Alþýðublaðið - 06.08.1958, Side 5
Miðvikudagur 6. ágúst 1958,
5
AlþýðublaSíS
Sunnudagur.
. . . ÞAÐ konia sannarlega
margir smá'hlutir, sem við
notum dags daglega, um langa
vegu. Ekki hafði ég tekið eft-
ir því fyrr en í dag, að rak-
vélablöðin mín eru búin til í
Rio de Janeiro! Ég raka mig
alltaf með bláum Gilletteblöð
í d!ag varð mér af tilvilj-
un litið á myndina af Gillette
gamla á einu blaðinu. Fyrir
ofan myndina stóð „Marca
Registrada“ í stað hins venju
íega „Trade Mark“. Þá fór
ég að skoðá þetta: Blöðin gerð
, í Braziiíu. Sennilega keypt
fyrir saltfisk. Hingað til hélt
ég, að þau hlytu að vera ensk
eða amerísk. Svona athugar
maður oft illa það, sem næst
manni er!
Það er víst varla furða, bótt
blöðín séu orðin dýr, fyrst
þau koma um öli þessi regin-
höf. Enda virðist mér, að
hvert blað kosti kr. 1,70. Hvað
skyldi blaðið kosta suður þar?
Og hvað skyidu fást mörg
blöð fyrir einn saltfisk? Svo
eru sumar þjóðir að furða sig
á því, að,við íslendingar skui-
um endilega vilja veiða fisk!
Annars er verzlunarmátinn
oft skrýtinn í henn; veröld,
Einu sinni keyptj ég smá-
minjagrip í höfuðborg Kan-
ada. Ottawa. Gripurinn var
steyptur úr málmi og fagur-
lega. í hann, greypt merki
Kanada. Ég var mjög hrifinn
af hlutnum, þvi hann minnti
mig á skemmtilegt atvik, senx
gerðist í Öttawa. L’öngu
seinna tók ég eftir því, að
xnnan í hlutnum að neðan
stóð með örlitlum stöfum', að
hann væri búinn til í Eng-
landi! Það fannst mér reglu-
legt „plat“.
I
Mánudagui*.
. . . Mjög fáir farþegar
feomu með flugvélinnj frá
L.undúnum í kvöld1, víst ekki
fJeiri en þrettán. Oft hefur
þetta verið svona í sumar, að-
eins fáir farþegar í hinum
stóru vélum. Samt hækka
fargjöld mikið, en flugferðum
er ekki fækkað á umræddri
leið. Þetta virðist vera eitt-
hvað undarlegt. Mannj fynd-
ist eðlilegt, að þegar farþeg-
■ um fækkaði, yrði ferðum
fæfckað til að draga úr kostn-
aði, en hinir fáu: farþegar
ekki látnir greiða hærra
gjald. En kannski eru ein-
hver rök fyrir þessu. Og hver
em ek að hnýsast í bissness!?
Annars skal ég játa það, að
mér líkar ágætlega að ferð-
ast með hinum nýju vélum
Flugfélagsins. Mér finnst öll
þjónusta og afgreiðsla vera
fyrsta flokks. Þess vegna fynd
- íst mér skoilli hart, að félagið
gæti ekki haldið ferðunum
' uppi. En sjaldnar fer ég milþ
landa, þegar fargjaldið er svo
1 hátt sem nú er og mun svo
um fleiri. Hins vegar stæði
1 mér á samaýbótt ég bíði einn
dag eða tvo eftír því, að vélin
fengi fullfermi: ’En sem sagt*
r Mig brestur þélckihgu tíl aö‘
ræða þetta frekar. Óneitan-
lega kemur það samt undar-
lega fyrir sjónir.
Þriðjudagur.
. . . Ég ók suður Hafnar-
fjarðarveg í dag. Umferðm
var í meira lagi. Ég fór þá aS
hugleiða, hve bráðlega þyi'ft!
að gjörbreyta þessum mesta
umferðarvegi landsins. Hann
er bæði mjór og óskipulega
lagður, gömul, endurbætt hest
vagnabraut, með flestum
þeim hlykkjum og krókum,
sem siður var að hafa á veg-
um hér í öndverðu.
Hafa ekki skipulagr.ingar-
meistarar heldur illilega van-
rækt sitt hlutverk í sambandi
við Hafnarfjarðarveg? Hvar
er landrýmj fyrir breiðan, tví
skiptan veg, sem hlýtur að
koma í framtíðinni? Hefur
ekki þegar verið þrengt óeðli
lega að veginum, í báðum
Fossvogsbrekkum, Kópavogs-
brekku og við Silfurtún? Veg
urinn er þegar ofhlaðinn., svo
að hann er naumast sæmi-
lega fær nema tíma og tíma x
senn, álagið virðist vera of
mikið á mjótt slitlagið. —
Þarna hlýtur að koma tviski.pt
ur vegur, tvær einstefnuakst-
ursbrautir, breiðar og vel
byggðar. En þarf þá ekki að
rífa sumt, sem verið er að
byggja? Nú er ekki lengur
hægt að leggja veginn beint
suður í Fossvog, og ekki held-
ur beint yfir Digranesháls í
Kópavog. Þessi krókaleið
verður því sennilega áfram,
mjór krákustígur með óþai’fa
beygjum:, í stað tvíbrauta þjóö
vegar um fjölbyggðustu hér-
uð landsins. Hins vegar mætti
enn taka land undir veginn
beint úr Kópavogsbrú í Silfur
tún, meðan Arnarnesland er
enn óbyggt. En skyldu skipu-
lagsmeistarar hafa hugsun á
því? Ekki er mikið útlit fyrir
það, ef dæmt er eftir fyrir-
hyggjuleysinu hingað til.
Miðvikudagur.
. . . Ég var að Iesa verð-
launasögu Bjarna- Benedikts-
sonar frá Hofteigi í Samvinn-
unni í dag. Að lestri loknum
fór ég að hugsa um, hvernig
sumir ritdómarar myndu
dæma þessa sögu:
„Sagan Undir dómnum er
ósköp tilþrifalítil, þrautleið-
inleg og átakasnauð. Hún
grein;r frá mannvæflu, sem
hrekkur eilítið upp af stand-
inum við það, að konan hans
fæðir andvana son. í stað þess
að taka þessu mannlega og
geta annan son við konu sinni,
hengslast hann niður og fer
að aka méð dauðan drenginn
í vagni út um götur og torg,
auðvitað ímyndaðan dreng.
Endirinn er í samræm; við
annað: Maður og vagn lenda
í sjónum, og þótt maðurinn sé
fiskaður upp, deyr hann ó-
sköp lempilega sínum drottni.
Verður það að teljast heldur
ófrumlegt og billegt. Maður-
. inn er svo h-versdagslegur <og-
nreifenarlaafe faö öllu leyti, að;
mannj finnst jafnvel ótrúlegt,
að hann hafi gerð til að
hrökkva upp af standinum,
enda lítur helzt út fyrir, að
höfundur telji hann fæddan
til að aka með andlvana draum.
( ÍÞróttir )
KR sigraði í Drengjamótinu efíir
geysiharða keppni við IR
DRENGJAMEISTARAMÓTI
Reykjavíkur lauk s. 1. föstu-
dagskvöld og 'var góður árang
ur seinn; daginn eins og þann
fyrri. KR sigraði í stigakeppn-
inni með 161 stigi, eftir geysi-
harða keppni við ÍR, sem hlaut
153 stig. Árnxann hiaut 46
stig.
Margir sömu piltarnir s'gr-
uðu seinni daginn, en keppnin
var skemmtilegust í 800 m. og
Þetta éru hans forlög, og því i ^000 m. boðhlaupinu. S’gmund
þarf ekki átö.k, orsakir né af- Ur Hermundason er mjöa efni-
leiðingar. Höfundur reynir að Ie§nr spjótkastari, en hann er
gefa þéssari væflu örlítinn lit. byrjandi.
með því að láta hann þrástag- ^ heild er ekki hægt að segja
ast á orðum og endurtaka, svo annað, en að þessi nýbreytni
„kútakútur", „labba-1 EERR, að halda mót hafi ver-
1 ið skemmtileg og gagnleg ný-
Úlfar Teitsson. KR,
Steindór Guðjónsson, ÍR,
Þrístökk:
Þorvaldur Jónasson, KR,
Kristján Eyjólfsson, IR,
Gvlfi Gunnarsson, KR,
Þórarlnn Lárusson, KR,
Stangarstökk:
Kristján Eyjólfsson, IR,
Steindór Guðjónsson, ÍR.
Þorval'dur Jónasson, KR,
Jón Sveinsson, ÍR,
1000 m. boðhlaup:
A-sveit KR,
A-sveit ÍR,
Sveit Ármanns.
25.36
21,82
12.80
12,67
11,98
11,58
2,85
2,85
2,75
2,67
sem
kjabbi“ og fleira álíka. Þetta
breytni.
fer svo í höfundinn, að á éin-
um stað segir hann: „Augu
hans urðu djúp og djúp“.
Þessi saga á lítið erindi. Sé Grétar Þorsteinsson, Á,
hofundur að reyna að lýsa eig Úlfar Teitsson, KR,
in sálarástandi í basli með '
andvana fæddan draum, terst
honum það vægast sagt
klaufalega. Og hvað varðar
mann um einstaklinginn í á-
tökum' samfélags og alheims?
Sagan bendir ekki til þess að
höfundur frelsi föðurlandið,
þótt hann kenni sig við Hof-
teig“.
Mikið væri ég ósammála
.svona cLómi. Sagan er ágæt-
lega samin, prýðilega skrifuð
og fallega sögð. Höfundur
kann sjáanlega mjög vel ti’
verka. Hann er vei að sigrin-
um kominn.
URSLIT:
200 m. hlaup:
Magnús Ólafsson, ÍR,
Örn Jóhannsson, KR,
800 m. hlaup:
Gylfi Gunnarsson, KR,
Helgi Hólm, ÍR,
Jón Júlíusson, Á,
23.9
24.2
25.2
26.2
2 08 3
2:09,0
2:25,5
Kristinn Sölvason, KR, 2:28,4
200 m. grindahlaup:
Steindór Guðjónsson, ÍR, 28.4
29,6
29.9
30,1
Úlfar Guðjónsson, ÍR,
Gylfj Gunnarsson, KR,
Kristján Eyjólfsson, ÍR,
Fimmtudagur.
. „ . jÉg Ihittli sérfræðing
minn í heimspólitíkinni, Kalla
á kvistinum í dag. Hann var
heldur viðskotaillur.
„Eisenhower átti ekki að
þvertaka fyrir að fara til
Moskvu“, sagði hann. ,,Hann
átti sko að segjast vilja- fara
hvert á jarðríki, sem væri, en
helzt til Moskvu. ÞaÖ er lát
á Krúsa, sérðu. Haim var far-
inn að hiksta á New York,
kannski hefur hann orðið
sníaykur, þegar á.átt;. að
herða, en þó eru meiri líkindi
til, að hann hafi ætlað sér að
reka fleyg milli vestanvéra,
þegar hann heyrði tóninn íf
Frökkum. Auðvitað átti Eisen
hower þá að láta krók koma
á móti bragði, segjast endi-
lega vilja halda fund í
Moskvu. Þeir kunna ekkert í
áróðrinum, þessir .kárlar
þarna vestra, þeir áttu sko
að ganga á lagið, þegar Krúsi
bilaði.“
Þetta söng nú í Kalla karl-
inum í dag. Það er ekki nema
von, að menn séu .r.uglaðir í
ríminu út af öllu þessu fund-,
arhjali „hinna stóru“. En
Kall; heldur sínu striki, og
hann liggur ekki á meining- j
unni. En hann bíður sjaldan
eftir svari, og ekkj bx*á 'hann
venjunn; í dag.
Föstudagur.
. . . Ekki verður m.eð sanni
sagt, að mikiUar festu gæti í
byggingarmlálunx höfuðborgar
innar. Mér varð þetta ekki
sízt ljóst í dag, þegar ég labb-
að; um hið nýja „Heima“-
hverfi Vestan Langholtsvegar.
Þar ægir alls konar húsum
saman, stórum tvíbýlishúsunj,
Vtambalð á S. sáffo. ..
Spjótkast:
Sigmj. Hermundsson, Á, 48,28
Magnús Ólafsson, ÍR, 44,97
Þórarinn Lárusson, KR, 42,51
Ingvar Sigurbjörnss., Á, 39,29
Sleggjukast:
Þórarinn Lárusson, KR, 44,25
Jóihannes Sæmundss, KR, 37.05
Nor&urlandsmót í
fr}áSsum íþróttum
UM helgina 9, og 10. ágúsx
verður háð á Akureyri hið ár-
lega melstaramót fyrir Ncrður-
land í frjálsum íþróttum.-r
Búizt er við mjög mikilli þátt-
töku að þessu si'nni, Og skal
væntanlegunx þátttakendum á ■
það bent, að tilkynna þátttöku.
sína í æka tíð til réttra aðila.
Keppnin hefst á laugardaginn.
kl. 2 og verður þá keppt í eft-
irtöldum greinum: 100 m. h3.,
1500 m. hl„ 1000 m. boðhl,
þrístökki, kringlukasti og há-
stökki karla og kvenna, og 80
m. hlaupj kvenna. Á sunnudag
hefst keppni fýrir hádegi' í 110
m. grhl. og langstökki karla
og kvenna. Eftir hádegi verðtír
kepþt í 400 m. hl., 3000 m. hi„
4x100 m. boðhlaupi karla Og
kvenna, stangarstökki, spjóí-
kasti, kúluvarpj og kringlukasti
kvenna. — Ungmennasambanti.
Eyjafjarðar sér um mótið. —
Mótstióri verður Ingimar Jóns-
son, Akureyri.
Myndirnar eru frá Drengjameistaramóti Reykjavíkur, senx
sagt er frá hér að ofan. Efst til vinstri sést Jón Ólafsson, sem
sigraði í hástökki, til hægri er Helgi Hólm, sigurvegari í 1500
m. hlaupi og Gylfi Gunnarsson, seni sigraði í 800 m. hlaupí.
Neðri myndirnar eru af Grétari Þorsteinssyni, sem sigraði i
200 m. hlaupi og Úlfari Teitssyni, sem sigraði í langstökki,
100 ra. og kúluvarpi, — og Steindóri Guðjónssyni sigurvegara.
tfifj í báðum grindahlaupunum.