Morgunblaðið - 14.07.1972, Side 32
% SKÁK
IAskriftarsíman
15899 — 15543.
EINVÍGISBLAÐIÐ
KEML R ÚT MORGUNINN
EFTIR HVERJA SKAK.
Pósthólf 1179.
nucLvsmo^R
^r-®2248D
FÖSTUDAGUR 14. JULÍ 1972
Fyrst
hass-
síðan
LSD
LÖGREGLAN í Keflavík hand-
tók í fyrrakvöld tvítng-an pilt í
Keflavík og við leit á honum
fnndust 40 töfhir af LSD, sein
pilturinn hafði ætiað til sölu.
Við yfirheyrslu kom fram, að
hann hafði keypt töflurnar af
varnariiðsmanni á Keflavíkur-
flngvelli og voru siðan handtekn-
lr þrír varnariiðsmenn og færð-
ir til yfirheyrslu vegna þessa
máis. Húsleit var gerð heima h.já
piltinum og fundust þar 5 LSD-
töflur til viðbótar og einnig var
gerð húsleit h.já varnarliðsmönn-
unum og fannst þar hassplanta,
sem þeir höfðu verið að rækta.
Keflvíkingurinn hefur verið úr-
skurðaður í allt að 20 daga
gæzluvarðhald og einnig tveir
varnarliðsmannanna.
I>að voru þeir Kristján Péturs-
son, tollvörður, og Haukur Guð-
mundsson, rannsóknarlögreglu-
maður í Keflavík, sem unnu að
rannsókn þessa máls í framhaldi
af rannsókn hass'bréfamálsins
svonefnda. Var þessi piltur einn
þeirra sex pilta, sem höfðu stað-
ið fyrir sendingum hassbréfanna
til landsins frá Kaupmannahöfn,
en við rannsókn þess máls var
ákveðið að láta ekki úrskurða
hann í gæzluvarðhald, þar sem
grunur lék á að hann stæði í
frekari viðskiptum með fíknilyf.
Var fylgzt með honum undan-
fama daga og í fyrrakvöld var
hann svo handtekinn, og reynd-
ist þá vera með fíknilyf á sér.
Grunur leikur á, að pilturinn
hafi þegar verið búinn að selja
eitthvert magn fíknilyfja.
Framhald á bls. 21
Sátta-
fundur
SÁTTAFUNDUR í deiliu raf-
virkja og rafverktaka sem hófst
kl. 5 í gær stóð enn yfir er Morg
rjinblaðið fór í prentun. Að því
er Mbl. fregnaði rikti heldur
bjartsýni á að miða myndi í sam-
komulagsátt á íundinum.
Bjarni vill
viðurkenna
A-Þýzkaland
Kaupmannahöfn, 12. júlí.
íslenzki prófessorinn Bjarni
Guðnason, sagði í viðtali við
austur-þýzku fréttastofuna
ADN að ísland, ásamt hinum
Norðurlöndunum ætti að taka
upp stjórnmálasamband við
Austur-Þýzkaland.
Bjami Guðnason er stadd-
ur í Austur-Þýzkalandi þessa
dagana sem þátttakandi í
Eystrasaltsvikunni í Rostok.
Þessi ummæli hans eru sett
í samband við áætlanir Finina
um að viðurkenna Austur-
Þýzfkaland Opinber stefna
hinna Norðurlandanma í þessu
máli er að bíða með viður-
kenningu þaT til náðst hefur
inmbyrðis samkomulag milli
Austur og Vestur-Þýzkalands,
í framhaítíi af Moskvu-sam-
þykktunum svonefndu.
Guðmundur Arnlaugsson og Lothar Schmid taka saman taflmennina, eftir að önnur skák heimsmeistaraeinvígisins hafði verið
dæmd af Bobby Fischer. (Ljósm. SSÍ)
Heimsmeistaraeinvígið:
„þetta er hörmulegt"
— sagði Boris Spassky, er hann fór frá Laugar-
dalshöll. Mótmæli frá Fischer gegn þeirri ákvörð-
un dómarans að dæma af honum aðra skákina
„í 5. GREIN einvígisregln-
anna segir: Nú mætir annar
keppandinn einni klukku-
stundu of seint til leiks og
hefur hann þá tapað skákinni.
Með því að klukkutími er nú
liðinn, síðan þessi skák hófst
og Bohhy Fischer er enn
ókominn, lýsi ég því yfir, að
hann hafi tapað skákinni og
að Boris Spassky sé sigurveg-
ari.“ Þessi orð tilkynnti dóm-
arinn í heimsmeistaraeinvíg-
inu í skák, Lothar Schmid,
yfir felmtri sleginn áhorf-
endaskarann í Laugardals-
höllinni á mínútunni sex í
gær.
— Þetta er hörmulegt var
haft eftir Boris Spassky, er
hann hélt brott frá Laugar-
dalshöllinni, en hann hefur
nú tvo vinninga í heimsmeist-
araeinvíginu en Fischer eng-
an. Ekki var vitað í gær,
hvort Fischer hygðist tefla
einvígið áfram, en það var
talið ólíklegt.
Lothar Schmdd tók það fram á
fundi með fréttamönnum á eftir,
að Fisoher hefði tapað þessari
einu skák en ekki öllu einvíginu
og gæti því teflt áfram. Einvíg-
inu væri í rauninni ekki lokið
fyrr en heimsmeistarinn hefði
hlotið 12 vinninga, því að hann
ynni einvígið á jöfnu, en Fiseher
þyrfti 12 % vinning.
Schmid sagði ennfremur, að
Fischer hefði getað borið fram
skriflega kvörtun 6 klst. áður en
önnur skákin hófst og hefði hún
þá verið tekin til athugunar, en
slík kvörtun hefði ekki borizt.
Ekki hefði komið fram nein af-
sökun af hálfu Fischers fyrir því
að mæta ékki tid leiks.
Síðar í gærkvöldi skýrði
Schmid frá þvi, að fulltrúar
Fischers hefðu skýrt sér svo frá,
að þeir myndu bera fram skrif-
leg mótmæli við sig fyrir mið-
nætti, þar sem brigður yrðu born
ar á réttmæti þeirrar ákvörðun-
ar, að skákin yrði dæmd af
Fischer og sigur fyrir Spassky.
Seint í gærkvöldi skýrði Cram-
er, fuMtrúi Fischers frá því, að
borin hefðu verið fram mótmæli
gegn þeirri ákvörðun Schmids að
dæma skákina af Fischer. Mót-
mæli þessi höfðu að geyma kröfu
Framhald á bls. 3
Mótmælir breytingu
á kjarasamningum
með lögum
— Hugmyndir ríkisstjórnarinnar
um efnahagsaðgerðir
voru ekki sýndar B.S.R.B.:
I ÁLYKTUN, sem stjórn Banda-
lags starfsmanna ríkis og bæja
hefnr gert vegna efnahagsað-
Klukkan 17.35 í gær:
Færið klukkuna í
byrjunarstöðu og
þá skal ég koma
— sagði Fischer við Friðrik
FRIÐRIK Ólafsson var sá Is-
lendingnr, sem talaði við Robert
Fischer á Loftleiðahótelinu og
reynili að telja hnnum hughvarf,
fá hann til þess að setjast við
skákborðið og tefla \ið Boris
Spassky. Friðrik fór til hótelsins
eftir að Cramer, einn af vara-
forsetum Skáksambands Banda-
ríkjanna, hafði iátið í Jjós ósk
nm að hann kæmi. Þá hafði séra
Lombardy reynt án afláts, að
telja stórmeistarann á að mæta
til leiks. Friðrik Ólafsson sagði í
viðtali við Morgunblaðið:
— Ég fór á Loftleiðahótelið
þeg-ar klukkan var 20 mínútur
Framhald á bls. 21
gerða ríkisstjórnarinnar, segir
m.a., að ráðstafanir þær, sem nú
hafa verið gerðar, séu aðeins til
hráðabirgða og því ekki lausn á
efnahagsvanda þeim, sem að
steðjar. Ennfremur er vakin at-
hygli á þvi, að hugmyndir nú-
verandi ríkisstjórnar voru ekki
sýndar B.S.R.B. eins og öðrum
stéttarsamtökum.
Ályktun stjórnar B.S.R.B. fer
hér á eftir í heild:
„Stjóm B.S.R.B. vekur enn at-
hyglá á nauðsyn þess, að stjóm-
völd hafi samráð og samvinnu
við heildarsamtök launþega, þeg-
ar leitað er úrlausnar í vanda-
málum á sviði efnaihagslífs. Hug-
myndir um núverajndi ráðstafan-
ir voru ekki sýndar B.S.R.B.
eins og öðrum stéttarsamtökum.
Bandalagið ítrekar margendur-
tekin mótmæli við þvi, að kaup-
gjaldssamningum aðila á vinnu-
markaðinum sé breytt með lög-
um í stað samninga.
Framhald á bls. 21
é