Alþýðublaðið - 02.09.1930, Blaðsíða 4
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
375 milj. bushels, en svo miklar
skemdir Urðu á kartöfluökrum
fyrstu vikuna í ágúst, að talið
er að draga megi 8 milj. bushels
frá fyrir pá viku eina, en frá 1.
júlí til 11. ágúst 33 milj. bushels, f
og nemi pví uppskerutjónið á
kartöflum að eins á peim tíma
33 milj. dollara.
(UP-fréttabréf.)
IJm daglirn og ^eginn,
Nœturlæknir
næstu nótt átti að vera Einar
Ástráðsson, Smiðjustíg 13, sími
2014, en hann er ekki í borginni
eins og stendur. Kemur hann e.
't. v. í dag og hefir þá næturvörð-
inn, en ella verður næturlæknir
Björn Gunnlaugsson, Laufásvegi
16, sími 325.
Nýja Bíó
hefir beðið Alþbl, að geta þess,
að tal- og hljóm-kvikmyndirnar,
sem nú er verið að sýna, séu
þannig úr garði gerðar, að ekki
sé hægt að hafa hlé milli 1. og
2. þáttar, eins og venja var á
meðan þöglu kvikmyndirnar voru
sýndar. Er það því mjög áríð-
andi, að menn sæki kvikmynda-
sýningarnar stundvíslega sjálfra
sín og annara leikhúsgesta vegna,
þar sem hávaði af komu þeirra,
sem ekki koma fyr en eftir að
sýning er byrjuð, kemur í veg
fyrir, að menn hafi full not
myndanna. Er þess vænst, að all-
ir leikhúsgestir leggi áherzlu á að
vera komnir í isæti sin er sýning
hefst. Sýningar hefjast stundvís-
lega kl. 9 (og 7 þá daga, sem
tvær sýningar eru).
Til berklaveiba drengsins
frá Flatey: Frá Ingibjörgu 5
kr. Áður komið 710 kr. Samtals
715 kr.
Bátur kennir grunns.
í gærkveldi kendi mótorbátur
grunns á Hólmasundi (við Akur-
ey), en komst út óskemdur með
hækkandi sjó. Það var „Ingólf-
ur“ Lofts Loftssonar.
„Súlan".
Viðgerðarhlutirnir í „Súluna"
náðu ekki „Max Pemberton".
Munaði það að eins um tveimur
klukkustundum. Þeir koma með
næstu skipsferð.
KVeiðibjallan“
kemur hingað í dag til þess að
fara póstferð til Norður- og Aust-
ur-landsins í stað „Súlunnar“. f
gær var „Veiðibjallan" í síldar-
leit, en regn og þoka hefti út-
sýnið og varð ekki síldarvart.
Veðiið.
;K.h 8 í jnorgun var 10 stiga hiti
í Reykjavík. Utlit á Suðvesfur-
landi vestur um Breiðafjörð:
Hægviðri I dag og úrkomulaust,
Nýtt ráðabrugg gegn Rússlandi.
Dagana um miðjan ágústmánuð
hélt samband íhaldssinnaðra
•landflótta rússneskra liðsforingja
þing sitt í París. Bárust í fyrstu
þær fréttir þaðan, að til stæði ný
árás á Rússland, í líkingu við
innrásir Denekins, Koltschaks pg
Judenitch. Síðar fréttist, að þess-
ir rússnesku íhaldsmenn væru
alveg afhuga árás á Rússland að
utan, þar eð þeir væru vonlausir
um að það bæri árangur, en
gerðu sér enn vo-n um að verða
ágengt með því að útbreiða óá-
nægju innanlands, einkum meðal
bænda, og að þeir ætluðu að
leggja aðaláherzlu á þannig lag-
aðan undirróður. Miller hershöfð-
ingi er foringi þessara íhalds-
liðsforingja, síðan Kútjepof her-
foringi hvarf í fyrra, og Morg-
unblaðið talaði mikið um þá.
Sagt ér, að steinolíukóngurinn sir
Henry Dederding, forstjóri Roy-
al Dutch, leggi liðsforingjasam-
bandinu fé til undirróðurs í
Rússlandi.en aðrir segja, að hann
en sunnangola í nótt og hætt við
að rigni.
Árekstui og meiðsli.
Bifreið rakst á hjólreiðamann
á mótum Bankastrætis og Lækj-
argötu kl. l)/2 í dag. Meiddist
hjólreiðamaðurinn eitthvaö á
höfði og var borinn til læknis.
Nánari fregnir ókonmar.
Stórt loftskip.
Loftskip eiga Bandaríkjamenn
í smíðum. í Akron i Ohio. Loft-
skipið á að heita „Akron“. Það
verður 780 fet á lengd, 142 á
hæð. Til samanburðar má geta
þess, að brezka loftskipið R—100
er 709 fet á lengd og 133 á hæð.
1 „Akron“ verða notaðir svokall-
aðir Maybach-mótorar. Flugsvið
loftskipsins verður 9000 enskar
mílur og það getur flutt 100 far-
þega. Loftskipið verður útbúið
ýmsum þægindum, sem ekki er
um að ræða í þeim loftskipum,
sem til þessa hafa verið smíðuð.
Ráðgert er að smíða annað loft-
skip sömu tegundar í Akron.
(UP-fréttabréf.)
Fellibjflur i Napóli.
Eins og símskeyti sögðu frá,
er hér voru birt í blaðinu, kom
um daginn fellibylur í Napóli,
stærstu borg ítaliu, skömmu eft-
ir að landsskjálftarnir gerðu ó-
skunda þar í landi.
Það var 15. ágúst að fellibylur-
inn kom. Hófst hann með óstjóm-
legri rigningu, svo göturnar urðu
eins og fossandi lækir. Rétt fyrir
kl. 7 síðdegis kom fellibylurinn
og fór yfir aðaltorgið og ók þar
telji slíkan undirróður vonlausan
nú orðið og að liðsforingjasam-
bandið muni vera mjög félítið.
Miiier hershöiðingi,
foringi rússnesku íhaldsmann-
anna, sem ætla að reyna að
stofna til uppreista í Rússlandi.
i '
iöllu í hring, mönnum og skepn-
um og varningi, en mörg hús
hrundu. Meðal annars hrundi
múrveggur Rómeó-flugverksmiðj-
anna, en undir þeim vegg hafði
fjöldi bænda leitað skjóls, er ver-
ið höfðu á torginu með vörur
sínar. Biðu 4 menn bana sam-
stundis, en 6 nokkru seinna af á-
verkum þeim, er þeir höfðlufeng-
ið. Auk þess voru 20 fluttir í
spítala mjög illa á sig komnir,
en 60 hlutu minni háttar meiðsli.
Kafbátur Wilkins.
Nú er sem óðast verið að út-
búa kafbát þann, sem sir Hubert
Wilkins ætlar á til norðurpóls-
ijns. Það mun ekki vera rétt, sem
sagt hefir verið í ýmsum blöð-
um, að báturinn, sem hann ætl-
ar á, hafi verið smíðaður til
þessarar norðurfarar, heldur er
það bátur, sem Bandaríkja-
stjórnin lánar til fararinnar, en
verður útbúinn sérstaklega til
hennar. Hefi.r Wilkins orðið að
setja 10 þús. dollara ábyrgð fyrir
báti.nn. Aftur á móti er leigan
á honum ekki dýr: 1> dollar á
ári, þ. e. leigan er sett til mála-
mynda. Þessi dollar verður svo
þegar til kemur að líkindum
áldrei borgaöUr.
Hvað er að frétta?
77/ Strcmdctrkírkju. Áheit frá Ö.
Ó. 3 kr.
Skipajréttir. ,„Goðafoss“' kom í
morgun að norðan og vestan.
„Nova“ fór í gærkveldi vestur
og norður um land og fer það-
an til Noregs. „ísland“ fer í
kvöld í Akureyrarför. „Esja“ er
Sænguraúkar, undir og yfir.
Yfirveraefni hvít og mislit. —
Fiður, — háifdúnn. — aldúnn.
Beztu kaupin hjá Georg. Vöíu-
búðin, Laugavegi 53.
Glervðrur.
Gúsáhðld,
alunsininm og
emallernð.
Klapparstíg 29. Sími 24.
Dömuskinnkápur og
dömukjóiar með nýtízku
sniði og faiiegum iitum,
nýkomið i
Soffíobi,
Austurstræti 14. Sími 1887.
■issnaHHHBaaBmBHHÉsni
ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN,
Hverflsgötu 8, siml 1204,
tekur að sér alls kou-
ar tæklfærisprentUE,
svo sem erfjljóð, að-
gðngumlða, kvittanli,
reiknlnga, bréf o. a.
frv, og afgreíðlr
vinnuna 'jótt og við
réttu verði.
Komið, Skoðið.
Nátlföt á börn, kosta frá 1,50 —
3 kr. Efni í morgunkjóla 2,95 í
kjólinn. Efni í undirlök 2,95 í lakið.
Sílkiundirföt seljast ódýrt, Enskar
húfur frá 1,95. Silkisokkar frá 1,65.
Alt af ódýrast í
Klðpp,
Laugavegi 28.
á Akureyri og „Súðin“ kemur1,
þangað í dag.
Naglavísurnar. (Leiðrétting.)
Síðari hluti fyrri naglavísunnar,
(í blaöinu í gær) á að vera þann-
ig:
Þótt þeir báði neyð og nekt
í nagla-moð-súpunni.
Togarinn „Þórólfur“ er nýkom-
inn af síldveiðum. Afli hans var
um 13000 mál.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Haraldur Guðmundsson.
Alþýðuprentsmiðjan.