Morgunblaðið - 16.03.1973, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 197»
31
4
A
I> j óðleikhúsið:
Furðuverkið — frum
sýning í Grindavík
V erðlagsst j óri:
Leigubílstjórar
þurfa ekki að bíða
Á MORGUN, laugardaginn 17.
ntarz, frumsýnir Þjóðleikhúsið
barnaleikritið Furðuverkið í
Festi í Grindavík kl. 3 e.h. og
er J>að i f.vTsta sinn, sem frum-
sýning- Þjóðleikliússins fer fram
utan Reykjavíkur.
Furðuverkið er ætlað sem far-
andsýning, sem sniðin er fyrir
litil leiksvið, og verður því ein-
göngu sýnt utan Reykjavíkur til
að byrja með.
Höfundur og leikstjóri Furðu-
verksins er Kristín Magnús
Guðbjartsdóttir, sem einnig er
ein af leikendum, en aðrir leik-
endur eru Herdís Þorvaldsdótt-
ir, Halla Guðmundsdóttir og
Sigmundur Ó. Arngrímsson.
Ljóð og lög við leikritið hafa
þeir Árni Elvar og Hrafn Páls-
son samið, en búninga og tjöld
teiknaði Birgir Engilberts. Þá
aðstoðaði Örnólfur Thorlacíus
við samninga á texta, og bak-
grunn leiksviðsins önnuðust
nemendur úr Myndlistarskólan-
um.
Furðuverkið fjallar um sköp-
un jarðarinnar, þar sem stiklað
er á stóru og fyrsta skrefið af
hverjum þætti í sköpunarsög-
unni tekinn fyrir, en lýkur síð-
an á steinaldarmönnum.
Að sögn ieikstjóra Furðu-
verksins, er leikritið ekki bund-
ið við ákveðinn texta, eins og
hingað tii hefur tíðkazt, en ætl-
unin er að fá áhorfendur til að
taka þátt í leiknum, sem hefur
það í för með sér, að leikendur
geta farið sínar eigin leiðir i
leiknum. — Að visu höfum við
samið handrit, en I því er urm-
ull af spurningarmerkjum, sagði
Kristin.
— Það er markmið Þjóðleik-
hússins að ná til áhorfenda með
öllum tiltækum ráðum, og þvi á
leikrit ekki endilega að vera
bundið við svið Þjóðleikhússins,
sagði Sveinn Einarsson, Þjóð-
leikhússtjóri í tilefni frumsýn-
ingarinnar. Sveinn sagði einnig,
að hér væri um tilraun að ræða,
og að áformað væri að halda
fleiri slikar sýningar ef vel
tekst til nú.
— Dýrmætur
Framhald af bls. 2.
sig hækkanir á innlendum og
erlendum efnivörum, gengis-
breytingar og hækkanir á þeirfi
orku, sem iðnaðurinn notar, án
þess að fá þetta leiðrétt í verð-
lagningu framleiðsluvara sinna.
Erlendir keppinautar okkar, hér
á landi, hafa fengið allar þessar
hækkanir sjálfkrafa.
Oft heyrist sagt, að þetta tal
um verðlagsmál sé óþarft, iðn-
aðurinn njóti svo mikillar toll-
verndar, að honum sé vel borg-
ið.
Ég vil benda á það, að í fyrsta
lagi hefur íslenzkur iðnaður
ekki beðið um þessa tollavernd,
óg í öðru lagi það, — að íslenzk-
ur iðnaður hefur ekki fengið að
njóta þeirrar tollverndar, sem
tekjutollar rikissjóðs hafa skap
að honum, í orði kveðnu. Það
eina jákvæða við tollverndina er
það, að hún hefur stundum bjarg
að iðnaðinum, þegar gengið hef-
ur verið rangt skráð.
Það eina, sem íslenzkur iðnað-
ur fer fram á, og hefur jafnan
farið fram á, er jafnrétti, jafn-
rétti við aðra innlenda atvinnu-
vegi, og jafnrétti og jöfn að-
staða við erlenda keppinauta."
MORGUNBLAÐINU hefur bor
izt fréttatilkynning frá verðlags-
stjóra út af taxta leigubifreiða,
og fer hún hér á eftir:
Þar sem ýmsir hafa misskilið
þá fréttatilkynningu um taxta
leigubifreiða, er send var blöðum
þann 26. febrúar, á þann hátt, að
leiigubílstjórar ættu að biða ótak-
markað og endurgjaldslaust eft-
ir viðskiptavini, skal það tekið
fram, að þeim er heimilt að setja
gjaldmælinn við, þegar komið
ér á kvaðningarstað, en þá sýn-
ir mælirinn kr. 6.00. Það, sem
mælirinn kann að sýna umfram.
þetta, þegar viðskiptavinur kem-
ur í bifreiðina, er greiðsla fyrir
bið.
Þar sem getið er um bæja-
mörk, þá er ábt við gjaklskipti-
mörk, sem markast við linu, sem
hugsast dregin við tiltekna staði
hvers bæjarfélags eða kauptúns,
og eru þau tilgreind í gjaldskrár-
bók leigubifreiða.
Úr einu atriði Furðuver!«.sins. Herdis Þorvaldsdóttir og Sigmund-
ur í frumugervi. Ljósm. Kr. Ben.
Tilkynning
til þeirra söluskattsgreiöenda, sem gert
hafa skil á söluskatti einu sinni á ári.
Þeir gjaldendur, sem hafa smávægilegan rekstur
með höndum og hafa heimild til að skila söluskatti
einu sinni á ári, skulu nú í marz gera skil á sölu-
skatti vegna starfsemi í janúar og febrúar. Er þetta
gert vegna álagningar viðlagagjalds á söluskatts-
stofn frá og með 1. marz sl. Gjalddagi skattsins er
15. marz.
Þeir, sem ekki hafa fengið sendar áritaðar sölu-
skattsskýrslur, geta fengið þær hjá skattstjórum,
innheimtumönnum eða umboðsmönnum þeirra.
Fjármálaráðuneytið, 14. marz 1973.
Fyrir ungu herrunu
□ FERMINGARFÖT - 4 STÆRÐIR
FALLEGIR LITIR - FALLEG SNIÐ
□ FERMINGARSKYRTUR
□ FLAUELISSLAUFUR - BINOI
□ STAKAR TERYLENE & ULLARBUXUR
□ BAGGY-BUXUR
□ SPORTBUXUR ALLSKONAR
DENIM - FLAUEL - BURSTAÐ DENIM
□ PEYSUR - BOLIR - BELTI O. M. FL.
UTSOLUMARKAÐURINN
A II. HÆÐ LAUGAVEGI 66.
ENNÞÁ ER HÆGT AÐ FÁ ÖTRÚLEGA GÓÐAR
VORUR Á HREINT ÓTRÚLEGA GÓÐU VERÐI.
EINNIG ER HÆT AÐ FÁ STAKAR TERYLENE-
& ULLAR BUXUR í LITLUM NÚMERUM SVO
OG SKYRTUR - PEYSUR O. FL.
m KARNABÆR
oun PanrER rj