Morgunblaðið - 04.08.1973, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 04.08.1973, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1973 Úr Eyjafirdi; Gott að búa á Björgum Rabbað við Björn Gestsson bónda á Björgum í Hörgárdal mmm Hjónin Sigríður Magni'jsílóttir og-Björn Gestsson á Björgum í Hörgárdal. Já, mér finnst gott að búa hérna, sagði Björn Gests- son, bóndi um bæ sinn að Björg- um í Hörgárdal. Björg standa við vestur bakka Hörgár, skammt þar frá sem áin fellur í Eyjafjörð, við Gáseyri. Björn segist vera Svarfdælingur, þó hann sé fæddur í Ólafsfirði, þar sem hann bjó reyndar ekki nema 3 vikur. — Hvenær hófst þú sjálfstæð- an búskap? — Það var árið 1945, sem ég hóf sjálfstæðan búskap, þá í Bakkagerði í Svarfaðardal þar sem ég bjó I tvö ár. Síðan fluttist ég hingað og för að búa á móti Magnúsi tengdaföður minum. — Þú hefur byrjað smátt, var það ekki? — Jú, ég byrjaði smátt, enda var Bakkagerði lítil jörð. Lik- lega hef ég verið með 4—5 kýr og 30 kindur. Núna er ég með 23 mjólkandi kýr og 18 geld- neyti og 140—50 kindur. En krakkarnir eiga eitthvað af þeim. Þau verða öll að eiga kindur. Annars höfum við verið tveir saman um félagsbú, ég og sonur miinn. Ég stjórna því þó þar sem hann vinnur annars staðar. — Er ekki mikil vinna við svona stórt bú ? -— Það er auðvitað mikil vinna við svona bú, sérstaklega þegar góð táð er, þá verður maður að skrúfa sig. En maður er vanur ýmsu. Það segir sig sjálft að vinnan er mikil, þegar maður er fáldðaður, en ég er einn við þetta ásamt 19 ára gamalli dóttur minni og 13 ára gömlum strák úr Reykjavík. Sjálfur smitaðist ég af berklum og var skorinn upp og tekin úr mér 7 rifbein þannig að ég er ekki nema hálf- ur maður. Eiginlega þyrfti ég eina dráttarvél til viðbótar við þær tvær, sem fyrir eru, en mig vantar bara hausa. —- Er betra að búa nú, en um það leyti, sem þú varst að byrja? — Jú, það er betra að búa nú en þegar ég byrjaði. Þá voru þó uppgangstímar og afkoma ágæt vegna stríðsins. Nú eru komin svo mikil þægindi, en fyrsta dráttarvélin kom hingað í sveitina 45, eða árið sem ég fór að búa. — Ég hugsa að það sé betra að búa nú efnalega séð. En nú eru kröfurnar svo miklu meiri, fólk þarf orðið svo miklu meira en áður. Fátækt þekkist ekki nú, miðað við það þegar ég var að alast upp, en fólk var þó ánægt, það sem ég þekkti til. — Er ekki litið um ungt fólk hér í sveitinni, sem er að byrja búskap? — Það má nú segja, að það sé ekki margt ungt fólk við bú skap hér. Það er þó alltaf eitt- hvað af ungu fólki, sem vill búa, en ég heid að meðalaldur bænda hér í sveitinni sé nokkuð hár. Ford Cortina Mest seldi bíll Bretlands ÞRÁTT fyrir misjafnar viðtök ur i upphafi var Ford Cortina orðin mest seldi bíll Bretlands aðeins einu ári eftiir að hún kom fyrst fram. Með Cortin- unni kom fram rennilegur blll, rúmgóður og ti'ltölulega ódýr. Sem sagt mjög hentugur fjölskyldubíll. Cortinan er fá- anleg tveggja eða fjögurra dyra og afturbyggð. Vélarnar eru 1300 eða 1600 rúmsm. Verð ið er frá 430 þús. kr. með minni vélinni en frá 455 þús. kr. með þeirri stærri. Með 1298 rúmsm vélinni sem er 57 hestöfl (DIN) með þjöpp unarhiutfall 9,01:1 er við- bragðið 0—100 km/klst. um 22 sekúndur og hámarkshraðinn rúml. 130 km/klst. 1 1599 rúm- sm vélinni er þjöppunarhlut- fallið það sama á venjulegu bílunum en 9,2:1 í GT gerðun- um. Ford Cortina 1600 GT er 88 hestöfl en venjulegu 1600 gerðirnar eru 68 hestöfl. Bens ineyðslan er frá 9—10 1/100 km. Loftræstingin í Cortinunni er ekki mjög kraftmikil en hitakerfið er aftur á móti ágætt.' Hávaðinn frá hitakerf- inu jafnvel þegar það er á full um krafti, er lítill og sarna má segja um hávaða aimennt í bilnum á ferð. Nokkur hvinur heyrist þó frá gírkassanum. Gírskiptingar eru eins og í minni Ford bílunum mjög létt ar og nákvæmar. Ástig á kúplings- og bremsu pedala er mjög létt. Aksturs- aðstaðan er góð, a. m. k. með- an ökumaðuriinn er ekki of stór. En yfir eitt tonn að þyngd er Cortinan ekkert tryllitæki og þykir nokkuð höst. Gott rúm er fyrir fimm farþega og farangursgeymsl- an er áilstór. Diskabremsur eru að fram- an á öllum gerðunum en skál ar að aftan. Bíllinn er lipur I akstri. Frágangur að innan er ekki mjög vandaður. Plastkennd áklæði á sætum, í hdiðum og lofti. Mælarnir eru felldir ó- þarflega djúpt inn í mæCaborð ið og eru svo lágt að mörg- um finnst erfitt að lesa á þá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.