Morgunblaðið - 06.02.1973, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.02.1973, Blaðsíða 2
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1973 West Ham Utd. WEST HA01 UNITED: Félagiö var stofnaö árið 1900. Leikvangur þess er Upton Park sem rúmar um 42 þúsund áhorfendur. - Meöaltals^öldi áhorfenda á síöasta keppn- istímabili var 30.004. Metfjöldi áhorfenda á heimavelli er 41.546 en það var er félag- ið mætti Manchester United 29. marz 1969. Framkvæmdastjóri félagsins er Ron Greenwood. Helztu sigrar West Ham eru: Sigurvegarar í 2. deild 1958, Bikarmeist- arar 1964. Sigurvegarar í Evrópubikar- keppni bikarhafa 1965. Félagið komst í 2. deild árið 1919 og í 1. deild árið 1923. - Féll í 2. deild árið 1932 og var í henni allt til ársins 1958 en síðan hefur það verið í 1. deild. Stærsti sigur West Ham er 8:0 yfir Rotherham United í 2. deildar keppn- inni 1957 og mesti ósigurinn er 0:10 gegn Tottenham Hotspurs árið 1904. Búningur félagsins er fjólubláar skyrtur með bláum ermum, hvítar buxur og hvítir sokkar. - Gælunafn félagsins er: ,,Hamrarnir“. tekin í Mexikó 1968, erMoore var að koma þangað, eft ir að hafa verið stungið í svartholið. Eftir atvikuim hefur frammi staða West Ham United í ensku 1. deildar keppninni í vetur verið með ágætum. Fá ir bjuggust við þvi að liðið myndi blanda sér i barátt- una um efsta sætið i ár, en þegar þetta er skrifað er West Ham í sjöunda sæti og hefur unnið marga frækna sigra í vetur. Ekki leikur á tveimur tung um að frægasti leikmað- ur liðsins er fyrirliði þess, Botoby Moore, og má mikið vera ef hann er ekki þekkt- asti knattspyrnumaður heims. Og vísí þykir að Moore sé alla vega ríkasti knatt- spyrnumaður i heimi og þarf hann ekki að kvíða framtíð- inni, þegar hann leggur skóna á hilltuna. Hann er nú 31 árs að aldri, og á örugg- lega eftir mörg ár í kna*tt- spyrnunni, a.m.k. telur hann svo sjáltfur. Enskir biaða- menn hafa reyndar sagt að dagar hans sem eins bezta knattspyrnumanns Bret- iandseyja séu taldir, og að sir Alf Ramsey þurfti að finna sér nýjan mann í hans stöðu fyrir loka- átök heimsmeistarakeppninn ar 1974. Bobby Moore var aðeins 17 ára þegar hann fór að leika með aðalliði West Ham. Það var árið 1958. Snemma vakti hnn á sér athygli fyrir ein- stæðan dugnað sinn og knatt leikni, auk þess sem hann þótti metnaðargjam meö afbrigðum. Hann ætiaði sér að verða bezti knatt spymumaður Englands og honum tókst það. Þegar svo var komið bj'Uggust flestir við að stóru félögunum myndi takast að ná honum frá West Ham, en Moore sagð ist kunna vel við sig þar, og sat sem fastast. Það er sagt að milijónir manna viti hver Bobby Moore sé, en aðeins fá- ir þekki hann. Hann þykir dulur í skapi, og er einn þeirra fáu ensku knatt- spymumanna sem ekki er fús tii þess að ræða við blaða menn hvenær sem er. Sálarró hans og jafnvægi þótti koma hvað bezt fram er hann var handtekinn í Cokrmbia, er hann var þar á ferð með enska landsliðinu, skömmu áð ur en lokakeppni sið- ustu heimsmeistarakeppni hófst. Moore var sakaður um gimsteinaþjófnað og sat í tugt húsi í tvo daga. Síðar kom í Ijós að hann var með öllu saklaus, Mow» tók öllu til- standinu sem varð út af at- burði þessum með miklu jafn aðargeði, og enginn gat merkt á honum þegar hann lék með enska liðinu i keppn inni, að neitt óvenjulegt hefði átt sér stað. 1 West Ham liðinu eru nokkrir aðrir leikmenn sem vakið hafa mikla athygli, þótt þeir faili nokikuð í skuggann fyrir Moore. Meðal þessara leikmanna er Bermudamaður inn Clyde Best, sem er einn af fáum blökkumönnuim sem komizt hafa það langt í knatt spyrnunni að fá atvinnu- mannasamning í Eng- landi. Best hefur leikið fjöl- manga landsleiki með Bermudamönnum, og um ára- bil hefur hann verið einn marksæknasti leikmaður West Ham. Þá er Bryan Rob son þekktur leikmaður og gerði garðinn frægan er hann lék með Newcastle. Samvinna þeirra Moore, Best og Robson þykir með af brigðum góð, en hún hefur þó orðið tiil þess að nokkrir aðr ir leikmenn liðsins finnst framhjá þeim gengið, og að þeir faíli í skuggann. Varð þessi gagnrýni þeirra orðin það hávær i vetur, að fram- kvæmdastjóri West Ham gerði nokkrar stöðubreyting ar hjá liðinu. Virtust þær hreinsa andrúmsloftið og hef ur West Ham gengið betur eftir en áður. Lið West Ham United hef- ur verið þannig skipað í flest um leikjunum i vetur: Nr 1 Bob Ferguson: Hefur leikið sjö landsleiki fyr- ir Skotland. Var keyptur til West Ham frá Kilmarnock í Skotlandi árið 1967 fyrir um 15 mill'j. kr., sem var þá met- greiðsla fyrir markvörð í ensku knattspymunni. Upp á síðkastið hefur Ferguson átt nokkuð eijfitt uppdráttar með West-Ham liðinu og orðið að láta stöðu sína nokkruim sinnum til hins unga og efniiega Peter Grot- ier; Nr 2 John McDowell: Hef- ur leikið einn unglingalands- leik fyrir Engiand, og það var leikurinn sem vakti veru lega aöiygii á honum og varð til þess að hann fékk atvinnusamning hjá West Ham. McDowelI er „uppal- inn“ hjá féiaginu, og hefur leikið með varaliðum þess og ungiingaliðum frá árinu 1967. Nr 3 Frank Lampard: Lék fyrst með West Ham ár- ið 1967. Fótbrotnaði ári síð- ar, og átti nokkuð lenigi í meiðstum. Eigi að síður hef- ur hann leikið um 160 leiki með félaginu. Lampard hef- ur leikið fimm unglingalands leiki fyrir England. Nr 4 Billy Bonds: Var kjör inn leikmaður ársins í féiag- inu 1971. Var keyptur til West Ham fyrir um 10 millj. kr. frá Charlton Athletic ár- ið 1967, og hefur leikið tvo unglingalandsleikí fyrir Eng land. Nr 5 Xommy Taylor: Nafni hins fræga leikmanns Mari- chester United sem fórst í flugslysi við Múnchen 1958. Kom til West Ham frá Ori- ent fyrir tveimur árum og varð félagið að greiða fyrir hann 20 milij. kr. Er einn þeirra leikmanna sem standa mjög nærri enska landslið inu. Nr 6 Bobby Moore: Fyrir liði West Ham. Hefur leikið 98 landsleiki fyrir England og hefur verið með í að vinna alta titla nema meist- aratitíl með liði sínu. Lék fyrst sem atvinnumaður árið 1958. Kjörinn knattspymu maður ársins 1963 og 1964. Hefur ieikdð á sjötta hundr- að leiki með West Ham. Nr 7 Kevln Lock: Á að baki tvo unglingalandsileiki með enska liðinu. Korrast í að aHið West Ham á s.l. ári, en lék áður með skólaliðum. Nr 8 Clyde Best: Var mark hæsti leitanaður West Ham á sJ. ári, en til félagsins kom hann frá Bermuda árið 1968 og á hann marga iandsleiki að baki með Bermudaliðinu. Best er einn af fáum blökku mönnum sem náð hafa veru- legum árangri í knattspyrnu. Nr 9 Pat Holland: Vinnu- hestur West-Ham liðsins, en með félaginu hefur hann leik ið allan sinn feril sem knatt spyrnumaður. Hann undirrit aði atvinnumannasamning ár ið 1969, en hafði toomið til fé- lagsins frá skólaliði árið 1967. Nr. 10 Trevor Brooking: Kom td West Ham árið 1965 og fékk sinn skóla hjá féLag inu. Gerðisit atvinnumaður ár ið 1967 og hefur leikið um 160 íeiki með félaginu. Nr 11 Bryan Bobson: Var keyptur til West Ham frá Newcastle fyrir ári og varð félagið að greiða fyrir hann um 30 millj. kr. Gælunafn hans er „Poppí“ sökum þess hve gaman hann hefur af poptónlist. Hann var mark hæsti leikmaður Newcastie í tvö ár í röð, og er nú mark- hæsti leikmaður West Ham á þessu keppnistímabili. Nr 12 CMve Charles: Blökkumaður. Kom til West Ham árið 1968 og gerðist at- vinnumaður árl siðar. Lék með Montreal Olympics í Kanada suimarið 1971. Tommy Taylor á þarna í höggi við tvo þekkta Arsenal leik- menn, þá Frank McLintock og Ray Kennedy. Clyde Best er elnn aí' fátun blökkumönnum sem hafa spjar- að slg i atvlnnuknattspyrnu nni. Þama á hann í höggi við Frank Mun ro í Wolves.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.