, innbú, vornr o. 81.) Hvergi hetri
og áreiðanlegri viðskifti.
Aðalumboðsmaður á íslandi
SlgSás Sighwatssou,
Amtmannsstig 2. Simi 171.
Norshur vístndamadur, Hans
Henrik Rode prófessor, og frú
hans biðu bæði bana við bifreið-
arslys í ítalíu u*» 4aginn.
Kaupið Alþýðubókina.