Morgunblaðið - 08.07.1973, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.07.1973, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JULl 1973 23 — Vísindamenn — í Kiel Framh. af bls. 10 ins við Island væri slæmt, m.a. af því að Grænlandsþorskurinn kæmi ekki lengur á miðin og yrði úr að bæta. En nú er að- eins rætt í skýrslunni um full- nýtimgu á stofninum við Island. — 1 sinum skýrslum fyrir ár- ið 1972 segja þeir að kúrfan yfir veiiðarnar sé stöðug og að þeir telji að fiskurimn sé ekki eins háður veiðisókn sem talið hafi verið, útskýrðu l’iffræðingarnir þrír. En þeir nefna ekki að fiski- skipin eru að verða afkastameiri og hlutfallistalan af smáfiskinum fer vaxandi i aflanum. í>ó að heildarveiðin sé svipuð, þá mætti kannski alit eins vel ná henni með hluta af fiskveiðiflotanum. f>að sem verið er að gera, er þvi ákaflega óhagkvæmt efna- hagslega. 1 upphafi þessamr greinar komu fram helztu atriðin, sem fram komu í samtalinu við líf- fræðingana um rök þeirra með málstað Islendiinga. — Við leggj um ekki fram neima vísindalega vinnu málinu til stuðnings, en getum gagnrýnt og lagt mat á það sem gert hefur verið ann- ars staðar, svo sem í skýrslum frá Hamborg, Alþjóðlegu haf- rannsóknastofnuninni, hjá Norð- ur-Atlantshafsnefndinni og í ís- lenzkum greinargerðum, sögðu þeir. Aðferðir okkar eru óbeinar, því við sjáum ekki sjálfir fisk- inn eða aðstæðurnar. En ef vís- indamenn biðu eftir síðustu úr- vinnslu allra gagna til að segja sitt álit, þá væru miðin orðin of- veidd, þegar loksins væri sannað að þau væru það. Margir þýzkir sjávarllffræðingar halda því fram, að eingöngu alþjóðlegar rannsóknaniðurstöður séu rétt- lætanlegar. Við erum ekki á sama máli, því a'llar alþjóðlegar rannsóknaniðurstöður hafa kom- ið of seint. Þýzkir vísindamenn hafa áður sagt, að slíkar aðferð- ir séu ekki nógu góðar, en þeg- ar þýzkir fiskveiðihagsmunir eiga i hlut, þá segja þeir að ekk- ert sé hægt að sanna i þessu xnáli. Og ungu vísindamenniirmir út- skýrðu hagsmumahlið málsins. I Þýzkalandi eru allar fiskveiðar og viðskipti með fisk í höndum þriggja til fjögurra stórfyrir- tækja: Unilever, Oetker, Jakobs og Pickenpack, sem til samans eiga 95 togara, og mynda með sér sölusambönd. Rök þessara fyrirtækja gegn útfærslu ís- lenzlcu fiskveiðilögsögunnar eru þau, að með henni verði Þýzka- land fyriir miklu tjóni. En þetta telja vísindamennirnir fjarstæðu. Það tjón, sem þýzkur fiskiðnað- ur hafi orðið fyrir, sé óháð út- færslu fiskveiðilandhelgiinnar víð Island í 50 mílur. Tjónið hafi orð ið vegna hagræðingar i iðnaðin- um og fisksölunni í Þýzkalandi sjálfu. — Við teljum, að við þurf um ekki á því að halda að veiða imnam 50 mílna linunnar við Is- land, en að Islendingar séu því háðir. Sumir okkar tóku upp þessa baráttu af því við teljum að við getum vel verið án þess, en íslendiingar ekki og höfum samúð með málstað íslendinga, sögðu þeir. ÍSLENDINGAR FÆRIR UM AÐ GÆTA FISKIMIÐANNA — Við teljum, að hvert land eigi að nýta sitt eigið landgrunn og fiskimn yfir því og við höf- um ekki rétt til að nýta land- grunn Islendmga. Það sama giild ir fyrir aðrar þjóðir, eins og Afríkuríkin og Suður-Ameriku- rítein. Sumir fiskifræðiingar hér segja að Islendingar geti ekki ftálnýtt fiskiimiðin sin. En því skyldum við hafa rétt til þess? Landgrunnið er hluti af landimu, og ef hægt er að leyfa öðrum þjóðum að veiða þar, þá ættu þær að greiða fyrir það. En fyrst og fremst á ekfci að ofnýta auðlindir sjávarins og verði ekki komið einhverri reglu á þá nýt- ingu fljótt, þá verða þær mjög ilila farnar á fáum árum. Þammig er nú komið, að sé fisk að finna einhvers staðar, þá kemur þang- að allur fliskveiðifloti heimsins, um leið og uppurimn er afli ann ars staðar. Og hafi land ekki rétt til að vernda fiskimiðin kringum sitt eigið land, þá getur það engann. AlCt of erfitt reynist og seinvirkt að gera það með al- þjóðlegum hætti. Og við teljum að Islendingar séu færir um að hafa stjórn á verndun fiskimið- anna hjá sér, bæði gagnvart eig- in skipum og annarra þjóða. — Þið getið ekki beðið eftir aiþjóðaráðstefnu til að ákvarða málið, sögðu þeir félagar enn- fremur. — Viða um heim hafa miðin verið algerlega hreinsuð upp, þegar séð varð fyrir að ein- hvern tíma teæmi að því alð kvóta kerfi yrði á komið. Þanniig fór t.d. í Barentshafi, að Sovétflot- inn mokaði upp eims miklu af fiski og hann gat síðustr. 2 árin, til að fá sem mest út úr kvóta- kerfinu. Það er hægt að eyði- leggja fiskstofnana mjög fljótt. — Við erum þvi sem sagt mót- fallnir að senda fiskiskip okkar inn fyrir 50 mílna fiskveiðimörk ykkar. Og við láum ekki íslenzku varðskipunum, þó að þau reyni að verja Islenzku fiskveiðiland- helgima, sögðu þessir þrír ungu, þýzku sjávarlíffræði'igar. Stuðningur þessara vísinda- mamma við hafraninsóknastofnun iina í Kiel, er okkur íslendingum mikilvægur, svo og öll fáanleg kynning á okkar málstað. Þar mun nú siðan í haust hafa stað- ið opið boð til íslenzks vísinda- manns um að halda fyrirlestur í Kiel. Allt slíkt er málstaðnum mikilvægara en svo að það megi undir höfuð leggjast. — E. Pá. öllum þeim sem minntust mín á 80 ára afmæíinu 22. 6. sendi ég hjartans þakkir. — Lifið heil. Jóhanna Jóhannsdóttir. Sérhœð Til solu 5 ára fm sérhæð i Kópavogi ásamt 50 fm inn byggðum bílskúr. Höfum einnig til sölu góðar íbúðir við Grettisgötu og Fífu- hvammsveg, Hraunbæ og fleira. FASTEIGIMAMIÐSTÖÐIN, Hafnirstræti 11, sími 20424 og 14120. Norðurá VEIÐIFÉLAG NORÐURÁR í Borgarfirði auglýsir hér með eftir tilboðum í veiðirétt í Norðurá frá og með 1974. Tilboð skulu hafa borizt á skrifstofu Jónasar A. Aðalsteinssonar, hrl., Laufásvegi 12 í Reykjavík fyrir kl. 17.00 hinn 1. ágúst n.k. og munu þau til- boð, sem berast, opnuð þar kl. 17.15 sama dag. Allar nánari upplýsingar, þar á meðal um fyrir- hugaðan leigutíma, veitir undirritaður. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. F. h. Veiðifélags Norðurár, JÓNAS A. AÐALSTEINSSON, HRL., Laufásvegi 12. Reykjavík. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður Staða YFIRHJÚKRUNARKONU við KLEPPSPÍTAL- ANN er laus til umsóknar og veitir frá 1. septem- ber n.k. Umsóknum, er greini aldur, menntun og fyrri störf, ber að senda stjórnarnefnd ríkisspítalanna fyrir 15. ágúst n.k. Hjúkrunarkonur óskast í föst störf og í afleysingar. Hluti úr starfi kemur til greina. Nánari upplýsingar veitir forstöðukonan, sími 38140. Reykjavík 6. júlí 1973. SKRIFSTOFA R í KISSPÍTALANN A EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 11765 VOLVO-eigendur athugið Verkstæði okkar að Suðurlandsbraut 16 verður lokað vegna sumarleyfa frá 9. júlí til 6. ágúst að báðum dögum meðtöldum. Við viljum því benda yður á umboðsverkstæði okk- ar yfir þetta tímabil. Sölumenn Við viljum ráða tvo sölumenn i vefnaðarvöru nú þegar eða síðar. Vinsamlega hafið samband við starfsmannastjóra. Starfsmannahald $ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA Skntt og útsvnrsskrnr Reykjanesumdæmis drið 1973 Skatt- og útsvarsskrár allra sveitarfélaga í Reykjanesumdæmi °g Keflavíkurflugvallar fyrir árið 1973 liggja frammi frá 10. júlí til 23. júlí að báðum dögum meðtöldum á eftirgreindum stöðum: I K^PAVOGI: I Félagsheimili Kópavogs á II. hæð. alla virka daga frá kl- 10—12 f. h. og 13—16 e. h., nema laugardaga. I HAFNARFIRÐI: A skattstofu Reykjanesumdæmis frá kl. 10—16 alla virka daga, nema laugardaga. I KEFLAVlK: Hjá „Jám og Skip" við Víkurbraut. A KEFLAVlKURFLUGVELLI: Hjá umboðsmanni skattstjóra. Guðmundi Gunnlaugssyni, á skrifstofu Flugmálastjórnar. I HREPPUM: Hjá umboðsmönnum skattstjóra. I skránum eru eftirtalin gjöld: 1. Tekjuskattur. 2. Eignaskattur með viðlagagjatdi. 3. Slysatryggingagjald v/heimilisstarfa. 4. Slysatryggingargjald atvinnurekenda. 5. Ufeyristryggingagjald atvinnurekenda 6. Atvinnuleysistryggingariðgjald. 7. Iðnlánasjóðsgjald. 8. Iðnaðargjald. 9. Launaskattur (ógreiddur). 10. Útsvör. 11. Viðlagagjald 1% af útsvarsskyldum tekium. 12. Aðstöðugjöld, þar sem þau eru álögð. 13. Viðlagagjald af aðstöðugjaldsstofni. I skránum eru einnig sóknargjöld og kirkjugarðsgjöld þeirra sókna, sem þess hafa óskað, en þessi gjöld eru ekki álögð af skattstjóra. I tekju- og eignarskatti er innifalið 1 % álag til Byggingarsjóðs ríkisins. i fjárhæð álagðs eignarskatts, sem nemur kr. 439 eða hærri upphæð, er innifalíi viðlagagjald, sem nemur 22,9% fjárhæðar álagðs eignarskatts. Kærufrestur vegna ofanritaðra gjalda undir tölulið 1—13 er til loka dagsíns 23. iúlí 1973. Kærur skulu vera skriflegar og sendast til Skattsto'u Reykjanesumdæmis í Hafnarfirði eða umboðsmanns í heimasveit. Skrár um álagðan söluskatt í Reykjanesumdæmi 1973 liggja ennfremur frammi á skattstofunni. Hafnarfirði 7. júlí 1973. SKATTSTJÓRINN í REYJANESUMOÆMI.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.