Morgunblaðið - 07.09.1972, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.09.1972, Blaðsíða 12
•H ri l»A,nr«TT'KmT a tntt\ rtrtr»frnTm » r»rm rr nrrrvm-w rr»rm -« 77/ sölu 9 tonna bátur. Mikið af veiðarfærum fylgir. BÍLA- OG VÉLASALAN, Akureyri, sími 11909. ONSKOLI SIGURSVEINS D. KRISTINSSONAR INNRITUN og greiðsla námsgjalda fyrir haustönn 1972 fer fram í húsi skólans, Hellusundi 7, jarðhæð, fimmtudag- inn 7. og föstudaginn 8. sept. kl. 17 til 20 alla dagana. Þeir nemendur, sem innrituðust sl. vor, eru sérstak- lega beðnir að mæta sem fyrst til þess að staðfesta umsóknir sínar, þar sem búast má við að skólinn verði brátt fullskipaður fyrir þessa önn. SKÓLASTJÓRI. I yðar pjönustu alladaga OPIÐT alla laugardaga ! SAUÐÁRKRÓKI 29. ágúst. — í»ann 19. ágúst sl. afhent! Guð- rún Sveinsdóttir frá Bjarna- staðahlið formanni Krabba- meinsféiags Skagafjarðar og Hjarta- og æðaverndar Skaga- fjarðar gjafabréf. í því bréfi var kveðið á um stofnun sjóðs til styrktar starfsemi þessara fé- Iaga í Skagafirði. Stofnframlag Guðrúnar var 3 milljónir króna. Guðrúnu var þö'kkuð rausn og stórhugur rrteð stofnun þessa sjóðs í kafisaansiæti er stjómir þessara félaga héldu henini þann dag. Ólafur Sveinsson, sjúkraliúslæk nir, tekur á móti gjafabréfinu úr hendi Guðrúnar. 3ja milljóna króna gjöf til Krabbameinsfélags Skagafjarðar og Hjarta- og æðaverndar Skagaf jarðar Ræðumenn voru: Ólafur Sveinsson, form. félaganna, Jó- hann Salberg Guðmundsson, sýslumaður, Halldór Jónsson forseti bæjarstjórnar Sauðár- króks, Óskar Magnússon Rrekku og Helga Krlstjánsdóttir Silfra- stöðum. Guðrún Sveinsdóttir er fædd að Bjarnasitaðahliið, Vesturdal þann 30. maí 1890. Foreldrar hennar voru: Þorbjörg Ingibjörg Guðmundsdóttir frá Litlu-Hlíð og Sveinn Guðmundsson úr Svartárdai. Guðrún ólst upp í Bjarnastaðahlíð. Hún var yngst af 15 systkinum. Tvær systur eru á lífi. Hún fór í Kvennaskól- ann í Reykjavík 1905 og var í honum í tvo vetur. Hún fór sið- an í Kennaraskólamn og lauk kennaraprófi 1908. Kennslu hóf Guðrún sama ár að Stóra-Hrauni í Árnessýslu og kemndi þar i eitt ár, en sneri síðan heim á æsku- stöðvar og kenndi í Lýtingsstaða- hreppi í 19 ár. Hún stundaði kennslustörf í Skagafirði allt til ársins 1962, er hún varð að hætta vegna sjóradepru. Sein- ustu árin hefir Guðrún verið í sjúkrahúsi Skagfirðinga Sauðár- króki. Guðrún hefir sýnt þeirri stofn- un mikla ræktarsemi. Gaf til hennar peninga er hún var í smíðum. Kirkjunni í Goðdal og á Sauðárkróki hefir hún gefið messuklæði. Guðrún hafði mik- inn áhuga á skógrækt og vann að stofnun skógræktarstöðvar í VarmahMð. Einnig gróðursetti hún á mörgum stöðum í Skaga- firði. Þess má geta, að ofangreinda fjármuni og annað, sem hún hefur gefið, hefur Guðrún kennslukona sparað saman af vinnuilaunum sínum með sérstok- um dugnaði og ráðdeild. — jón. Fegurðar- samkeppn- in komin á kreik FEGUBÐARSAMKEPRMN fyr- ir árið 1973 er nú farin af siað, og verður byrjað á því að kjósa fegurða rdrottningar í ölliiin sýsl urn landsins. Um síðustu helgi voru kosnar ungfrú ísafjarðar- sýsla, ungfrú Barðastrandar- sýsla og ungfrú Strandasýsla. Þær breytingar hata ábt sér stað á rekstri fegurðarsamkeppn innar, að hjónin Sigríður Gunn- arsdóttir og Jóhann M. Jónasson, sem undanfarin ár hafa haflt framkvæmd keppninnar með höndum, hafa nú liátið af störf- um, en við hafa tekið tveir ung- ir menn, Hjörtur Blöndal og Ein ar D. Einarsson úr Reykjavík. Eins og áður hefur tíðka/jt. verða haldnir dansleikir jafn hliða keppnuinum, og sér hljóm- sveitin Opus um flutning hljóm listar fyrir umga sem aldna. Námskeið í vélritun Ný námskeið í vélritun eru að hefjast. Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar. Engin heimavinna. Uppl. og innritun í síma 21719 og 41311 frá klukkan 10—2 og 6—10. Þórunn H. Felixdóttir, Grandagarði 7. Vélritunarskólinn Eigendaskipti Hér með tilkynnist, að ég undirritaður, Óli Páll Kristjánsson, ljósmyndari, hef selt Ásgrími Ágústs- syni, ljósmyndara, myndastofu mína að Laugavegi 28, Reykjavík, og tók hann við rekstri hennar 1. september 1972. Ég þakka viðskiptavinum mínum fyrir ánægjuleg viðskipti á liðnum árum og vonast til að þeir láti hinn nýja eiganda njóta viðskipta sinna áfram. Reykjavík, 6. sept. 1972, Óli Páll Kristjánsson. Eins og að ofan greinir hef ég undirritaður, Ásgrím- ur Ágústssont ljósmyndari, Laugarnesvegi 110, Reykjavík, keypt ljósrnyndastofu Óla Páls að Lauga- vegi 28, Reykjavík, og mun ég reka hana undir nafn- inu „LJÓSOP“. Filmusafn Ljósmyndastofu Óla Páls verður áfram í stofu minni og vonast ég til þess að fá að njóta áfram viðskipta eldri viðskiptavina sem nýrra. D.u.s. Ásgrímur Ágústsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.