Morgunblaðið - 08.07.1973, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 08.07.1973, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚJL.Í 1973 Otgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltriil Fréttastjórl Auglýsingastjóri Ritstjóri og afgreiðsla Auglýsingar Askriftargjald 300,00 kr. hf. Arvakur, Reykjavik. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Arni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, simi 10-100. Aðalstræti 6, sími 22-4-80. á mánuði innanlands. I lausasðlu 18,00 kr. eintakið. FUdgosinu í Vestmannaeyj- um er nú lokið að dómi vísindamanna. Þar með er á enda ein harðasta viðureign, sem íslendingar hafa háð við náttúruöflin. Enn er mönn- um í fersku minni, er jarð- eldarnir brutust út aðfarar- nótt 23. janúar sl. og heilt bæjarfélag fluttist á einni nóttu t^l höfuðborgarinnar. Björgunarstörfin gengu frá öndverðu mjög vel og raunar framar öllum vonum, þó að ýmislegt hafi að sjálfsögðu gengið úrskeiðis; hjá því er naumast unnt að komast, þegar slíkar hamfarir eiga sér stað. í fyrstu mæddi mest á almannavörnum og Rauða krossi íslands, en Vestmanna eyingar sjálfir báru þó hita og þunga dagsins. Þessi grimmilega viðureign virðist nú vera á enda og Vestmannaeyingar eru þegar farnir að flytjast á nýjan leik til heimabyggðar sinn- ar. Ef að líkum lætur mun ekki líða á löngu þar til hjól atvinnu- og menningarlífs fara að snúast þar aftur af fullum krafti. Frá upphafi voru menn staðráðnir í því að byggja eyjarnar áfram í þeirri vissu, að él styttu upp um síðir. Óvissan um lengd gossins og þá eyðileggingu, sem það hefði í för með sér, gerði mönnum vitaskuld erfitt um vik að taka ákvarðanir um, hvemig við skyldi bregðast. En samhliða því, sem verð- mæti voru flutt frá Heima- ey til lands var háð hörð bar- átta til þess að verja eignir og mannvirki í kaupstaðnum sjálfum. í þeim efnum hefur vakið einna mesta athygli þrotlaust starf vísinda- og handverksmanna við að hefta framrás hraunsins með vatns kælingu. Kælingin hefur án nokkurs vafa komið að miklu gagni og vísindamenn full- yrða, að án hennar hefði hraunið runnið í höfnina. I þessu efni hefur því verið unnið frækilegt afrek. Gosið var ekki einungis áfall fyrir íbúa Vestmanna- eyja, heldur þjóðina alla. Vestmannaeyjar hafa verið ein mikilvægasta verstöð landsins og framleitt tæplega níu af hundraði allra út- flutningsverðmætanna. Hér var því um gífurlegt áfall að ræða, og þar við bætist kostn- aður við björgunarstörfin og enduruppbyggingu kaupstað- arins, sem nú er hafin. Eflaust líður nokkur tími þar til lífið verður komið í fastar skorður í Vestmanna- eyjum á nýjan leik. Mörg, viðamikil og erfið verkefni blasa við því fólki, sem smám saman flytzt aftur til heima- byggðar sinnar. Stór hluti íbúðarhúsnæðisins hefur orð- ið bráð eyðileggingaraflanna. Af þeim sökum hefur verið skipulagt nýtt 700 íbúða hverfi, þar sem miðað er við, að uppbyggingin geti átt sér stað á mjög skömmum tíma. Þá bíður það verkefni að reisa að nýju þau atvinnu- fyrirtæki, er eyðilögðust. Og raunar eru nú þegar uppi áform um endurbyggingu þeirra. Nú er gert ráð fyrir, að 20 til 30 bátar verði gerðir út og leggi upp í Vestmanna- eyjum næsta vetur. Um leið kemur starfsfólk í fisk- vinnslustöðvarnar, frystihús og fiskimjölsverksmiðju og önnur þjónustufyrirtæki, sem útgerðinni fylgja. Margs kyns þjónustustarfsemi verð- ur því að koma á fót á nýjan leik til þess að atvinnulífið geti gengið snurðulaust fyr- ir sig. Enn stafar nokkur hætta af banvænu gasi; af þeim sökum verður erfitt fyrst um sinn fyrir fjölskyldur að flytjast út aftur. Þá er einn- ig ljóst, að kennsla verður takmörkuð fyrir börn og unglinga fyrsta kastið. Engu að síður gera bæjaryfirvöld nú ráð fyrir, að 70% íbúanna verði komnir aftur að ári. Sennilega mun því ekki líða á löngu þar til íbúatalan verður komin í sama horf og fyrrum. Endurbyggingin verð ur því að fara fram skjótt og örugglega. Nýja hraunið, sem rann í sjó fram hefur bætt hafnar- skilyrði frá því sem áður var. Og nú eru Vestmannaeying- ar farnir að nota vikurinn, sem upp kom í gosinu; hann hefur þegar verið notaður við vegarlagningu í nýju íbúðarhverfi. Síðan verður vikurinn notaður við flug- vallargerð, en stækkun flug- vallarins er nú í undirbún- ingi. Samgöngumál Vest- mannaieyja hafa jafnan ver- ið einhver erfiðustu við- fangsefni byggðarlagsins. Og mikið veltur á, að þau verði í góðu horfi, þegar uppbygg- ingin er hafin. Góðar og greiðar samgöngur eru án nokkurs vafa ein megin undirstaða endurreisnarstarfs ins; þeim málum verður því að gefa sérstakan gaum. Gostíminn hefur verið mörgum þrekraun, en nú standa fyrir dyrum nýir tím- ar, sem vissulega krefjast mikilla átaka. Mest er um vert, að fólkið, sem þess ósk- ar, geti sem fyrst snúið til heimabyggðarinnar á nýjan leik og atvinnulífið og út- gerðin verði enn sem fyrr hin styrka stoð í efnahagslífi þjóðarinnar. ENDURUPPBYGGING VESTMANNAEYJA HAFIN * Reykjavíkurbréf ! ---- Laugardagur 7. júlí-- Gífurlegar tekjur Siðastliðin tvö ár hafa út- flutningistekjur íslendinga vax- ið meira en nokkurn gat ómð fyrir. Verðlag sjávarafurða hef ur hækkað jafnt og þétt, og nú er svo komið, að það hetfur jafn vel meira en þrefaldazt frá þvi sem var á eríiðle'kaárunum fyr ir tæplega hálfum áratug. Verð á fiskblokk í Bandaríkjunum var þá t.d. komið niður undir 20 oent, en er nú komið yfir 60 cent. En hér er um að ræða þá útflutningsvöru, sem eimna mesta þýðingu hefur. Segja má, að þessi verðlags- þróun sé ævintýri likust. Hér er um að ræða uppgrip, sem aldrei áður hafa þekkzt í sögu lands og þjóðar, því að afla- brögð hafa einnig verið góð og sjávarútvegurinn því skilað þjóðarheildiinni miklu meiri auði en nokkru sinni áður. Þótt útflutningsverð sjávaraf- urða hafi að sjálfsögðu grund- vallarþýðingu, nægir það ekki eitt. Þróttmikill rekstur útgerð- ar og fiskvinnslu hefur einnig grundv.^ larþýð'ngu. Og þótt oft hafi árað erfiðlega fyrir islenzk atvinnufyrirtæki, er það staðreynd, að í sjávarút- vegi er einkarekstuxinn öflug- astur. Þar hefur hver athafna- maðurinn af öðrum sýnt og sannað, að hann er fær um að veita íslenzku atvinnulífi forustu. Og á sviði útgerðarmála hafa einnig verið stofnuð fjöl- mörg félög, ýmist nokkurra ein staklinga eða fjölmenn fé- lög, þar sem almenninguf hef- ur lagt hönd á plóginn. Það er ekki sizt vegna at- hafna þessa fólks, sem þjóðin öil býr nú við góð lífskjör og heildartekjur þjóðarinnar eru jafn miklar og raun ber vitni. Það kemur því sannarlega úr hörðustu átt, þegar kona nokk- ur ræðst í Ríkisútvarpinu að stétt útvegsmanna og reynir að læða því inn í hugi hama í tíma þeitrra, að sú stétt sé til einna mestrar óþurftar. Þetta framferði hefur raunar þegar hlotið þá fordæmingu, sem það veirðskuldar. En hvernig endast þær? En hvemig endast þess- ar geysimiklu tekjur, sem þjóð- inni áskotnast? Von er að menn spyrji, því að deginum Ijósara er, að hin mikla aukning heild- artekna þjóðarinnar, sem dæmv var nefnt um hér að framan, kemur ekki fram sem kjarabót alþýðu. Um það er að vísu deilt, hvort kaupmáttur launa hafi aukizt eða minnkað að undan- förnu. Stjómarsinnar birta kaupmátt timakaupsins til sann indamerkis um bætta afkomu, en gæta þess þó vendilega að minnast ekki á loforðin um, að vmnutímastytting og lenging or lofs kæmd til viðbótar þeím kjarabótum, sem heitið var. En myndin lítur auðvitað allt öðru visi út, ef t.d. er miðað við dag- vinnukaup hverrar viku i stað þess ,að deila vikukaupinu nið- ur á færri stundir en áður var gert. Annars er sannleikurinn sá, að hver og einn metur það fyrir sig, hvort kjör hams hafi batnað eða rýrnað, eða þá hve mifclu sá munurinn nemur, hvað sem opinberar tölur segja. Og hætt er því við þvi, að mörgum manninum finnist hann komast ver af nú en t.d. fyrir hálfu ári, ef miðað er við sama vinnu- framlag nú og þá. Hitt er svo annað mál, að geysimikil eftir- spurn er eftir vinnuafli og flest ir afla sér verulegra tekna með mikilli yfirvinnu. Þess vegna er mikið fé i umferð og vissulega er mikið framkvæmt, þótt iangt sé frá að framkvæmdaaukning sé í neinu samræmi við hina gífur- legu aukningu þjóðartekraa. Á sumum sviðum er raunar um samdrátt að ræða, þvi að ríkis- valdið neyðist til að skera nið ur opinberar framkvæmdir, þrátt fyrir mikla og vaxandi skattheimtu. Og nú er komið í ljós skv. opinberum skýrslum, að hagvöxturinn er minni, mitt í góðærinu en hann var áður en stefnu núverandi ríkisistjórnar tók að gæta! Einkenni óðaverðbólgu Málsvarar ríkisstjórnarinnar guma af þvi, að mikið sé fram- kvæmt og vi'lja eigna sér það. Þeir viðurkenna að vísu, að all- ir framkvæmdasjóðir séu þurr ausnrr og skuldahalinn skipti jafnvel milljörðum. En lítið á bjartsýnina, segja þeir, allir vilja framkvæma og það scm fyrst. Og þótt við höfum nú svikið síðasta loforðið, þebta um íækk- un vaxtanna, með þvi að stór- hækka þá, er ekkert lát á ásókn í framkvæmdafé. En er þetta vottur um heil- brigt efnatagsástand éða sér- staka bjartsýni manna? Það er a.m.k. ekki vottur um trú á traust stjórnarfar eða festu í efnahagsmálum. Sannleikurinn er sá, að alliir, sem vettlingi geta valdið, vilja ráðstafa fjármunum sínum eins fljótt og kostur er. Menn kepp ast við að koma peningum sínum í „grjót“ eða aðra fasta fjár- muni, þvi að þeir sjá þá elia bremna upp í bádi óðaverðbólgu. Fasteignasalar fullyrða, að söluverð ibúðarhúsnæðis á Reykjavikursvæðinu hafi hvorki meira né minna en tvö- faldazt i valdatíð núverandi rik- iisstjórnar. Og húsnæðiskostn- aður fjölmargra fjölisikyldna er nú þungbærari en áður hef- ur þekkzt. Þá er þess að gæta, að af- koma flestra iðnaðar- og þjón- ustufyrirtækja versnar nú hröðum skrefum, og mörg draga þau saman seglin. Hins vegar bjargar hið háa útflutningsverð lag sjávarútveginum, hve lengi sem það helzt nú. Þegar málin eru skoðuð í heild, blasir þess vegna við upplausn og stjórnileyisi, sem engin dæmi eru til um áðuir. Magnús Kjartansson, iðnaðar- ráðherra, lýsti því átakanlega á Alþimgi í desember s.l., að slíkt upplausnarástand og stöðugar gengiisífelliingar væru megin und irrót ístöðuleysiis manna, af brotahneigðar og rófleysis. Sjáilf sagt hefur hann nokkuð tiil sins máls, en öriögin eru kaldhæð- in. Hann ber nú ábyrgð á þvi, að einmitt það ástand, sem hann varaði við með svo eftirminni- legum hætti, magnast með hverri vikunni sem líður, og engum dettur víst lengur Á Miðbakka þegar Margrét 2. og Henrik i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.