Morgunblaðið - 18.07.1973, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MiÐVIKUDAGUR 18. JULl 1973
Fimleikafólk
í fögru veðri
á Þingvöllum
EBLENDU þátttakcndurnir í
norrænu fimleikahátíðinni sem
hér hafa dvaiið að undanförnu
brufíðu sér á mánudag'smorg'un
inn austur á Þingvöll. Tilgang-
ur ferðarinnar var að kynna
fimleikafólkinu Þingvelli, sem
þau höfðu heyrt svo margt um,
en aðeins nokkur höfðu áður
kynnzt af eigin raun. Þegar
lagt var af stað var dumbungs
veður í Reykjavík, en er austar
dró og Þingvellir nálguðust
létti til smátt og smátt og
er á Þingvöll var komið skein
sólin glatt í heiði.
Numið var staðar fyrir ofan
Almannagjá og síðan gengið
niður gjána. Allir lýstu hrifn-
ingu sinni á sögustaðnum
fræga og töluðu um hve himinn
inn væri blár og loftið tært. Á
Lögbergi kynnti séra Eirikur
Eiríksson, þjóðgarðsvörður
íþróttafólkinu sögu Þingvalla
og staðháttu. Alis hlýddu rúm-
lega 700 manns á orð Eiríks og
var gerður góður rómur að
ræðu hans.
Það var létt yfir fimleika-
fólkinu og undir forystu Norð-
mannanna var sungið við raust
áður en hópurinn hélt til lang-
ferðabílanna sem biðu við Val-
höll.
Monica Beckmann er með
námskeið hér á landi og sækja
það rúmlega 200 manns á aldr-
inum 14—65 ára, karlar og kon
ur frá öllum Norðurlöndunum.
Monica sagðist vera mjög
ánægð með dvölina hér á landi
og það væri dásamlegt að anda
að sér hressandi heiðaloftinu
og skoða stórbrotna, en óspjall-
aða náttúruna. Monica sagði að
aðstaða þátttakenda væri að-
standendum til sóma.
Fyrir ofan Almannagjá hitt-
um við sænskar stúlkur úr Ing-
Maries jazz-hópnum og létu
þær vel af dvölinni hér á landi.
Marie Svensson og Ilelena Rudenstam frá Huskvarna í Sví-
þjóð.
Ásgeir Guðmundsson (t. v.) formaður Fimieikasambands ís-
lands, og Bjarne Orten, formaður Fimleikasambands Norður-
landa.
Moniea Beckmann lengst til hægri með hiuta þess hóps sem hún leiðbeinir á námskeiðinu.
Ein fimleikastúlknanna skoðar
umhverfið sem fimleikafólkið
hreifst svo af.
Þær sögðust hafa farið í skoð-
unarferðir um Reykjavík og
borgin hefði bæði verið stærri
og fallegri en þær bjuggust
við, en mest fannst þeim þó
koma til hreinleikans sem ein-
kenndi landið.
Fjörug kvöldvaka í
Laugardalshöllinni
ÞAÐ var feikilega hresst fólk
á kvöldvöku Fimleikasam-
bands íslands i Laugardalshöll
inni í fyrrakvöld. Um 700 þátt
takendur í fimleikahátíðinni
skemmtu sér og öðrum með
leikjum, söng og dansi.
Kvöldvakan hófst með því
að Sigurður Guðmundsson,
skólastjóri Leirárskólá
kynnti kvöldvökuna, er. reynd
ar voru dagskráratriði spunn-
in upp jafnharðan.
Fyrst tóku Danir sig til og
kenndu öllium hópnum í
snatri nokkra líflega dansa
frá Rússlandi, Jamaica og víð
ar, þá stjórnuðu íslendingarn-
ir fjöldasöng, ýmsir aðrir
tóku tiil við skemmtiatriði og
meðal annars söng ung stúika,
Linda Gísladóttir og lék undir
á gitar. Að lokum var stiginn
dans við tónlist af segulbandi.
Kvöldvakan var mjög
skemmtileg og þótt ekki væri
fie'ra fólk í húsinu, virtist
alls ekki vanta fólk, því allir
tóku þátt í fjörinu af lifi og
sál. Spurning, hvort ekki ætti
að hafa oftajr slíkar kvöldvök-
ur i hinum glæsilegu húsa-
kynnum Laugardalshallarinn-
ar.
Bjame Orten formaður norr-
æna fimleikasambandsins minnt
ist sérstaklega á hið góða fyrir-
komulag í sambandi við
„Gymn.astique Norden“. Sagði
Orten að skipulagið í sambandi
við sýningamar væri hið bezta
í hvivetna. Orten lagði áherzlu
á hve þægilegt það væri fyrir
þátttakendur að geta á sama
stað æft, borðað, sýnt og kom-
ið saman, en það hafa þátttak-
endur getað gert í Laugardals-
höllinni.
Að lokum sagði Orten að von
andi myndi þessi sýning koma
af stað öflugri hreyfingu fim-
leikaiðkenda á Islandi og von-
andi yrðu Islendingar virkari í
norrænu fimleikastarfi i fram-
tíðimni
Þrjár fimlcikakonur af eldri kynsióðinni virða fyrir sér hraun-
mola við Valhöll.
Ljósmyndir tók
Brynjólfur Heig-ason.
Sænskar stúlkur úr Ing-Maries jazz hópnum, myndin er tekin í sumarblíðunni á Þingvöllum á
mánudaginn.