Morgunblaðið - 25.02.1972, Page 5
MORGUNBLAÐU), FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1972
Úr Guttormslundi á Hallormsstað.
NÝ KVIKMYND
UM SKÓGRÆKT
Aðalfundur JöklarannsóknaféJ agsins;
Mikil verkefni næsta sumar
Keyptur nýr snjóbíll
1 GÆR, fimmtudag, var frum-
sýnd ný íslenzk litkvikmynd um
jarðvegseyðingu og andstæðu
hennar, skógrækt og gróður. —
Heitir myndin: Faðir minn átti
fagurt land. Var myndin sýnd
boðsgrestum í Gamla bíói, og var
henni vel tekið af áhorfendum.
í upphafi flutti Hákon Bjarna
son skógræktarstjóri stutt ávarp
og rakti þróun mála þessara hér
lendis og saigði deili á kvikmynd
inni. Hún er tekin af Gísla Gests
syni kvikmyndatökumanni, en
þulur í myndinni er Hjörtur Páls
son. Hákon Bjarnason samdi text
ann. Tónlistin er eftir Magnús
Blöndal Jóhannsson.
Myndin sýnir vel þessar tvær
andstæður, uppblásturinn, jarð-
vegseyðinguna annars vegar, og
grænan gróðurinn og skóginn
hins vagar. Mesrt; var sýnt frá
Hallormsstað og Vaglaskógi. —
Kvikmynd þessi verður vafa-
vafalaust sýnd skólanemendum,
og mun verða til þess að auka
áhuga þeirar á þvi að vernda
gróður og verja land. — Fr. S.
JÖKLARANNSÓKNAFÉLAG Is-
lands hélt aðalfund sinn föstu-
daginn 4. febrúar. Kom þar fram
í ræðu formanns, Sigurðar Þór-
arinssonar, að mikil verkefni
hafa verið í undirbúningi þetta
ár. Bæði er búizt við Skeiðarár-
hlaupi úr Grímsvötnum, sem nú
skiptir miklu vegna fyrirhugaðr-
ar vegagerðar sunnan við Vatna-
jökul og einnig stendur fyrir dyr-
um að bora niður í gegnum is-
hettuna á Bárðarbungu næsta
sumar á vegum Raunvisinda-
stofnunar og með aðstoð frá
JökQarannsóknafélaginu.
Þar sem snjóbílakostur félags-
ins er mjög lélegur orðinn þótti
nauðsynlegt að bæta þar úr. Hef-
ur verið pantaður snjóbíM af
Bombardier-gerð, sem á að vera
kominn tU landsins fyrir vorið.
En þá verður farin hin venjulega
mælingaferð á jökulinn, auk
ferða í sambandi við fyrrgreind
viðfangsefni.
Þá sagði Sigurður, að æskilegt
væri að fara að mæla aftur snið
milli Grtmsfjaila og Kerlinga til
að sjá hvort jökuUinn hefur
hækkað á þessu svæði, sem hugs-
anlega gæti gefið skýringu á
því, hve langt hefur nú orðið á
miili hlaupa úr Grímsvötnum. En
hlaup he-fur ekki orðið úr vötn-
unum síðan 1966, þó vatnshæðin
hsifi þegar mælzt í þeirri hæð,
sem hún er mest áður en vatnið
fær framrás undan íshettunnl
Með lagabrej’tingu veir á fund-
inum fækkað í stjórn Jöklarann-
sóknfélagsins og kosnir fimm
menn. Er Sigurður Þórarinsson
form., Sigurjón Rist gjaldkeri
og aðrir i stjórn Guðmundur Sig-
valdason, Bragi Ámason og Stef-
án Bjarnason. Varastjórn skipa:
Magnús Eyjólfisson, Guðmundur
Pálmason, HaUdór Ólafsson og
Hörður Hafliðason. Kosið var í
nefndir og endurskoðendur end-
urkjörnir.
VERKAMANNAFÉLAGIÐ HOif í
Hafnarfirði hélt upp á 65 ára
afmæU sitt sl. laugardag i Skip-
hóU með kaffisamsæti. Guðni
Kristjánsson stjórnaði samkom-
unni. Hermann Guðmundsson
rakti sögu verkamannafélagsins
Hlifar og karlakórinn Þrestir
söng. Síðan fluttu ávörp Snorri
Jónsson, framkvæmdastjóri Al-
þýðusambands Islands, Stefán
Gunnlaugsson, forseti bæjar-
stjómar Hafnarfjarðar, Guð-
mundur J. Guðmundsson, vara-
formaður Dagsbrúnar, Guðríður
Elíasdóttir, formaður verka-
Að loknum aðalfundarstörfum
sýndi PáU Theodórsson, eðlis-
fræðingur, myndir af borunum í
Grænlandsjökui, er hann tók
þátt í með Dönum í fyrra, og
Jörundur Guðmundsson úr Flug-
björgunarsveitinni sýndi myndir
frá för á Vatnajökul, er þeir fóru
6 félagar á skiðum i fyrrasumar
og lentu í nokkrum hrakningum.
Var aðbúð og ferðamáti i þess-
um tveimur ferðum mjög óUk-
ur, þar sem beitt var flugvélum
og allri nútímatækni í hinni
fyrri, en leiðangursmenn i hinni
siðarnefndu höfðu ekíki annað en
tjöld, skíði og snjóþotur til að
draga á farangurinn.
kvennafélagsins Framtíðarinnar,
Karl Steinar Guðnason, formað-
ur Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavikur. Þá var Karl Einars-
son með eftirhermur og tríóið
„Lítið eitt“ söng.
Hermann Guðmundsson, sem ♦
verið hefur formaður verka-
mannafélagsins Hlífar í 30 ár,
var sérstaklega heiðraður, svo
og kona hans.
Mikið fjölmenni var, fjöldi af
skeytum og gjöfum barst verka-
mannafélaginu Hlíf og þótti af-
mæli.nhófið takast vel.
Gott afmæli Hlífar
KLIMALUX
SUPER
Rflkogjaii
Lofthreinsari
Klimalux Super rakagjafinn vinnur á þann hátt, að stofuloftið sogast
gegnum vatnsúða, sem veitir því raka, en hreinsar jafnt úr því
óhreinindi og tóbaksreyk.
Klimalux Super gefur frá sér mikinn raka. Afköst má stilla frá 0,2 til
0,7 lítra á klst. Hetta er á rakagjafanum, er stilla má þannig, að hið
raka loft leiti í ákveðna átt.
Mótor þarf ekki að smyrja.
Hreinna og heilnæmara loft — aukin vellíðan.
J. ÞORLÁKSSON & NORÐMANN IIF.,
Bankastræti 11 og Skúlagötu 30.
Er Ríkisútvarpið hlutlaust
í fréttaflutningi ? ?
Njörður P. Njarðvík, formaður útvarpsráðs,
verður áreiðanlega beðinn að svara þessari
spuningu á klúbbfundi Heimdallar að Hótel
Esju, laugardaginn 26. febrúar kl. 12.15,
Njörður P. Njarðvík gestur fundarins.
kprnmylla
hestafóður
reiðhestablanda
Við bjóðum nú mjög góða reiðhesta-
blöndu, mjöi eða köggla.
Blandan inniheldur steinefni, salt
og öll þau vítamínefni, sem eru hestinum
nauðsynleg.
f blöndunni er mikið af hveitiklíði,
völsuðum höfrum og Melasse.
Blandan verður því mjög lystug.
folaldablanda
Höfum einnig ungviðisblöndu fyrir folöid.
heykogglar
í 50 kg sekkjum.
MJÓLKURFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Símar: 11125 11130