Morgunblaðið - 16.04.1972, Page 5

Morgunblaðið - 16.04.1972, Page 5
MORGHNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. APRlL 1972 5 Freysteinn Þorbergsson: Sauðargæra I.AMBASrOKH Vegna yfMýsingar, sem birt var af Skáksambandi Islands í Morgunblaðinu 12. apríl síðast- liðinn, vil ég taka fram eftirfar andi. Athygli vekur, að Skáksam- band íslands reynir ekki að hrekja neitt atriði í greinum minum. Væntanlega telur það sig ekki fært um það. Verður yfirlýsing þess því að teljast ómerk. Ummæli Skáksambands íslands um, að skrif mín skuli telj- ast rógur, visast til íöðurhús- anna. Lít ég á þau sem-róg um mig, enda á engan hátt rök- studd. Þvert á móti koma fram rökleysur í yfirlýsingu skák- sambandsins. Skal þá fyrst end- urtekið það úr yfirlýsingu Skák sambands íslands, sem furðuleg- ast er: „Fullyrðingar greinarhöfund- ar um gang allra þessara mála, eiga sér yfirleitt enga stoð í raunveruleikanum og eru að- eins til í hugarheimi hans.“ Samkvæmt þessari yfirlýs- ingu ættu til dæmis eftirfar- andi atriði að vera einungis hug- arsmíði mín. 1. Tilboð islands í einvígið sem samið var af mér og Guð- mundi G. Þórarinssyni að hans sögn. 2. Ferð min til Amsterdam með tilboð íslands og skipan í alþjóð legu opnunarnefndina, var þá víst aðeins draumur. 3. Ferð mín til Bandarikjanna, viðræður þaiwið Fischer og Ed mondson, ásamt kvittun vegna simtals við Guðmund Þ. þaðan, upp á 30 dollara og áttatiu sent, sem líkt og fleira í þessu máli verður mér ekki þakkað. 4. Er skeytið, sem sent var ein um stjórnarmeðlima FIDE, um uppgjöf Skáksambands Islands á að halda einvigið á Islandi í sumar, hugarburður, af því að snúizt var í máiinu síðar? Spyrj ið gjaldskrá Landsíma Islands. 5. Eru það ofskynjanir, sem Dr. Euwe, Fischer og Edmond- son geta vitnað um, að Guð- mundur Þ. hafi í janúarlok hringsnúizt í sumarmálinu og tilkynnt, að ísland gæti haldið einvígið i sumar með 25.000 doll ara lækkun á verðlaunum? Rétt er, að þrátt fyrir langar viðræður við þrjá íslenzka fjöl- miðla kvöldið 31. janúar, minnt- ist Guðmundur ekkert á þetta mál. Raunaur er slík meðferð á sannleikanum — að dylja hann, þegar Guðmundi hentar, — ein af starfsaðferðum hans. 6. Er það hugarburður, að eft- ir símtöl við Guðmund Þ. hafi dr. Euwe ákveðið að skipta margnefndu heimsmeistaraein- vígi í tvennt? Og telja Islend ingar að þær málalyktir hafi verið æskilegar fyrir Island, eða ætli að reynast auðveldar i fram kvæmd? 7. Er það ofskynjun, að á sæmi legri íslenzku megi það kali- ast að kaupa köttinn í sekknum, ef sætzt er á stór fjárútlát vegna „siðari hluta“ einvigis milli Fisc hers og Spasskýs, eftir að nýaf- staðið einvigi Fischer — Larsen hafði engan síðari hluta umfram eina skák — endaði 6:0, þar sem annað nýlegt einvigi milli Spasskýs og Larsen endaði í jafntefli IV2 vinningi gegn 1%. Þannig mætti áfram telja. Röklausa klausu meðstjórn- enda Guðmundar Þórarinssonar 12. apríl met ég til jafns við lambaspörð. SAKLAUS LÖMB Þeir meðstjómendur Skáksam bands Islands, sem undirrita furðulega smíði í Morgunblað- inu 12. apríl voru lengst af sem saklaus lömb i einvígismálunum og hefi ég þess vegna e'kki deilt á þá í greinum min- um, Vil hitta Spasský, íslandi allt og Átján axarsköft. Þetta ætti að geta orðið lesanda ljóst, ef athugað er eftirfarandi. 1. Þeir komu ekki nálægt samningu tilboðs Islands um ein- vigishald á Islandi, samþykktu það aðeins óbreytt á fundi, eftir að ég hafði samið það að beiðni Guðmundar, hann grautað í því nokkuð, snúið því á ensku, og afhent mér það aftur til vélrit- unar. 2. Þeir höfðu lítil aifskipti af gangi mála fram að miðjum jainúar, þegar við Guðmund- ur hittumst nær daglega á minina til Amsterdam og Amer- iku. 3. Þeir áttu aðild að uppgjöf Guðmundar á að halda heims- meistaraeinvígið á Islandi í sum- ar, sem tekin var skömmu eftir að ég ræddi við Fisdher og Ed- mondson í Bandarikjumum. 4. Þeir gáfu Guðmundi Þ. um- boð til samninga I Amsterdam í lok janúar — hans fyrri utan- landsferð í málinu, og kvöddu mig með handabandi og ósk um góða ferð þangað með Guð- mundi. 5. Hafi þeir samþykkt allt, sem Guðmundur hetfir ©eirt í einvigis- málunum, mun sumt samþykkt eftirá. Má vera að annað hafi þeir fyrst frétt í greinum mín- Freysteinn Þorbergsson um, svo sem um aðferðir Guð- mundar í Amsterdam í janúar- lok. 6. Ég hefi að beiðni fyrri stjórna Skáksambands íslands setið þing FIDE og Skáksam- bands Norðurlanda i Gautaborg 1955, Dubrovnik 1958, Munehen sama ár, Oslo 1965, á Kúbu 1966 í Finnlandi 1967 og í Sviþjjóð 1969. Þrátt fyrir beiðni forseta Skáksambands Islands um að staría með honum að samninigu einvígistilboðsins og ofanritaða reynslu mína í þessum méilum, bauð Guðmundur Þórarinsson mér aldrei gestasetui á fund- um Skáksambands ísilands, með- an ég starfaði að fullviminsliu tilboðs Islands — allt til 31. janúar. Sú reynsla, sem ég þann ig miðlaði Guðmundi í tilboði Is iands og á fundum okkar, kamn því að hafa farið fyrir ofan garð og neðan hjá saklausu lömbun- um, nema hún hafi komið fram í hugmyndaauðgi Guðmundar, sem þeir nefna í klausu sinni. Þar sem nefndir meðstjórn- endur eiga ekki aðild að samn- ingu tilboðs Islands á einvígis- halidinu aðra en eiimfalt sam- þykki, eiga enga aðild að þrem Framhald á bls. 27 skrifstofu hans á mnilli fierða COSTA DEL SOL frá kr. 12.500 HVERJAR ERU ÓSKIR YÐAR ÞÉR VILJIÐ KOMA ÁNÆGÐIR ÚR FERÐINNI EFTIR AÐ HAFA NOTIÐ AFBRAGÐSÞJÓNUSTU í SKEMMTILEGRI FERÐ MEÐ BEZTU KJÖRUM. BROTTFARARDAGAR. JÚLl: 5., 19. AGÚST: 2., 16., 23., 30. SEPT.: 6.. 13., 20., 27. OKTÓBER: 11. NÝTlZKU IBÚÐIR MEÐ ÖLLUM ÞÆGIIMDUM. FYRSTA FLOKKS HÖTEL, 3ja, 4ra og 5 STJÖRNU, 1, 2, 3 eða 4 vikur. FJÖLSKYLDUAFSLATTUR I ÖLLUM FERÐUM. ÞAÐ ER ÖRUGGARA MEÐ ÚTSÝN OG KOSTAR T KKERT MEIRA. SILLA & VALDAHÚSIÐ Austurstræti 17 — SÍMAR 20100 23510 21680. Allir f ara í f erð með UTSYN í einu tæki Gengur bæði fyrir rafmagni og rafhlöðum Góður gripur, góð gjöf á aðeins kr.12.980 segulband KLAPPARSTÍG 26, SÍMI 19800, RVK. OG B 0 Ð'l N BREKKUGÖTU 9, AKUREYRI, SÍMI 21630

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.