Morgunblaðið - 08.07.1973, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLl 1973
21
Gisli Guðmundsson:
Ferðaspjall
Flókalundur. — Gististaðurinn hefur verið stækkaður mikið
síðan þessi mynd var tekin.
BLÁSKÓGASKOKK nefnist
eitt merkilegt fyrirtæki, er
skaut upp koliinum fyrir ári
síðan, sjálfsaigt mjög heilsu-
samlegt, ekki sízt fyrir þá,
sem yfirleitt flytja skrokkinn
á sér á milli staða á 4 hjólum
og svæla pakka af sígarettum
á dag. Er ég las fyrst um þetta
hástemmdar greinar fannst
mér, að þarna hefðu einhverjir
afreksmenn heldur betur tekið
til hendinni, fært stórt lands-
svæði úr stað um eina 30—40
km. Bláskógar eru nefnilega
í alveg öfuga átt frá Þingvöll-
urn, maður ekur uim þá, þá far
in er Uxahryggjaleið. Nú átti
ég fastlega von á því, að ör-
nefinaspekingar okkar létu til
sín taka og leiðréttu þessa
firru en svo fór ekki, þeir hafa
þaigað þunnu_ hljóði. Meira að
segja hann Árni Böðvarsson,
sem eitt sinn notaði útvarps-
þáttinn Daglegt mál til sliks,
hefur þagað.
Nú um daginn fór þetta
fjöldaskokk fram í annað sinn
með miklum lúðrablæstri i
blöðum og fjálglegum lýsing-
um eftir á. I Morgunblaðinu
þann 3. 7. las ég þessa klausu:
„ . . . . mikil var gfleði manna
er komið var að völlunum fyr
ir ofan Laugarvatn — stöldr-
uðu ýmsir nokkuð lengi við í
þessari Bláskógavin." Þarna
skilst mér, að átt sé við Laug-
arvatnsvelli, sem eru um 13
km frá Laugarvatni og þaðan
eru einir 35 km til þess svæð-
is, er nefnist Bláskógar. Geri
aðrir betur. Það ættu vissu-
lega ekki að verða nein vand-
ræði að breyta' um nafm á
þessu skokki, mætti kenma
það við Gjábakka, Reyðar-
barm eða Laugarvatn, hvar
Iþróttakennaraskólinn á
heima. Svo mætti einnig nefna
það Káraskokk, því að fram-
an við Reyðarbarm er Kára-
hella hvar hann Kárii Sölmumd
arson sat fyrir Brennu-Flosa
er hann reið frá hinu sögu-
lega þinghaldi. Mikill garpur
var Kári 6g því ekki leiðum að
líkjast.
Gistiliúsiö Flókaltindur í
Vatnsfirði á Barðaströnd er
að mínu áliti eln þarfasta fram
kvæmd í hótelmálum okkar á
umdanförnum árum, því að
það bætir úr mjög brýnni þörf
í þessum landshluta. Hóteldð
býður nú upp á ágæta gist-
ingu fyrir allt að 40 manns og
Barðstrendingafélagið á heið-
ur og þakkir skilið fyrir að
hafa staðið fyrir þessari þörfu
framkvæmd. Það átthagafélag
byggði einnig Bjarkarlund í
Reykhólasveit á sínum tima.
Vatnsfjörðurinn er fagur, eims
og Flóka fannst forðum, oig
hann laðar til sín ferðafólk til
hvíldar og hressingar. Auk
þess býður hann upp á ýmis-
legt forvitnilegt, einkanlega
fyrir þá, sem enmþá kunna og
vilja nota fætuma til að færa
sig úr stað. út með firðinum
að austan er Hörgsnes, sér-
kenmilega fagurt landsvæði,
sem komið hefur til tals að
friðlýsa. Vestan fjarðarins í
nágrenni Brjánslækjar eru
merktir steimgervingar S
surtarbrandslögum og þar eru
éinnig Flókatóptir, ógreinileg-
ar rústir, taldar leifarnar af
skála Hrafna-Flóka. Inn af
firðinum er mikill dalur með
veiðisælu vatni og víðlendum
birkiskógi, skreyttum reyni-
trjám á dreif. Vestar er Penn-
imgsdalur (Pennudalur), afar
djúpur og viða fagurlega gró-
inn. Þeim, sem þykir gaman
að príla upp á fjöll og horfa
yfir landið fríða vil ég benda
á Lónfell, það er hægt að aka
upp á fjallgarðinn og þaðan
er gangam á fellið auðveld og
virði margra svitadropa í
fögru veðri.
Nú orðið aka flestir um í
eigin bílum og fyrir þá er
Flókalundur tilvalin bæki-
stöð tiil lengri eða skemmri
ökuferða um Vestfirði, þvi að
hamn stendur þarna á kross-
götum. Þá er fyrst að nefna
ferð út á Bjargtanga (100
km), sú leið er nú fær öllum
bílum. Látrabjarg mun vera
mesti bergveggur i heimi og
fuglalifið þar er heillandi. Sé
farin gönguferð meðfram
brúninni er betra að stíga til
jarðar með gát, því að lund-
inn á þarna mikil völumdar-
hús, neðanjarðar. Jeppafær
leið er niður í Keflavík við
austurenda bjargsins og vert
er að benda á hliðarveg hjá
bænum Hvalskeri suður á
Rauðasand, eitt fegursta
byggðarlag okkar fagra lands.
Önnur dagsferð er til Arn-
arfjarðar, bezt að aka þá fyrst
til Patreksfjarðar og um
Mikladal til Tálknafjarðar.
Hann er vinalegur og gróður-
sæll og þar er hægt að fara í
sundlaug, einnig skemmtileg-
an sundpoll. Svo liggur leiðin
yfir fjallveginn Hálfdán (mik-
ill útsýnisstaður) til Bíldu-
dals við Arnarfjörð (rismest-
ur af öllum Vestfjörðum) og
þaðan út Ketildali sumnan
fjarðarins, alla leið að Selár-
dal. Þessi leið er seinfarin en
fær öllum bílum. Til baka er
síðan haldið frá Bíldudal inn
um Suðurfirði, upp Nordal og
á Vestfjarðaveg rétt norðam
við Helluskarð. Nyrztur af
Suðurfjörðum er Geirþjófs-
fjörður, hann er afar fagur og
þar er Einhamar hvar Gísli
Súrsson var veginn. Þangað
er ekki akfært.
Vegurinn frá Flókalundi til
Isafjarðar (140 km) er nú orð
inn það góður að ferðin tekur
ekki nema 4—5 stundir og er
þvi hægt að fara fram og til
baka á einum degi. Á Isafirði
er gisting á Hótel Mánakaffi
og eimnig Hjálpræðishernum
en lítið er um fyrirgreiðslu
fyrir ferðamenn í kauptúnum-
um á fjörðunum. Á Þ ngeyri
mun þó vera frambærilegur
veitingastaður og ég vil vekja
athygli á vegi, sem liggur upp
á Sandfell fyrir ofan það
kauptún, og er þaðan foriáta
útsýni yfir h'mn fagra Dýra-
fjörð.
Þeim ferðamönnum, sem
hafa i huga að heimsækja
Vestfirði, ráðlegig ég eindreg-
ið að aka fyrst til Stykkis-
hólms en þar er mjög vinsælt
sumarhótel. Hringferð um
Jökul er sjálfsögð ef tími er
tliil og síðan að fara með
flóabátnum Baldri til Brjáns-
lækjar.
Heimferðin frá Vestfjörðum
yrði þá frá Flókalundi austur
um fjöll og firði til Bjarkar-
lundar og þaðan suður Dali.
Úr Dölum suður er nú komin
mý og foryitnileg leið, ekið
vestur Skógaströnd og suður
um Heydal til Hniappadals og
Mýra. Þessi leið er um 25 km
lengri en sú venjulega suður
Bröttubrekku og mun ég gera
henni nánari sk!l síðar.
i ■ ■ i ■ ■ n ■irnrf ■■■■■■■■■■■
í KVIKMYNDA
HÚSUNUM
IHIHHlHm
Laugarásbíó:
„ÞÚSUND DAGAR
ÖNNU BOLEYN41
Leikstjóri: Charles Jarrott
Handrit: Bridget Boland
& John Hale
Tónlist:
George Delerue
Kvikmyndataka:
Arthur Ibbetkon, B.S.C.
Framleiðandi: Hal B. Wallis
Hér segir af hjúskap þeirra
Hiin.rilks VIII og Önmu Boleym..
Stjörnubíó:
„EASY RIDER44
Handrit: Peter Fonda,
Dennis Hopper, Terry
Southern
Myndataka: Laszlo Kovaks
Framleiðandi: Peter Fonda
Leikstjóri: Dennis Hopper
Nýja bíó:
„SMAMORÐ44
Handrit: Jules Feffer
Myndataka: Gordon Willis
Tónlis: Fred Kam
Tveir ungir Bandaríkja-
ríkjamenn ferðast um landið
á mótorhjólum og eru drepn
ir af tveimur löggæzlumönn-
um, sem ekki lízt á útlit
þeirra.
Klipping: Howard Kuper-
man
Framlelðandi: Jack Brodsky
Leikstjóri: Alan Arkin
Patsy reynir að ná ástum
Alfreðs og vekja hann til lífs
ins, en leyniskytta drepur
haina. Síðar feitair Alfreð og
fjölskylda Patsiyar í fótspor
leyrn iskyttuinniar.
Steinunn Sig-
urðardóttir
★★ Margt er gott um önnu:
Góður leikur, eiinkum hjá
Burton og tónlistin Anthony
Quayle (Wolsey kardínáli). —
Litrík og falleg og tónlistin
frábær. Hins vegar er hún
nokkuð langdregin og skortir
áhrifamátt.
★★ Hinar mikLu vimisældir
Easy Rider stöfuðu fremur af
því að hún kom fram á hent-
u-gu augnabliki en af því að
hún væri frábærlega góð. —
Þetta er mynd eftir unga og
hressa stráka, krydduð fyrir-
taks poppmúsík. En það er
bara ekki nóg að vera un-gur
og hress. Jack Nicholson er
dásamlega skemmtilegur sem
George Hansen.
★★★ Mjög kvikindisleg
kvikmynd, spre-nighlægileg og
grátleg eins og vitleysingarnir
sem hún fjallar um. Lýsing-
arnar á þeim eru sterkasta
hliðin og leikstjóran-um má
óska til hamingju. Þótt Smá
morð eigi fylilsta rétt á sér
sem slik, verða þa-u í heild a-ð
teljast nokkuð yfirborðskennd.
Sæbjörn Valdimar
Valdimarsson Jörgensen
★★★ Ástamál þessa dæma I
lausa konungs ,gerast orðið all
hversdagsleg. En frábær leik
ur þeirra Burtons og Bujold,
ásamt snjöllu handriti, gera
myndina mjög svo áhugaverða
jafnvel eftirminnilega.