Alþýðublaðið - 30.07.1958, Side 5

Alþýðublaðið - 30.07.1958, Side 5
5' Miðvikudagur 30. júlí 1958 A I þ ý 3 u b 1 a 3 i 9 !/£TTVAAfGUft SKEMMDARÆÐI og skríl- mennska kom áþreifanlega í Ijós á hestamannamótinu á Þing völlum um fyrri helgi. — Skríll ínn gat ekki beðið eftir verzl- unarmannahelginni en þá slepp ir hann sér venju,lega lausum. Menn komu næstum þvi hvaðan æva af Iandinu á þetta hesfa- mannamót. Það var mikið starf að undirbúa það og nauðsynlegt að fá tekjur af aðgangseyri til þess að standast kostnaðinn, enda kostaði aðgöngumiðinn 50 krónur fyrir manninn. EN TIL ÞESS að aúka íckj- urnar var auglýstur dansleikur. Þá var eins og við manninn mælt. Lausingjalýður flykktist á Þingvöll í bifreiðum og vit- anlega var Bakkus meö í för- inni. Upp frá því var varla líft á Þingvöllum ' fýrir ólátum, drykkjuskap og skemmdarverk nm. NAUÐSYNLEGT hafði verið að leiða drykkjarvatn har.da mönnum og hestum á mótssvæð ið. Þetta var erfitt viðfangsefni og var það /íeyst með þeim íiætti að leiða vatnið í plast- slöngum. Allt gekk þetta vel fyrri daginn, en síðari" daginn stungu skemmdarvargar göt á slöngurnar og skáru þær jafnvel sundur á miðri leið til þess að íá sér að drekka eða til að blanda. Þeir gátu ekki ómakað sig þangað sem vatnsbólið var til þess að fá þar afgreiðslu. ÞETTA ER aðeins eitt dæm- ið um óskiljanlega skríl- mennsku. Ég sé að Skúli Páls- son á Laxalóni í Mosfellssveit Skrílslæti á hestamanna- móti. Skornar sundur og stungn ar vatnsslöngur á móts- staðnum. Næturhrafnar synda í fiskitjörnum. Skyldur sérleyfishafa. Réttindi farþega. kvartar undan ágangi og skemmdarverkum á fiskiræktar tjörnunum þar. Menn vaða jafn vel og synda í tjörnunum um miðjar nætur. Hér er um að ræða unglinga, sem hvorkj skeyta um skömm né heiður. i Það er útilokað að hér geti full- f orðnir menn verið að verki. SÉRLEYFISHAFAR hafa skyldum að gegna við farþega sína. Upphaflega vildj mjög á það bresta að þeir gerðu sér þetta ljóst, en síðan fór þetta að lagast. Hins vegar virðist enn skorta nokkuð á að þetta sé orð ið eins og það á að vera og ber sérstaklega á því að þeir, sem hafa sérleyfi á stuttum og fá- förnum leiðum, vilji fara sínu fram án tillits til viðskipta- mannanna og þeirra skyldna, sem sérleyfinu fylgja. UM ÞETTA fékk ég bréf i fyrradag frá S. J. Hún segir: „Fyrra þriðj.udag. pa,ntaði ég sæti fyrir mig og 'tvö börn að Kanastöðum í Austur-Landeyj- um. Við komhm að Hvölsvelli kl. 1.30 og þar urðum við að hírna lengi meðan verið var að losa bílinn og hlaða hann aftur. Ef til vill er ekkert við þvi að segja þar sem sérleyfishafinn tekur líka' vörúflutni'nga. En langan tíma tók þetta og allt of langan tíma að mínu viti. Við komumst ekkj af stað aftur fyrr en klukkuna vantaði kortér í sex. VIÐ HÉLDUM að nú myndi ferðin fara að'taka enda fyrir okkur, en það var ekkj svo gott, því að bílstjórinn ók að Voðmúlastöðúm og kvaðst ekki fara lengra. Ég benti honum á að þegar ég hefði keypt miðana fyrir mig og börnin, þá hefði ég sagzt ætla að kaupa far að Kanastöðum, en hann kvað sig ekkí varða neitt um það, hann væri ekkj skyldugur að fara lengra, Samkvæmt auglýsing- um og áætlunum hefur þessi bifreið fastar ferðir á þriðju- dögum Og fimmtudögum. NÚ SPYR ÉG: Er' þetta í samræmi við reglur þær,- sem þessi sérleyfishafi á að fara eftir? Og ef svo er ekki þá vona ég að nefndin, sem stjórn- ar sérleyfunum, veitir þau og hefur eftirlit með þeim, athugi það hvernig þessi maður og hans líkar uppfylla skyldur sínar.“ Hannes á horninu. Fiugfélag j Framhald af 8. síðu. ar félagsins voru alls á árinu 81,413, og er það 14,6% aukn- íng miðað við árið áður. Vöruflutningar námu alls 1, 714 léstum, aukning 17,5% og póstflutningar 195,8 lestir, 3,5 % aukning. Alls voru flugvél- 'ar félagsins á lofti í 9,031 klst. Starfsfólk félagsins var til Jafnaðar 220 manns. ! Sem fyrr er sagt, lagðj félag- jð allmikla áherzlu á kynning- arstarfsemi erlendis og á bætta aðstöðu þar. Rúislandsför Framhald af 4. síðu. þyggja 1 millj. fermetra og svo álíka mikið á hverju ár; þar éftir. Borgarstjórinn var kát- ur og viðkunnanlegur maður, stór og eftir því feitlagmn. Engin slys urðu á farþegum j eða flugáhöfnum Flugfélags ís- j lands á árinu, en eiri flUgvél laskaðists nokkuð er hún lenti út af flugbraut á Reykjavíkur- flugvelli í hálku og snjó. HALLINN 8,5 MILLJÓNIR — FYRNINGAR 8 MILLJÓNIR. Brúttótekjur félagsins námu á áið 1957 kr. 46,739,288,55, en heildsjrreksturskostnaður nam 55,261,662,35. Halli á rekstrinum nam því kr. 8,522,373,80 að meðtöldum fyrningum eigna að upphæð 8,052,182,82. Rekstur millilanda flugs varð að því leyti hagstæð ari en innanlandsflugsins, að hagnaður nara um kr. 1,550, 000.00 áður en fyrningar kr. 6,990,000.00 eru teknar . til ^ greina. Hallínn á rekstri inn- ^ anlandsflugsins varð hinsvegar kr. 2,020,000,00 umfram fyrn- ngar eigna, sem, námu kr. 1, 061,601,00. I Þess skal getið, að fargjöld héldust óbreýtt allt árið. — I millilandafluginu hafa far- gjöld tvisvár lækkað síðan 1952 — en í innanlandsifluginu hækkuðú fargjöld lítilsháttar árið 1955. STJÓRN FLUGFÉLAGS ÍSLANDS. Að lokinni skýrsl-u forstjór- ans fór fram stjórnarkjör og va,r stjórnin öll endurkjörin. Hana skipa: Guðmundur Vil- hjálmsson, Bergur G. Gisla- son, Björn Ólafsson, Jakob Frímannsson Og Ricnard Thors. í varastjórn voru kosnir Jón Árnason og Sigtryggur Kiem- enzson og endurskoðendur Eggert P. Briem og Magnús Andrésson. Umræður urðu nokkrar á fundinum um afkomu og fram tíðarhorfur og voru stjórn fé- lagsins og forstjóra einróma þökkuð vel unnin störf í þágu félagsins. Þær Hvíl ( ii»ré>fyi»» ) Pétur sigraoi í fimmtarþra KR hlaut flesta meistara. í FYRRAKVÖLD var keppt! kring-lukástinu. énda þaúl- í fjórum greinum, þ. e. 4x100 reyndur fjölþrautarmaður. og m. og 4x400 boðhlaupi, 5000 m. hlaupi og fimmtarþraut. Árrnann sigraði með yfirburð- um í styttra boðhlaupinu, en í því lengra var keppnin' afar- hörð.milli Ármanns og KR. en lauk þó með óruggum sigfi Ármenninga. Ármann vann báða bikarana, sem um var képpt ti] fullrar eignar. 5000. m. hlaupið var ekki eins skemmtilegt og við var búizt fyrirfram, methafinn Kristján Jóhannsson hafði forystuna nærri allt hlaupið. Kristleifur og Haukur fylgdu fast á eftir, en þegar 300 m. voru í mark tók Kristle'ifur harðan endasprett, sem Kristj. án réði ekki við. Tíminn var sæmilegur. Keppnin milli Péturs Rögn- valdssonar og Björgvins Hólm í fimmtarþraut var mjög skemmtileg. Pétur tók forust- una' eftir fyrstu grein, lang- stökkið, en þar stökk hann 6,71, en Björgvin 6,59 m., sem er hans bezti árangur í grein- in'ni. Næsta grein var spjótkast og þar náði Björgvin 16 stiga forystu, hann kastaði 58,36, en Pétur 55,98 m. 200 m. hlaug var næsta grein og þar hlupu Björgvin og Pétur hlið við hlið alla beinu brautina og fengu sama tíma 23,6 sek., en Bjög- vin var sjónarmun á undan. Nú var komið aðkringlukastinu og þar var Björgvin fremur ó- heppinn, því að hann gerði fyrsta kast sitt, sem mun hafa verið 38 til 39 m. ógilt. Hin tvö voru léleg eða lengst 32,27 m. Pétur var mjög öruggur í kastaði 39,81 m. Áður en síðasta grein hófst, sem er 1500 m., var sýnt ao Pétur myndi sigra og jafnvel Kristleifur Guðbjörnsson hafa möguleika á að bæta meí sitt. Þrátt fyrir góðar tilaunir tókst það ekki. Björgvin sigr- aði.j 1500 m. hlaupinu á 4:47,2, en Pétur hljóp á 4:48,9 mín. Pétur sigraði því í fimmtar- þrautinni og varð íslands- meistari 1958. hlaut 2981 stig; annar varð Björgvin Hólm meo 2807 stig, * sem er hans bezti árangur í greininni. KR hefur hlotið flesta fs- landsmeistara í ár eða 13, em ÍR og Ármann 5 hvort. Ennþá- er eftir að keppa í 10 km. hlaupi mótsins. Fyrsfa drengjameistaramóf Reykjavíkur STJÓRN FÍRR hefur tekið ákvörðun um, að haldið skuli Drengjameistaramót Reykjavík ur dagana 31. júlí og 1. ág. n. k. Þetta er í fyrsta sinn, sem slíkt mót er haldið fyrir um- dæmi FÍRR. Tilgangurinn er fyrst og femst sá.. að örva efni- lega og þróttmikla drengi til þátttöku í hinufn hollu frjáls- íþróttum. Verður reglugerðinni fyrir mótið hagað þannig, að sem mest þátttaka fáist. Þátt- taka er heimil öllum drengjum, sem verða 18 ára á árinu 1958 eða eru yngri. Keppnisgreinar verða öll venjuleg hlaup frá 100 m. til 1500 m. og 110 og 200 m. grmdahlaup, köstin öll og stökkin. Sigurvegari í hverri grein hlýtur sæmdarheitið „Drengja meistari Reykjavíkur“ í þeirri grein, sem hann sigrar í. Fyrstu verðlaun verða meistarapen- ingur FÍRR, 2.—6. maður hlýt. ur að launum verðlaunaspjald, sem á er letrað afrek hans og í keppninni. Hver keppandi má aðeins taka þátt í þremur keppnisgreinum sama dag auk boðhlaups. Reikna skal stig af 6 fyrstu mörinum í hverri grein, og hlýtur það félag, sem flest stig vinnur, að launum griþ þann, sem gefimn hefur verið til kepphinnar af ráðinu. Þá er fyrirhugað, að képpni' fari fram um meistaratitilinn. í 10 km. hlaupi Meistaramóts Reykj.avíkur, en í því hlaupi vetður keppt um forláta grip,. tákr.rænan fvrir 10 þús. m. hlaúpið, sem er langhlaupari á hlaupi, greyptur í dökka marmarablötu. sem fest er á fótplötu úr svörtum marniara. Gripurinn er gefinn af hinum kunna íþrótfam'anni, Konráði Gísl'asýni, sem nú rekur hina þekktu sportvöruverzlun ,,Hell as,“ Laugavegi 26, þar sem. allar nauðsynjar til íþróttaiðk- ana eru til sölu. Hann var um lángt skeið útgefandi og á- tayrgðarmaður íþróttablaðsins, og er því öllum íþróttaunnend- um að góðu kunnur. Verð- laun verður að vinna 3 ár í röð eða 5 sinum alls til að fá. hann til fullrar eignar. Stjórn FÍRR vi] nota þetta tækifæri til að þakka af heilum hug þann frábæra höfðings- skap, sem Konráð hefur sýní. málefnum íþróttanna, og þann skilning, sem þar kemur fram gagnvart hugsjónum þeirra, og telur, að það sé mjög til fyrir- myndar. Hún væntir þess og.. að árangurinn komi fram í mikilli' þátttöku í þeim í- þróttagreinum, sem keppt verð úr L og þar verði mörg afrek unnín.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.