Alþýðublaðið - 03.08.1958, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 03.08.1958, Blaðsíða 3
Sunnudagur 3. ágúst 1958 7tfi»ý8at)ia3ið Alþýöublaöiö Útgeíandi: Ritstjóri: Fréttastjóri: Auglýsingastjóri: Ritst j órnarsímar: Auglýsimgasími: Afgreiðslusími: Aðsetur: Alþýðuflokkurinn. Helgi Sæmundsson. Sigvaldi Hjálmarsson. Emilía Samúelsdóttir. 14901 og 14902. 1 4 9 0 6 1 4 9 0 0 AlþýðuhúsiS Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfisgötu 8—10. Sameinuðu þjóðinmr MIKIÐ hefur verið rætt og ritað um Sameinuðu þjóð- irnar eftir að þær komu. til sögunnar. Öllum ber saman um, að tilgangur þessara alþjóðasamtaka sé góður. Hins vegar finnst mörgum, að árangur þeirra hafi e'kki orðið sá, semjjvonir stóðu til. En í því efni er raunverulega ekki við Sameinuðu þjóðirnar að sakast heldur þau þátttökuríki, sem gleyma hugsjónum þeirra. Það aðalatriði ber mönnum vissulega að hafa í huga, þegar rætt er og ritað um Sam- einuðu þjóðirnar. Hér er á þetta minnzt í tilefni af athyglisverðu samtali, sem Morgunblaðið birti í gær við Thor Tihors sendiherra um Sameinuðu þjóðirnar og starfsemji þeirra, en Thor mun öllum íslendingum kunnugri þeim máium. Hann tek- ur einarðlega td orða og segir til dæmis: „Það er mikil tízka, einkuml hjá þeim, sem ekkj nenna að hugsa, að gagnrýna Sameinuðu þjóðirnar og telja þær þýðingarlitlar. En hugsum okkur, að slík stofnun værj ekki til. Ég held, að það hlyti að vera aðalhugsjónamál allra stjórnmálamanna og alveg sérstaklega alls almennings, fólksins sem vill frið og samvinnu þjóðanna, að slikri stofn un yrði komið upp. Það hefur líka lengi verið cLraumsýn .góðra manna, ekki sízt á styrjaldartímum/, að til væri vett- vangur, þar sem fulltrúar allra þjóða hittust. En við skulum minnast þess, að Sameinuðu þjóðirnar verða aldrei annað en það, sem aðildarríkin vilja gera þau.“ Hér er einmitt vikið að mfeginatriðunum. Og þess ber að minnast, að deilurnar innan vébanda Sameinuðu þjóð- anna þykja mestum tíðindum sæta hverju sinni. Þær kom- ast í útvarpsfréttirnar og á forsíður heimsblaðanna. Friður- inn og samkomulagið vekur minni athygli nema deilum sé til lykta ráðið. Margt af starfsemi Sameinuðu þjóðanna kemst því ekki á dagskrá líðandi stundar. Og enn er ótalið, að ýmsar stofnanir Sameinuðu þjóðanna starfa í kyrrþey, en áorka miklu mþnnkyninu til farsældar og blessunar. Árangur þeirrar starfsemj er fagurt ævintýri. Þannig hefur fátækt, sjúkdómum og margs konar öðru böli verið sagt stríð á hendur. En þar er ekki barizt með þeim vopnum, sem mannkyninu stendur ótti af, heldur hinum, er vekja fögnuð og gleði. Þetta stríð er samhjálp og þróun og verður aldrei efni í æsifréttir. En árangurinn segir til sín, og hann er vafalaust fegursti veruleikinn á hugsjónum, Sami'einuðu þjóðanna. , , i ^ j,; Tímabœr minnisatriði ÞJÓÐVILJINN ræðir í forustugrein sinni í gær um nauð syn algerrar einingar í landhelgismálinu. Siíkt er hverju orði sannara. En kommúnistablaðið þyrfti að kenna sjálfu sér þá dyggð, sem það ætlast réttilega til af öðrum. íslendingum er mikil þörf á því að greina aðalatriði frá aukaatriðum, þegar stórmál eru á dags'krá. Og þeim er einn ig hollt að átta sig á nauðsyn þess að koma virðulega fram út á við, en það gera þeir bezt m^ð því að berjast ekki að óþörfu á heimavígstöðvunum. Landhelgismálið er til dæm- is annað og meira en samkomulagsatriði stjórnmálamanna, Það er lífsnauðsyn þjóðarinnar. Og þann sannleik eiga blöð- in að innsigla með virðulegum n^álflutningi. Allt þetta ætti að vera Þjóðviljanum tímabær minnis- atriði, ef honum er alvara að vilja þjóðareiningu um l'ánd- helgism'áhð. , • S fæst á flestum blaðsölustöðum í Reykja- vík og nágrenni bæjarins. Kaupið Alþýðuhlaðið ( Ufan úr* helmi ) ÚRSLIT ítölsku og finnsku kosninganna hafa komið mörg um á þá skoðun, að kommún- istar séu í hraðri framsókn hvarvetna í Evrópu, og séu meira að segja víðast hvar orðnir sterkari og fjölmennari en þeir hafi nokkru sinni ver- ið. Það er því ekki úr vegi að athuga nánar atkvæðatölur kommúnista í hinum ýmsu löndurn Evrópu eftir styrjöld- ina. Af hinum 17 kommúnistisku flokkum í Evrópu starfa fjór- ir „neðanjarðar11, — eða sá vesturþýzki, gríski, spænski og portúgalski. Síðast þegar vest- ur-þýzki kommúnistaflokkur- inn tók opinberlega þátt í kosningum, eða 1953, hlaut hann aðeins 2,5 prósent greiddra atkvæða, en 5,6 við kosningarnar 1949. í Belgíu hlaut kommúnista- flokkurinn 300 000 atkvæði og tæp 400 000 árið 1949. Síðan hefur fylgi flokksins sífellt hrakað. í ár hlutu kommúnist- ar aðeins 100 þús. atkvæði eða 1,9 prósent greiddra at- kvæða. og eiga nú aðeins tvo þingfulltrúa, en 23 árið 1946. í Danmörku hefur kommún- istum sífellt hrakað og' eins hefur það gengið í Noregi. Flokkurinn var sterkastur árið 1945, þegar hann hlaut millj- ónarfjórðung atkvæða eða 12,4 próseht. Við kosningarn- ar 1957 hlaut hann aðeins 72 þúsund eða 3,1 prósent at- kvæða. í Finnlandi náðu kommún- istar 24,3 prósent atkvæða við kosningarnar 1945. í kosning- unum 1948, 1951 og 1954 hlutu þeir milli 20 og 22 prósent. En í kosningunum í sumar juku þeir fylgi sitt upp x 23'—24 prósent. í Frakklandi hafa kommún- istar haldið öllu sínu eftir styrjöldina, eða því sem næst. Árið 1945 hlaut flokkurinn 5.5 -milljónir atkvæða, eða 28.5 prósent. í síðustu kosn- ingunum, eða 1956, hlaut flokkurinn álíka mörg atkvæði en að hlutfallstölu þó ekki nema 25,6 prósent. Á Bretlandi gildir einu hvoru megin hryggjar komm- únistaflokkurinn liggur við kosnihgar. Árið 1945 hlaut hann að vísu 100 þús. atkvæði og tvo þingmenn kiörna, -— eða 0,4 prósent. Við síðustu kosningar þar, eða í maí 1945, hlaut flokkurinn aðeins 0,01 greiddra atkvæða. íslenzki kommúnistaflokk- urinn er tiltölulega sterkur, hlaut 19,2 prósent við kosn- ingarnar 1956, eða svipað og árið 1945. Við kosnngarnar í ár hlaut ítalski kommúnistaflokkurjnn 6,7 milljónir atkvæða eða 22,7 prósent, nákvæmlega eins og í kosningunum 1945. En þó hafði fylgi hans mjög hrakað frá því í kosningunum 1948, þegar ítalski kommúnistaflokk urinn hlaut yfir átta milljónir atkvæða, eða 31 prósent. í Luxemburg hlaut komm- únistaflokkurinn 13,5 prósent í kosningunum 1945, en aðeins 8.9 prósent við síðustu kosn- ingarnar. Á Hollandi hefur þetta ver- ið sviþað og í Noregi. Árið 1945 fengu kommúnistar hálfa milljón atkvæða eða 10,6 pró- sent, en síðan hefur fylgi þeirra hrakað. í kosningunum 1956 hlaut flokkurinn aðeins 272,000 atkvæði eða 4,8 prós. í Svíþjóð er þróunin svipuð, — 10,3 prósent atkvæða árið 1944 og 3,4 prósent árið 1958. Yfir 300 þús. greiddu kommúa istum atkvæði 1944, en að* eins 130 þúsund -£ ár. £ Sviss náðu kommúnist.ar. 5,1 prósenti árið 1947, en að-, eins 2.3 prósentum 1955. Kommúnistaflokkurinn i- Austurríki bætti við sig írá' kosningunum 1945—1949, eoa 3,4—5,4 prósentum. Síöf.iin1 hefur flokknum hrakað, í_ kosningunum 1956 hlaut hainn’ aðeins 4,4. nrósent greiddra at-, kvæða. í Noregi hlaut kommúnista<l flokkurinn um 170 þúsuníi atkvæði eða 11,4 prósent ári'ð' 1945, en í fyi'ra aðeins 60 þús. atkvæði eða 3,4 prósent. Það er auðséð, að alls staðar^ þar, sem alþýðuflokkar ei'u' sterkastir, gengur kommúnist- um verst að ná fótfestu, og* hefur fylgi þeirra þar sífeHt* hrakað. í V-Þýzkalandi háfaf kommúnistar ekki getað fcrm' ið fram við kosningar, ea flokkurinn virðist fara mj-ög- minnkandi, vegna áhrifa írá Au.-Þýzkalandi. Sókn finnslm kommúnistanna mun mjög. spretta af sundrungu aÍþýSu-l flokksmanna, en á Frakfclandif og ítah'u eru það hin kröþpu kjör verfcamanna og sundru'ngy lýðræðisflokkanna, sem á meg- in orsökina. •✓•✓•y.y*.^.. s SS SN ss SS \\ SS S S 8 II SS \\ w B í liiitn Garðastræti 6 — Sími 18-8-33 Höfum verið beðnir að úfvega Chevrolet ‘55 model Bel Aie '55 model Gjörið svo vel að. hafa samband við okk- ur sem fyrst. B í 11 i n n Garðastræti 6 — Fyrir ofan skóbúðina — Simi 18-8-33 'iS sc s v; s í s'. y- s V s V- S V SV s s1 Ssr sv W ) V s v. s V’ H S' V H H st K. S. I. Pressu leikur. K. R. Leika á Laugardalsvellinum þr daginn 5. ágúst kl. 8.30 e..h. Dómari: Halldór V. Sigurðsson. Línuverðir: Einar Hjartason. Bjarni Jensson, Komið og sjáið spennandi knattspyrnuleik. Hverjir verða í Ianclsliðinu á móti írum? Verð aðgöngumiða: Stúkusfætrkr." 30. Stæðivfci-. 20. Barnamiðar kr. 5. Nefndin. ,y*.y «•> v • v<^’<y^‘yr<^‘<- s E.S S V <♦ s V y 'f V ,-in v. 5i * IV V I v 4.'

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.