Morgunblaðið - 05.03.1972, Side 29

Morgunblaðið - 05.03.1972, Side 29
MORGUNTJLAÐÍÐ, SUNNUDAGUR 5. MARZ 1972 29 Makarios hylltur af þúsundum á Kýpur Kröfum biskupa og grísku stjórnarinnar vísaö á bug Nikásíu, 3. marz — AP, NTB ÞÚSUNDIR grrískumælandi Kýp urbúa efndu i dag til fundar til stuðningrs Makariosi erkibisk upi fyrir framan forsetahöllina í Nikósíu, hylltu erkibiskupinn og hrópuðu „Makarios, engan ann- an en Makarios“. Kunnugir í Nikósíu telja að fundurinn jafn gildi því að grískumælandi Kýp urbúar' visi eindregið á bug til- raun stjórnarinnar í Aþenu til þess að vikja Makaríosi frá vöid um eða gera hann valdaiausan. Öllum kirkjuklukkum var hringt í borginni og þúsundir stúdenta og skólabaima hvaðan- æva að af Kýpur flykktust til fundarins þar sem vísað var á bug ákvörðun kirkjuráðsins á Kýpur um að Makarios segði af sér. Talið er að aðeins einu sinni áður hafi verið haldinn eins fjöl mennur fundur á eynni í 13 ár eða síðan hann var hylltur við heimkofmuna úr útlegðinni á Seyohelles-ey j um. Þrir Kýpurbiskupar kröfðust þess í gær að Makarios legði nið ur völd þar sem þeir teldu að samkvæmt lögum grisku rétt- trúnaðarkirkjunnar ætti biskup- inn ekki að sækjast eftir verald legum völdum. Grisk blöð á Kýp ur skýrðu frá því í dag að á skyndifundi i stjórninni í gær- kvöldi hefði erkibiskupinn gert ijóst að hann mundi segja af sér ef biskuparnir tækju kröfuna ekki til baka, en i ræðu sem Mak arios hélt á útifundinum i dag forðaðist hann að ræða stjórn- mál. Sumir fréttaritarar setja kröfu biskupanna í samband við þrýst- ing á Makarios frá herforingja- stjórninni. Fyrri fréttir hafa sagt frá því að griska stjórnin hafi krafizt þess að Makarios endur- skipulegði stjórn sína og iéti vopn sem hann hefur fengiö frá Tékkóslóvakíu í vörzlu friðar gæzluliðs Sameinuðu þjóðanna. Opinber talsmaður sagði í dag að áfram miðaði i samkomulags átt í deilunni um vopnin, en ekki hefur verið staðfest hvort Makar ios gangi að kröfu stjórnarinnar í Aþenu þótt orðrómur hafi verið á kreiki um það. Lögreglumaður var skotinn og særðist alvarlega í Limassol í dag, skömmu eftir að hundruð | Makariossinna reyndu að ráðast inn í biskupssetrið í Kitium í Limassol þar sem tveir þeirra bis'kupa, sem hafa lagzt gegn erkibiskupnum dveljast nú. Efnt var til svipaðra mótmælaaðgerða í mörgum öðrum bæjum á Kýp ur. Útgáfustarfsemi Loftleiða BANDARÍKJAÚTGÁFAN af „Ioeland Adventure 1972“ er ný komin út hjá LoftleiSum í 150 þúsund eintökum og Evi'ópuút- gáfan er væntanleg á næstunni. Þá er nýlokið prentun á bækh ingnum „Step off Stopover“ í stóru upplagi. Þar er skýrt ft'á viðdvalarboðum, sem gilda frá 1. júní. Fleiri bæklingar eru í und irbúningi hjá Loftleiðum. — Úr írlandsferð Framhald af bls. 13. tókst ekki, fór hann á stað- inn og hélt útimessu. Eftir að hafa verið við messu í kirkju séra Paisleys get ég rétt ímyndað mér að þessi sam- koma hafi verið líkari her- kvaðningu en tilbeiðslustund í anda Fjallræðunnar. Enda fór allt í bál og brand. Átök- in stóðu í marga daga og náðu hámarki í Derry. Cameron nefndin, sem nú var skipuð, komst að þeirri niðurstöðu, að lögreglan hefði reynt að stöðva leik- inn en ekki fengið við neitt -ráðið. En hún sagði einnig ómótmælanlegt, að einstakir lögreglumenn hefðu sýnt af sér algerlega ósæmilega fram komu í Bogsidehverfinu nótt- ina eftir lokaþátt átakanna í Derry. Þeir gengu hús úr húsi, brutu og brömluðu og börðu fólk til beggja handa. O’Neill gefst upp Andstaðan gegn Terence O’Neill og umbótatillögum hans harðnaði stöðugt og sið- asta úrræði hans til að styrkja stöðu sína var að efna til nýrra kosninga í febr úar 1969. En þráitt fyrir vax- andi fylgi meðal kaþólskra urðu úrslit kosninganna til að veikja stöðu hans enn frekar. Ný átök urðu í Derry 19. april, þar sem lögregian gerð ist, samkvæmt umsögn Camer on-nefndarinnM', aftur sek um misbeitingu valds, er olli óbeint dauða miðaldra manns í Bogside. Og næsta dag sprakk fyrsta sprengjan — og fleiri á eftir. Ha fði IRA kveðið sér hljóðs? Nú var mælirinn fullur og O’Neill gafst upp. Pais- ley fagnaði því, að „slíkur svikari" skyldi fallinn og leit á það sem ráðstöfun Guðs al máttugs. En rannsókn á sprengingunum, sem urðu O’Neill að falli, leiddi í ljós, að fyrir þeim höfðu staðið öfgasamtök mótmælenda, SjáHfboðaiher Ulister, und- ir stjórn Williams nokkurs Stephensens, sem játaði á sig sök. Arftaki O’Neills var James Chichester Clark og nú fór brezka stjórnin, þá verka- mannaflokksstjórn Harolds Wilsöns, að láta málið til sín taka. Átökin urðu æ blóð- ugri og í ágúst biðu 10 manns bana á Falls Road svæðinu í Belfast, þar á með- al níu ára drengur er varð fyrir byssukúlum, þar sem hann sat inni í herbergi sínu. Þessi siðustu átök réðu úr- slitum um, að brezkar her- sveitir tóku í taumana. Um sama leyti var birt yfirlýs- ing stjórna Bretlands og N- írlands, þar sem heitið var endurbótum í húsnæðis og at vinnumálum og auknum mannréttindum. Einnig skip- aði brezka stjórnin fulltrúa sinn, fjallagarpinn Hunt láv arð, til þess að kanna skipu lag n-írsku lögreglunnar. Hann mælti með þvi, að B- special sveitirnar yrðu af- vopnaðar og endurskipulagð ar. Sú ráðstöfun vakti gifur- lega reiði mótmælenda og olli óeirðum í hverfi þeirra við Shankil Road í Belfast. Framan af átti brezki her- inn í mestum útistöðum við öfgaflokka mótmælenda og orkuðu ýmsar aðgerðir hans gegn þeim tvímælis ekki síð- ur en aðgerðir þeirra gegn kaþólskum síðar. Þá skýr ingu gefa fróðir menn, að her mennirnir hafi tæpast vitað lengi vel, hvort þeir áttu að vera hermenn eða lögregla og þvi hafi ýmislegt komið fyrir, sem betur hefði verið ógert. Framan af var gott sam- band milli brezka hersins og kaþólskra, sem höfðu upp- haflega fagnað þeim heils hugar og talið komu þeirra boða betri tíma. Viðræð- ur fóru fram milli herstjórn- arinnar og fulltrúa IRA, sem féllust á að rífa niður götu- vígin i kaþólsku hverfunum. Þegar mótmælendur komust að þessu samkomulagi stóðu menn þeirra fyrir meiri hátt- ar óeirðum. Ný stjórn í Bretlandi Árið 1970 gekk í garð og um hrið virtist ró hafa færzt yfir land og lýð. Ólgan var þó hin sama undir niðri og í júnímánuði sauð upp úr á ný með blóðugum átökum, þegar Orangistar fóru skrúðgöngu í Belfast. Þetta var skömmu eftir stjórnarskiptin á Eng- landi, Ihaldsstjórn undir for- sæti Edwards Heaths hafði tekið við. Fyrstu viðbrögð hans voru að gera sem minnst, forðast íhlutun eftir megni og láta Irana sjálfa um deilur sínar. Inn- anríkisráðherrann, Regin- ald Maudling fór þó til Bel- fast og varð mikið um. Seg- ir sagan, að hann hafi, er hann kom upp í flugvélina er flutti hann frá Belfast, beðið strax um stóran viskísjúss, sér veitti ekki af honum eft- ir „þetta hræðilega land“. Skömmu síðar fundust tals verðar vopnabirgðir IRA og var nú gerð gagnger leit í kaþólsku hverfunum. Spenna hafði þá skapazt milli brezku hermannanna og kaþólskra, þótt kyrrt væri á yfirborð- inu. Þar við bættist tortryggni kaþólskra í garð íhaldsstjórnarinnar, sem þeir óttuðust að mundi taka afstöðu með harðskeytt- um mótmælend'um. Þegar fyrrgreindri vopna- leit var lokið og herbílarnir voru á leið út úr eimu hverf- inu, köstuðu nokkrir ungling ar grjóti á eftir þeim. Þá sneru hermennirnir við inn i hverfið, sem innan stundar logaði i óeirðum og átökum. Yfirmaður hersins fyrirskip- aði útgöngubann og lét her- mennina leita hús úr húsi og rannsaka hvern krók og kima. Síðar var úrskurðað, að út göngubannið hefði verið ólöglegt en með þessu atviki var friður rofinn milli kaþólskra og brezkra her- manna. Ýmis atriði hafa síð- an komið upp varðandi að- gerðir brezka hersins, sem af brezkum dómstólum hafa ver ið úrskurðuð ólögleg — og fyrir skömmu neyddist brezka stjórnin ttí að hraða gegnum þingið sérstöku frum varpi tiil að styrkja laga- grundvöll fyrir starfsemi hersins á N-Irlandi. „Heillaráð“ Faulkners Þegar kom fram á árið 1971 fóru „byssumenn“ IRA að láta til sín taka svo um mun- aði. 6. febrúar féll fyrsti brezki hermaðurinn fyrir kúlu „provisional“ IRA e£t- ir nokkurra daga sleitulaus- ar óeirðir í Belfast milli kaþólskra og mófmæilenda og misheppnaðar samningaum- leitanir um gæzlu kaþólsku hverfanna. I marz tók við nýr forsæt- isráðherra, Brian Faulkn- er. Fyrsta verk hans var að bjóðast til að stof.na nefndir undir forystu launaðra kaþ- ólskra formanna til að kanna stefnu stjórnarinnar í tryggingamálum, iðnþróunar- og umhverfismálum o.fl. Þess um tillögum var mjög vel tekið af andstöðunni og hefðu þær vafalaust lægt öldurnar um stund a.m.k., ef ekki hefðu komið til önnur atvik. Tveir menn, sem kaþ- ólskir sögðu saklausa vegfar endur, féfliu fyrir skotum brezkra hermanna. Kaþólsk- ir þingmenn stjórnarandstöð- unnar kröfðust þess, að brezka stjórnin léti fara fram rannsókn á málinu en hún neitaði og þá gengiu þeir af þingi og kaþólskir fulltrú ar hættu störfum í bæja- og sveitastjórnum- Eftir þetta harðnaði and- staða allra hlutaðeigandi að- ila. Brezki herinn ákvað að sýna i tvo heimana hverjum, sem reyndi að brjóta niður vald hans. IRA stóð fyrir daglegum sprengingum og herti herferðina gegn brezku hermönniunum og embætt- ismönnium. Mótmæleindur kröfðust enn harðari gagn- ráðstafana, jafnframt því, sem þeir kepptust við að koma upp sínum eigin her skáu sveitum — og loks greip Faulkner, með sam- þykki brezku stjórnarinnar til eftirlætisráðs síns, að fangelsa án dómsúrskurð- ar nnenn, sem hann taldi hættulega stjórninni og Stormont. Sagt er, að við ieit á heimilum þekktra XRA manna hafi lögreglan fundið nöfn 500 félagsmanna beggja arma. Hvorugur hafði lista yfir eigin menn, báðir höfðu lisfca y*fir menn hins. Á þeim tæplega sjö mán- uðum, sem liðnir eru frá því að byrjað var að beita þess- um lögum\ hafa verið hand- teknir rúmilega sjö hundruð menn, en starfsemi IRA hef- ur farið sívaxandi. Á síð- ustu 30 mánuðum hafa meira en 250 menn látið lífið í átök unum, þar af meira en helm- ingur á síðastl. hálfu ári. Fer þeim nú óðum fjölgandi, sem komast á þá skoðun, að ráð Faulkners hafi gersamlega brugðizt í þetta sinn. Þegar ég fór frá Belfast, 21. febrúar, var sú skoðun rikjandi, að ekki gæti liðið á löngu áður en brezka stjórn- in tæki alveg við stjórnar- taumun'um á N-írlandi og leysti Stormont þingið Upp eða takmarkaði a.m.k. mjög völd þess. Hógværir kaþólskir menn jafnt sem mótmaslendur von- ast eftir lausn, er bindi enda á hatur og hryðjuverk, hlóðs úthellingar og bræðravig. Öfgasinnaðir mótmælend- ur biða þess, að brezka stjórnin taki eindregna af- stöðu við hlið þeirra og berji niður af hörku kröfur minni- hlutans og ibúa Irlands um sameiningu landshlutanna. Róttækustu þjóðernissinn- arnir „provisional" — IRA bíða þess hins vegar að geta hafið harðskeytta skæruliða- baráttu gegn Bretum, sem þeir telja sinn höfuðandstæð ing og mundu af þeim sökum gleðjast, ef þeir tækju yfir stjómina. Flestum fannst það standa Bretum næst að taka á sig ábyrgðiina eða að minnsta kosti leggja sig meira fram en þeir hafa gert við að leysa deilurnar, þar sem þeir ættu óumdeilanlega upptökin að núverandi ástandi með her- námi írlandis endur fyrir löngiu, fjöldaflutningum manna sinna þangað og loks með því að skipta landinu á þann veg að þeir skiildu eft- ir í N-lrlandi púðurtunnu, er hvenær sem var gat sprung- ið í loft upp. En eitt er að velta ábyrgð- inni yfir á einhvers herðar og annað að finna lausn, sem við verði unað — og til þess þarf fleiri en Breta eina. Deil urnar á írlandi eru nú lík- astar þeim fræga Gordíon- hnút. Spurningin er hvort á að halda áfram að reyna að leysa hann — eða hvort, hver — og hvar skal á hann höggvið. Margrét R. Bjarnason. Kirkja séra Ians Paisleys í Belfast.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.