Morgunblaðið - 25.02.1972, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.02.1972, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1972 Óskar B. Erlendsson lyfjafræðingur F. 27. 11. 1904 D. 16. 2. 1972 ÓSKAR Bjarni Erlendsson, lyfja- fræðingur, er látinn, 67 ára að aldri. Útför hans verður gerð í dag frá Fríkirkjunni í Reykja- vik. Með Óskari er genginn góður drengur og hugþekkur samferða- maður. Glæsimennska var hon- um meðfæddur eiginleiki og fór þar saman andlegt og líkamlegt atgervi. Óskar brauzt ungur til mennta og tók stúdentspróf við Mennta- skólann í Reykjavik árið 1926, en embættispróf í lyfjafræði við Háskóla Islands árið 1930. Alla sina starfsævi starfaðí hann að- t Guðmundur Sigurðsson, Elliheimilinu, Keflavík, t Þökkum samúð og vinarhug við andlát og útför systur okkar, andaðist sunnudaginn 20. fe- brúar sl. Jarðarförin verður gerð frá Keflavíkurkirkju laugardag- inn 26. febrúar kl. 2 e.h. Vandamenn. Sigþrúðar Bæringsdóttur. Laufey Bæringsdóttir, Sesselja Bæringsdóttir, Þuríður Bæringsdóttir. 1 Systir mín, KRISTJANé andaðist í Landspítalanum 23 Fyrir hönd vandamanna. r JÓNSDÓTTIR, þessa mánaðar. Sigurður Jónsson. t EINAR JÓNSSON, verkfræðingur, 32209 Valor Pl., Palos Verdes, Calif., 90274, U.S.A., andaðist í sjúkrahúsi í Chicago 20. febrúar. Sigrún og Jón Jóhannsson, Valgerður, Sigurlaug og Skírnir Jónsson, Teresia Guðmundsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR VILHJÁLMSSON, andaðist í Borgarspitalanum 24. þessa mánaðar. María Jónsdóttir, Erla Ólafsdóttir, Páll Þórarinsson, Vilhjálmur Ólafsson, Sigurður Jón Ólafsson, Norma E. Samúelsdóttir og barnaböm. t Útför móður okkar, GUÐMUNDU J. JÓNSDÓTTUR, Grænuhlíð 3, fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 28. febrúar klukkan 15. Fyrir hönd vandamanna, Ingimar K. Sveinbjömsson, Einar G. Sveinbjömsson. t Útför eiginmanns mins, KNÚTS KRISTINSSONAR, fyrrverandi héraðslæknis, fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 28. febrúar kl. 1.30. — Blóm afþökkuð, en þeim er vildu minnast hins látna er bent á líknarstofnanir. Fyrir mina hönd og annarra vandamanna, Hulda Þórhallsdóttir. eins hjá tveimur fyrirtækjum, Reykjavikurapóteki á fyrri árum og síðar til dauðadags sem lyfja- fræðingur hjá Sjúkrasamlagi Reykjavíkur. Jafnframt aðalstarfi rak hann á tímabili snyrtivöruverzlunina Pirolu og seinna um árabil snyrtivöruverzlunina Medicu. Öll sín störf rækti hann af skyldurækni á meðan og þegar heilsan leyfði, en síðustu einn til tvo áratugina gekk hann ekki heill til skógar, sjúkdómar herj- uðu á hann svo að öðru hverju varð hann að láta undan síga. En i hvert sinn, sem bati fékkst, reis hann upp af krafti og frá- bærum hetjuskap, gekk að dag- legum störfum og tók gleði sina, svo að jafnvel þeir, sem þekktu hann bezt, gerðu sér ekki grein fyrir þvi hve vanheiil og þjáður hann var. Óskar var vel látinn og vin- sæll og átti auðvelt með að blanda geði við fóik og í vina- hópi var hann að jafnaði glaðast- ur allra. Hann var því eftirsótt- ur félagi vina og samstarfs- manna. Umhyggjusamur og skyldu- rækinn heimilisfaðir var Óskar með afbrigðum og veitti heimili sínu allt er hann mátti, enda var það sá unaðsreitur, þar sem öllum þótti gott að koma og dvelja. Hann gerðist félagi i Frímúr- arareglunni árið 1931 og starf- aði innan vébanda hennar óslitið meðan kraftar entust. Gegndi hann þar mörgum trúnaðarstörf- um og var um árabil í forustu- liði reglunnar hér á landi. Óskar starfaði mikið að mál- efnum Frikirkjusafnaðarins i Reykjavík og sat i stjórn hans er hann lézt. Hann var alltaf reiðubúinn til t Hjartanlegar þakkir færum við öllum, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför konu minnar, móður og systur, Margrétar Auðunsdóttur, Fljótshlíðarskóla. Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki á handlækningadeildum Land- spítalans fyrir góða hjálp og hjúkrun í veikindum hennar. Jónatan Jakobsson, börn og systkini. að hjálpa öðrum enda einkennd- ist framkoma hans af þeirri góð- vild og hjartahlýju, sem er sjald- gæf. Sjálfsagt hafa ekki allir æsku- draumar Óskars rætzt og hann fór ekki varhluta af andstreymi á lífsleiðinni, en i heimilis- og f jölskyldulífi var hann hamingju- maður. Hann kvæntist ungur mi'kilhæfri og umhyggjusamri konu, Laufeyju Bryndísi Jó- hannesdóttur og eignuðust þau þrjá syni ,sem allir eru efnis- menn, kvæntir og búsettir hér í borginni. Þeir bera allir æsku- heimili sínu fagurt vitni. Barna- bömin eru orðin níu, en þau hafa verið mestu gleðigjafar afa og ömmu á seinni árum. Frú Laufey bjó manni sínum smekklegt og glæsilegt heimili og stóð af festu og einstæðri tryggð við hlið hans í blíðu og stríðu. Hún hjúkraði honum af alúð og nærgætni, þegar hann þurfti á að halda. Óskar undi sér vel heima, las mikið og átti safn góðra bóka, sem var smekklega fyrir komið og þar varð allt að vera í röð og reglu, enda hygg ég að hann hafi haft gott bókskyn og valið bæk- ur sínar eftir þvi. Vera má að bókasafnið sé bezta heimildin t Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför Ingibjargar Gunnlaugsdóttur frá Kolugili. Aðstandendur. t Faðir minn BALDUR JÓNSSON prentari, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 25. febrúar kl. 1,30. Fyrir hönd aðstandenda, Baldur Baldursson. t Móðir okkar og tengdamóðir, SIGRÚN BJÖRNSDÓTTIR LAXDAL, verður jarðsungin frá Þingeyrakirkju, Austur-Húnavatnssýslu, laugardaginn 26. febrúar kl. 14.00. Eggert E. Laxdal. Sigrún Laxdal. Sturla Friðriksson. um manninn Óskar B. Erlends- son. Að leiðarlokum á ég það erindi helzt við þennan heiðursmann að þakka honum órofa tryggð við mig og mina fjölskyldu og fjölsltyldulið allt og allar þær góðu stundir, sem við höfum átt heirna hjá honum í Garðastræti 43. Sérstakar eru þó þakkir systur minnar, sem dvalizt hefir á heim- ili hans í aldarf jórðung, og bróð- ur míns, sem frá unga aldri átti þar öruggt skjól og vináttu að mæta. Þegar sorgin sækir að eru orð lítils megnug, en ég bið um að frú Laufey öðlist styrk til að bera sorg sína og sendi henni og allri fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveð j ur. Guð gefi honum hvild í dauð- anum. Jón Ól. Bjarnason. f DAG verður til moldar borinn svipmikill samferðamaður Ósk- ar B. Erlendsson, lyfjafræðingur. Óskar fæddist að Reykjarfossi í Ölvesi, 27. nóvember 1904. Þar ólst hann upp með foreldrúm sín um, Erlendi Þórðarsyni og Jón- ínu Bjarnadóttur. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1926. Hóf þá strax starf í Lyfjabúð Keflavík- ur, ásamt háskólamámi í lyfja- fræði, því lauk hann 1930. Hélt svo áfram störfum þar sem lyfja- fræðingur. Um þetta leyti kvæntist hann Laufeyju Jóhannesdóttur, ætt- a,ðri úr Reykjavík, glæsilegri ágætiskonu, er bjó honum fagurt og höfðinglegt heimili. Þau eign- uðust þrjá . syni, sem allir eru uppkomnir, mestu athafnamenn, sem gegna ábyrgðarstöðum hér í borginni. Árið 1936 gerðist Óskar lyfja- fræðingur Sjúkrasamlags Reykja víkur og starfaði þar til æviloka. Hann var vinsæll maður með afbrigðum, enda vildi háns hvers manns vanda leysa, ef unnt var. í Fríkirkj usöfnuði Reykjavíkur starfaði hann mikið, enda trú- maður mikill, þótt lítt bæri hann það á torg. Óskar var glæsimenni í þess orðs beztu merkingu, mikill vexti og vörpulegur á velli, með heiðan og bjartan svip. Vakti hann athygli hvar sem hann fór og kom, það var sem höfðings- skapur og drenglyndi geislaði frá honum. Þannig maður var Óskar B. Erlendsson og þannig vil ég muna þennan vin. Innilega samúð votta ég ekkj- unni og aðstandendum, að ógleymdum litlu barnabörnunum hans öllum sem trega nú sárt hinn góða og stórbrotna afa sinn. V. S. t Jarðarför konu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, UNNAR ÁRNADÓTTUR, Bólstaðarhl'ð 7, fer fram laugardaginn 26. þ. m. kl. 10.30 árdegis frá Fossvogs- kirkju, Samúel Torfason, Hlíf Samúelsdóttir, Pétur Stefánsson, Ami Samúelsson, Guðný A. Bjömsdóttir, Torfhildur Samúelsdóttir, Guðmundur Ágústsson og bamaböm. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarþel við ancfiát og útför föður okkar, afa og langafa, ÓLAFS ÞORVALDSSONAR, fyrrverandi þingvarðar, Ásvallagötu 6. Anna K. Ólafsdóttir, Marinó Guðmundsson, Sveinn H. M. Ólafsson, Asta J. Sigurðardóttir, böm og bamaböm. Allar útfararskreytingar Gróðurhúsinu, Sigtúni. sími 36770. Grensásvegi 50, simi 85560

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.