Morgunblaðið - 03.08.1973, Síða 16

Morgunblaðið - 03.08.1973, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ — FÖSTUÐAGUR 3. ÁGUST 1973 JllotSPUMMaMfr Otgefandi Framkvaemdastjóri Ritstjórar RitstjórnarfuHtrúi Fréttastjórl Auglýsingastjóri Ritstjóri og afgreiðsla Auglýsingar Askriftargjald 300,00 kr. I lausasðlu hf. Árvakur, Reykjavik. Haraldur Sveinsson. Matthias Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Arni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sfmi 10-100. Aðalstræti 6, simi 22-4-80. á mánuði innanlands. 18,00 kr. eintakið. jóðviljinn er sorprit. Þjóð- viljinn er viðurstyggi- legasta máigagn, sem nokkur ríkisstjórn í lýð- ræðislandi þarf að styðj- ast við. Þeir, sem þurfa að skrifast á við Þjóð- viljann vegna dægurbarátt- unnar, gera sér æ betur grein fyrir því, að gjörsam- lega ómögulegt er að rök- ræða málefnalega við þetta kommúniska málgagn á ís- landi. Forystugreinar blaðs- ins í gær, ef forystugreinar skyldi kalla, bera þessu glöggt vitni. Önnur heitir „Árás á þjóðareiningu“ hin „Grikkland og Morgunblað- ið“. Hin fyrri fjallar um mál- efnalegar rökræðúr ritstjóra Vísis um landhelgismálið, hin síðari um málefnalegar rök- ræður Morgunblaðsins um ástandið í Grikklandi. Ekk- ert af því, sem Þjóðviljinn segir, er svaravert. Allt eru það upphrópanir og haturs- kennd, pólitísk froða, sem ekkert sýnir annað en þann hryllilega pólitíska sjúkdóm, sem skriffinnar Þjóðviljans eru haldnir af. Ritstjóri Vísis ræddi með rökum og málefnalega um þá þróun, sem verið hefur und- anfarna mánuði í landhelgis- málum og benti á, eins og allir þeir sem vilja horfa fram en ekki aftur, að Is- lendingar gætu nú hætt að þrasa um 50 mílurnar, mark- miðið væri 200 mílur. Hvers vegna getur Þjóðviljinn ekki tekið svo einföldum og sjálf- sögðum málflutningi? Hvers vegna jafngildir ósk um 200 mílna fiskveiðilögsögu rofi á þjóðareiningu? Vegna þess að Þjóðviljinn og aðstandend ur hans óttast að einbeiting íslendinga að 200 mílna fisk- veiðilögsögu mundi eyði- leggja 50 mílna víghreiðrið, sem kommúnistar ætluðu að nota til að skjóta íslandi úr NATO. Auðvitað er þjóðar- eining, ef hún merkir þá eitthvað lengur, um 50 sjó- mílna fiskveiðilögsögu. En 50 mílurnar eru einungis áfangi. Eiríkur Kristófers- son, sú aldna kempa, lét svip- aðar skoðanir í ljós og Vís- ir, og raunar hafði Morgun- blaðið gert það áður. Þessi gamli skipherra, sem þekkir betur baráttu við Breta af eigin raun en ráuðskjöldóttu blekbeljurnar á Þjóðviljan- um, vill að íslendingar beini athygli sinni að 200 mílun- um og skipi sér í flokk þeirra þjóða, sem vilja að 200 mílna fiskveiðilögsaga nái fram að ganga á næstu hafréttarráð- stefnu. Þá eigi íslendingar að stíga hið mikla skref, ná því takmarki, sem áfangar und- anfarinna ára hafa stefnt að. En hvaða kveðjur fær Vís- ir fyrir rétta og rökfasta af- SORPRIT stöðu sína? Þjóðviljinn æp- ir upp, að nú hafi „heyrzt rödd, sem beinlínis reynir að gera lítið úr þeim árangri, sem náðist, er íslendingar lýstu því yfir, að landhelgin væri 50 mílur,“ Auðvitað hefur engin slík rödd heyrzt. En það hafa heyrzt margar raddir um, að við þyrftum að endurskoða baráttuaðferðir og málatilbúnað okkar í land- helgismálinu, enda veiða Bretar og Vestur-Þjóðverjar ekki minni fisk á íslandsmið- um eftir að landhelgin var síðast færð út heldur en áð- ur. Síðan segir Þjóðviljinn, að þjóðareiningin hafi verið svo alger, að „99,9% þjóðar- innar hafi fylkt sér á bak við þá stefnu, sem mörkuð hefur verið og framkvæmd.“ Kosn- ingatölur í kommúnistaríkj- um og algengar prósentur sæluríkjanna eru gómsætar krásir í munni þeirra jórtur- dýra, sem Þjóðviljann skrifa. Þeir segja, að enginn hafi „dirfzt að láta í sér heyra — fyrr en nú síðustu dag- ana“. Þannig krefst aðalmál- gagn ríkisstjórnarinnar að unnið sé að lýðræði á íslandi. Enginn á að „dirfast að láta í sér heyra“! Síðan eru Vísi ekki vandaðar kveðjurnar. Hann er kallaður „heildsala- snepillinn“, sagt að hann sé „gjörsamlega forkastanleg- ur“, að hann sé „óþjóðlegur" og að hann láti sér „ekki nægja að kroppa í þjóðar- samstöðuna, hann ræðst á hana.“!! „Kroppið“ virðist vera ofarlega í undirmeðvit- und kommúnistablaðsins um þessar mundir. Allir vita, að Lúðvík Jósepsson hefur lýst yfir að „kroppið“ undir her- skipavemd sé skaðlaust. Hið lágkúrulega málgagn komm- únista — og því miður ís- lenzku ríkisstjórnarinnar — getur ekki hugsað sér neina aðra leið en þjóðareiningu um „kroppið“ eins og al- kunna er. Eiríkur Kristófersson benti á, hvort ekki væri ástæða til að ná mannsæmandi sam- komulagi við Breta og Vest- ur-Þjóðverja fyrir hafréttar- ráðstefnuna og láta slíkt sam- komulag gilda um nokkurra mánaða skeið. Og nú spyr Morgunblaðið Þjóðviljann: Er Eiríkur heildsalasnepill? Er hann gjörsamlega forkast- anlegur? Er Eiríkur Kristó- fersson óþjóðlegur? Hefur hann ráðizt á þjóðarsamstöð- una? Auðvitað mun Þjóðviljinn ekki. svara slíkum spurning- um af neinu rökrænu viti, en þeim mun fleiri og litríkari verða hatursfullar upphróp- anir blaðsins í garð Morgun- blaðsins, þegar það fer að jórtra gömlu tugguna. Ekki er ástæða til að fjalla í löngu máli um hin-n leiðara Þjóðviljans í gær um Grikk- land og Morgunblaðið. Morg- unblaðið hefur skrifað marga leiðara um Grikkland, alla málefnalega og alla harða gagnrýni á ólýðræðislega-r aðferðir grísku einræðis- stjórnarinnar. Baulurnar á Þjóðviljanum ættu ekki að taka sér í munn orðið lýð- ræði. Allir vita, hvers konar lýðræði það er, sem blaðið óskar íslenzku þjóðinni til handa, þegar fram líða stund ir. Og ef slík yrðu örlög ís- lenzku þjóðarinn-ar, mundi fjósið við Skólavörðustíg breytast í svínastíu, eins og Orwell hefur lýst með eftir- minnilegu-m hætti í bók sinni Féla-gi Napóleon. Niðurlagsorð fyrri ritstjórn argrein-ar Þjóðviljans eru „á hæsta trjóni heimskunnar" og er það við hæfi. Heitt sumar á Kýpur: Tekst Makaríosi að forð- ast átök við Grivas? Eftir Kenneth MacKenzie Á KÝPUR hefur nú undanfarið ver- ið hinn mesti ókyrrðartími. Og ekk- ert bendir til að hinar eitruðu upp- sprettur pólitísks bakt.jaldamakks, undirróðursstarfsemi og kiofnings séu að þorna upp. I sumar kann að dragra til úrslita í hinni langvinnu og harðskeyttu togstreitu milli Makar- íosar forseta, sem verður sextugur í ágúst, og hins 75 ára gamla keppi- nauts hans George Grivasar, hers- höfðingja. Aldursmunurinn skiptir miklu máli. Makaríos er nú á hátindi frægðar sinnar sem meistari við lausnir stjórn Makaríos forseti. mála- og sam-ningadeilna, og hefur sjaldan verið öruggari með s:-g. Grivas hefur hin-s vegar ekki langan tíma til stefnu. Hann þarf að bregða skjótt við, ef hann ætlar sér að gera „Mess- íasarköJlun" sina að veruleika, þ. e. að sameina Kýpur og Grikkland, en undanfamar vikur hefur mikið verið um það rætt á Kýpur, hvort Grivas væri sjúkur maður. Erfitt er að kom- ast að hvort eitthvað sé hæft í þessu. Örlagaríkastí atburðurinn í þessari deilu kann vel að verða prestastefna grisku rétttrúnaðarkirkjun-nar, sem nýverið var haldín sérstaklega í Nikósiu til þess að skera úr deiilu Makaríosar við þrjá biskupa sem styðja Grivas. Þessir þrir biskupar héldu í apríl sl. sína eigin presta- stefnu þar sem þeir ákváðu að lýsa yfi-r að þeir hefðu svipt Makaríos erkibiskupsembætti sínu. Makarios gerði sér lítið fyrir og visaði þessard yfirlýsingu á bug og undirbjó vand- lega stærri prestastefnu með æðstu mön-num grísku rétttrúnaðarkirkju-nn ar um ÖU Miðausturlönd, — þ. e. þeim sem fylgdu honum að málum. Eiins og við var búizt, studdi þessi prestastefna í Nikósiu Makaríos dyggilega. í fyrsta lági lýsti hún úr- skurð biskupanna þriggja markleysu eina, og í öðru lagi sVipti hún þá sjálfa kjóli og kalli. Ailt þetta er si-gur fyrir Makaríos, því seinni prestastefnan er líklegri til að verða alþjóðlega viðuikennd. REYNIR GRIVAS BYLTINGU? E-n megin spurningin í þessum býzantiska skollalei-k er hvemig Ma- karíos mun reyna að fylgja eftir úrskurði prestastefnunna-r í N-ikósiu. Brottreknu biskuparni-r þrír mun-u ekki meðtaka úrskurðinn, frekar en Makaríos meðtók þeirra úrskurð. Þeir vinn-a i nánu sambandi vi'ð Grivas; þessar kirkjulegu deilur eru bein-t framhald af hin-um pólitisku deiium Makaríosar og Grivasar. Og biskup- arnir njóta góðrax vernd-ar neðan- jarðarhersveita Grivasar. Því mun Makaríos Mklega verða að reka þá að fuUu á brott með hervaldi, og það kynni að leiða til beinna átaka míUi herm-anna þessara tveggja óvina. 1 þvi ön-gþveiti sem þá myndi skapast kynni Grivas að reyna byltingu. Um þessa áhættu er Makaríosi kun-nugt. Á meðan biða eyjarskeggjar átekta. Spennan hefur aukizt við þær fre-gn- ir að Grivas ætti við veilkindi að stríða. Hitt er annað mál, að þeim sögum hefur einkum verið hampað í stuðningsblöðum Makairíosar, og það gæti verið bragð til þess að gera andstæðiingana óróiega, og — sem Grivas hershöfðingi. meiru máli skiptir, — til að fá Griv-as til að koma fram á sjónarsviðið, því um leið myndi han-n missa milkið aí frægðarljóma sínum sem ævintýra- legu-r skæruliðaforingi. Það er athyglisvert, að bæði sögu- sagnimar um veikind-i Grivasar og prestastefnan í Niikósíu komast á um leið og Makaríos sendir öryggislið sitt til höfuðs Eoka-neðanjarðarhreyf in-gu Grivasar. Bæði stuðningsmenin forsetans og margir hiutlausir áhorf- endur halda þvi fram að ha-nn hefði átt að gera það fyrir löngu; að hann hafi fuillan rétt til að brjóta á bak aftu-r starfsemi ólöglegrar neðanjairð- ai'hreyfi-ngar sem leiðtogá löglega kosinnar rikisstjórnar. í kjölfar óeirðanna í júnii voru margir af stuðningsmönnum Grivas- Franihaid á bls. 14. i <! .—\ ) { V\ v forum world features

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.