Morgunblaðið - 25.02.1972, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 25.02.1972, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLADH), FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1972 SAGAIM TVITUG .STULKA OSKAST.: 1 þýðingu Huldu Valtýsdóttur. bili. Við Roy gengum út í garð inn með Loðhnoðra á hæla okk- ur. „Búningskleíar“, sagði Roy og benti á viðarstaíla úti á flöt- inni. „Já.“ „Roy, hvaða greiða varstu að talaum?" „Greiða?" „Þú sagðist ætla að biðja mig að gera þér greiða." „Já. Bara að sýna mér um- burðarlyndi. Lofa mér að nöldra. Hér er enginn, sem ég get talað við.“ „Ég skil. Það er hægur vandi að gera þér þann greiða." Hann fór með mig inn í hlöðu byggingu þar sem tiisniðnar spýtur lágu holt og boit. „Ég ætlaði að innrétta vinnuher- bergi fyrir mig hér.“ „Hvort á að ganga fyrir, her- bergið eða sundlaugin?" „Æ, Duggers, vertu nú ekki svona smáborgaralegur. Tímam ir breytast, hvort sem þér líkar betur eða verr. Weber er ágæt- ur, ég viðurkenni það, en þó ekki eins hnyttinn og Webern. Hann hefði getað samið tónverk sem jafnvel þú hefðir getað orð ið hrifinn af, ef Kanarnir hefðu ekki drepið hann.“ „Fjárinn hirði alla hnyttni og hann fórst i slysi og var orðinn 63 ára....“ „Verdi var kominn á níræðis- aldur, þegar. .. “ „Roy, við skulum ekki fara að þrátta um þetta aftur." „Nei, fyrirgefðu." Við gengum út úr hálfrökkr- inu í hlöðunni og niður mjóan stíg. Fallnir trjábolir iágu á víð og dreif. Loðhnoðri þaut inn í lárviðarrunna með dinglandi rófu og trýnið við jörð. „Snertirðu nokkuð píanóið þessa dagana?“ „Ekki svo að ég sé konsert- hæfur. En ég sit þó oftast við einn dag í viku.“ „Mér datt í hug að við tækj- um eitthvað saman á eftir.“ „Já, þvi ekki.“ „Hvernig litizt þér á Brahms í D minor?" „Þá verðurðu að sýna þolin- mæði." „Nú, eða eitthvað auðveldara. Mozart?" „Já. Og meðan ég man: hættu þessu nærbuxnafári", og ég sagði honum söguna alla til þess að hann eyddi ekki óþarfa tíma í að þykjast ekkert skilja. „Djöfuls Gestapó," sagði hann, þegar ég hafði lokið máli minu. „Kitty finnst þú geta keypt þér nýjar og ég er henni sam- mála. Þú gætir sparað þér . . .“ „Jú, takk og láta afgreiðslu- manninn segja svo: Var það nokkuð fleira, sir Roy? Svi-ta- lyktareyði eða hormónapillur? Það er fjárans kjaftagangurinn alitaf. Satt að segja verð ég allt- af að vera skithræddur um að einhver kóninn þekki mig. Eitt kvöldið var ég til dæmis að fara inn í fjölbýlishús í . . . jæja, sleppum því hvar . . . og þá rak húsvörðurinn hausinn út um lúg una og kallaði: Lyftan er biluð, sir Roy. Þér verðið að ganga upp tröppurnar. Ef yður er sama! Þetta er tóndeikunum að kenna, sem ég stjórnaði fyrir sjónvarpið í fyrra. Og hring- borðsumræðunum. Ég vildi óska að ég hefði ekki látið tilleiðast að taka þátt i þeim.“ Ég óskaði þess sama, en þó af öðrum ástæðum. „Úr því þér finnst þú korna upp um þig með því að kaupa eitt par, þvi kaup- irðu þá ekki dúsin í einu. Eða heldurðu að þá verðirðu grun- aður um að ætla þér tólf dúf- ur hverja á fætur annarri? Og hvaða máli skiptir það? Ég skil ekki þessa við'kvæmni." „Ég ætla ekki að ganga um með tólf pör, hvert sem ég fer, skáltu vita.“ „Það er óþarfi. Þú getur geymt þær í klúbbnum.“ „Otilokað." „En ka uptu þá . .." „Ég ræði þetta ekki frekar." Stigurinn lá að rimlahliði og handan við það var hagi, þar sem tveir hestar stóðu á beit. Roy ætlaði sýnilega í fyrstu að láta mig halda að hann ætti hest ana, en sagði mér þó loks að svo væri ekki, og hver ætti þá. Ég velti því fyrir mér, hvort kenning Kittyar um nærbuxurn ar væri ekki á rökum reist. Eðöi legri viðbrögð hefðu verið sekt arkennd og feimnisvottur. En hann sýndi bara þrjózku og fyr irslátt. Ég velti því líka fyrir mér, hvaða greiða hann ætlaði að biðja mig að gera sér. Hon- um fannst greinilega ekki tóma- bært að minnast á greiðann núna. Ætlaði að bíða þangað til staðan hefði breytzt mér í óhag, ég yrði drukkinn eða altekinn ástarbríma eða lamaður af dauðs ótta. Ástarbríminn var líklega nærtækastur, þar gæti Penny átt hlut að máli. Ég ákvað að færa samræðurnar á það svið, að hann mundi ekki standast freist- inguna. „Hvernig ferðu að, þegar þú vilt bjóða henni út, úr því þér finnst þú þurfa að fara í dular- gervi, þótt þú kaupir þér nær- buxur?" „Ég býð henni ekki út. Held- urðu að ég sé einhver blábjáni." „Hvernig ferðu þá að?“ spurði velvakandi 0 Trú á niálstaðinn Velvakandi góður! „Þú kvartar yfir því að hafa hlotið gagnrýni fyrir að birta grein, er ég skrifaði um sjón- varpsþáttinn „Er nokkuð hinum megin?“ Þú vilt meina, að ég hafi ekki meiri trú á málstað minn en svo, að ég vilji skýla mér bak við upphafsstafi, sem þú nefnir dulnefni. Að vísu setti ég bara S.E. undir grein- ina en þú hafðir nafn mitt og heimilisfang, og hélt ég, að ef einhver hefði áhuga á að vita það gætir þú veitt þær upplýs ingar, en kannski ert þú bund inn þagnarskyldu, ég er ekki svo kunnug reglum ykkar blaðamanna. Sá málstaður, sem ég vildi geta túlkað, og hef trú á er Guðsorð eins og það er að finna í heilagri ritningu. Ég tek því undir með Páli postula og segi: „Ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðarerindið þvi það er kraftur Guðs til hjálpræð- is, hverjum þeim, sem trúir." Sigurborg Eyjólfsdóttir, Sörlaskjóli 44.“ £ Skorturinn á hjúkrunarfólki Velvakandi! Á sunnudag birtist í dáilki þinum bréf sem bar heitið „Skortur á hjúkrunarfólki." Þessi grein er allathyglisverð, en þar var ekki litið á málið frá öllum sjónarhornum, þvi að margir vilja leggja starfið fyr- ir sig en fáir útvaldir. Ef til vill vegna stöðugra og sifelldra menntunarkrafa, þvi eru þeir þegar útilokaðir í upphafi, sem ekki hafa að minnsta kosti gagnfræðapróf, en til þess að komast beint inn i skóiann þarf nú orðið stúdentspróf. Það er i rauninni sjálfsagt og rétt, það eru aðrar og meiri kröfur gerðar til umsækjenda nú en áður var, þar sem æ fleiri ljúka nú gagnfræðaprófi. Siðan vekur bréfritari að og vekur athygli á vaxandi áhuga karlmanna fyrir hjúkrunar- námi og tekur það fram að nú muni einir þrír eða fjórir sMk- ir hafa lokið námi í greininni. Hins vegar er mér kunnugt um það, að enginn þessara fjór menninga starfar beinlínis við almenn hjúkrunarstörf á sjúkrahúsu-m. Þeir eru (allir) meira og minna sérmenntaðir eða sér- hæfðir á öðrum sérsviðum hjúkrunarinnar, svo sem við svæfingar, röntgenmyndasér fræði og fleira þar að lútandi. Þannig að þeir geta ekki bein- linis talizt hjúkrunarmenn í orðsins almennu merkingu, mið að við allan fjöldann, sem starf ar að almennri hjúkrun. En nóg um það. Ekki er nú hægt að tala beinlínis um „fjölda kari- manna" sem eru útlærðir sjúkraliðar, eins og bréfritari drepur á því það er ég bezt veit, starfa einir 7 við Klepps- spítalann, einn við geðdeild Borgarsjúkrahússins og einn á Landakotsspitala, þannig að að sókn karlmanna mætti að skað lausu aukast. Að iokum sé ég, að bréfrit- ari getur þess, að gott sé að láta útlærða hjúkrunarmenn og sjúkraliða annast böðun karl- manna og lyftingu „þungra" sjúklinga. Ég get ekki séð í fljótu bragði að það þurfi þetta sérlærða fólk til þessara starfa. Ekki svo að segja að það megi ekki nota það til slíkra starfa, þá er ráð að nota til þess svokallaða aðstoðar- og gangamenn (eða fólk) til þess og nýta heldur vinnukrafta hins við þau svið hjúkrunar, sem gera a.m.k. kröfur til menntunar þess oig þeirra sem það hafa á sig lagt. Með fyrifram þökk fyrir birtinguna, Hjúkrunarmálaáhiigasinni." 0 Pennavinir óskast Velvakanda hafa borizt nokkrar óskir erlendis frá um pennavini á Islandi. 24 ára gam all Kanadamaður óskar eftir að skrifast á við einhvern eða ein hverja íslendinga, oig hann vill frimerkjaskipti. Nafn hans er: Pierre L. Begin, Box 12, Notre-Dame des Prins, Beanee, Kanada. Þá er samskonar ósk frá 17 ára júgóslavneskri stúlku og vill hún bréfaskipti við 17 ára pilt. Nafnið er: Suzana Smolcic, Arapova 11, 58000 Split, Jugó.slavíu. Opið til 10 í kvöld Nýkomið! Kápur + Kjólar peysur síðbuxur með upp- broti og fleira og fleira. Grettisgötu 46 Reykjavík 25580 POP HÚSIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.