Morgunblaðið - 06.02.1973, Qupperneq 8
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRUAR 1973
Kristinn Jörundsson skorar í ieik Ármanns og IR. Nr. 14 hjá
Ármanni er B,jörn Christense n og hæg'ra megin við Kristin er
Jón Sigurðsson.
17 stiga sigur í R - inga
— yfir Armenningum
íslandsmeistarar ÍR virðast
óstöðvandi um þessar mundir. Á
sunnudag'skvöldið léku þeir
gegn Ármanni, og þar sem það
er reynslan af leikjum þessara
liða undanfarin ár, þá var bú-
izt við spennandi viðureign.
Ketta fór þó á annan veg. ÍR-
ingar sigruðu með 17 stiga mun,
og lengi vel leit út fyrir mun
meiri sigur ÍR.
Fyrri hálfleikurjnn var í einu
orði sagt glæsilegur hjá iR. Mað
ur á mann vörnin var hreint frá
bær, og ekki var sóknarleikur-
inn síðri. Hraðaupphlaupin virt
ust ganga upp af sjálfu sér, og
hittnin var stórgóð. IR komst
strax í 10:4. og þegar átta mín.
voru liðnar af leiknum var stað-
an orðih 21:6, og raunar búið að
gera út um leikinn. En ÍR-ing-
ar voru ekkert á því að slaka á
strax, þeir héldu áfram að auka
forskot sitt, og i háifleik var
slaðan orðin 49:23.
Síðari hálfleikurinn var gjör-
ólíkur hinum fyrri. Ármenning-
ar sem voru algjörlega yfirspil
aðir i fyrri hálfleiknum, voru þá
mun friskari, en ÍR-ingar virtust
búnir að eyða mesta púðrinu, og
liðið lék ekki eins vel. Þó var
ÍR með 31 stigs forskot þegar
sjö mín. voru til leiksloka 78:47,
en lokamínútur leiksins voru Ár
menningar sterkari og minnk-
uðu muninn jafnt og þétt. Loka-
tölur urðu 91:74.
Anton Bjarnason var lang
bezti maður vallarins í þessum
leik, og var hreint frábær. Þó
hann sé til þess að gera nýkom-
inn i liðið, þá er hann orðinn
potturinn og pannan i hraða-
upphlaupum liðsins, og fjöl-
breytnin í leik liðsins hefur auk
izt mjög við komu hans. Að öðru
leyti sýndi liðið í heild mjög góð
an leik, og verður ekki sigrað
auðveldlega ef það leikur svona
áfram. Birgir Jakobsson iék nú
með að nýju, hann var að visu
aðeins varamaður, og kom inn á
í síðari hálfleik, en sýndi þó að
hann' er ekki langt frá
sínu gamla formi.
Sem fyrr var það Jón Sigurðs
son sem sýndi beztan leik Ár-
menninga, og var mjög góður.
Aðrir voru talsvert frá
sínu bezta, nema e.t.v. Jón Björg
vinsson sem sótti sig talsvert er
á leikinn leið, og var ágætur.
Það hefur verið talsvert um það
talað í vetur, að lið Ármanns
ætti að geta miklu meira en það
sýnir, og er þetta enn í fuilu
gildi — því miður.
Stighæstir: ÍR: Kristinn Jör-
son 17, Anton Bjarnason 13.
undsson, 27, Agnar Fríðriks-
Ármann: Jón Sig. 28, Jón Björg
vinsson 14.
Leikinn dæmdu Erlendur Ey-
steinsson og Bjarni Gunnars.
gk.
Það mun vera nær einsdaemi
i körfuboltaleik hérlendis, að 92
stig skuli ekki nægja liði til sig-
urs. Þetta gerðist þó um helgina
þegar UMFN og ÍS mættust. ÍS
sigraði í leiknum með 102 stig-
um gegn 92, og mun þetta vera
eitt mesta skor i einum leik í
íslandsmótinu um árabil. Alls
skoruðu 11 einstaklingar 13 stig
eða meira í þessum leik, og einn
ig það er mjög óvenjulegt.
GÓÐ HITTNI
Langskyttur beggja liðanna,
sérstaklega UMFN, voru held-
ur betur á skotskónum í fyrri
hálfleiknum. Allir virtust geta
skorað með langskotum, en þess
ber þó að geta, að varnir lið-
anna reyndu lítið að koma i veg
fyrir langskotin, en lögðu þeim
mun meiri áherzlu á að gæta
andstæðinganna undir körf-
unum. Þar var ieikið afar fast
á báða bóga, og mikið um vill-
ur þar.
FORUSTA UMFN
UMFN tók þegar forustuna í
leiknum, þegar hinn vaxandi mið
herji þeirra Gunnar Þorvarðs-
son skoraði fjögur fyrstu stig-
in. Leikur ÍS var mjög hikandi
í byrjun, en UMFN fékk hins
vegar „óskastart" og staðan eft-
ir fjórar mín. var 14:6, og stuttu
síðar 18:9. Minnstur var munur-
inn um miðjan hálfleikinn þrjú
stig eða 23:20 fyrir UMFN, en
mestur fimm mín. fyrir lok hálf-
leiksins 40:29, og virtist þá flest
benda til þess að ÍS væri að
gefa sig. En með dugnaði mikl-
um tókst þeim að minnka mun-
inn niður í þrjú stig fyrir hálf-
leik, og þá var staðan 54:51 fyr
ir UMFN, sem er meira skor en
maður á að venjast.
ÍS KEMST YFIR
Segja má að byrjun síðari hálf
ieiksins hafi verið mjög örlaga-
rik fyrir UMFN. Þeir virtust
ekki almennilega átta sig strax,
og þegar nokkrar mín. voru liðn
ar af hálfleiknum tókst IS að
komast yfir í fyrsta skipti
í leiknum, og staðan varð 66:63
fyrir ÍS. Ekki tókst þeim þó að
ná atgerandi forustu, og þegar
hálfleikurinn var hálfnaður
voru Njarðvíkingarnir komn-
ir yfir á ný, og staðan var 71:70.
— En sú dýrð stóð ekki lengi.
Næstu 12 stig skoraði ÍS, og þar
með gerðu þeir reyndar út um
leikinn. Á þessu tímabili lék
UMFN liðið mjög óvarlega
í sókninni, og ÍS-vörnin
hirti hverja sendingu þeirra af
fætur annarri, og strax á eftir
lá boltinn i körfu UMFN. Þótt
UMFN reyndi ákaft á lokamín.
leiksins að rétta sinn hlut, tókst
það ekki. Þeir komu muninum
að vísu niður í fimm stig 86:91,
en lengra fóru þeir ekki, og ÍS
sigraði siðan með hinni óvenju-
legu stigatölu 102:92.
— Þa ðer augljóst, þrátt fyr-
ir þetta tap, að lið UMFN er í
stöðugri framför þessa dagana,
þótt enn sé liðið talsvert mis-
tækt. Þá háir það liðinu einn-
ig, að breiddin er lítil, það eru
fimm menn sem skera sig tals-
vert úr, en næstu leikmenn eru
mun slakari. Þessir fimm sem eru
David Davany, Hilmar Hafsteins
son. Gunnar Þorvarðsson,
Brynjar Sigmundsson og Einar
Bjarm Gunnar og Smá.ri Kristinsson berjast um frákast und-
ir körfu UMFN. Nr. 8 hiá ÍS er Jón Indriðason.
Guðmundsson áttu allir góðan
leik að þessu sinni. Brynjar var
þó þeirra beztur, „Okkar Koi-
beinn“ eins og Bogi Þorsteins-
son fyrrv. form. K.K.Í. orðaði
það. Hann er geysilega snögg-
ur leikmaður, góður I vöminni,
og hittir vel. Þá er það liðinu
ómetanlegur styrkur að hafa
fengið David með, en hann er
mjög sterkur leikmaður, jafnt í
vörn og sókn. Báðir
miðherjarnir, Gunnar og Einar
eru i framför, og Hilmar sem er
mikil skytta, er traustur leik-
maður sem þó mætti skjóta
meira. — Með stama áframhaldi
þarf liðið engu að kviða, en þó
aö leikir tapist þarf ekki endi-
iega alltaf að kenna það dómur
um, það er enn talsvert í leik
iiðsins sem þarf lagfæringar við.
Að vísu geta dómarar ávallt
Framhald á bls. 38
92 st. dugðu ekki UMFN
því ÍS skoraði 102 stig
Þórislausir töpuðu Valsmenn
Þórir Magnússon lék ekki
með Val um helgina þegar lið
ið lék við HSK. Þörir meidd-
Ist nýlega á æfiugn, og er
frekar ólíklegt að hann leiki
meira með í þessu móti. Það
þarf ekki að fara mörgum
orðum um það hversu gifur-
legt áfall það er fyrir liðið,
það kom vel fram í leik Vals
og HSK.
Stefán Bjarkason skoraði
fyr.stu körfu leiksins, og var
það í eina skipti i leiknum
sem Valur hafði yfir. Þegar
aðeins sjö mlLn. voru búnar af
leiknum var staðan orðin 18:5
fyrir HSK, og ljóst að þeir
ætlluðu sér ekkert nema tvö
stig út úr þessari viðureign.
Vörn HSK liðsins var mjög
sterk. og það var hún öðru
íremur sem grundvallaði sig-
ur liðsins að þessu sinni.
Val'simenn náðu þó að jaína
leikinn talsvert, og í hálf-
leik var staðan 34:31 fyrir
HSK, og frekar hafði maður
það á tilfinn'ngunni að Val-
ur myndi sigra.
Þegar 6 mín voru liönar af
síðari hálfleik var staðan
46:45 fyrir HSK, og næstu 10
stig skoruðu Skarphéðins
menn og þar með var sigur-
inn tryggður. Leiknum lauk
með fremur óvæntum si.gri
þeirra 70:61.
Það kom vel í ljós í þess-
um ieík hve gífuriega mikil-
vægur Þórir er VaMiðinu.
Þar við bættist að þjálfari
þeirra Óiafur Thoriaeius var
ekiki með liðið að þessu sinni,
en hann er við störf í Vest-
mannaeyjum. Þetta tvennt
virtist verða til þess að brjóta
liðið niður, og það var , heild
langt frá sínu bezta.
Etóki er þetta þó sagt til
þess að gera lítið úr frammi-
stöðu HSK. Það lið kemur
manni sífelit á óvart, og er
næstum hægt að fullyrða að
ldðið sé búið að tryggja
áiframhaldandi veru sína í 1.
deiild. í þessum leik var það
ungur piltur Ólafur Jóhanns
son sem var langbezti maður
liðsins, og átti stjörnuieik.
Þá átti Bjarni Þorkelsson
mjög góðan leik, og sömu
sögu er að segja um Gunnar
Jóakimsson og Þröst Guð-
mundsson.
1 Valsliðinu var Kári
Marí.sson langbeztur, og
Stefán Bjarkason var ágæt-
ur. Þá var Torfi Magnússon
þokkalegur meðan hans naut
við en hann varð að yfir-
gefa völlinn með 5 viiilur.
Stigliæstir: HSK: Ólafur
Jóhannsson, Bjami Þorkeis-
son 15.
Valur: Kári Marísson 14.
Stefán Bjarkason 16. Leikinn
dæmdu Sigurður Halldórsson
og Bjarni Gunnar.
gk.