Morgunblaðið - 30.07.1972, Qupperneq 32
'% SKÁK
Askriftarsímar:
15899 — 15543.
EINVIGISBLAÐIÐ
KEML’R ÚT MORGUNINN
EFTIR HVERJA SKAK.
Pósthólf 1179.
IE5IO
DRCIECII
SUNNUDAGUB 30. JULÍ 1972
BANASLYS
í KJÓS
Kona lézt er tvær bifreiðar
rákust harkalega á
F.IÖRUTÍU og sjö ára gömul
kona lézt og fimm slösuðust í
hörðum árekstri, sem varð
skammt innan við Eyri í Kjós
laust fyrir kiukkan 9 í gíermorg-
un.
Áreksturinn varð norðan lítill
ar beygju á hæð rétt norðan við
afleggjarann að Eyri. Buick-bif-
reiðin sem í voru hjón, var að
koma að norðan, en Saab-bif-
reiðin, sem í voru hjón og tvær
dætur þeirra, 4ra og 14 ára, var
á norðurleið. Bifreiðarnar skullu
mjög harkalega saman og mun
konan, sem var farþegi í fram-
sæti Saab-bifreiðarinnar hafa lát
izt samstundis. Maður hennar,
sem ók bifreiðinni, slasaðist mik
ið og var meðvitundar'aus í gær.
Telpurnar, sem voru í aftursæt-
inu slösuðust einnig, en þó ekki
lífshættulega að því er talið var
í gær. Hjónin í Buiek-bifreiðinni
slösuðust hins vegar litið.
Samkvæmt upplýsingum rann
sóknarlögreglunnar í Hafnarfirði,
sem fór á staðinn, segir ökumað-
ur Buick-bifreiðarinnar að Saab
bifreiðin hafi skyndilega sveigt
út á vinstri vegarhelming og í
veg fyrir hann og varð ekki kom
izt hjá árekstri. Bremsuför eru
eftir báðar bifreiðarnar, en veg-
urinn var mjög blautur og háll.
Ökumaður Buick-bifreiðarinnar
telur að hann hafi verið á 70-80
kílómetra hraða og er talið að
Saab-bifreiðinni hafi verið ekið á
svipuðum hraða. Báðar bifreið-
arnar skemmdust mikið og er
Saabinn talinn gjörónýtur.
Hjónin í Buick-bifreiðinni voru
bæði með öryggisbelti er árekst-
urinn varð, en ekki er að sögn
lögreglunnar alveg ljóst hvort
hjónin i Saab-bifreiðinni voru
með öryggisbeltin spennt, en
öryggisbelti voru í bílnum.
Ekki er hægt að birta nafn
konunnar að svo stöddu þarsem
ekki var víst að búið yrði að ná í
alla aðstandendur í gærkvöldi,
þegar blaðið kom til fyrstu kaup-
endanna.
Mynd þessi var tekin á slysstaðnum í gær morgnn.
Bygging þjóðarhókhlööu;
Fox Og frú
á flugi
ÞAÐ hefur ýmislegt dunið
yfir Chester Fox handhafa
kvikmyndaréttarins að heims-
meistaraeinvíginu, síðan hann
kom hingað til Íamds. Fox hef-
ur hins vegar lengst af haldið
gleði sinni og tekið öllu af
miklu æðruleysi. Nú kann
hins vegar að vera að hann
sé búinn að fá nóg. Fox og
kona hans eru nefnilega farin
að læra að fljúga hjá Flug-
sköla Helga Jónssonar og var
fyrsta kennslustundin í gær-
morgun. Segja sumir að Fox
og frú ætli að fljúga burt frá
rinigulreiðinni og öllu saman.
Undirbúningur í fullum gangi
Arkitektarnir Manfreð og
f»orvaldur teikna húsið
ARKITEKTARNIR Manfreð
Vilhjálmsson og Þorvaldur Þor-
valdsson hafa tekið að sér að
teikna Þjóðarbókhlöðuna, sem
sameina á Uandsbókasafn og Há
skólabókasafn. Eru þeir að vinna
að undirbúningi eða forsögn fyr-
ir bygginguna. En miðað er við
að ljúka undirbúningsvinnu á
tveimur árum, þannig að vitað
verði árið 1974 hvernig húsið á
að líta út og hvað byggingin kost
ar eftir því sem hægt er að
áætla slíkt, og að þá megi hef j-
ast handa um framkvæmdir,
sögðu þeir Manfreð og Þorvald-
ur, er Mbl. hafði samband við þá
í gaer.
Arkitektarnír tóku fram, að
verkið væri á byrjunarstigi. Þ>eir
hefðu verið að vinna með bóka
safnsmönnum að nánari gagna-
söfnun og úrvinnslu á þessum
gögnum, til að ganga frá end-
anlegri forsögn, sem síðan er
hægt að byggja tillöguteikningar
og áframhaldandi vinnu á. Áður
lágu fyrir drög að forsögn, sem
bókasafnsmenn á Landsbóka-
safni og Háskólabókasafni höfðu
gert, þar sem þeir reyna að gera
grein fyrir þeim þörfum, sem
þeir telja að svona safn þurfi
að fullnægja.
Gert er ráð fyrir staðsetningu
Þjóðarbókhiöðunnar við Birki-
mel. Óg eins og þarfir sýnast í
dag, virðist byggingin þurfa að
vera 10 þúsund fermetrar að
Framhald á bls. 20.
Aðaldalur:
Mokveiði 1 Laxá
1600 laxar, 15 punda meðalvigt
ÓHEM4U veiðí hefur verið í
Laxá í Aðaldal í sumar, og
eru nú komnir á land um 1600
laxar úr ánni, sem er meira
Miklar flsklræktar áætlanir á NA-landi:
100 þúsund seiða laxeldis-
stöð 1 smíðum á Laxamýri
UM þessar mundir standa yfir
framkvæmdir við fyrsta á-
fanga stórrar laxeldisstöðvar
að Laxamýri í S-Þingeyjar-
sýslu, sem á að framleiða 100
þúsund gönguseiði árlega er
hún verður fullbyggð. Það eru
Laxamýrarbændur, þeir Björn
og Vigfús Jónssynir, Kristján
Benediktsson bóndi á Hólma-
vaði, Kristján Óskarsson á
Húsavik og .lóhannes Krist-
jánsson á Akureyri, sem
standa að þessum fram-
kvæmdum, en gert er ráð
fyrir að veiðifélögin í sýslunni
fái síðar aðild að stöðinni.
í samtali við Morguublaðið
sögðu þeir Laxamýrarbræður
að hlutverk þessarar stöðvar
yrði að mæta seiðaþörf
stórMldra fiskiræktarfram-
kvæmda, sem á döfinni eru
á N-Austurlandi. Ber þar
fyrst að telja ræktun Lax-
ár í Laxárdal, er laxastigi
hefur verið byggður hjá Lax-
árvirkjun, raektun Skjálfanda-
fljóts svo og auðvitað áfram-
haldandi ræktun Laxár í Aðal-
dal.
Vigfús og Björn sögðu að
áhugi fyrir laxarækt í Laxár-
dal væri geysimikill og að
bændur þar efra hefðu þegar
lagt í mikinn kostnað vegna
væntaniegrar rækfcunar, þó að
ekki væri enn vitað hvenær
laxastigi yrði byggður. Tal-
ið er að Laxá ofan virkjunar
þoli 200 þúsund gönguseiði og
sikv. þvi ættu 10—20 þúsund
laxar að ganga þangað upp
Framhald á bls. 20.
Teikningin sýnir framhlið Laxamýrarsfcöðvarinnar, eins og
hún á að verða fullgerð.
magn en nokkru sinni liefur
verið um þetta leyti árs. 1
fyrra veiddust alls um 2000
laxar úr ánni og var það met-
ár. Má því búast við að enn
bætist við metið í ár, þar sem
veiðitíminn er rétt n. þ. b.
hálfnaður.
„Kunnugir eru allir sam-
mála um að þeir hafi aldrei
séð svo mikinn fisik i ánni“
sagði Hermóður í Árnesi í við
tali við Mbl. í gær. „Auk þess
sem fisikurinn er nú með
vænsta móti, en meðalvigtin
er eitthvað um 15 pund.“
Hermóður sagði, að á veiði
svæðinu hjá sér væru komnir
á land um 300 laxar, og áætl
aði hann, að á svæðunum fyr-
ir ofan væru komnir á land
ekki færri en 250 laxar. —
Þymgsti laxinn sagði hann að
hefði vegið 25 pund, en fjöl-
margir hefðu fengizt yfir 20
pund.
Gat Hermóður þess, að Jack
Framhald á bls. 2.
ABC-menn
kvaddir heim
Litlar líkur á að myndað verði í dag
AMERICAN Broadcasting Comp
any tilkynnti á föstudag að allt
lið þess á íslandi yrði kallað
lieim til New Vork, að því er seg
ir í fréttaskeyti frá AP í New
York. Ástæðan eru mótmæli á-
skorandans, Bobby Fisehers og
sendi Rocne Arledge, yfirmað-
ur íþróttadeildar ABC, símskeyti
til Fischers þar sem hann sagði
honum frá þessari ákvörðun.
„Breytist ástandið miimirn við
að senda kvikmyndamenn okkar
aftur til Islands,'* sagði Arledge.
Það voru um fimm Bandaríkja-
menn, sem hér voru á vegum
ABC, og tveir síðustu, yfirmenn-
irnir Lorne Hasson og
Chet Forte, fóru af iand-
inu á föstudag. Hins vegar eru
það að mestum hluta Islend-
ingar sem annast kvikmyndun-
ina sjálfa, og taldi Guðmundur
Þórarinsson í samtali við Mbl.
í gær að fjarvera Bandarikja-
mannanna ætti ekki að þurfa að
hindra kvikmyndun ef samkomu
lag næðist við Bobby Fischer.
Guðmundur ætlaði að reyna að
komast i beint samband við
Fischer eftir að sól settist, en þá
Framhald á bls. 2.