Morgunblaðið - 25.02.1972, Síða 4
4
MORGUNBLA.f>IÐ, FÖSTUDA.GUR 25. FEBRÚA.R 1972
/Tf ItÍL i l.i.H.A \
'ALUm
22*0*22*
RAUÐARÁRSTÍG 31
14444g 25555
Cirowl
BU^IGAJjVEFÍSGOlJJJOlJJ
14444S25555
LEIGUFLUG
FLUGKENNSLA
FLUGSTÖÐIN HF
Simar 11422. 26422.
BIJJUflGA
CAR RENTAL
TZ 21190 21188
BÍLALEIGAN
AKBMAUT
8-23-áT
sendum
r
HAFNFIRÐINGAR
ATHUGIÐ
Ný og betri þjónusta.
SÍMI 51870
BÍLALEIGAN BLIKI hf
Lækjargötu 32.
Le.gjum Volkswagen 1300, 1302,
1302 S og Land-Rover, dísil. —
Símsvari eftir lokun.
Ódýrari
en aárir!
Shodh
ICICAH
AUÐBREKKU 44 - 46.
SlMI 42600.
Hingað og ekki
lengra
I NÝÚTKOMNU tölublaði af
mánaðarritinu „Frjálsri verzl
un“ birtist forystugrein, þar
sem varað er við sivaxandi
þrýstingi af hálfu Sovétríkj-
anna hér á landi. f forystu-
grein þessari segir svo:
„Það vakti athygii, er lóðs-
inn á Akranesi neitaði að
flytja sovézka kvikmynda-
tökumenn upp í Hvalfjörð fyr
ir nokkru, af því að hann vildi
ekki stuðla að sovézkri njósna
starfsemi á íslandi. Þessi af-
staða lóðsins á Akranesi sýn-
ir, að enn eru til menn á fs-
landi, sem kæra sig ekki um
að gerast óafvitandi verkfæri
í höndum erlends stórveldis,
sem færir sig æ meir upp á
skaftið og reynir að notfæra
sér út í yztu æsar hina dipló-
matísku viðleitni íslenzkra
stjórnvalda til að hafa þá
góða.
En er þetta ekki að verða
diplómatískur undirlægjuhátt
ur? Hefur enginn velt því fyr
ir sér, hvar setja skuli mörk-
in í margháttaðri fyrirgreiðslu
við gestkomandi Sovétmenn?
Á síðustu árum höfum við
fengið nokkrar heimsóknir
frá Sovétríkjunum, allar sam-
kvæmt óskum þeirra sjálfra,
sem augljóslega þjóna þeim
tilgangi meðal annars að
kanna, hversu Iangt sé unnt
að ganga áður en íslendingum
ofbjóði.
Sovézkar herflugvélar hafa
verið á sveimi yfir Hvalfirði
samkvæmt heimild íslenzkra
stjórnvalda, sovézkir vísinda-
menn hafa fengið 700 loft-
myndir af hálendi íslands og
fjörðum og víkutn á Horn-
ströndum samkvæmt heim-
ild íslenzkra stjórnvalda, og
nú siðast fóru sovézkir kvik
myndatökumenn upp í Hvai-
fjörð með heimild íslenzkra
stjórnvalda upp á vasann.“
Beita þrýstingi
Síðan segir í forystugrein
„Frjálsrar verzlunar“: „Um
það skal ekkert sagt, hversu
stórfelld njósnastarfsemi licf
ur verið stunduð í þessum
ferðum. Þó má minnast þess,
að upplýsingaöflun hernaðar-
velda er í langflestum tilvik-
um rekin á miklu óæsilegri
hátt en menn gera almennt
ráð fyrir. Nákvæmur yfirlest
ur blaða og tímarita á hinum
almenna markaði, sakleysis-
leg samtöl við „rétta“ aðila,
skemratiferðir um helgar, —
allt eru þetta mikilvægir þætt
ir í störfum njósnarans.
Hvað okkur fslendinga
snertir, eru Sovétmenn fyrst
og fremst að beita þrýstingi.
Þeir eru að prófa okkur. Er
það því ekki fyllilega tima-
bært að fara að sýna fram á,
að þrátt fyrir alkunna íslenzka
gestrisni sé ekki hægt að
bjóða okkur hvað sem er? —
Hvernig væri, að hugsa upp
einhvern diplómatiskan mót-
leik, sem við eigum vitaskuld
orðið inni hjá Rússum? Hver
yrðu t.d. viðbrögð þeirra við
ákvörðun íslenzka sjónvarps-
ins um gerð heimildarkvik-
myndar um Petsamoferð ms.
Esju í striðsbyrjun og óskum
um að kvikmyndatökumenn
sjónvarpsins fengju að vaða
um norðvesturhéruð Sovétríkj
anna og mynda að vild?
Þætti þetta of djarfleg áætl
un, væri alla vega vel við hæfi
að krefjast þess, að takmörk-
unurn á ferðafrelsi íslenzkra
sendimanna i Moskvu væri af
létt, áður en við bjóðum næsta
hópinn frá Sovétríkjunian vel
kominn til íslands."
„Grátbroslegt44
Ofangreind fyrirsögn var yf
irskrift á forystugrein í „Vest
firðingi“, blaði Alþýðu-
bandalagsins í Vestfjarða-
kjördæmi og lýsir hún skoðun
blaðsins á Bandaríkjaför
Hannibals Valdimarssonar. —
Forystugrein þessa stjórnar-
málgagns á Vestfjörðum er
svohljóðandi:
„Hannibal Valdimarsson, fé
lagsmálaráðherra, hefur a®
undanförnu verið í Bandaríkj
unum, þar sem hann átti við-
ræður við herforingja og aðra
forustumenn þessa stórveidis.
Morgunblaðið hefur birt
mynd af honum við liliðina á
yfirmanni Altanzhafsbanda-
lagsflota NATO, Charles K.
Duncan aðmírál, og sama
blað segir í fréttaskeyti fri
Washington, að ráðherranu
hafi m.a. rætt við Zumwalt,
æðsta yfirmann Bandaríkja-
flota og Jolin Irwin aðstoðar-
utanrikisráðherra um framtíð
NATO-stöðvarinnar á Kefla-
víkurflugvelli.
Sannarlega er það grátbros-
legt, þegar fulitrúar þjóðar,
sem ekki hefur tekið sér vopn
í hönd síðan á dögum Magnús
ar prúða, fara utan til að
ræða við helztu oddvita ný-
tízku morðtólatækni, sama
gildir, þegar slíkir menn þykj
ast þess umkomnir að lýsa frá
herfræðilegu sjónarmiði nauð
syn herstöðvar hér á landi,
eins og Jóhann Hafsteim
reyndi að gera í sjónvarps-
þætti um herstöðvarmálið fyr
ir skömmu. Hvert mannsbarn
veit, að hvorki félagsmálaráð-
herra okkar né Jóhann Haf-
stein hafa hundsvit á her-
málum. Þetta er ekki sagt
þeim til lasts heldur loi's. Það
er heiður hverjum íslendingl
að hafa ekki hundsvit á þeim
málum.“
ORÐ I EYRA
ÞESS skal getið af gefnu
tilefni (ótrúlegt en satt!),
að þættir Jakobs eru gain-
anþættir. Húmorlausu fólki
er þvi ráðlagt að lesa þá
ekki.
Þess má geta, að þættir
Jakobs birtust fyrir nokkr-
um árum hér í blaðinu und-
ir nafninu Jobbi. Voru þeir
þá vinsælir — og verða það
vonandi áfram.
MIKIÐ er nú annars gaman að
eiga sér hugsjón. Loksins hef
ur sá hluti aeskulýðsins, sem
hvað verst hefur verið hald-
inn menningiarlega, verið grip
inn logandi hugsjónaeldi.
Yfirlýsingar og orðaleppamir
gætu gefið til kyrma, að í
vændum væri heilagt stríð til
að leysa úr herfjötrum og
reisa á ný þá heiiögu borg,
Mekka allra sannra tánínga,
Kanaan Ólafs Ragnars Gríms-
sonar og Baldurs óskarssonar,
það dýra musteri, sem varð að
bráð eldi óslökkvanda eina
dimma og válega haustnótt,
kátínuhúsið Glaumbæ.
Aldrei hefur jafngöfug og
háleit huigsjón gripið jafn
margt efnilegt æskufólk.
Enda væri nú annað hvort:
Hvaða máli skiptir húmbúkk
eins og skattpíning, þegar
annað eins þjóðþrifamál er á
döfinni og endurreistur
Glaumbær?
Hvaða máli skiptir það, þó
einföld lagasetning kunni að
koma í veg fyrir það, að ungt
fólk (og fullorðið raunar
líka) geti með sæmilegu móti
eignazt þak yfir höfuðið?
Hverju skiptir, að ísleinzka
stúdenta vantar vinnuað-
stöðu, þó að lottiríið gefi þó
nokkuð í aðra hönd?
Hvaða máli skiptir, að elztu
menntastofnun þjóðarinnar
eru boðin húsakynni, sem
margfrægt fjósið í Skáiholti,
hvar Oddur reit Gottskálka-.
son, hefur verið reisulegra og
loftbetra en þau?
Hver var að tala um of-
drykkju unglinga?
Hefur nokkuir heyrt minnzt
á eiturlyfjaneyzlu ?
Kannast nokkur við, að til
þurfi að taka höndum í þvi
skyni að ráða bót á vandræð-
um og eymd?
Slíkir smámunir kalla ekki
á stóryrði og glaumsamkom-
ur hugsjóniaririddara. En „böll-
in verða að kontinúerast“.
Hvað um mengunina, land-
grunnið, herhlaup grimmoa
þjóðflokka vítt um heims-
byggðina? Skiptir engu, móti
þvi glæsta baráttutakmarki
að reisa Glaumbæ úr bruwa-
rústum.
Háleitar hugsjónir blómstra
enn í brjóstum baráttuglaðra
glaumgosa.
Glaumbæjarhreyfingin lifi!
mcð DC-8
L0FTLEIBIR
pflRponTun
bein líflo í for/kráídcild
PÍSIOQ
^KaupmdnnahöPn ^Osló } Stokkhólmur
sunnudaga/ sunnudaga/ mánudaga/
mánudaga/ þriðjudaga/ briðjudaga/ föstudaga.
fimmtudaga og föstudaga. fimmtudaga
^ GldSSOW
laugardaga
^ London
laugardaga