Morgunblaðið - 20.04.1972, Page 16

Morgunblaðið - 20.04.1972, Page 16
10 MORGUNBL&ÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1972 Otgefandi hif Átvalcuc R&ykjavfk Framkvæmda&tjóri Harafdur Svems&on. ■Riits.'tj'órar Matthías Johannessen, Eýjóiifur Konráð Jónsson. Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson. Ritstjórn'arfiuiltrúi Þiorfcjjönn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jólhannsson. Auglýsingastjóri Ámí Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðaistræti 6, simi 1Ö-100. Aug'fýsingar Aðaistræti 6, siími 22-4-80 Áskriftargjald 225,00 kr á 'míániuði innaniands I íausasölu 15,00 Ikr eintakið A undanförnum árum hefur skapazt víðtækur hljóm- grunnur fyrir því í vestræn- um lýðræðisríkjum að útfæra lýðræðishugsjónina til fleiri sviða þjóðlífsins, efla lýð- ræði í stjórnarháttum, lýð- ræði í stofnunum, lýðræði í skólum, lýðræði á vinnustað o.s.frv. Ýmsar tilraunir hafa verið gerðar með þetta, sum- ar gefizt vel, aðrar illa. Þó ber flestum saman um, að rétt sé stefnt í grundvallar- atriðum að efla lýðræði og lýðræðisleg vinnubrögð til muna. Þessi nýja lýðræðisstefna, sem á sér ekki sízt fylgi með- al ungs fólks, gengur alger- lega í berhögg við meginsjón- armið vinstri stefnu og sósíal- isma. Vinstri mönnum er ekki annt um að efla lýðræði og dreifa valdinu í þjóðfélaginu. Þvert á móti byggist þjóð- félagsstefna þeirra á því að efla miðstjórnarvald, þjappa valdinu saman í fárra hend- ur. Þetta andóf vinstri manna gegn eflingu lýðræðis og valddreifingu kemur t.d. glögglega fram í stefnu vinstri stjórnarinnar hér. Hingað til hafa allar meiri háttar aðgerðir hennar stefnt að því að draga úr dreifingu valdsins og þar með lýðræði í þjóðfélaginu, en safna vald- inu saman á einn stað. Sem dæmi má taka aðför ríkisstjórnarinnar að sveitar- félögunum. Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga felur í sér einn mikilvægasta þátt valddreifingarinnar í þjóð- félaginu og hefur um leið tryggt aukið lýðræði, þ.e. að fleiri fulltrúar fólksins en ella hafa tekið þátt í hinum þýðingarmestu ákvörðunum. í mörg ár hefur mönnum ver- ið ljós nauðsyn þess að end- urskoða verkefnaskiptingu ríkisstjórnar og sveitarfélaga. en þó ekki á þann hátt að draga úr áhrifum sveitar- félaganna, þvert á móti. Með skattalagabreytingum þeim, sem vinstri stjórnin knúði fram á Alþingi, hefur henni hins vegar tekizt að skerða mjög hlut sveitarfélaganna og allt svigrúm þeirra. Þetta þýðir í raun og veru, að vald- svið hinna lýðræðislega kjörnu fulltrúa í sveitar- stjórnum, smáum og stórum um land allt hefur verið tak- markað mjög og það vald, sem áður var í þeirra hönd- um flutt til embættismanna og fámenns hóps stjórnmála- manna á suðvesturhorni landsins. Þannig hefur stefna vinstri stjórnarinnar í raun orðið til þess að draga úr valddreifingu og lýðræðis- legri ákvarðanatöku, en mið- stjórn embættismanna og at- vinnustjórnmálamanna feng- ið aukin völd í hendur. Annað glöggt dæmi um þá ákveðnu stefnu vinstri stjórn- arinnar að þjappa valdinu saman í fárra hendur eru fyrirætlanir hennar í orku- málum landsmanna. Sveitar- félög og landshlutar hafa lagt ríka áherzlu á það, að hafa yfirstjórn raforkumála sinna að mestu í eigin höndum. Þetta fyrirkomulag hefur gef- izt vel og í því hefur falizt valddreifing og lýðræðisleg bátttaka kjörinna fulltrúa fólksins í ákvörðunum um þessi mikilvægu mál — orku- málin. Nú er bersýnilegt, að vinstri stjórnin stefnir að því smátt og smátt að taka þetta vald úr höndum fólksins í héruðunum og landshlutun- um og þjappa því saman í hendur embættismanna og pólitískra kommissara. í athyglisverðri ræðu, sem Geir Hallgrímsson, borgar- stjóri, flutti fyrir nokkru, benti hann á þessa staðreynd og sagði, að þótt í orði kveðnu væri talað um dreifiveitur landshlutanna, ætti eht ríkis- fyrirtæki að hafa þar alla yf- irstjórn á. Síðan sagði Geir Hallgrímsson: „Stefna ríkis- stjórnarinnar, hvort heldur er í orkuvinnslumálum eða orkudreifingarmálum, er til þess fallin að koma á sterkri miðstjórn, draga allt vald saman á einn stað í hendur ríkisstjórnarinnar sjálfrar. Þessi þróun er ekki eingöngu andstæð hagsmunum Reyk- víkinga heldur og allra lands- manna og er gleggsta dæmið um þó óheillavænlegu þróun, sem hafin er undir forystu núverandi stjórnar.“ Lýðræði í skólum hefur smátt og smátt verið að ryðja sér til rúms hér á landi. í röð- um atvinnurekenda og laun- þega hefur gætt vaxandi áhuga á lýðræði á vinnustað og hafa ýmsar tilraunir ver- ið gerðar í þeim efnum. Ekki þarf að draga í efa, að út- færsla lýðræðisins til hinna ýmsu þátta þjóðlífsins er framtíðarmál. Þess vegna er það uggvæn- legt, að við völd er í landinu ríkisstjórn, sem haldin er slíkum afturhaldssjónarmið- um, að hún stefnir í þveröf- uga átt við þessa sjálfsögðu þróun. í stað valddreifingar stefnir hún að eflingu mið- stjórnarvalds. Um leið og hún þjappar valdinu saman á einn stað dregur hún lýðræðisleg- an rétt til ákvarðanatöku úr höndum óbreyttra fulltrúa fólksins víðs vegar um landið og setur það til fámenns hóps manna, embættismanna og kommissara. Gegn þessari þróun verða menn að spyrna við fótum. GEGN EFLINGU LÝÐRÆÐIS OG VALDDREIFINGU Jii!" 11 •nlll i •Ul«illll|i|i |f í umhverfí manns éjjil lniill 1 nHIll Dr. Sturla Fridriksson; Maðurinn þáttur í kerfinu Maðurinn er veigamikill þáttur í samspili vistkerfisins, og það verð- ur honum æ Ijósara, að auðlindir náttúrunnar eru ekki óþrjótandí og honum ber nauðsyn til að nýta gæði náttúrunnar með þeirri hófsemd, að sem minnstu jafnvægi sé raskað. Eylendi sem Island er afmarkað vistkerfi. Er tiltölulega stutt tíma- bil síðan maðurinn réðst í vist- ina og gerðist hlekkur í lífskeðju landsins. Óhjákvæmilega raskaði hann jafnvægi í samspili þeirra líf- vera, sem fyrir voru, en hann varð einnig að lúta lögmálum þessa vist- kerfis. Fjöldi Islendinga takmarkað- ist af því viðurværi, sem landið gat veitt, því að lengst af hafa lands- menn lifað af afrakstri landsins, það er af landbúnaðarafurðum sem veittu þeiom nauðsynlegt viðurværi, skjól og orku. Nú byggja íslendingar af- komu sína bæði á afrakstri lands og sjávar og inn í vistkerfið berst að- fengin orka og ýmis aðkomuefni. UIHHVERFISVERIVD íslendingar sem margar aðrar þ.ióð ir eru nú að vakna til meðvitundar um hve manninum er nauðsynlegt að varðveita umhverfi sitt til þess að geta unað þar á komandi tímum. Því skal nú stilla í hóf afrakstri af óræktuðu landi, en jafnframt stefnt markvisst að ræktun lands. Of nýting einnar tegundar lífvera eða harkaleg breyting á vistinni getur verið stundarhagur, en er ekki væn- leg aðferð til frambúðar. Þannig hef- ur sýnt sig að ofnýting fiskstofina getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir viðkomu tegundarinnar svo og þeirra sem ofar eru í orkukerfinu, en þar á maðurinn sæti. Okk«r er þvi nauðsynlegt að friða fiskstofna. Varðvéita uppeldisstöðvar og hafa umsjón með því að fiskur sé hæfi- legai nýttur á Islandsmiðum. Að sumu leyti eru lífsskilyrði hér á landi svo sérstæð, að gát verður að hafa á þvi að raska ekki um- Álíta má, að flatarmál g-róðurlendis hafi verið um 40.000 ferkm. við iand- nám. Gróðurinn, sem að miklti leyti var skögur, notaði orku sólarljóss- ins til framleiðslu á plöntuefn- lim. Plöntiiætur voru þá fáar í vistkerfi landsins. Gæsir, rjúpur og ýmis lægri dýr voru frumneytendur, sem aftur voru viðurværi fyrir síð- neytendur, kjötæturnar, svo sem refi, rán- og hræfugla. Nú er flatarmál gróðuriendis mun minna eða um 20;000 ferkm. Ctjörð gefur sennilega meira en helmingi minna fóður en við landnám. Hins vegar liefur fóðurmagnið verið auk ið að mun með ræktun, svo nú er unnt að ala fjölda búfjár, sem eru frumneytendiir hinnar aiiiknu plöntu- framleiðsiu. En afurðir búfjár eru viðnrværi fyrir ákveðinn hóp manna sem eru siðneytendur i þessu orku- flæði. 1. ÓræktatS grótSurlencíi. 2. RæktaiS land. 3. Ósnortinn grótSur (framícitS- endur). 7. TaiSa. (Sætið = 630 þ. h.) jfMi. 8. Nýtaníegur afrakslur ræktaiSs úthaga. (Sætið = 630 þ. h.) 9. Túnbeit. (Sætið = 630 þ, h.) 4. Innlendar grasætur (fyrsta stigs neytendur). 5. Innlend rándýr (annars stigs neytendur). 6. Nýtanlegur afrakstur engja og úthaga. (Sætið táknar 630.000 hesthurði). hverfinu um of. Úrgangsefni svo sem flúor geta verið skaðleg sumum líf- verum en önnur úrgangsefni geta stuðlað að óhóflegri aukningu líf- vera, til dæmis úrgangsefni úr slát- fTj 10. 90 þúsund fjár eða samhæri- legur húsmali (fyrsta stigs neytendur. Q 11. 10 þúsund manns (annars stigs neytenglur). urhúsum, sem er fæða fyrir svart- bak. Verklegar framkvæmdir, sem hafa í för með sér breytingar á stór- um landsvæðuim, vötnum, ám og Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.