Morgunblaðið - 14.07.1972, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 14.07.1972, Qupperneq 31
MORGUNBiLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚLl 1972 31 Þeir háðu skemmtileffa kúluvarpskeppni í ffærkvöldi. Frá vinstri: Hreinn Halldórsson, Guðmnnd- ur Hermannsson, Björn Bang Andersen, Bo Grahn og Hans Dieter Möser. sig vel í Noregi Ricky kastaði 64,38 metra f — í einstaklega óhagstæðu veðri f RICKY Brueh tókst ekki að standa við orð sín og setja heims met á FRÍ-mótinu í gærkvöldi. Til þess var líka lítil von, þar sem veður var einstaklega óhag- stætt til keppni og hellirigning var meðan kringlukastskeppnin fór fram. Eigi að sígur kastaði Bruch 64,38 metra og sýndi mik- ið öryggi í keppninni. Kiiluvarp- ið var annars skemmtilegasta grein mótsins í gærkvöldi, en þar sigraði Fjóðverjinn Hans Dieter Möser, sem kastaði 19,31 metra. Annar varð Bo Grahn, Finnlandi, sem kastaði 19,20 metra og þriðji varð Björn Bang Andersen, Noregi, sem kastaðl 18,70 metra. fslenzku keppend- urnir Guðmundiir Hermannsson og Hreinn Halldórsson köstuðu 17,33 metra og 17,03 metra. Skemmtileg keppni var einnig í 800 metra hlaupinu, en í þvf sigraði Martin Strand, Noregi, á 1:54,0 mín, eftir harða baráttu við Þorstein Þorsteinsson, sem hljóp á 1:54,5 mín, og Ágúst As- geirsson, sem hljóp á 1:55,5 mín. Nánar verðnr f jallað um mótið í blaðinu á morgun. 2. flokkur ÍBV stóð Celtic — I>ór 4-1 UNGLINGALIÐIÐ frá Celtic sem tók hér þátt í Afmælismóti KSÍ hélt norður á Akureyri að mót- inu loknu. Á miðvikudagrskvöld- ið lék liðið við meistaraflokk Þórs á Akureyri og sigraði 4—1. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik og í hléi var staðan 1—1. Magnús Jói.atansson skoraði mark Akureyringanna. Seinini hálfleikurimn var að miestu eign Celtic sem voru miklu fríiskari og liprari he'dur en heimameran sem virtust úthaldslaus-ir. Skor- uðu Skotarnir þrjú mörk í hálf- leiknuan, tvö þeirra mjög lag- lega eftir aukaspyrniu. Þess má geta að 9 af þeima leikmömnum sem léku með Þór eru í meist- araflokikshópi ÍBA og sýnir það styrkleika Celtic. 2. flokkur ÍBV hélt til Noregs núna í byrjun mánaðarins og tók þar þátt í móti fyrir knatt- spyrnnmenn 18 ára og yngri. Mót þetta heitir North See Cnp og í því taka þátt lið frá Noregi og Svíþjóð og svo var einn ís- lenzkn liði boðin þátttaka. Vestmannaeyingarnir stóðn sig mjög vei og urðn í öðru sæti. Lið ÍBV lék 5 leiki á 3 dögutn og má nærri geta að leikmenn- irnir hafi verið orðnir þreyttir er kom að siðasta leiknuim. Fynsta leiknum lauik með jafin- tefii, svo komu tveir góðir sigrar, 3:0 og 4:0. Næsiti leikur var mjög jafn og fengust ekki úrslit í hon- urn fyrr en eftir vítaspyrnu- Framhald á bls. 21 Brynjólfur Helgason skrifar uni kappakstur: GRAND PRIX Frakklands — á Charade brautinni í Clermont-Ferrand Eftir fjögnrra vikna hvíld frá kappakstri vegna veikinda kom Jackie Stewart í toppformi til Frakklands og vann frönsku Grand Prix keppnina á nýjnm Tyrreil-Ford sunnudaginn 2. júlí. Braziliiimaðurinn Emerson Fittipaldi var annar, á John Player Special Lotus-Ford bíl og lieldur liann enn forystunni í : Iieimsmeistarakeppni öltu- manna. Á æfingu á fimmtu- deginum fyrir keppnina fór Frakkinn Francois Cevert útaf brautinni á Tyrrell-Ford bíi sínum. Ökiimaðurinn slapp með meiðsli á úlnlið en bíllinn eyðiiagðist. Nýr bill var tilbúinn lianda Cevert fyrir keppnina. Æfingarnar er mestu máli Jackle Stewart skiptu voru á föstudag og laug- ardag. Byrjunarstaða i keppn- inni ákvarðast af æfingatímun- um, þannig að þeir, sem bezt- um æfingatíma ná byrja fremst- ir í keppninni. Þetta er gert til að minnka framúrakstur i upp- hafi keppni. Charade brautin er mjög hlykkjótt (51 beygja) og sérlega mishæðótt og hefuip það valdið sumum ökumönnum óþæg indum, „sjóveiki". — Það var Ný- Sj álendingurinn Chris Amon á frönskum Matra-Simca MS120C bíl, er náði beztum æfingatíma og byrjaði þvi i pólstöðu í keppninni ( pole position: sú staðsetning i fremstu röð, sem liggur beinast við réttri stað- setningu í fyrstu beygju). Á æf ingunum aka bílarnir einn og einn en ekki allir saman. Bezti tími Amon var 2:53,4 mín, og hraðinn 167,231 km/klst. Við hlið hans í fremstu röð var landi hans Denny Hulme á Yardley McLaren-Ford M19C með tímann 2:54,2 mín. 1 annari röð voru núverandi heimsmeist- ari, Skotinn Jackie Stewart á Tyrrell-Ford, 2:55,0 mín. og Belgíum'aðuriinn Jacky Ickx á Fer rari 312B2, 2,55,1 mín. 1 þriðju röð voru Tim Schenken frá Ástralíu á Brooke Bond Oxo Surtees-FordTS9B bíl og Aust- urríkismaðurinn Dr. Helmut Marko á Marlboro BRM P160. 25 bílar hófu keppnina. Chris Amon var fyrstur fyrri helming keppninnar á Matra bílnum. En þá sprakk hjá hon- um og hann varð að stoppa til að fá nýtt dekk (Amon er frá- bær ökumaður og hefur hann þagar ekið í 80 Gra.nd Prix Nýr Tyrrell-Ford tilbúinn fyrir Jackie Stewart. keppnum, 29 ára gamall. Óheppni hans er með eindæm- um og hann hefur ekki enn sigr að í Grand Prix, þó oft hafi hann verið nálægt því). Þegar hann komst aftur af stað var hann í 8. sæti. Hann ók mjög vel og sló hraðamet hringsins nokkrum sinnum og endaði í 3. sæti. Hann fór hraðast 32. hring inm, 166.651 ikm/klist, 2:53,9 mínútur. (I Grand Prix er aldrei stoppað nema eitthvað bili. Þó slys verði stoppa hinir ekki nema brautin lokist alger- lega — „The show must go on“). Jackie Stewart sagði að það væri aðeins hægt að fara fram úr á einum stað á braut- inni með öryggi, og það var ein mitt þar sem hann náði öðru sæt inu frá Denny Hulme á 17. hring. Stewart sagði einnig að fyrir keppnina hefði hann lofað sjálf um sér því að fara alls ekkert út fyrir brautina því að stein- kantarnir væru það, sem sprengdu dekkin. Austurrikismaðurinn Helmut Marko varð fyrir alvarlegum áverka á vinstra auga er steinn braut hlifðarglerið á hjálmi hans og fór í augað. Óvíst er hvort hann heldur sjón á aug- anu. Brazilíumaðurinn Emerson Fittipaldi ók mjög vel og end- aði i 2. sæti eftir að hafa byrj- að með 8. bezta æfingatímann. Framúrakstur er mjög erfiður á þessari mjóu og hlykkjóttu braut. Keppnin var æsispenn- andi og sprungin dekk kostuðu Ný-Sjálendingana Dennv Hulme og Chris Amon hugsanlegan sig ur oig Bellgiiuimanninn Jacky Ickx 2. sæti. Francois Cevert stóð sig mjög vel að ná í 4. sæti með reifaða hönd. tírslit Grand Prlx de France: 1. Jackie Stewart, Skotlandi, Tyrrell, 1 klst. 52 mín. 21,5 sek. Meðalhr. 163 km/klst. 2. Emerson Fittipaldi, Brazilíu, JPS Lotus 1:52:49,2. 3. C3hris Aman, Nýja-Sjálandi, Matra 1:52:53,4. 4. Francois Cevert, Frakklandi Tyrrell 1:53:10,8. 5. Ronnie Peterson, Svíþjóð, March 1:53:18,3. 6. Mike Hailwood, Englandi, Surtees 1:53:57,6. 7. Denny Hulme, Nýja-Sjá- landi, McLaren 1:54:09,6. 8. Wilson Fittipaldi, Brazilíu, Brabham 1:54:46,6. 9. Brian Redman, Englandi, MeLaren 1:55:17. 10. Graham Hill, Englandi, Brabham, 1:55:21. Þessir voru allir á sama hring í lok keppninnar (11. maður var einum hring á eftir sigurvegar- anum). Níu efstu nienn í heimsineistara- keppni öktinianna eru nú: 1. E. Fittipaldi, Braziliu, JPS Lotus-Ford 34 stig. 2. J. Stewart, Skotlandi, Tyrrell-Ford 21 stig. 3. D. Huime, Nýja-Sjálandi, Yardley McLaren-Ford 19 st. 4. J. Ickx, Belgíu, Ferrari 16 st. 5. —6. J.—P. Beltoise, Frakk- landi, Marlboro BRM 9 stig. 5. -6. F. Cevert, Frakklandi, Tyrrell-Ford 9 stig. 7. C. Reigigazoni, Sviss, Ferrari. 7 stig. 8. —9. P. Revson, U.S.A. Yardley McLaren-Ford 6 st. 8.-9. C. Amon, Nýja-Sjáilandi, Matra-Simca 6 stig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.