Morgunblaðið - 14.07.1972, Side 20

Morgunblaðið - 14.07.1972, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1972 Glœsilegt 7 herbergja einbýlishús á sunnanverðu Seltjarnarnesi til sölu. Húsið verður selt fokhelt og fullfrágengið að utan. Tilboð merkt: „9805" sendist Morgunblaðinu fyrir 20. júlí n.k. Að smyrja er sparnaður Volkswagen, Land Rover og Range Rover eigendum er bent á að smurstöð okkar að Laugavegi 172 er opin alla virka daga nema taugardaga kl. 8.00—12.00 og 13.00—18.00. A SMURSTÖÐ HEKLU er eingöngu unnið við V.W. L.R. og R.R. bifreiðar. Sérhæfð þjónusta. Ar Góð þjónusta. HEKLA hf. Laugavegi 170—172 — Sími 21240. Níræð i dag: Guðný Sveinsdóttir, Sæbóli í Aðalvík Guðný Sveinsdóttir, kennd við Sæból í Aðalvík í Sléttu- hreppi er níræð i dag. Fædd er hún 14. júlí 1882 á Gili í Svartárdal í Bólstaðarhlíð arhireppi. Fyrstu æviáriin ólst hún upp hjá foreldrum sinum Ingibjörgu Hannesdóttur og Sveini Sigvaldasyni, en þau voru bæði af Stóradalsætt. Guðný var tíunda barn foreldra simna og tvö ym»gri sysddni eiigm- aðist hún, það gefur því auga leið, að þröngt hefur verið í búi foreldra hennar með þennan stóra barnahóp. Níu systkinanna komust til fullorðinsára, en þrjú létust á unga aldri. Átta ára gömul fór Guðný i fóstur til merkishjónanna séra Stefáns Jónssonar á Auðkúlu og Þorbjargar Halldórsdóttur og var hjá þeim til 18 ára ald- urs, að hún fór vestur í Aðal- vík í Sléttuhreppi, og var sú för hugsuð sem stutt heimsókn til systur hennar, sem þá var gift kona í Aðalvik. Ferð þessi tók langan tíma og á köiflum nokkurs konar hrakn- ingaferð. En úr rættist og fór allt betur en horfði um tíma og til systur sinnar náði Guðný að lokinni erfiðri svaðilför. Ekki leizt Guðnýju um of vel á sig I Aðalvík, er hún kom þangað fyrst. En hún var táp- mikil, fríðleiksstúika, er fersk- ur blær stafaði frá, og ungu mennirnir á staðnum kunnu að meta lokkaprúða fagureygða snót. Enda fór það svo, að með henni og ungum og dáðríkum sjóimanmi, Maigmúsi IX»saþeus- syni tókust festar, og giftist Guðný honum 1904. Þau Guðný og Magnús eignuðust sjö dætur, sem allar náðu fullorð- insaldri, eignuðust sín eigin heimili og afkomendur marga. Eftir tuttugu ára hjónaband missti Guðný mann sinn, er hann drukknaði með vélbátnum Leifi frá Langeyri í desember- mánuði 1924. Stóð hún þá ein uppi með dæt urnar sínar sjö. Sú elzta var þá um tvítugt, en yngsta dóttirin á öðru ári. Má flestum skilj- ast, sem á annað borð vilja skilja hag annarra, að miklir erfiðleika'tlmar voru framumd- an íyrir ekkjuna, því að á þess- um tíma var ekki tryggingum né öðrum bótum fyrir að fara, áhrifa alþýðusamtakanna var enn lítt farið að gæta á félags- málalöggjöf landsins. En með því, að vinna hörð- um höndum, tókst Guðnýju, með aðstoð eldri systranna, eft- ir því, sem þær fengu vinnu, að halda hópnum saman, og má á vissan hátt segja að Guðnýju hafi tekizt að skapa nok'kurs konar álftaver, þar sem fagrir svanir flugu um með reisn og glaðværð. Þannig liðu árin við fátækt, strit og starf, en andinn hélzt óbugaður. Guðný er greind kona margfróð og víðlesin, og American hengilósar og hespnr Höfum jafnan fyrirliggjandi allar stærðir af American hengilásum og hespum. LykiIIásai', talnalásar — fjölbreytt úrval. Vönduð vara, framleidd eftir ströngustu kröfum — viðurkenndir af bandarískum tlryggingarfélögum. Ólafur Gíslason & Co hf. Ingólfsstræti la - Sími 18370 bækurnar voru mæðgnanna at- hvarf á hretviðrisdögum, þar sem bærinn þeirra fennti í kaf á stundum og stórgerðar Ægis- dætur gnauðuðu við fjöruborð- ið, en rómsterkur norðanbylur- inn söng bassann um leið og hann fór hamförum yfir snævi- þaktar grundir og háttgnæf- andi f jallatinda. En að liðnum vetri voraði á ný, sólargeislarnir náðu að verma að innstu hjartarótum, og það var brosað á ný við hækk- andi sól og komandi sumri, er gaf fyrirheit um atvinnu og betri afkomumöguleika. Um þrettán ára skeið eftir lát manns sins bjó Guðný áfram í Aðalvík. Dvölin hennar þar varð því alls 37 ár, þótt ferðin til Aðal- víkur væri upphaflega hugsuð sem nokkurs konar orlofsför stuttan tíma. Þegar Guðný Sveinsdóttir árið 1937 fór frá Aðalvík fluttist hún til ísafjarð- ar og í sjúkrahúsi kaupstaðar- ins vann húin fyrst og fremst við sauma, og að öðrum þræði við að vaka yfir sjúkum og hrjáðum og þá ekki sízt við beð þeirra sem voru að kveðja þennan heim. Guðný er kona, tíguleg og björt yfirlitum, svip- hrein og mild. Ég efa ekki að þeim sjúku var mjkill og ómet- anlegur styrkur að nærveru hennar, því að frá henni stafar einlægri hlýju, ró oig firiði, sem al'lir sjúkir eru í þörf fyrir. Og á kveðjustund sjúklinga sinna hélt hún mjúkri fagur- steapaðri hendi sinni x þeirra, milli þess að hún þerraði perl- andi svita dauðastríðsins af enni þeirra. Hún var þeim sem bezta móðir á örlagastundu. Á Sjúkrahúsi ísafjarða»r starf- aði Guðný fram að áttræðis- aldri eða þar til fyrir tíu ár- um, að hún fluttist til Kefla- víkur þar sem hún nú býr hjá dóttur sinni Bergþóru og manni hennar Torfa Gíslasyni að Hafn- argötu 74. Fyrstu kynni okkar Guðnýj- ar urðu fyrir um fjórum ára- tugum, er við tveir postular Al- þýðusambands Vestfjarða ferð- uðumst fótgangandi til stofnun- ar og aukinna starfa verkalýðs- félaganna á Vestfjörðum, að leið okkar lá um Sléttuhrepp. Það var albjarta júnínótt, sem við löbbuðum fjallaleið frá Hest eyri til Aðalvíkur, og seint um nóttu kváðum við dyra hjá Guðnýju að Sæbóli. Húsfreyja kom sjálf til dyra, og tók okkur sem beztu bræðrum. Síðan er Guðný mér æ í huga hin saania, yfirbragðghrein og mild, en ákveðin, trygg og traust þeim mönnum og málefnum, er falla henni i geð, sterk en sveigj anleg, hreinlynd og djörf. Síðar er hún gerðist starfs- manneskja á Sjúkrahúsi Isa- fjarðar, og varð forustukona í starfsstúlknadeild vertealýðisfé- lagsins Baldurs á ísafirði og ég þá formaður þess félags, hófust okkar á milli náin kynni og sam starf, sem aldrei bar skugga á. Kæra Guðný, þegar þú nú í da'g fýl'lir níiunda tu»g æviár- anna, langar mig því til þess að senda þér smáafmæliskveðju og þakka þér góð kynni og ánægju legt margra ára samstarf. Góður guð blessi þér ókomin æviár. Helgi Hannesson. Foraiðor seldir til LANDSMÁLAFÉLAGID VÖRÐUR Sumarferð VARDAR ÞÓRISVATN - ÞJÓRSÁRDALUR SUNNUDAGINN 16. JÚLÍ 1972 kl. 10 í kvöld Stjórn Varðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.