Morgunblaðið - 08.04.1973, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.04.1973, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRlL 1973 Eliszabet Ferrars: Samísríls i dsirisnra ar ég kom þangað. Og svo var ég þar þangað til við fórum í morgun — um klukkan ellefu. Og svo ókum við beint hingað. — Þakka yður fyrir, sagði Greed. Þetta er allt mjög greini- legt og getur orðið að miklu gagni. En nú þætti mér vænt um, að þér vilduð biðja frú Dalziel að koma hingað inn. Roderick stirðnaði í sætinu og vandræðasvipurinn hvarf af hon um. — Er það nauðsynlegt? Hún hefur komizt afskaplega úr jafn vægi. — Þér getið verið viðstaddur, ef þér viljið, sagði Creed. — Ég býst ekki við að þurfa að tefja hana lengi. — Ég skil. Jæja, ég skal vita, hvað henni finnst um þetta. Rod erick stóð upp og gekk út. Meðan Creed beið eftir Jane, tók hann upp myndina og at- hugaði vandlega hlæjandi and- litið á Margot Dalziel. Lagleg kona, hugsaði hann, og mesta furða, að hún skyldi aldrei hafa gifzt. Það hefði varla getað staf- að af skorti á tækifærum. Hon- um datt í hug, að hann þyrfti að ná sér í eintak af þessu tíma riti, sem hún stýrði og vita, hvort hann gæti fundið þar nokkrar bendingar um, hvers konar efni hún skrifaði. En sennilega væri það allt ofar hans skilningi, þjóðíélagsfræði eða þess háttar. Það mundi kannski bara rugla fyrir honum. Hann lagði myndina frá sér aftur, um leið og Jane kom inn. Hún gekk hratt að stólnum, sem Roderick var nýbúinn að yfirgefa, settist á brúnina á hon um, krosslagði armana á borð- inu, sendi Creed bros, sem hon- um fannst fullglaðlegt, eins og á stóð, og sagði léttilega: — Jæja, hér er ég, fulltrúi. Annars vill svo til, að þér þekkið líklega móður mína, frú Meredith. Þetta sló Creed út af laginu. Vissulega þekkti hann frú Mere dith, sem var einhver hræðileg- asti friðdómari, sem hann hafði nokkum tíma komizt I kynni við. Harðneskjukvenmaður, sem leit út í dómarasætinu rétt eins og hún vildi helzt senda menn í þræJkunarvinnu, jafnvel bil- stjóra, sem hefði lagt bíl sín- um ljóslausum. En þrátt fyrir þetta útlit sitt var hún gædd um burðarlyndi, sem Creed fannst með ólíkindum. Ef hún hafði til meðferðar óbetranlegan drykkju mann, eða vændiskonu, sem var kærð um mannaveiðar, eða mann, sem stóð ekki í skilum með lífeyri til konunnar, sem hann var hlaupinn frá, allt þetta virt- ist fylla frú Meredith þakklæti fyrir að vera ekki svona sjálf. En þó aðeins suma daga. Aðra daga gat hún verið harðvitugri en fiestir. En þetta var allt óreglubundið og Creed hafði aidrei getað botnað í því. — Já, ég þekki frú Meredith, sagði hann dauflega. — En vild uð þér segja mér, hvenær þér sáuð ungfrú Dalziel síðast. — Æ, það er ævalangt síð- an, sagði Jane. — Sjálfsagt einar þrjár vikur. Hún bauð okkur Roderick með sér i leikhúsið. Hún hélt þessu áfram og hann lét hana halda áfram að ímynda sér, að hann bókstaflega tæki ekki eftir því, að ég væri til. En á meðan á þessu öllu stóð, vor- um við sama sem trúlofuð — ef það er þá rétta orðið. Því að í rauninni vorum við aldrei trú- lofuð. Við fórum bara og gift- um okkur. Brosið hvarf af henni. — Mér finnst það hálf- ómerkilegt af okkur núna. — Og þér sáuð ekki ungfrú Dalziel og töluðuð ekki einu sinni við hana í síma, eftir að hún kom frá Genf á föstudag- inn? — Nei, sagði Jane. — Hvernig stóð á þvi? — Nú, ég var farin heim til mín. Ég varð að segja foreldrum mín um frá giftingunni. — Ég skil. Og voruð þér svo heirna yfir alla helgina? — Já, að mestu leyti. — Hvað eigið þér við með þvi? — Bara það, að ég komst þang að nú ekki fyrr en um klukkan sjö á föstudagskvöld. Ég slapp ekki úr vinnunni fyrr en fimm, svo fór ég frá Waterloo kl. 5.40, og pabbi hitti mig á stöðinni með bilinn, svo að ég kom ekki heim fyrr en um kl. 7. Og við fórum strax að borða og ég sagði pabba og mömmu að ég væri gift Roderick, og hefði beð ið hann að koma þangað næsta dag, og sem betur fór brugðust þau ekkert illa við þessu. Svo fór ég í bað, og hvort sem þér trúið því eða ekki, þá Var vatn ið næstum ískalt, eins og það er reyndar oftast, því að ef ofninn er kyntur, þá sýður það. Þér munduð nú halda, að nú á dög- um mundi fólk gera eitthvað við svona lagað. Mér finnst engin dyggð að lifa við óþægindi, enda þótt mamma sýnist stundum halda, að . . . Creed greip fram í: Og svo næsta dag? — Næsta dag kom Roderick, sagði hún. — En áður en hann kom? Hann kom ekki fyrr en seinni- partinn, var það? Hún flýtti sér að grípa hendi fyrir munninn. — Nei, sagði hún og lét hönd- ina síga. — Hann kom i te. K'lulklkan um háilffiimm, held ég. Og svo vorum við hjá foreldr- um mínum það sem eftir var dags ins. Roderick snerist eitthvað fyrir mömmu og talaði svo lengi um fjármál við pabba, og þeim kom ágætlega saman. Ég hef aldrei verið jafn hamingjusöm á ævinni. En nú . . . nú . . . — Voruð þér heima allan dag- inn þangað til maðurinn yðar kom? — Já, nema hvað ég tók bíl- inn oig fór í svolítinn skottúr um morguninn. Ég fór dálítið i búð- ir fyrir mömmu 1 Falford. — Ég skil. Þakka yður fyrir. — Var það ekki fleira? spurði hún, en var svo fljót að standa upp og fara út, að Creed rétt náði að biðja hana að senda ung frú Hardwicke inn. Hann sneri sér að Gower, þeg- ar hún var farin út og sagði: — Þetta er skritið, finnst þér ekki, Jim? Hún kunni eitthvað ekki við þessar síðustu spurningar. Hvað leggurðu upp úr þvi? — Kannski hef ur mamma henn ar ekki vitað, að hún tók bíl- inn, og hún sé hrædd um, að við segjum frá því, sagði Gower. — Eða vegna þess, að hún hafi í rauninni ekki vitað, hvað Dalziel hafðist að fyrripart inn, þangað til hann kom í te- drykkjuna? — Kynni að vera, sagði Gow- er og kinkaði kolli. — Hvað finnst þér — hefði hann getað etið hádegisverð á þessum tíma, sem hann sagði í Eustonstræti og komizt svo alla leið hingað — níutíu mílur — snúið svo aftur til Falford og heim til Merediths og náð þangað fyrir klukkan hálffimm? í þýóingu Pál$ Skúlasonar. — Nei, sagði Gower, — og aUs ekki ef hann hefur komið með ungfrú Dalziel hingað með sér, kálað henni og losað sig við lík- ið. — Jæja, hún hefur nú einhvern veginn komizt hingað og enn vit um við ekki hvernig, sagði Creed. — En hafi það verið þannig, sagði Gower. — Þá getur það ekki hafa verið hún, sem tók mjólkurflöskuna um morguninn. — Nei, sagði Creed. Gower hleypti brúnum, seild- ist eftir ljósmyndinni og dró hana að sér. — Þú ert orðinn viss um það með sjálfum þér, að hún sé dauð? sagði hann og horfði á brosandi andlit konunnar. ICECROSS-platan er komin í verzlanir. Sendum um land allt. Sími 23491. Pósthólf 131, Garðahreppi. velvakandi Velvakandi svarar í síma 10100 frá mánudegi til föstudags kl. 14—15. £ Sædýrasafnið Margra barna móðir i Álf- heimum skrifar: „Kæri Velvakandi. Margir hafa haft orð á því, að lítið sé um skemmtanir við hæfi barna hér í Reykjavík og nágrenni og vil ég taka undir það. Helzt er um að ræða bamasýningar kvikmyndahús- anna, svo og þau fáu barnaleik rit, sem sett eru upp á vetri hverjum. Það er ólán að senda krakkaskinnin í þrjúbíó sunnu- dag eftir sunnudag, en skríls- lætin, sem þar eru látin við- gangast eru sízt við hæfi lítilla barna, jafnvel ekki þó að for- eldrarnir séu með. Það varð því mikið ánægju- efni þegar skátar i Hafnarfirði tóku sig til og opnuðu Sædýra safnið, sem nú er reyndar að verða vísir að dýragarði. Mér finnst, að þama hafi verið gerð mjög svo virðingarverð tilraun, og sem ekki má vanmeta. Ef vel ætti að vera þyrfti þó að búa miklu betur að þessari stofnun og finnst mér að sveit- arfélögin á Stór-Reykjavíkur- svæðinu ættu að standa sameig- inlega að rekstri hennar, að einhverju leyti. Þetta svæði mætti gera miklu betur úr garði, auðvitað með einhverj- um tilkostnaði, en væri þá ekki eðlilegt að þessir aðilar gerðu það. Það er gaman að fara með börn í Sædýrasafnið og lofa þeim að sjá lifandi dýr. Börn, sem búa í þéttbýli hafa ekki mörg tækifæri til þess. Þess vegna vil ég hvetja þá, sem geta haft áhrif á málið, til þess að stuðla að eflingu þessarar ánægjulegu starfsemi. Margra barna móðir í Álf- heimum“. 0 Ljóð dagsins Ljóðelskur maður hringdi til Velvakanda. Sagðist hann vera mjög ánægður með „ljóð dags- ins“, sem lesið er fyrir hádegis- fréttir alla virka daga. Hinsveg ar sagðist hann vera mjög óánægður með þann tíma, sem valinn hefur verið; sjálfur hefði hann til dæmis nauman tíma til þess að skreppa heim og borða og hlusta á fréttir og væri þá ekki í neinu „stuði“ til þess að hlusta á ljóðalestur. Til þess að hafa gagn og gam- an af slíku þyrfti ró og næði. Sá ljóðelski heldur, að það muni vera miklu betra ef ljóða lesturinn væri að loknum fyrri kvöldfréttum eða þá fyrir eða eftir seinni kvöldfréttir. Þá væri komin ró á mannskapinn og hægt að hafa meira gaman af þessum dagskrárlið, sem heyrzt hefui að væri dýrkeypt ur i meira lagi. 0 Hvaðan kom gullaugað í mótmælavikunni? Ingibjörg Stefánsdóttir, Laugavegi 82, hringdi vegna bréfs Erlu Sigurðardóttur, um lélegar kartöflur, sem birtist hér í dálkunum fyrir stuttu, vildi hún benda á það, að ein- mitt í þeirri frægu viku, sem reykvískar húsmæður mót- mæltu verðhækkunum, þá brá svo við að dýrindis kartöflur af gullaugaætt komu í verzlanir. Þá hafði sá sjaldséði varning- ur ekki sézt síðan einhvern tíma s.l. haust og þá í mýflugu mynd. Ingibjörg sagðist hafa spurt verzlunarstjórann í búð, sem hún verzlar í að staðaldri, hvort mikið hefði komið af gullauganu, en þá kom á dag- inn að um það bil hálfur viku- skammturinn hefði verið af þeirri tegund, en hinn helming urinn hefði verið rauður. Síð- an hafa auðvitað ekki sézt nema rauðar kartöflur. Kannski var það einskær til- viljun, að þessar góðu kartöfl- ur komu fram í dagsljósið ein- mitt á þessum tíma. Þvi ge<ta menn velt fyrir sér. En þarna kemur þó s ljós, að til eru í landinu betri kartöflur en einka sölunni þóknast að útdeila alla jafna, og verður það að teljast einkar athyglisvert. En hér með er það komið í annála, að íslendingar áttu kost á ætum kartöflum eina viku i marzmánuði anno domini 1973. ah nviinn heimi Þér Iserió nýtt tungumál á 60 tímu m Tungumólanámskeió á hljomplötum eóa segulbondum tii heimanáms: A-fborgunarskilmálar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.