Morgunblaðið - 03.08.1973, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.08.1973, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ — FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1973 Úr Eyjafirði: Bann við dragnótaveiðum mun valda miklu f járhagstjóni Ekki alls fyrir löng'U hrldu nokkrir aðilar fund á Akur- eyri til að mótmæla banni, sem sett hefur verið á drag- nótaveiðar fyrir Norðurlandi. Samþykkti fundurinn ályktun |>ar sem mótmælt var þessu banni sjávarútvegsráðu- neytisins, og bent á fjárhags- legt tjón, sem yfir útgerðar- mönnum og sjómönnum vofir vegna þessara fyrirvaralausu aðgerða ráðuneytisins. Þessi fundur var boðaður í nafni Angantýs Jóhannssonar á Hauganesi, en hann er erind- reki Fiskiféiags ísiands á Norðurlandi. Blm. Mbl. hitti Angantý að máli sl. sunnudag og sagði hann þá að samkvæmt auglýs- ingu sjávarútvegsráðuneytis- ins 6. júnl sl, hefðu fcakmark- aðar dagnótaveiðar verið leyfðar í Þistiilfirði, Skagafirði o. fl. stöðum. Þann 16. júní var svo gefin út önnur reglugerð þar sem dagnótaveiðar á svæðinu frá Horni að Langa- nesi voru banmaðar með öllu. „Þetta kemur illa við menn,“ sagði Angantýr, „menn voru búnir að leggja í hundruð þús- unda króna kostnað, en lögin leyfa þetta. Ég tel að þetta muni valda mönnum miklu tjóni, en hvað miklu er ekki enn komið í ljós. Það er vilji hjá ráðuneytinu að koma til móts við okkur en það er við ramman reip að draga í Skaga firði, þar sem sumir eru á móti dragnótaveiðum." En eru dragnótaveiðar ekki hættúlegar smáfiski ? „Það vantar ekki sögusagn- irnar,“ svaraði Angantýr. „Ég er sjálfur gamall sjómaður og veit þess vegna að allar veiðar drepa smáf'sk. Auk þess er auðvelt að hafa gott eftirlit með dragnótaveiðum. ,Ég er viss um að trollið, sem hér er fyrir utan drepur miklu meira og er mun hættulegra. Ég get ekki séð að miklar breytingar hafi orðið á afla. Mér virðist hann áþekkur því sem verið hefur, nema hvað fiskur hér í firðinum hefur verið óvenj u stór.“ Hauganes er þorp á Áirskógs strönd við Eyjafjörð og sagði Angantýr að þar byggju 120 manns. „Fyrstu húsin hérna voru Angantýr Jóhannsson. byggð árið 1934, reyndar var búið hér eitthvað áður en það var ekki fyrr en eftir jarð- skjálftann ’34, sem skriður kemst á uppbyggingu hér. íbúafjöldi hefur staðið mikið til í stað undanfarin ár. Héðan eru gerðir út um 4 bátar, 13-24 tonn auk nokkuro smábáta. Þeir stunda netaveið ar á veturna og ýmiist nóta- veiði eða handfæraveiðar á sumrin og haustin. Á vorin hef ur svo grásleppuveiði komið imn i þetta. Þetta bann við dragnótaveið- um breytir þess vegna íi'tlu fyrif okkur hér á Hauganesi, þó að mikill fiskur hafi verið sóttur í Skagafjörð, Þistilfjörð og að Langanesi, en þar hafa veiðar aðallega verið stund- aðar með nót. Séð yfir höfnina á Hauganesi. „Að vinna Stutí spjall við tvo starfsmenn Ölgerðarinnar Egils Skallagríms- sonar, sem hafa þar lengstan starfsaldur í ÖLGERÐINNI Agli Skalla- grímssyni eru tveir starfs- menn, sem hafa unnið þar mun lengur en aðrir. Það eru Sigurður Sveinsson, verkstjóri, sem byrjaði þar 1930, og Steinunn Ingimund- ardóttir, sem byrjaði 1927. Morgimblaðið hafði tal af þeim tveimur um starfið i verksmiðjunni eftir öll þessi ár. Þegar okkur bar að, var Sigurður önnum kafimn og gaf sér -aðeins smátíma til að rabba við okkur, enda margir nýgræðingar í verk- smiðj uinni þessa dagana, sem þairf að kenma hin ýmsu handbrögð. Sigurður sagði, að þegar hann hefði byrjað, hefðd ölgerðin verið hálfgert heimiilisiðnaðarfyrirtæki, því vélalkositur var fátæklegur, flest verkin handummim að mestu. — Það voru ekiki mema um 200—300 fUk'kur, sem voru tappaðar á dag. Bragðefnin I gosdrykk'na voru mæld í máluim og þe’im síðan hellt í flöskumar. Kolsýruvéliin vair handsnúin og tappavélin fótknúLn. Síðan þróaðist þetta simám saman með betri vélum og rýmra húsnæði og í dag eru tappaðar 8000 gos- drykkjaflöskur á klukku- stund en 7000 fl. á klukku- stund af öli Þótt unmiið sé við gosdryklkjagerðina 16 klist. á sólarhring, þá er hvergi n.ærr.i hægt að anna efitirspum.iinini. — Hvenær hljóp svona mikill vöxtur í starfsemina? — Það var í seinmi heims- styrjöldinní. Það voru ótta- lega daufir tímar á kreppu- árunum og árunum þar á eftir, en í styrjöldimná lag- aðist þefta og 1944 fluttum við í þessi húsakynni og höfum síðan þá, skipt um vélakost þrisvar smnum. — Ekki hefurðu verið verkstjóri öll þessl áir, Sig- urður? — Ég tók fljótlega við verkstjórn eftir að ég byrj- aði hér, en var fyrst ráðiron til snú'ninga og þá var kaup- ið um 160 krónur á mánuði. Eftir að ég varð verkstjóri 24 ára og vann ýmis skrif- stofusitörf, sem til féllu. Við það var ég í fimm ár. Þá varð ég gjaldkeri og hef verið það síðan, en aðrír reikna út launin núna, þetta er orðið svo viðamikið, allt saman. Þær tölur, sem ég átti áður við í tuigurn, á ég í dag viö í milljónum. Breyt- ingarnar þass'i ár, sem ég hef verið hér hafa verið svo gíf- urlegar, að ég hefði aldrei látið mér detta anmað eins í hug á fyratu áruinum. Hvað hefur þér svo fund- izt skiemimtiilegast eftir öll þessi ár? — Það að geta stundað mína atvinn.u og vinna með góðu fólki, en samistarfsfólk mitt hefur venið með mesitu ágætum frá því að ég mam fyrsit eftir. — Ég hef ekki í hyggju að hætta hérna á mieðan heilsan endist, og vona að hún endist sem lengst. Að vinma er mér allt. Að þessu mæltu kvöddum við, og óskuðum Sigurðii og Steiinjunni allira heilita í því starfi, sem þau eága enn ó- lokið. Steinunn Ing-imnndardóttir, gjaldkeri. Ljósm. Mbl.: Kr. Ben. hækkaði ég brátt upp í 200 krónur á roánuði og þótti bara gott. — Ég byrjaði hérna fiimimtán ára gamall og nú er ég orðinn of gam- all tiil að hætta. Siigurður hafði ekki meiri tíma handa okkur, svo við snerum okkur að Steinunni Ingimunidairdóttur, en hún hefur uninið í ölgerðin'ni síð- an 1927. — Steinunn, segðu oíkkur svolítið frá fyrstu árunum þínum hérna. — Ég fluttist hingað aust- an úr Ranigárvalliasýslu um sumarið 1927 og byrjaði starf miitt hér um haustið. Fjöls'kylda mín kom svo eklki fyrr en 1930. Ég var Sigurður Sveinsson, verkstjóri. er mér allt“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.