Morgunblaðið - 04.08.1973, Side 16

Morgunblaðið - 04.08.1973, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1973 IHiwguttMaMfe Útgefandl Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúl Fréttastjórl Auglýsingastjóri Ritstjóri og afgreiSsla Auglýsingar Askriftargjald 300,00 kr. hf. Arvakur, Reykjavlk. Haraldur Sveinsson. Matthlas Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Arni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, slmi 10-100. Aðalstræti 6, sfmi 22-4-80. á mánuði innanlands. I lausasðlu 18,00 kr. alntakið. notið forgangs í sumar. í sam ræmi við þá mörkuðu stefnu Birgis ísl. Gunnarssonar, borgarstjóra, að leggja vax- andi áherzlu á umhverfismál af ýmsu tagi, hefur hann nú beitt sér fyrir því, að tilraun verði gerð með Austurstræti sem göngugötu. Verður Aust- urstræti lokað fyrir bílaum- ferð um tveggja mánaða skeið frá 12. ágúst n.k. Slíkar göngugötur tíðkast mjög í stórborgum erlendis. Bezt „GRÆN BYLTING“ I B0RGINNI Ij’kki þarf að fara mörgum orðum um þá umbyltingu, sem orðið hefur á öllum svið- um í höfuðborginni á sl. ára- tug eða svo. Þær breytingar eru öllum kunnar. Þar, sem áður voru rykugar malargöt- ur eru nú malbikuð breið- stræti, nær öll hús í höfuð- borginni eru nú hituð upp með hitaveitu, sem er mun ódýrari en olíukynding, stór- átak hefur verið gert í skipu- lagsmálum og ný og glæsileg borgarhverfi risið af grunni. Reykjavík hefur gerbreytt um svip. í beinu framhaldi af þeim gífurlegu framkvæmdum, sem verið hafa við gatna- gerð, hitaveitu og í skipu- lagsmálum, hefur Birgir ísl. Gunnarsson, borgarstjóri. lagt megináherzlu á, að opin svæði í borginni verði snyrt og löguð svo að borgarbúar eigi þess kost í ríkari mæli en verið hefur að njóta úti- vistar á grænum svæðum í borginni í þægilegu og fali- egú umhverfi. Er óhætt að fullyrða, að aldrei hefur jafn mikið verið gert á jafn stutt- um tíma í að fegra borgar- landið eins og á þessu sumri, enda var það fyrsta verk nú- verandi borgarstjóra að óska eftir því við helztu samstarfs menn sína, að gerð yrði heild aráætlun um fegrun og snyrt ingr opinna svæða í borg- inni. Er það verk nú komið vel á veg en jafnframt hafa framkvæmdir á þessu sviði þekkja íslendingar Strikið í Kaupmannahöfn en í öðrum borgum eru einnig mjög fall- egar og skemmtilegar göngu götur eins og t.d. í Múnchen. Hvarvetna hefur það gefizi mjög vel að koma upp slíkum göngugötum ekki sízt fyrir þær verzlanir, sem að þeim liggja. Fróðlegt verður að fylgjast með þessari tilraun en líklegt má telja, að þegar Austurstræti hefur verið lok- að fyrir bílaumferð verði fá- ir talsmenn þess, að það verði opnað aftur. Borgarstjórinn í Reykjavík hefur tekið skemmtilegt frumkvæði í þessu máli og engin efi er á því, að sú stefna hans að leggja megin- áherzlu á fegrun borgar- landsins og að bæta aðstöðu borgarbúa til útivistar á miklu fylgi að fagna meðal borgarbúa. Með styttri vinnu tíma, sívaxandi tómstundum og auknum peningaráðum fólks, er nauðsynlegt að stjórnvöld búi í haginn fyrir borgarana til þess að eyða fristundum sínum við holla útivist. Mörg verkefni bíða í þeim efnum, m.a. að skipu- leggja útivistarsvæði fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins að vetrarlagi en í auknum mæli sækir fólk út fyrir höf- uðborgina á góðviðrisdögum um vetur til þess að iðka skíðaíþrótt og njóta fjalla- loftsins. Þarna bíður verk- efni, sem Reykjavíkurborg mun fást við á næstu árum. Óeðlileg vinnubrögð Ágreiningur varð í stjórn Landsvirkjunar í fyrra- dag um það, hvaða tilboði ætti að taka í vélar og raf- búnað Sigölduvirkjunar. Þrír fulltrúar i stjórn Landsvirkj- unar, þeir Birgir ísl. Gunn- arsson, borgarstjóri, Árni Grétar Finnsson, hrl., og Geir Hallgrímsson, alþm., skiluðu séráliti og töldu ekki rétt að taka tilboði þýzk-sovézks að- ila, sem meirihluti Lands- virkjunarstjórnar ákvað að taka að tillögu ráðunauta, sem eru svissneskir og ís- lenzkir. í séráliti hinna þriggja stjórnarmanna Landsvirkj- unar kemur fram, að eftir að tilboðsfrestur var útrunninn hefur hinum þýzk-sovézka tilboðsaðila verið gefinn kost- ur á að breyta tilboð sínu. Um þetta segir í sérálitinu: „Mjög verður að átelja þau vinnubrögð að taka á móti slíkum breytingum eftir á, hvort sem eru tæknilegar eða fjárhagslegar. Slík vinnu- brögð eru ekki sæmandi, þeg- ar um almennt samkeppnis- útboð er að ræða. Ef heimila á breytingar verða allir bjóð- endur að sitja við sama borð og er óeðlilegt að gefa bjóð- endum kost á að bjóða hver niður fyrir annan á mismun- andi tímum.“ Vinnubrögð í þessu máli og einnig er vélar voru valdar í Lagarfossvirkjun vekja upp spurningar um það, hvort annarleg sjónarmið ráði ferð- inni að einhverju leyti hjá núverandi stjórnarvöldum. — Það er auðvitað óþarfi að standa að málum á þann veg að slík gagnrýni komi upp. Landsvirkjunarstjórn er sjálfstæður aðili, sem á að taka sjálfstæðar ákvarðanir. Ákvörðun meirihluta Lands- virkjunarstjórnar í þessu máli benda ekki til þess, að sú starfsregla hafi verið höfð í heiðri. Gudlaujgur Gíslason, alþm.: „Aftur heim til Eyja“ „AFTUR heim til Eyja“ var heiti á umræðuþættt í útvarpinu 25. júlí sl. og fjaHaði hann að sjálfsögðu um möguleika og aðstöðu Vestmannaey- inga til að flytjast aftur til síns heima. Ekki verður sagt, að þátturinn hafi veitt Vestmannaeyingum miklar upplýsingar um fyrirætlanir ráða- manna byggðarlagsins í þessu sam- bandi sem þó hefði verið full ástæða ttl. Á fundi bæjarstjórnar Vestmanna- eyja, sem haldinn var hér i Reykja- vik hiinn 20. júlí s_. lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram all ítar- lega og stefnumarkandi tillögu um afstöðu og nauðsyniegar ráðstafan- ir bæjarstjórnar í sambandi við fyr- irhugaðan heimflutning Vestmanna- eyinga. Var tillagan rædd ítarlega og síðan samþykkt sem ályktun bæj- arstjómar með atkvæðum allra við- staddra bæjarfulltrúa. Ályktunin hljóðar þannig: „Vegna hins breytta viðhorfs, eftir að jarðfræðingar hafa lýst yfir að gosið á Heimaey sé um garð geng- ið samþykkir bæjarstjóm að gera fyrir sitt leyti og leggja áherzlu á nauðsynlegar ráðstafanir til að byggð geti með sem eðlilegustum hætti sem fyrst hafizt á ný x Vestmannaeyj- um. Samþykkir bæjarstjóm í þessu sambandi eftirfarandi: 1) Að fela rafveitustjóra, bæjar- stjóra og bæjarráði að eiga viðræð- ur við forráðamenn Rafveitna ríkis- ins og fá endanlegar niðurstöður á þvi hvenær flutningur raforku eftir sæstrengnum geti aftur hafizt, þann- ig að eigendur atvinnutækja i Eyj- um geti miðað áætlanir sínar og að- gerðir um að hefja atvinnurekstur að nýju við þær niðurstöður. 2) Að fela bæjarstjóra og bæjar- ráði að hefja nú þegar viðræður við stjórn Viðlagasjóðs um að bæjar- stjórn hafi forgöngu um aðgerðir til að veita holræsakerfi bæjarins inn fyrir Eiða og kanna í þvi sam- bandi hvort ekki megi nota við þess- ar framkvæmdir efni það, leiðslur og dælur, sem fyrirli-ggjandi eru í Eyjum og notaðar voru við hraun- kælinguna. Fjárhagshlið málsins verði einnig rædd við Viðlagasjóð. 3) Að bæjarstjóra og bæjárráði verði falið í samræmi við samþykkt bæjarráðs frá 2. júlí sl., 4. lið, að taka að nýju í umsjá bæjarstjórnar þær stofnar.ir bæjarins, sem eru og verið hafa starfandi í Eyjum og koma á stofn öðrum fyrirgreiðslu- stofnunum, sem áður voru starfandi á vegum bæjarins og nauðsyniegt er talið að opnaðar verði á ný mið- að við aðstæður eins og eru i dag og að atvinnurekstur muni í ein- hverjum mæli hefjast á næstu mán- uðum og í vaxandi mæli á næstu vetrarvertíð, þannig að fólk, sem treystir sér til að flytja til Eyja og taka þar til starfa, eigi kost á nauð- synlegri opinberri fyrirgreiðslu frá hendi bæjarstjórnar. 4) Að bæjarstjórn beiti sér fyrir að önnur þjónustufyrirtæki hefji sem fyrst starfsemi á ný í Eyjum og að komið verði á eðlilegrj félagsmála- starfsemi í eins ríkum mæli pg kost- ur er á og nauðsynlegt er talið mið- að við aðstæður á hverjum tíma. 5) Að bæjarstjórn taki þegar upp viðræður við stjóx-nvöld um bygg- ingu Vestmannaeyjaskips á grund- Guðlaugur Gislason aðrar nefndar um samgöngumál Vestmannaeyinga." Ei-ns og fyrr segir er hér um ein- róma ályktun bæjarstjórnar að ræða og ætti þvi hvorki bæjarstjóri né aðrir, sem eru launaðir til að koma ályktunum bæjaretjórnar í fram- kvæmd að vera í nokkrum vafa um hvemig þeim ber að haga starfi sínu á næstu mánuðum og er vonandi að þeir láti hendur standa fram úr erm- um því frumskilyrði er að sköpuð sé aðstaða, þjónustulega og félagslega séð fyrir það fólk, sem heim vill flytjast, og ekki ætti það að draga úr nauðsyninni á að hraða þessum aðgerðum, að bæjarstjóri hefur „reiknað út“ og birt í fjölmiðlum, að um 1200 manns muni flytjast heim nú á þessu hausti. HRAÐA BER UPPBYGGINGUNNI — BÁTAFLOTINN VERÐUR AÐ FÁ LÖNDUN ARAÐSTÖÐU Það sem herðir mest á eftir með að hraða uppbyggiingunnd er nauð- synin á að skapa bátaflotanum lönd- unaraðstöðu í Eyjum þegar á þessu veUi álits pg niðurstaða þingskip- ihaustt og aiveg sérstaklega á vetrarvertið. Því, ef það gerist ekki, getur vissulega mikið tjón af hlot- izt. Vestmannaeyjaflotinn var á síð- ustu vertið dreifður á hinar ýmsu hafnir á Reykjanessvæðinu og þó reyndar víðar. Voru hinar stærri hafnir, sem flotinn leitaði til, Þor- lákshöfn og Grindavík af eðlilegum ástæðum alls ekki við þvi búnar að taka fyrirvaralaust við þeim flota, sem þangað leitaði, og fór þó betur en á horfðist, sem stafaði að mjög verulegu leyti af hagstæðri veðráttu síðari hluta vertiðar, er mest á reyndi á um löndunaraðstöðu. Litl- ar sem engar hafnarbætur hafa í sumar átt sér stað á tvei-mur fram- angreindum stöðum og væri það vissulega að freista gæfunnar um of, að treysta á að löndun Vestmanna eyjaflotans geti gengið ei-ns greið- lega í höfnum hér á Reykjanes- svæðinu á komandi vertíð eins og hann þó gerði á síðasta vetri. Það er því ekki einasta hagur Vest mannaeyinga heldur þjóðarinnar i heild, að Vestmannaeyjabátarnir geti landað í heimahöfn sinni á næstu vertíð. Höfnin í Eyjum er i dag betri en hún hefur áður verið og því meiri likur fyrir, að Vestmannaeyja- flotinn skili þjóðarbúinu enn meiri arði en hingað til, ef hann þegar á næstu vertíð getur stundað sín heima mið með löndunaraðstöðu í Eyjum. En til þess að svo megi verða þarf nokkuð af fólki að flytjast til Eyja nú í haust og fyrrihluta næsta árs. Vel má vera að þvi fylgi ein- hverjir annmarkar miðað við það sem áður var, en ég er sannfærður um, að þeir, sem þegar hafa tekið þessa ákvörðun, gera sér fulla greln íyrir þessu, en vonandi fer það svo að nokkuð vegi þar á móti, að hin erfiða búsetuaðstaða og sú marg- víslega reynsla, sem margir Vest- marmaeyingar hafa orðið fyrir í vet- ur, skapi meðal manna nánari tengsl og sterkari samstöðu en áður var og annars staðar almennt gerist. HÚSNÆDISMÁL I EY-IUM Inn í umræðurnar um heimflutn- næstu . i Framhald á b!s. 29

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.