Morgunblaðið - 14.07.1972, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚU 1972
Minning;
Bjarni Beinteinsson
hæsta rétta r lög maðu r
BJARNI Beinteinsson fæddist í
Reykjavík 31. október 1934, son-
ur hjónanna Sigriðar Ágústs-
dóttur Flygenrings kaupmanns í
Hafnarfirði og Beinteins útgerð-
armanns Bjamasonar prests og
tónskálds í Siglufirði Þorsteins-
sonar. Ágúst Flygenring var son-
ur Þórðar Sigurðssonar að Fiski-
læk og Sigríðar konu hans Run-
ólfsdóttur frá Saurbæ á Kjalar-
nesi og bróðir Matthíasar
þjóðminjavarðar, en eiginkona
Ágústs var Þórunn Stefánsdótt-
ir frá SÞóreyjamúpi. Séra Bjarni
var sonur Þorsteins Helgasonar
á Mel í Hraunhreppi, er síðast
bjó í Bakkabúð í Reykjavik, og
Guðnýjar konu hans Bjamadótt-
ur i Straumfirði Einarssonar.
Séra Bjami var kvæntur Sigríði
dóttur Lárusar sýslumanns Blön-
dals á Kornsá. Eru þetta allt
kunnar ættir og fjplmennar,
sem óþarft er að rekja.
Bjami Beinteinsson ólst upp á
heimili foreldra sinna i Hafnar-
firði og stundaði þaðan nám.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð við andlát og jarðarför
sonar míns og bróður okkar,
Björns Jónssonar,
Litlu-Drageyri,
Skorradal.
Rósa Guðmundsdóttir,
Einar Jónsson,
Oddgeir Jónsson.
vorið 1954 og hóf haustið eftir
nám í lögfræði við Háskóla Is-
lands og lauk þaðan embættis-
prófi 25. mai 1961.
Bjarni var félagslyndur og
strax á skólaárunum hlóðust á
hann margvisleg störf. í mennta-
skólanum var hann kosinn for-
seti Framtiðárinnar, og haustið
1956 varð hahn formaður ‘Stúd-
entaráðs Háskóla Islands, er
Vaka vann frægan sigur og náði
meirihluta eftir nokkurra ára
vinstri bræðing. Á þeim árum
fengu stúdentar mörgu áorkað,
sem nú þykja sjálfsagðir hlutir,
svo sem réttur til að tilnefna
fulltrúa í Háskólaráð, en Bjami
Beinteinsson var fyrstur valinn
til þess trúnaðarstarfa úr hópi
stúdenta 1957—58. Vegna félags-
starfa sinna hlaut Bjarni að
koma fram á þingum og mann-
fundum heima og erlendis. Þótti
hann jafnan flytja mál sitt af
festu og prúðmennsku, og er við
brugðið framkomu hans allri við
úrsögn Stúdentaráðs úr Alþjóða-
sambandi kommúnistastúdenta.
Strax á stúdentsárunum ferðað-
ist hann viða um heim og vand-
ist fljótt víðari sjóndeildarhring
en Islandi einu og varð snemma
heimsborgari í hugsun. Hann
sökkti sér á þessum árum nið-
ur í alþjóðamál og hafði jafnan
síðan yndi af stjórnmálum inn-
an lands og utan.
1 samræmi við lífsskoðun sina
tók Bjami mikinn þátt í störf-
um Sjálfstæðisflokksins og
gegndi þar mörgum trúnaðar-
störfum. Hann var í stjóm Stefn-
is í Hafnarfirði i nokkur ár, for-
maður 1955—56, í stjóm Heim-
dallar í Reykjavík 1960—63, for-
maður 1962—63, og í stjórn
t
Móðir okkar
JÓNA GUÐMUNDSDÓTTiR,
andaðist 11. júlí að heimili sinu Grettisgötu 32.
Fjölskyldan.
hverfasamtaka Sjálfstæðisflokks
ins I vestur- og miðbæjarhverfi
Reykjavikur frá stofnun þeirra
árið 1969. Af öðrum félagsstörf-
um má nefna, að Bjarni var for-
maður undirbúningsnefndar að
stofnun Æskulýðssambands is-
lands 1958 og í stjórn þess til
1960 og í stjórn Varðbergs frá
stofnun þess 1961 til 1963. Þá
átti hann sæti í Æskulýðsráði
Reykjavíkur um skeið.
Bjami réðst framkvæmda-
stjóri Fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna i Reykjavík vorið 1960
og gegndi þeim starfa til ársins
1963, er hann var ráðinn sveitar-
stjóri i Seltjarnarneshreppi, en
það var hann um tveggja ára
skeið þar til hann setti á stofn
málflutningsskrifstofu í Reykja-
vík á árinu 1965. 1 öndverðu
fékkst hann mjög við fasteigna-
sölu, en réttindi til málflutnings
fyrir héraðsdómi öðlaðist hann
8. júní 1965 og varð hæstarétt-
arlögmaður 20. mai 1970.
Málflutningsstörfin áttu samt
aldrei hug hans allan, enda sneri
hann sér að nýjum verkefnum
og var síðustu ár ævi sinnar
langtimum við störf erlendis.
Hann tók að sér umboð í Evrópu
fyrir félag eitt í Bandaríkjun-
um, sem m.a. smíðar tæki til
eyðingar úrgangsefna frá skip-
um í því skyni að draga úr
mengun sjávar, og var hér vissu-
lega verðugt verkefni, sem hon-
um entist því miður ekki auðna
tii að ljúka. 1 öllu þessu annríki
gleymdi Bjarni þvi aldrei, að
hann var fyrst og fremst Islend-
ingur, og stefndi að þvi að unnt
yrði að smíða tæki þessi á ís-
landi til útflutnings.
Bjarni Beinteinsson var allra
manna hæstur vexti, grannur og
beinvaxinn. Hann var hægur í
allri framgöngu og lét vel að
hlusta en hélt skoðunum sínum
fram af einurð og um leið hóf-
semi. Honum var létt um mál
og auðvelt að fá fólk til liðs við
sig og skoðanir sínar. Hann var
listhneigður eins og hann átti
kyn til og hafði mikið yndi af
tónlist. Hann var góður vinur
og hvers manns hugljúfi og lét
ekki stundarágreining valda vin-
slitum.
Bjarni kvæntist 27. október
1957 Sigrúnu Hannesdóttur heit-
ins klæðskerameistara Erlends-
sonar og Fanneyjar konu hans
Halldórsdóttur. Börn þeirra Sig-
rúnar eru þrjú: Ásgeir, f. 2.
marz 1958, Ragnhildur Erla, f.
7. desember 1961, og Hannes Þór,
f. 10. marz 1963. Á heimili þeirra
var gott að koma.
Bjarni Beinteinsson lézt í
svefni í gistihúsi i New York-
borg 4. júli 1972.
Blessuð sé minning hans.
Benedikt Blöndal.
BJARNI Beinteinsson, hassta-
réttarlögmaður, lézt í New York
hinn 4. júlí sl. Hann fæddist í
Reykjavík 31. október 1934, son-
ur hjónanna Beinteins Bjarna-
sonar, útgerðarmanns í Hafnar-
firði, og Sigriðar Flygenring,
sem lifa bæði son sinn. Bróðir
Bjama er Ásgeir, píanóleikari
og tónlistarkennari, og systir
Þórunn, gift Erlingi Helgasyni,
framkvæmdastjóra.
Annar mun rekja hér ætt
Bjama og æviferil, svo að undir-
ritaður mun reyna að lýsa hon-
um að nokkru, og verður þá ekki
hjá þvi komizt, að slík lýsing
t
Otför eiginmanns míns
BJARNA BEINTEINSSONAR,
hæstaréttarlögmanns,
verður gerð frá Fossvogskirkju í dag föstudaginn 14. júlf
kl. 15.00.
Sigrún Hannesdóttir.
Móðir okkar
HELGA BJÖRNSDÓTTIR,
andaðist að Hrafnistu 12. júlí s.l.
Guðrún Júlíusdóttir,
Ingibjörg Júlíusdóttir,
Finnbogi Júliusson.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR JÓNASSON,
bifreiðarstjóri,
Glerárgötu t, Akureyri.
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju, laugardaginn 15. júlí
kl. 13,30.
Þórunn Jónsdóttir,
Sigurbjörg Guðmundsdóttir,
Jónína Guðmundsdóttir,
Guðbjörg Tómasdóttir,
Jón Oddgeir Guðmundsson,
Vilberg Alexandersson,
Sveinbjöm Matthíasson,
Axel Guðmundsson,
og bamaböm.
t
Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
GUÐRÚNAR AMUNDARDÓTTUR,
GeirSandi, Kópavogskaupstað.
fer fram frá Fossvogskirkju laugardaginn 15. júlí kl. 10,30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á liknarstofnanir.
Unnur Sigurjónsdóttir, Anna Sigurjónsdóttir,
Svava Sigurjónsdóttir, Ólafur G. Sigurjónsson,
Helga M. Sigurjónsdóttir, Sigrún Sigurjónsdóttir,
Fanney Sigurjónsdóttir, Bragi Sigurjónsson,
tengdaböm, bamaböm og barnabamabörn.
t
Konan mín og dóttir okkar
ELfNBORG SIGURÐARDÓTTIR LLÓRENS,
Ijósmóðir,
Vesturgötu 42, Akranesi,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju laugardaginn 15. júli kl. 2
e.h. Blóm og kransar afbeðnir, en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á sjúkrahús Akraness.
Enrique Llórens,
Guðfinna Svavarsdóttir,
Sígurður B. Sigurðsson.
t
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við fráfall og
jarðarför eiginmanns míns
ADÓLFS SIGUftÐSSONAR,
bifraiðarstjóra,
Hellisgötu 34. Hafnarfirðt
Fyrir hönd bama okkar og annarra vandamanna
________________________________________Ingtbjötg Danielsdóttir.
t
Hjartanlegar þakkir færum við öllum, sem sýnt hafa okkur
samúð og vináttu við andlát og útför móður okkar
ALICE SIGURÐSSON,
Sérstakar þakkir færum við hjúkrunarliði Hrafnistu fyrir
góða umönnun.
Nanna Haraldsdóttir,
Haraldur Haraldsson.
verði nokkuð persónuleg. Þótt
náin vinátta væri með okkur um
átján ára skeið, finnst mér erfitt
að segja frá honum á skrifuðu
blaðí, þvi að hann var gerður úr
mörgum eðlisþáttum, suáwm all-
ólíkum. í honum fór vel saman
listfengi og hrifnæmi, gagnrýn-
in greind og raunsæi, innblásið
andans flug, gáfnafjör og köld
rökhyggja, eðlíslæg glaðværð og
alvarleg djúphyggja. „Fluggáf-
aður alvörumaður, en alltaf
skemmtilegur," sagði sameigin-
legur kunningi okkar við mig
fyrir nokkrum dögum, og ætla
ég, að engum, sem þekkti Bjama
heitinn, þyki það ofmælt.
Kynni okkar Bjama hófust
ekki fyrr en hann hafði lokið
stúdentsprófi, og við unnum
saman í sementshlöðu á Kefla-
víkurflugvelli. Menn sáu, að
þarna var atgervismaður á ferð,
röskur til verka, hnyttinn og
bráðfyndinn án þess að þurfa að
hafa fyrir því, hinn mesti fróð-
leikssjóður og einstaklega hýr
og þægilegur félagi. Síðar lágu
leiðir ókkar oft saman, mér til
gagns og gleði, ekki sízt á há-
skólaárunum. Er mér og öðr-
um minnistæð framganga hans
í háskólapðlitikinni haustið 1956,
þegar hann var efstur á lista
Vökumanna og lagði að veíli
sameiginlegan lista allra vinstri
félaganna með glæsibrag. Að
vísu var þá „hægri sveifla" með-
al stúdenta, en enginn var í vafa
um það, að persónufylgi Bjama
reið baggamuninn.
Vinsældir Bjama orsökuðust
meðal annars af þvi, að honum
lét vel að hlusta á aðra, var
fljótur að skilja aðalatriði frá
aukaatriðum, átti auðvelt með
að klæða hugsanir sínar i
réttan búning, var flugmælsk-
ur og skemmtilegur í við-
ræðum, og viðmælendur hans
fundu þegar, að þeir töluðu
við skarpgreindan og fjölfróðan
mann, sem flutti mál sitt af
festu og sanngirni. Yfirgrips-
mikil þekking hans á ólíkum
málefnum kom mönnum sífellt á
óvart, og hann var hverjum
manni hollráðari og skjótráðari,
þótt ýmsum þætti hann stund-
um býsna djarfhuga. Hann
kunni þá list að setja skoðanir
sinar skýrt og skilmerkilega
fram, svo að á hann var alltaf
hlustað með eftirtekt. Þótt hann
hefði ákveðnar skoðanir á við-
kvæmum deilumálum, valdi
hann sér ávallt hæfileg orð i
málflutningi, svo að hann hlaut
hvers manns virðing af. Bjami
var drengilegur maður, sérstak-
lega háttvis og prúður í um-
gengni. Þótt honum þætti við-
mælendur stundum smáir í snið-
um, lét hann þá ekki gjalda þess
í neinu, því að hroki og yfirlæti
var honum viðs fjarri. Meðan
Bjami fékkst við stjómmál, fór
ekki hjá því, að hann þyrfti að
eiga I höggi við pólitiska and-
stæðinga, én slíkir voru persónu-
töfrar hans, að aldrei vissi neinn
til þess, að hann eignaðist óvin
i þeirra hópi. Þvert á móti löðuð-
ust þeir margir að honum, og
ýmsa beztu vini sina átti hann
meðal þeirra.
Bjami var hár maður vexti og
höfðinglegur, snyrtimenni hið
mesta og ljúfur í lund við hvern
sem var, enda hændist fólk
ósjálfrátt að honum. Vini og
kunningja átti hann furðúmarga.
Kurteisi brást honum aldrei, og
hvers kónar ruddahátt átti hánn
bágt með að þola.
Ungur fór Bjami einn í ferða-
lag um Evrópu, — nokkurs kon-
ar „grand tour“, en svo var það
kallað fyrrum, þegar ungir að-
alsmenn fóru milli menningar-
setra í Norðurálfu að heimanámi
loknu. Bjami var vel undir ferð-
ina búinn, með menningararf úr
foreldrahúsum og þá þegar við-
lesinn. Þessi for hafði rnikil óg
varanleg áhrif á Bjama, enda
varð honum tiðrætt um hana.
Hann taldi imgum mönnum
hollt að hleypa heimdraganum
snemma, ausa sem víðast úr
menntabrunnum og kynnast af
eigin raun viðhorfum og Ufnað-
arháttum framandi þjóða. Slíkt
taldi hann skyldu aUra mennt- .
aðra manna við sjálfa sig. Án
þess að rækja hana heiðarlega, j